Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Qupperneq 49
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996
73
Afmæli
Hjálmar W.
Hannesson
Hjalmar W. Hannesson sendi-
herra íslands í Kíná, verður
fimmtugur á föstudaginn langa.
Starfsferill
Hjálmar fæddist í Reykjavík og
ólst upp jöfnum höndum í for-
eldrahúsum og hjá ömmu sinni í
móðurætt og seinni manni henn-
ar, Sveini Helgasyni yfirprentara.
Hjálmar lauk kennaraprófi
1966, BA-prófi í sögu og stjóm-
málafræði frá ríkisháskólanum í
Norður-Karólínu 1968 og MA-prófi
þaðan 1969.
Hjálmar kenndi við Chapel Hill
High School, við KÍ 1969-71, við
MR 1969-76, var aðjúnkt í þjóðfé-
lagsfræði við HÍ 1971-73, fulltrúi í
utanríkisráðuneytinu 1976, sendi-
ráðsritari í Brussel 1977 og í
Stokkhólmi 1980, sendiráðunautur
frá 1981, skipaður sendifulltrúi
1985 og sendiherra í afvopnunar-
málum og málefnum RÖSE frá
1988, sendiherra í Sambandslýð-
veldinu Þýskalandi frá 1989 og í
Þýska alþýðulýðveldinu 1990, jafn-
framt sendiherra í Austurríki,
Grikklandi, Sviss, Ungverjalandi
og Liechtenstein og auk þess
fastafulltrúi RÖSE í Vín, og er
fyrsti sendiherra íslands í Kína
með búsettu í Peking frá ársbyrj-
un 1995.
Hjálmar skrifaði kennslubókina
íslenska ríkið, útg. 1977 og 1982,
og þýddi, ásamt öðrum, kennslu-
bókina Felagsfræði, eftu- W.
Aubert. Hann sat á allsherjarþingi
Sþ 1976 og á aukaþingi þess um
afvopnunarmál 1988, var fyrsti
formaður Framfarafélags Breið-
holts III 1973-74 og var í fimmta
sæti á framboðslista Framsóknar-
flokksins 1974.
Hjálmar hefur verið sæmdur
riddarakrossi Hinnar íslensku
Fálkaorðu 1981, stórkrossi þýsku
þjónustuorðunnar, stórkrossi
austurrísku gullnu heiðurorðunn-
ar, stórriddarakrossi sænsku
Norðstjörnunnar, stórriddara-
krossi finnsku Ljónsorðunnar,
riddarakrossi finnsku Hvítu rós-
arinnar og riddarakrossi belgísku
Krúnuorðunnar.
Fjölskylda
Hjálmar kvæntist 7.4. 1966
Önnu Birgis, f. 11.1. 1946, sendi-
herrafrú. Hún er dóttir Birgis
Einarssonar, cand.phil. og bókara
sem lést 1971, og Huldu Jónsdótt-
ur húsmóður.
Börn Hjálmars og Önnu eru
Hannes Birgir, f. 1.6. 1963, BA og
MA í alþjóðastjórnmálum, í fram-
haldsnámi í Brussel, kvæntur
Höllu Arnardóttur hjúkrunarfræð-
ingi og eru börn þeirra Halla
Kristín og Hjálmar Örn; Sveinn
Kristinn, f. 22.6. 1971, BA í við-
skiptafræði; Anna Karin, f. 1.3.
1976 nemi í fjölmiðlafræði við
James Madison háskólann í Virg-
iníu.
Systkini Hjálmars: María Inga,
f. 30.5. 1950, kennari; Jón Halldór,
f. 22.5. 1952, heimspekingur, bóndi
og kennari; Kristín Hanna, f. 5.9.
1956, hjúkrunarfræðingur; Jakob
Bragi, f. 5.9. 1956, kennari; Karin
Elísabet, f. 1.1. 1960, fóstra; Guð-
mundur Hannes, f. 25.3. 1965,
nemi við HÍ.
Foreldrar Hjálmars: Hannes
Jónsson, f. 20.10. 1922, fyrrv.
sendiherra, og Karin W. Hjálm-
arsdóttir, f. 16.8.1926, húsmóðir.
Ætt
Hannes er sonur Jóns, b. á
Bakka í Ölfusi Guðmundssonar,
b. í Gerðakoti, bróður Ingibjargar,
ömmu Gunnars Jónssonar, dr. í
lögfræði. Guðmundar var sonur
Jóns Jónssonar, b. í Móakoti,
bróður Ingibjargar, ömmu Karls
Guðjónssonar alþm. og fræðslu-
stjóra. Móðir Guðmundar var Val-
gerður, systir Margrétar, ömmu
Sigurðar Þórðarsonar tónskálds.
Móðir Jóns á Bakka var Herdís,
systir Guðlaugar, ömmu Jónasar
Svafár atómskálds. Herdís var
dóttir Hannesar, b. á Hjalla Guð-
mundssonar.
Móðir Hannesar sendiherra var
María Hannesdóttir, skipstjóra í
Stykkishólmi, bróður Guðrúnar,
langömmu Þorsteins Geirssonar
ráðuneytisstjóra. Hannes var son-
ur Andrésar, sjómanns í Saurlátri
Andréssonar, b. í Knarrarhöfn,
bróður Steinunnar, langömmu
Gunnars, föður Árna, fyrrv.
alþm.. Andrés var sonur Hannes-
ar, b. i Knarrarhöfn, bróður
Brynjólfs, langafa Sigurbjargar,
langömmu Svavars Gestssonar
alþm., og ömmu Friðjóns Þórðar-
sonar ráðherra, föður Þórðar, for-
stjóra Þjóðhagsstofnunar. Hannes
var sonur Andrésar, b. á Á á
Skarðsströnd Hannessonar. Móðir
Andrésar var Ingibjörg Jónsdótt-
ir, systir Þórdísar, langömmu
Jóns forseta. Móðir Hannesar
skipstjóra var Guðný, systir Ingi-
bjargar, langömmu Ingibjargar,
langömmu Guðlaugs Tryggva
Karlssonar hagfræðings. Móðir
Maríu var Jóhanna Þórunn
Jónasardóttir, b. á Helgafelli Sig-
urðssonar, og Ástríðar Þorsteins-
dóttir.
Karin er systir Árna Waag, föð-
ur Hjálmars alþm.. Karin var
dóttir Hjálmars Waag, skólastjóra
í Klakksvík í Færeyjum sem lést
ungur, bróður Einars Waag, stofn-
anda og forstjóra Föröjabjór.
Móðir Karinar var Kristín
Árnadóttir, prófasts á Stóra-
Hrauni Þórarinssonar, á Eyrar-
bakka Árnasonar, b. á Klasbarða
Jónssonar. Móðir Þórarins var
Jórunn, systir Tómasar Fjölnis-
manns, afa Jóns Helgasonar bisk-
ups og Tómasar læknis, afa Rag-
hildar Helgadóttur, fyrrv. ráð-
herra. Jórunn var dóttir Sæmund-
Hjálmar W. Hannesson.
ar, b. í Eyvindarholti Ögmunds-
sonar, prests á Krossi, bróður
Böðvars, langafa Þuríðar,
langömmu Vigdísar forseta. Ög-
mundur var sonur Presta-Högna
Sigurðssonar. Móöir Sæmundar
var Salvör Sigurðardóttir, systir
Jóns, afa Jóns forseta. Móðir
Árna prófasts var Ingunn, systir
Helga, afa Ásmundar Guðmunds-
sonar biskups. Ingunn var dóttir
Magnúsar, alþm. í Syðra-Lang-
holti Andréssonar og Katrínar Ei-
ríksdóttur, ættföður Reykjaættar-
innar Vigfússonar. Móðir Kristín-
ar var Anna Elísabet Sigurðar-
dóttir, hreppstjóra í Syðra-Skógar-
nesi Kristjánssonar og Guðríðar
Magnúsdóttur.
Anna, kona Hjálmars varð
fimmtug 11.1. s.l.. í tilefni afmæl-
anna og þrjátíu ára brúðkaupsaf-
mælis taka sendiherrahjónin á
móti gestum í Rúgbrauðsgerðinni,
Borgartúni 6, laugardaginn 6.4. kl.
17.00 og 19.00.
Brynjólfur Sævar Hilmisson
Brynjólfur Sævar Hilmisson
vinnuvélastjóri, Kambahrauni 6,
Hveragerði, er fertugur í dag.
Starfsferill
Brynjólfúr fæddist í Hveragerði
og ólst þar upp. Hann hefur búið
þar lengst af, að undanskildum 10
árum er hann bjó í Stóra- Dal
undir Vestur-Eyjafjöllum. Brynj-
ólfur lauk grunnskólaprófi frá
Grunnskóla Hveragerðis og hefur
lengst af starfað á vinnuvélum.
Hann rekur nú eigin vélaleigu.
Fjölskylda
Brynjólfur er kvæntur Önnu
Viktoríu Högnadóttur, f. 31.7.
1943, starfsmanni í jjvottahúsi
Dvalarheimilisins Ass/Ásbyrgis í
Hveragerði. Hún er dóttir Högna
Kristóferssonar, fyrrum b. í Mið-
dal í V- Eyjafjallahreppi, og Anny
Hermansen. Þau eru bæði látin.
Börn Brynjólfs og Anny eru:
Hulda Vigdís, f. 28.12. 1972, í sam-
búð með Eyþóri Gíslasyni og eiga
þau dótturina írisi. f. 14.9. 1995; og
Ámi Ágúst, f. 21.10. 1975, sem á
soninn Daníel Ágúst, f. 4.5. 1995.
Systkini Brynjólfs eru: Erlend-
ur, f. 9.5.1952, rafvirkjameistari í
Hveragerði; Hólmfríður, f. 31.3.
1953, skrifstofumaður í Reykjavík;
Björg, f. 8.5. 1954, organisti og
skrifstofumaður í Hveragerði; Júl-
íana Sigurbjörg, f. 2.7. 1958, leik-
skólakennari í Hveragerði; og
Harpa, f. 13.4. 1972, skrifstofumað-
ur í Reykjavík.
Faðir Brynjólfs er Hilmir Hin-
riksson, f. 31.3. 1932, starfsmaður
Garðyrkjuskóla ríkisins. Móðir
hans var Hulda Sveinsdóttir, f.
30.1. 1932 d. 19.8. 1992, sjúkraliði.
Þau bjuggu lengst af í Hveragerði
þar sem Hilmir býr í dag.
Brynjólfur Sævar Hilmisson.
Tll hamingju með
afmælið 7. apríl
85 ára
Hörður Runólfsson,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Guðrún Guðbjamadóttir,
Hlíf II, Torfunesi, ísafirði.
75 ára
Ebba Bergsveinsdóttir,
Fellsmúla 18, Reykjavík.
Margrét Ólafsdóttir,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík.
Halldóra Sigurjónsdóttir,
Ásvallagötu 1, Reykjavík.
70 ára
Sigrún Pálsdóttir,
Svínafelli I, Austurbæ, Hofs-
hreppi.
60 ára
Sigurður Guðmundur Lárus-
son,
Borgarholtsbraut 20, Kópavogi.
Reynir Jónsson,
Gmndargötu 7, Akureyri.
Helga Helgadóttir,
Álfaskeiði 102, Hafnarfirði.
50 ára
Margrét Lovísa Jónsdóttir,
Þrúðvangi 10, Hafnarfirði.
Jón Klemensson,
Hrannarbyggð 8, Ólafsfiröi.
Hlíf Hjálmarsdóttir,
Hagaseli 7, Reykjavík.
Stefán Þór Þórsson,
Laugateigi 31, Reykjavík.
Rannveig Þorvaldsdóttir,
Furugrund 71, Kópavogi.
Gylfi Haraldsson,
Launrétt 2, Biskupstungnahreppi.
40 ára
Skúli Björnsson,
Fjósakambi 14, Vallahreppi.
Ólafur Jóhannes Gunnarsson,
Snorrabraut 56, Reykjavík.
Jón Eiríkur Rafnsson,
Eyjabakka 18, Reykjavík.
Kristján Bjarnar Ólafsson,
Bárugranda 1, Reykjavík.
Sigmundur Ámundason,
Fellstúni 4, Sauðárkróki.
Anna Gyða Gunnlaugsdóttir,
Sjafnargötu 12, Reykjavík.
Ingibjörg Hafsteinsdóttir,
Vesturgötu 77, Akranesi.
Maria Kowalczyk,
Víkurtúni 13, Hólmavík.
Þóra Kristinsdóttir,
Silfurbraut 40, Höfn í Homafirði.
Hansina Hilmarsdóttir,
Móatúni 2, Tálknafirði.
Oddur Guöjón Pétursson,
Vatnsstíg 9a, Reykjavík.
Ragnheiður H. Gústafsdóttir,
Fífúrima 44, Reykjavík.
Rolf Erik Hansson,
Grundarlandi 23, Reykjavík.
Ragnheiður Þórarinsdóttir,
Túngötu 14, Eyrarbakka.
Huld Ingimarsdóttir,
Fúrubyggð 11, Mosfellsbæ.
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Bergþórugötu 9, Reykjavík.
Barbara Jadwiga Greszko,
Heimabæ 4, Hnífsdal.
Margrét Guðlaugsdóttir
Margrét Guðlaugsdóttir dag-
móðir, Mávahlíð 6, Reykjavík,
verður fimmtug á laugardaginn.
Starfsferill
Margrét fæddist í Mjóadal, Lax-
árdal, A-Húnavatnssýslu. Hún ólst
upp i Mjóadal og á Æsustöðum í
Langadal en fluttist með móöur
sinni og systkinum til Reykjavík-
ur árið 1959.
Margrét er gagnfræðingur frá
Lindargötuskólanum í Reykjavík.
Hún starfaði lengi við verslunar-
og skrifstofustörf hjá Silla og
Valda og í versluninni Víöi í
Austurstræti. Árið 1979 gerðist
hún dagmóðir og hefur starfað við
það síðan.
Fjölskylda
Margrét er gift Guðmundi
Ágústi Aðalsteinssyni, f. 30.9. 1945,
leigubifreiðastjóra. Hann er sonur
Aðalsteins Grímssonar og Annýj-
ar Bichoff sem nú er látin.
Börn Margrétar eru: Soffía
Anna, f. 13.11. 1965, hjúkrunar-
fræðingur, búsett í Reykjavík.
Dóttir hennar er Margrét Sif
Guðnadóttir, f. 5.5. 1992; Steinar
Birgir, f. 22.8.1970, íþróttakennari
í námi í næringarfræðum í
Bandaríkjunum. Sambýliskona
hans er Carola Marie Frank, f.
17.10. 1969, íþróttafræðingur; Ólöf
Birna, f. 31.5. 1980, nemi i Hlíða-
skóla.
Systkini Margrétar eru: Guö-
mundur Marinó, f. 18.8.1939, verk-
fræðingur, búsettur á Akureyri;
Gunnar, f. 27.1.1941, vörubifreiða-
stjóri, búsettm- í Reykjavík; Pétur
Hafsteinn, f. 21.12.1941, viðgerðar-
maður, búsettur í Reykjavík;
Ásólfur Geir, f. 3.2. 1943, húsvörð-
ur, búsettur á Árskógssandi; Sig-
rún, f. 17.7. 1948, húsmóðir, búsett
Margrét Guðlaugsdóttir.
i Reykjavík.
Foreldrar Margrétar voru Guð-
laugur Pétursson, f. 15.12.1913 d.
11.5. 1987, verslunarmaður í Hafn-
arfirði, og Sofiía Ólafsdóttir, f.
29.8. 1917, d. 30.8. 1985, húsmóðir
og verkakona, en þau skildu.
Margrét verður stödd hjá syni
sínum í Bandaríkjunum á afmæl-
isdaginn.
111 hamingju með afmælið 3. apríl
90 ára
Eiríkur Baldvinsson,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
85 ára
Stefanía Brynjólfsdóttir,
Hrísalundi 16c, Akureyri.
80 ára_______________________
Geir Ófeigsson,
Næfurholti, Rangárvallahreppi.
Bjarni Guðmundsson,
Akursbraut 22, Akranesi.
75 ára
Halldór V. Jóhannsson,
Akraseli 15, Reykjavík.
Alf Magnús överby,
Hlíðarvegi 51, ísafirði.
70 ára
Jón G. Guðlaugsson,
Hafnarstræti 23, Akureyri.
Dagný Þorsteinsdóttir,
Höfðavegi 17, Vestmannaeyjum.
60 ára
Guðmundur Rúnar Einarsson,
Reykjaflöt, Hrunamannahreppi.
Erla Sigurjónsdóttir,
Engihjalla 1, Kópavogi.
Jenný Marta Kjartansdóttir,
Blönduhlíð 3, Reykjavík.
50 ára
Hka María Petrova Benkova,
Bergþórugötu 15a, Reykjavík.
Sigríður Skarphéðinsdóttir,
Harrastööum, Haukadalshreppi.
Sigurður Harðarson,
Ægisíðu 68, Reykjavík.
Arndís Gunnarsdóttir,
Selbraut 74, Seltjarnamesi.
40 ára
Hanna Rúna Vigfusdóttir,
Snælandi 3, Reykjavík.
Ólöf Ásta Jónsdóttir,
Dalatúni 5, Sauðárkróki.
Andrés Reynir Ingólfsson,
Sviöholtsvör 4, Bessastaöahreppi.
Karólina G. Bjarnadóttir,
Suðurhólum 28, Reykjavík.