Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Page 11
FöSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
11
Fréttir
Fræðslumiðstöð Reykjavikur tekin til starfa:
Ein af stærstu
starfseiningum landsins
- segir Gerður Óskarsdóttir fræðslustjóri
„Fræðslumiðstöðin verður ein af
stærstu starfseiningum landsins
með um 2.200 starfsmenn og fjár-
magnsveltu upp á um 5 milljarða
króna sem nemur þriðjungi af fjár-
hagsáætlun borgarinnar. Hún mun
þjóna um 40 menntastofnunum, þar
af eru 30 almennir grunnskólar, 5
sérskólar og nokkrar aðrar fræðslu-
stofnanir. Auk þess mun Fræðslu-
miðstöðin sinna samskiptum við
framhaldsskóla í borginni og einka-
skóla sem borgin styrkir, t.d. tón-
listarskóla," sagði Gerður Óskars-
dóttir, fræðslustjóri Reykjavíkur-
borgar, á blaðamannafundi í Mið-
bæjarskólanum í fyrradag.
Þar var rætt um hina nýju
Fræðslumiðstöð borgarinnar sem
tók til starfa i gær í kjölfar flutnings
grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga.
Fræðslumiðstöðin verður til húsa í
Miðbæjarskólanum og nú er unnið
að viðhalds- og endurnýjunarverk-
efnum í húsinu, sem er 98 ára gam-
alt.
„Þetta er ansi stórt og mikið um-
fang. f þessum 30 grunnskólum eru
14 þúsund nemendur sem eru um
þriðjungur allra grunnskólanem-
enda í landinu'og meginverkefni
Fræðslumiðstöðvarinnar verður á
sviði grunnskóla. Þessi nýskipan
gefur borginni tækifæri til þess að
stýra þróun grunnskólastarfsins
með heildstæðum hætti. Unnið er
að áætlun um einsetningu allra
grunnskóla Reykjavíkur fyrir árið
2003.
í haust verður hafist handa um
skipulag á lengdum og samfelldum
vinnudegi fyrir nemendur. Stefnt er
að því að bæta við vikulegan
stundafjölda bekkja á næstu árum,
Hin nýja 10-11 verslun sem opn-
uö verður í Grafarvogi.
10-11
opnað í
Grafarvogi
í dag verður opnuð ný 10-11
verslun að Sporhömrum 3 í Graf-
arvogi. Verslunin er hefðhundin
10-11 verslun og verður opin alla
daga vikunnar frá klukkan 10-23.
í tilefni opnunarinnar verða ýms-
ar vörur á tilboðsverði, vöru-
kynning og viðskiptavinum boð-
ið upp á kafli og kökur. Þá fá öll
börn íspinna og grillveisla veður
bæði á fostudag og laugardag.
-RR
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi
R-listans, og Gerður Óskarsdóttir
fræðslustjóri á blaðamannafundin-
um í Miöbæjarskólanum í gær. Þar
var rætt um hina nýstofnuðu
Fræðslumiðstöð borgarinnar sem
tók til starfa í gær. DV-mynd Pjetur
auk þess sem leitað verður eftir
samvinnu við ýmsa aðila sem sinna
tómstundastarfi og listnámi ungs
fólks,“ sagði Gerður.
-RR
Ráðgjafarstofu heimilanna lokað vegna sumarleyfa:
Fólk í fjárhagsvand-
ræðum getur ekki
leitað aðstoðar
„Það er mjög slæmt að þeir skuli
loka bara si svona. Ég hef verið í
gjaldþrotabasli og veit hreinlega
ekki hvert ég á að leita. Ég veit um
marga aðra sem eru illa staddir fjár-
hagslega og hafa reynt að leita á
Ráðgjafarskrifstofuna undanfarið
en verða að bíða fram til 19. ágúst
og þá gæti allt verið orðið of seint,“
segir ungur maður sem’ ekki vill
láta nafns síns getið. Hann ætlaði á
dögunum að leita til Ráðgjafarstofu
heimilanna vegna fjárhagserfiðleika
og yfirvofandi gjaldþrots en kom að
luktum dyrum. Ráðgjafarstofunni
hefur verið lokað vegna sumarleyfa
starfsfólks frá 22. júli tii 19. ágúst.
Ráðgjafarstofa heimilanna hefur
liðsinnt fólki sem er í fjárhagserfið-
leikum. Hún tók til starfa í febrúar
á þessu ári og á þeim tíma hafa
mjög margir leitað til hennar með
mál sín. Þar starfa að jafnaði fjórir
ráðgjafar en þeir hafa nú allir tekið
sér sumarfrí.
„Það er réttarhlé þannig að dóm-
stólar eru lokaðir á þessum tíma og
því taldi framkvæmdastjórn Ráð-
gjafarstofunnar skilvirkast að loka
henni á sama tíma. Það fólk sem
vinnur á Ráðgjafarstofunni verður
auðvitað að fá frí eins og annað fólk
og það er ekki hægt að ráða aðra í
staðinn því þetta er fámennur
vinnustaöur. Það eru fjölmargir
aðrir sem loka vegna sumarfría,
sérstaklega þegar um litlar einingar
er að ræða og því sé ég ekkert at-
hugavert við þetta. Við skiljum það
að fólki finnist erfitt að geta ekki
náð sambandi við Ráðgjafarstofuna
á þessúm tíma og það sýnir okkur
hve starfsemi hennar er mikilvæg,"
sagði Ingi Valur Jóhannsson, deild-
arstjóri hjá félagsmálaráðuneytinu,
við DV, aðspurður um málið.
-RR
NÁTTHAGI Garðplöntustöð
við Hvammsveg í Ölfusi Eigandi Ólafur Njálsson
198 teg. trjáa og runna til sölu í sumarbústaðalönd, skjólbelti,
berangurslega garða og skjólgóða garða. Landsins mesta úrval
alparósa (44 teg. og afbr.). Berjarunnar (10 teg. og afbr.), klifur-
plöntur (10 teg. og afbr.), runnamura (7 afbr.) og margt fleira.
Nýjar tegundir, t.d. skrautkirsuberjatré, eik, beyki, demantsvíðir,
þúfuvíðir og stjörnutoppur. Krúttleg dvergfura á aðeins 600 kr. stk.
Sími: 483 4840 • Fax: 483 4802 ♦ Opið: Alla daga kl. 10-19
Taktu þátt í spennandi maraþonleik og þú
getur átt von á glæsilegum vinningum. Það
eina sem þú þarft að gera er að svara
spurningunum hér að neðan og senda inn
svarseðilinn til DV og þú ert kominn í pottinn
Vikulega verða dregnir út 5 heppnir
vinningshafar sem fá fría skráningu í
Reykjavíkur maraþonið sem er þann
18. ágúst næstkomandi. Nöfn vinningshafa
munu birtast í Helgarblaði DV.
Föstudaglnn 16. ágúst verða
jafnframt dregnir út glæsllegir
vinnmgar:
k 3 íþróttagallar og bolir frá Mizuno
t 3 líkamsræktarkort frá líkams-
ræktarstöðinni Mætti
5 kassar af heilsudrykknum Aquarius
frá Vífilfelli
1 5 Barilla pastakörfur frá SS
2 pitsuveislur fyrir 3 frá Pizza 67
Sendu inn svarseðilinn núna 09 þú ert með í pottinum frá
byrjun. Þú getur sent inn eins marga seðla og þú vilt.
(Ekki er tekið við Ijósritum.) Utanáskriftin er: DV-maraþon,
Þverholti n, 105 Reykjavík.
Eftirtaldir hafa unnið sér inn fría skráningu í Reykjavíkur maraþoninu þann 18. ágúst nk.
Helga K. Björgólfsdóttir,
Crenigrund 14,
300 Akrines
Mekkín Daníelsdóttir,
Baldursgötu 13,
101 Reykjavík
Sigrún Ö. Siguríardóttir,
Lyngheiði 11,
810 Hverageríi
Edda Baldvinsdóttir,
Tunguseli 6,
109 Reykjavík
íris Edda Heimisdóttir,
Oddnýjarbraut 3,
24; SandgerSi
Vinningshafar eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Reykjavíkur maraþons
ius
irra
>9Sizina,
cwm $