Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Side 6
6 futlönd
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 JL>V
Ríkisstjórn Belgíu samþykkir nýjar reglur:
Sérstakur dómstóll ákvarð-
ar um reynslulausn
Ríkisstjórn Belgíu hefur sam-
þykkt að herða reglur um reynslu-
lausn dæmdra kynferðisafbrota-
manna úr fangelsi. Þjóðin er enn
slegin eftir að upp komst um klám-
hring sem leiddur var af nauðgaran-
um Marc Dutroix.
Dómsmálaráðherra Belgíu, Stefa-
an De Clerk, sagði á fréttamanna-
fundi í gær að stjómin hefði einnig
samþykkt að komið yrði upp sér-
stökum dómstóli sem tæki á beiðn-
um dæmdra kynferðisaíbrotamanna
um reynslulausn. Eins og málmn er
Nauögarinn Marc Dutroux var
náöaöur mörgum árum áöur en
dómi hans var fullnægt.
háttað nú er það dómsmálaráðherra
sem tekur slíkar ákvarðanir en þær
byggir hann á áliti saksóknara, fé-
lagsráðgjafa, sálfræðinga og starfs-
manna fangelsa. De Clerk sagöi að
dómsmálaráðherra myndi í framtíð-
inni ekki koma nálægt ákvörðunum
um reynslulausn kynferðisafbrota-
manna.
De Clerk sagði einnig að fórn-
arlömb kynferðislegrar misnotkun-
ar myndu fá meiri hjálp, kynferðis-
afbrotamenn yrðu meðhöndlaðir á
sérstökum stöðum og haft yrði
meira eftirlit með lausn þeirra.
Einnig sagði hann að unnið yrði að
hetra alþjóðlegu samstarfi milli lög-
reglusveita.
Forsætisráðherra Belgíu, Jean-
Luc Dehaene, sagði á fréttamanna-
fundinum að stjórnin myndi gera
allt sem í hennar valdi stæði til að
koma í veg fyrir að svona hörmuleg-
ir hlutir endurtækju sig. Hann sagði
að böm ættu skúið að eiga góða
bamæsku og að það yrði að vemda
þau og tryggja rétt þeirra.
Reuter
l stuttar fréttir
Fannst í Hollandi
Þýsk 10 ára stúlka, sem rænt
var í Þýskalandi á mánudag,
fannst í Hollandi í gær. Frænka
; hennar og nokkrir i félagi við
I hana voru handtekin, gmnuð
um að hafa rænt stúlkunni.
Ná ekki flakinu
Vandamál með tæki og
| tækjabúnað veldur því að erfið-
lega gengur að ná flaki Titanic
af hafsbotni. Búið var að hífa
f hluta af skipsskrokknum upp
| þegar tækin gáfu sig og hann
féll niður aftur.
Enn mikið veik
Móðir Ter-
esa, sem legið
hefur á
sjúkrahúsi
vegna hjart-
veiki og
malaríu, er
enn í gjör-
gæslu Flytja átti hana á al-
menna deild á fimmtudag en
líðan hennar er ekki góð.
Leita aö líkum
Björgunarmenn freista þess
aö bjarga líkum þeirra sem fór-
ust í flugslysinu í Noregi. Slæm
veðurskilyröi hafa gert leitina
erfiða en alls fórst 141 maður.
Bill Clinton og Al Gore kampakátir á flokksþingi demókrata í Chicago. Samkvæmt skoöanakönnunum eykur Clinton
forskot sitt á Bob Dole en hræösla hefur þó gripiö um sig eftir aö upp komst samband Dick Morris, áhrifaráögjafa
forsetans, við vændiskonu. Símamynd Reuter
Vill sættir
Hussein Jórdaníukonungur
hefur hvatt forsætisráðherra
ísraels, Netanyahu, til að reyna
aö ná sáttum við Palestínu-
menn.
Styður múslíma
eiturlyfjaneyslu
glæpamanna.
Nelson
Mandela, for-
seti Suður-Afr-
íku, styöur
múslímahreyf-
ingu í Höfða-
borg í baráttu
hennar gegn
og hópum
Reuter
Jeltsín styður friðar-
áætlanir Lebeds
Samkvæmt fréttastofunni Inter-
fax heimsótti Boris Jeltsín, forseti
Rússlands, eiginkonu sína, Nainu, á
spítala í gær. Eiginkona forsetans
hefur verið nýmaveik og fór í upp-
skurð af þeim sökum síðastliðinn
laugardag.
Fréttastofur í Rússlandi höfðu
áður sagt að börn og barnaböm for-
setahjónanna hefðu heimsótt for-
setafrúna en að Jeltsín hefði aðeins
talað við hana í síma.
Jeltsín hefur enn ekki átt fund
með Alexander Lebed, öryggisráð-
gjafa Rússlands, en að sögn Viktors
Tsjernomyrdins forsætisráðherra
styður Jeltsín áætlun Lebeds um
frið í Tsjetsjeníu. Jeltsín er enn í
fríi fyrir utan Moskvu.
Tsjemomyrdin forsætisráðherra
sagðist hafa átt langt samtal við
Jeltsín sl. fimmtudag þar sem for-
setinn hefði samþykkt friðaráætlan-
ir Lebeds.
Lebed fór til Tsjetsjeníu snemma
í gærmorgun til að vinna að upp-
kasti að samningi um pólitíska
framtíö Tsjetsjeníu. Hann sagði að
stöðva yrði þau átök sem kostað
hafa þúsundir manna lífið. Reuter
Erlendar kauphallir:
Sveiflukennt
í London
Enn eitt sögulega metið var sleg-
ið i kauphöllinni í London í vikunni
þegar FT-SE 100 hlutabréfavísitalan
fór í 3918 stig. Daginn eftir, eða á
fimmtudag, lækkaði vísitalan hins
vegar aftur þegar hagtölur frá
Bandaríkjunum juku líkur á vaxta-
hækkun. Fjárfestar tóku sénsinn og
þrýstu hlutabréfaverði niður.
Ekki ósvipuð þróun átti sér stað í
öðrum helstu kauphöllum heims þó
ekki hefðu met verið sett víðar,
verðið hækkaði á miðvikudag en
lækkaði nokkuð daginn eftir.
Þannig lækkaði Dow Jones i New
York um heil 65 stig sem er mesta
lækkun á einum degi frá því 15. júlí
síðastliðinn.
Heimsmarkaðsverð á bensíni tók
óverulegum breytingum í vikunni
um leið og hráolíutunnan hækkaði
nokkuð. -Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis I
Drekkur tvö
glös af blóði
á dag
Texasbúinn Cayne Presley á
a.m.k. eitt sameiginlegt með
' Dracula. Þau eru bæði blóðsugur.
„Fólk gefur mér blóð og ég
| býð því stundum upp á kynlíf í
staðinn. Ég fer líka til slátrara í
nágrenninu, sem gefur mér kúa-
| blóð,“ segir þessi nútíma vamp-
1 íra sem vinnur sem næturvörð-
; ur í Texas.
Cayne Presley, sem hefur
i drukkið tvö glös af blóði á dag
: frá því hún var níu ára, varð
I fræg á einni nóttu eftir að hafa
| sagt rithöfundi vísindaskáldrits
frá blóðþorsta sínum. Hún segist
s , ekki hafa átt von þessum miklu
I viðbrögðum en hún fær ekki
j frið fyrir íjölmiðlum víða um
| heim sem ólmir vilja fá hana í
viðtal.
j „Ég býst við því að fólk líti á
I mig sem viöundur. Það stoppar
mig á götu og spyr hvort ég sé
með vígtennur og hvort ég sofi i
kistu. Sumir halda þvi fram að
I ég líkist vampíru," segir Presley
sem er hávaxin, grönn, með
;: svart hár og mjög fóla húð. Hún
1 klæðist alltaf svörtu og notar
; dökkrauðan varalit.
I „Hvað sem hver segir þá er
þetta það besta í heimi. Þetta er
| miklu betra en kynlíf. Þegar ég
sýg blóð tek ég undir handlegg-
inn á viðkomandi og sýg svo
I blíðlega úr honum blóðið. Marg-
ir sem leyfa mér að sjúga úr sér
blóð eru orðnir háðir því,“ segir
| Presley sem er ekki eina vamp-
| íran í Bandaríkjunum því talið
er að um átta þúsund leggi þaö í
I vana sinn að drekka blóð.
Runninn
lifnaði við
Þeim brá heldur í brún þjóf-
unum sem ætluðu að ræna veit-
ingahús eitt I Fort Lauderdale.
Þeir voru í þann mund að ráðast
til atlögu þegar runni fyrir utan
veitingastaðinn lifnaði við og
byssu var beint að þeim. Þar var
| á ferð lögreglumaöurinn Earl
| Feugill. Hann var í gamla felu-
búningnum sínum frá því í her-
num. Hann hressti aðeins upp á
j gamla búninginn og málaði sig i
framan með grænu og svörtu til
1 að fullkomna verkið. Ekkert
varð úr fyrirætlunum ræningj-
; anna og voru þeir settir bak við
1 lás og slá.
Rauði krossinn
var handbendi
nasista
Alþjóðanefnd Rauða krossins,
sem segist vera ópólitískur
vemdari þeirra sem minna
I niega sin, er sökuð um aö hafa
I verið stjómað af þýsku leyni-
| þjónustunni í seinni heimsstyrj-
| öldinni.
Þetta kemur fram í banda-
rískum leyniskjölum frá tímum
seinni heimsstyrjaldarinnar.
Því er haldið fram að sendifull-
i j h'úar Rauða krossins hafi njósn-
I aö fyrir Þjóðverja og gefið þeim
hernaðarlega mikilvægar upp-
lýsingar. Er þvi einnig haldið
| fram að þeir hafi notað banda-
Írísku utanríkisþjónustuna til aö
koma skilaboðum til Þýska-
■ lands.
Skjölin, sem ekki hafa fyrr lit-
ið dagsins ljós, fundust er rann-
sóknamefnd gyðinga var að
blaða í skjölum til að reyna að
hafa uppi á fómarlömbum
helfararinnar.
í skjalinu er sagt að nægar
| upplýsingar séu fyrir hendi til
: að draga þær ályktanir að sendi-
| fulltrúar Rauða krossins hafi
; látið Þjóðverjum í té hernaðar-
I lega mikilvægar upplýsingar.
| Þar kemur einnig fram að sendi-
fulltrúarnir hafi notað töskur
j Rauða krossins til að koma und-
i an ýmsum auðæfum nasista til
Sviss. Þá er sagt að þeir hafi
smyglað þýskum njósnurum
yfir landamæri Evrópu. Reuter