Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996
Sljörnubíó:
Klónar sjálfan sig margsinnis
Doug Kinney er hamingjusam-
íocro Vvæntur hinni glæsilegu
Lauru (MacDowell).
Hann vinnur í mjög
krefjandi starfi í
viðskiptageiran-
um og er sí-
fellt í kapp-
hlaupi
við
tím-
Fáar kvikmyndir hafa vakið jafn-
mikið umtal vestan-
hafs og kvikmynd-
in Multiplicity. í
aðalhlutverkum
eru Michael
Keaton
Andie
Þrátt fyrir
þau séu bæði
í aðalhlut-
verkum
mæðir þó
mun meira
á Michael
Keaton því
hann leikur
í raun fjór-
ar
ur
Leikstjórinn Harold Ramis leiðbeinir Michael Keaton og Andie MacDowell í
myndinni Multiplicity.
ann, 24 klukkustundir sólarhrings-
ins nægja honum hvergi nærri.
Doug er í sífelldu tímahraki en tel-
ur sig hafa himin höndum tekið
þegar hann hittir vísindamanninn
dr. Owen Leeds. Owen býður Doug
að taka þátt í tilraun sem á að geta
leyst öll hans vandamál.
Owen ræður yfir þeirri vísinda-
tækni að klóna lifandi persónur,
búa til eftirmyndir þeirra. Með því
að klóna nokkur eintök af Doug ætti
honum að gefast betri tími til að
sinna hlutunum. En vísindamaður-
inn er ekki alveg búinn að full-
komna aðferðina og þau þrjú eintök
sem klónuð eru af Doug era að
vissu leyti takmörkuð. Eitt eintakið
erfir allar karlmennskutilhneiging-
ar Dougs, annað eintakið hefur öll
einkenni kvenlegra einkenna hans
og það þriðja erfir allar barnslegu
hliðarnar.
Eins og vænta má verður líf
Dougs miklu flóknara fyrir vikið og
hann lendir í hinum mestu vand-
ræðum, sérstaklega hvað varðar
tengslin við eiginkonu sína.
Nútímatækni
Hugmyndin að myndinni er eðli-
lega nokkuð geggjuð en með tækni
nútímans er hægt að sýna fjögur
eintök af Michael Keaton saman á
mynd án þess að áhorfendur greini
á því nokkra hnökra. Keaton þykir
vinna mikinn leiksigur með
frammistöðu sinni í þessari mynd
en það er enginn leikur að leika
flórar mismunandi persónur í sömu
myndinni þrátt fyrir að þær hafi
sama útlitið.
Michael Keaton er sennilega
frægastur fyrir þátttöku sina í Bat-
man framhaldsmyndunum þar sem
hann þótti standa sig vel. Hann kom
umheiminum á óvart þegar hann
hafnaði að leika í þriðju myndinni
um Leðurblökumanninn, sérstak-
lega þegar haft er í huga hve miklir
peningar voru í boði fyrir hlutverk-
ið. En Keaton hafði þá þegar fengið
í hendur handrit myndarinnar
Multiplicity og leist mun betur á að
leika í þeirri mynd, þó ekki væru
jafn miklir peningar í boði.
Það er leikstjórinn Harold Ramis
sem leikstýrir myndinni. Hann hef-
ur ekki einungis öðlast frægð sem
fyrsta flokks leikstjóri, hann hefur
einnig getið sér gott orð sem leikari,
handritshöfundur og framleiðandi.
Hann hefur haft puttana í mörgum
af vinsælustu myndum sögunnar.
Hann var einn handritshöfunda og
lék í myndinni The National
Lampoon Show og einnig í National
Lampoons Animal House. Hann
skrifaði handritið að myndunum
Ghostbusters I og n, Stripes og
Meatballs og lék í þeim öllum nema
Meatballs. Ramis var einnig annar
handritshöfunda í hinni kostulega
mynd, Groundhog Day, en þar lék
einmitt Andie MacDowell annað að-
alhlutverkið.
-ÍS
Andie MacDowell stigur hratt á stjörnuhimninum:
Fyrirsætuferillinn
fjötur
Andie MacDowell er farin að
sækja í sig veðrið í Hollywood eftir
frekar brösótta byrjun á hvita tjald-
inu. Hún leikur aðalhlutverkið í
Multiplicity, sem frumsýnd var í
gær í Sambíóunum, og ferst það vel
úr hendi. Síðar á þessu ári verður
frumsýnd kvikmynd þar sem hún
leikur aðalhlutverk á móti John
Travolta sem mun festa hana í
sessi.
MacDowell hefur átt frekar erfitt
uppdráttar og hefur fyrirsætuferill-
inn ekki verið henni til framdráttar.
Hún hóf leikferilinn i The Legend of
Tarzan, Lord of the Apes. Það gekk
ekki betur en svo að röddin og Suð-
ur- Karóltnu framburðurinn þóttu
ekki við hæfi og Glenn Close var lát-
in tala fyrir hana meö sína svefh-
herbergisrödd.
MacDowell var afskrifuð í Holly-
wood sem heilalaus brúða með fall-
egt andlit og heillandi útlit en hæfi-
leikalaus sem leikkona. Hún fékk
fljótlega hlutverk í Sjónvarpsþættin-
um St. Elmo’s Fire og þótti það við
hæfi. Henni skaut síðan allt í einu
upp í almennilegu hlutverki í kvik-
myndinni Sex, lies and videotape.
Þar lék hún eiginkonu sem fellur
fyrir hálfskrýtnum vini eiginmanns
síns. Myndin hefði náð að festa
hverja aðra leikkonu í sessi en fyr-
irsætuferillinn hefur ailtaf sett ein-
hvem ósýnilegan blett á
MacDowell. í Cannes fylgdi hún fast
á eftir Meryl Streep í vinsældum og
samkvæmt The New York Times
var það öskiljanlegt að hún skyldi
ekki vinna til óskarsverðlauna.
MacDowell hefur leikið í
nokkrum myndum sem hafa komist
mjög nálægt því að slá í gegn en þó
ekki náð nægilega miklum vinsæld-
umfot
um. Hún lék í Groundhog Day, sem
varð ekkert sérstaklega vinsæl,
Green Card, sem brást vonum
manna, Hudson Hawk, Bad Girls,
The Object of Beauty, Short Cuts og
Unstrang Heroes sem komu henni
ekkert áfram. Meira að segja nægði
myndin Fjögur brúðkaup og jarðar-
för ekki til þess að festa stjörnu
MacDowell á stjörnuhimininn þar
sem Hugh Grant skyggði á hana.
Kvikmyndaframleiðandinn Peter
Weir segir að MacDowell hafi yfir
að ráða vissum leyndardómi sem sé
mjög sjaldgæft hjá nútímakonum.
Kvikmyndaframleiðandinn Harold
Ramis segir að hún sé mjög hefð-
bundin kvikmyndastjama sem leiki
sjálfa sig afar vel. Um þessar mund-
ir er hún við upptökur á kvikmynd-
inni Michael sem hún leikur 'í
ásamt John Travolta.
MacDowell er 37 ára og hún hefur
verið gift fyrrverandi fyrirsætunni
Paul Qualley í tíu ár. Hún er þriggja
barna móöir og býr með bömum
sínum og manni á búgarði í Mont-
ana.
Til stóð að leikkonan Marisa
Tomei léki í myndinni Fjögur brúð-
kaup og jarðarför en hún hafnaði
hlutverkinu. Við það tapaði hún
möguleikum á að koma sér örlítið
áfram á leiklistarferlinum og einnig
nokkrum dollurum.
Fyrir MacDowell breytti Fjögur
brúðkaup og jarðarfor ýmsu fjár-
hagslega. Afborganir hennar af hús-
næðinu voru háar og þriðja barnið
var ekki fyrirfram á dagskrá. Þar
sem myndin gekk svona vel voru
fjárhagsvandræði hennar úr sög-
unni og hún gat haldið áfram að
fjárfesta.
H O W T O M A K E A N
American Quilt
-em