Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1996, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 DV
útlönd
Deilur erfingja Papandreous trufla kosningabaráttu grískra sósíalista:
Ekkjan Dimitra kölluð
valdasjúk blóðsuga
Deilur erfingja Andreasar Pana-
dreous, fyrrum forsætisráðherra
Grikkja, sem lést í júní, hafa varpað
skugga á kosningabaráttu grískra
sósíalista. Nikos, naéstelstur fjög-
urra sona, segir í viðtali við blaðið
European að ástarsamband fóður
síns við Dimitru Liani, 41 árs, hafi
eyðilagt stjórnmálaferil hans. Hann
kallar hana valdasjúka blóðsugu
sem hafi komiö karli foður sínum í
gröfina.
Nikos Papandreous hefur skrifað
skáldsögu sem byggist á uppvaxt-
EU'árum hans. í sögunni kemur fram
að hjónaband Dimitru og fóður hans
hafi ekki verið farsælt.
„Sambandið eyðilagði stjórnmála-
feril foður míns og, að ég held, ýtti
undir andlega hrörnun hans. Faðir
minn var ekki hamingjusamur í
þessu hjónabandi og sá alla tíð eftir
að hafa gifst Dimitru," sagði Nikos.
Dimitra sagði lúalegt athæfi að
ráðast svona á persónuleika Pana-
dreous og lýsa honum sem auð-
mjúku verkfæri í höndum eigin-
konu sinnar. Hann hefði svo sann-
arlega elskað sig. Sagöi hún Nikos
einungis vilja auglýsa bókina sína.
Dimitra heillaði Papandreou, sem
Dimitra Liani og Nikos Papandreous við jaröarför Andreasar Panadreousar
í sumar. Símamynd Reuter
var 36 árum eldri, upp úr skónum
þar sem hún bar í hann drykki um
borð í flugvél 1988. Papandreou fór
ekki leynt með ástarsamband þeirra
og olli hneykslun meðal grísku þjóð-
EU'innar.
Hann skildi við bandaríska eig-
inkonu sína til 37 ára og móður fjög-
urra sona sinna og giftist Dimitru
1989. Hún stóð við hlið hans í ósigr-
um, hneykslismálum og þegar heils-
an bilaði en var engu að síður
stimpluð sem tækifærissinni sem
hugsaði um eigin frama.
„Hana hungraði í völd og vildi
gera allt til að öðlast þau,“ sagði
Nikos en viðurkennir að hin ljós-
hærða stjúpmóðir hans búi yfir
þokka. „Þegar ráðríki blandast
valdasýki og líkamlegri fegurð og
þetta er allt notað til að heilla mann
á sjötugsaldri þá er ekki von á
góðu.“
Börn Papandreous hafa verið þög-
ul um samband hans við Dimitru en
þegar í ljós kom að hann hafði arf-
leitt hana að öllum eigum sínum
sprakk púðurtunnan. Sagði í erfða-
skránni að nafn hans væri nægur
arfur fyrir bömin.
Rifrildi erfingjanna kemur á
versta tíma fyrir Sósíalistaflokkinn
sem á í vök að verjast fyrir íhalds-
mönnum tveimur dögum fyrir þing-
kosningarnar. Reuter
Jeltsín enn rannsakaöur fyrir hjartaaðgerðina:
Zjúganov eygir mögu-
leika á aö ná völdum
stuttar fréttir
Brottflutningur áfram
Hersveitir Rússa munu halda
brottflutningi sínum frá
Tsjetsjeníu áfram í dag.
Of margir kusu
Alþjóðlegir eftirlitsmenn með
kosningunum í Bosníu sögðu
að fleiri hefðu kosið en voru á
kjörskrá. Fóru þeir fram á
rannsókn áður en endanleg úr-
slit yrðu kynnt.
Aflétta ekki banni
Evrópusambandið þvertók
fyrir að aflétta banni við út-
flutningi á bresku nautakjöti
eftir að stjórnvöld í London
ákváðu að fresta áætlunum um
að taka úr umferð nautgripi
sem væru í hættu að fá riðu-
veiki.
Páfa fagnaö
Páfa var fagnað í Frakklandi
í gær þegar hann sagði í ræðu
að hjón yrðu að virða líf strax
við getnað.
Hótar málsókn
Borgarstjórinn í Búkarest,
höfuðborg Rúmeníu, hótaði að
fara í mál við menntamálayfir-
völd ef þau hæfu skólaárið í
næstu viku þrátt fyrir þá staö-
reynd að 39 manns hefðu dáið
úr heilahimnubólgu. Reuter
L............:.:.... :
Erlendir veröbréfamarkaöir:
Hátt gengi hluta-
bréfa I Frakklandi
og Þýskalandi
Þegar verðbréfamörkuðum í Bret-
landi og Þýskalandi var lokað á
mánudagskvöldið stóð sölugengi í
helstu fyrirtækjum landanna hátt.
Þetta hafði áhrif á verðbréfamark-
aðinn í Wall Street, en þar ríkir
ástand sem þykir sýna tiltrú íjár-
festa á því að verðbólgu í Bandaríkj-
unum sé haldið í skefjum.
Verðbréfamiðlarar telja að hinir
gætnari meðal fjárfesta haldi að sér
höndum með að selja og vilji sjá
hvort gengi verðbréfa muni stíga
upp í þær hæðir sem það gerði í lok
síðustu viku. Við fundum fyrir aukn-
um þrýstingi strax þegar opnað var í
byrjun vikunnar eftir lætin á fostu-
daginn var og ég er viss um að verð
heldur áfram að stíga, sagði miðlari
einn við fréttamann Reuters.
Kommúnistinn Gennadí Zjúga-
nov, sá er laut í lægra haldi fyrir
Borís Jeltsín í forsetakosningunum
í Rússlandi í sumar, segist eygja
góða möguleika á að setjast í for-
setastól. Zjúganov sakaði í gær
bandamenn Jeltsíns um að halda
heilsuleysi hans leyndu fyrir kosn-
ingamar í sumar og fullyrti aö þeir
væru að undirbúa kosningar sem
yrðu haldnar innan skamms.
„Þessir þrír eiga mun minni
möguleika á forsetaembættinu en ég
komi til kosninga," sagði Zjúganov.
Yfirlýsingar Zjúganovs komu á
sama tima og læknar sem annast
Jeltsín vegna komandi hjartaað-
gerðar ákváðu að framlengja sjúkra-
húsdvöl hans. Jeltsín er í sjúkra-
húsi vegna rannsókna fyrir hjarta-
aðgerðina. Dvöl hans þar átti að
Ijúka um síðustu helgi en læknar
hafa framlengt hana í þrígang.
Einn læknannna sagðist í gær sjá
fram á afar vandasama aðgerð og
undirbúningur yrði að vera sérlega
vandaður. Ýmsir þættir i heilsufari
forsetans flæktu aðgerðina sem al-
Gennadí Zjúganov.
Símamynd Reuter
mennt væri mjög hefðbundin og
framkvæmd á hverjum degi.
Veikindi Jeltsíns hafa komið af
stað vangaveltum um það tómarúm
sem myndast hefur 1 æðstu stjórn
Rússlands. Forsetinn hefur reyndar
gefið út tilskipun þar sem fram
kemur upp á mínútu hvenær Viktor
Tsjemómyrdín forsætisráðherra
tekur tímabundið við völdum. í
annarri tilskipun er síðan lýst
hvernig og hvenær Jeltsín tekur við
völdum forseta á ný. Mun
Tsjernomyrdín ráða yfir kjamorku-
vopnahnappinum meðan hann held-
ur um alla valdaþræði.
En Zjúganov, sem verið hefur þö-
gull frá því hann tapaði í kosning-
unum, er kokhraustur yfir efasemd-
um um að Jeltsín muni ná sér eftir
hjartaaðgerðina. Segir hann að lyg-
ar og hræsni stuðningsmanna
Jeltsíns sýni að þeir hafi alltaf vitað
að hann væri óvinnufær. Þeir hafi
litið á kosningabaráttu hans sem
kjörið tækifæri til að vinna að eigin
frama. Sú barátta færi nú fram fyr-
ir allra augum og þátttakendur
væm, auk Tsjernomyrdíns, Yuri
Luskhov, borgarstjóri Moskvu, og
Alexander Lebed, yfirmaður örygg-
ismála. Reuter
IMeri endur-
kjörinn forseti
Lennart Meri var endurkjör-
| inn forseti Eistlands til næstu
fimm ára í fimmtu umferð for-
setakosninganna í gær. Hlaut
Meri tilskilinn meirihluta á
I sérstökum fundi kjörmanna
: þar sem 196 af 372 viðstöddum
greiddu honum atkvæði sitt.
Aöalkeppinautur hans, Amold
j Ruutel, hlaut 126 atkvæði.
Viðstaddir í tónleikahöllinni
: í Tallinn voru afar hófsamir í
| fógnuði sínum þegar úrslitin
I voru tilkynnt. Með kjörinu
lauk niðurlægjandi baráttu
I Meris til endurkjörs.
Þó Meri, 67 ára, sé mikils
metinn sem talsmaður Eista á
i alþjóðavettvangi hefur nann
; misst stuðning í þinginu þar
sem 101 maður situr. Hefur
| honum verið legið á hálsi fyrir
| að taka sér of mikil völd en for-
setaembættið sé frekar við-
; hafnarembætti.
Perot leitar
réttar síns
Auðkýfingurinn Ross Perot,
frambjóðandi Endurbótaflokks-
r ins i bandarísku forsetakosn-
i ingunum, ætlar að kæra niður-
| stöðu sérstakrar kappræðu-
nefndar þess efnis að hann
| verði útilokaður frá kappræð-
| um forsetaefnanna sem eiga að
hefjast á miðvikudag. Nefhdin,
I sem repúblikanar og demókrat-
ar fara fyrir, rökstuddi ákvörð-
un sína með því að sigurlíkur
Perots væra engar.
Perot heldur því stöðugt
í fram að hann hefði sigrað í fbr-
| setakosningunum 1992 hefðu
kjósendur greitt atkvæði sam-
íí kvæmt sannfæringu sinni og
| hundsað fréttir þess efnis að
hann mundi tapa. Segir Perot
S ástandið svo slæmt nú að
| sækja verði eftirlitsmenn með
kosningunum til Haítí og Bosn-
íu.
Moldvarpa
kommúnista I
Vatfkaninu
Kommúnistaríkin komu
ii moldvörpu fyrir í Vatíkaninu á
áttunda áratugnum og upplýsti
sá húsbændur sína um viðræð-
ur páfa við leiðtoga vesturveld-
| anna. Byggir þýska dagblaðið
; Tagesspiegel frétt þess efnis á
i óútkominni skýrslu Gauck-
| skrifstofunnar sem ætlað er að
: rannsaka skjöl sem Stasi, aust-
J ur- þýska öryggislögreglan,
| skildi eftir sig við sameiningu
þýsku ríkjanna. Moldvarpan er
i ónafngreind en starfaði á veg-
um pólsku leyniþjónustunnar.
j Þykir það henda til að um hátt
| settan klerk innan kaþólsku
kirkjunnar i Póliandi sé að
i ræða.
Endurskoða
lög um kyn-
mök við börn
Hollenska ríkisstjómin vinn-
ur nú að endurskoðun laga frá
j 1991 sem leyfa kynmök við
J böm allt niður í 12 ára aldur.
Sagði talsmaður ríkisstjómar-
s innar að meiningin væri að
y hækka refsiverð aldursmörk
upp í 14 ár. Ráðberrar neita
Í staðfastlega að endurskoðunin
tengist uppljóstrunum í
| bamaklámsmálinu í Belgíu.
Samkvæmt gildandi lögum í
| Hollandi era kynmök án vald-
beitingar við börn á aldrinum
12-16 ára einungis refsiverð ef
bamið sjálft kvartar, forráða-
maður eða barnaverndamáð.
Talsmenn lágs aldurstakmarks
í lögunum fullyrða að lögin
hafi lyft hulunni af efni sem
ekki hefur mátt í'æða og gert að
verkum að þungun meðal ung-
linga í Hollandi sé fátíðust í
Evrópu. Reuter