Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
25
Fréttir
Vertu viss um að þínar jólasendingar komist hratt og örugglega til skila íyrir þessi jól.
Frímerki fást á öllum þóst- og símstöðvum, auk þess á um 120 sölustöðum,
s.s. bensínstöðvum, bókaverslunum og víðar á höfuðborgarsvæðinu. Frímerki eru
einnig seld á fjölmörgum sölustöðum
utan höfuðborgarsvæðisins. PÓSTUR OG SÍMI
Trausti ehf. á Hauganesi veðjar á neytendapakkningar:
Lífsspursmál að fylgja þró-
uninni og nálgast neytendur
- segir Elvar Reykjalín framkvæmdastjóri
DV, Hauganesi:
„Það er lífsspursmál að fylgja þró-
uninni í þessari grein. Við tókum
þá ákvörðun á sínum tíma, þegar
niðurskurðurinn í þorskkvóta var
ákveðinn, að veðja á vinnslu í neyt-
endapakkningar. Ég tel að það hafi
verið 'gæfuspor," segir Elvar
Reykjalín, framkvæmdastjóri og
einn eigenda Trausta ehf. og dóttur-
fyrirtækisins Ektafisks ehf. á
Hauganesi sem framleiða saltfisk og
tengdar afurðir. Fyrirtækið selur
um 80 prósent afurða sinna innan-
lands en um 20 prósent til Spánar og
víðar.
„Við framleiðum saltfisk sem er
fullstaðinn, útvatnaður og úrbeinað-
ur. Þá erum við með kinnfisk auk
þess að við vinnum úr þunnildun-
um. Þá framleiðum við saltfisksteik-
ur fyrir veitingahús og þetta gengur
vel,“ segir hann.
Elvar er þriðji ættliðurinn sem
kemur að vinnslu saltfisks á Hauga-
nesi en afí hans og íjölskylda hófu
vinnslu eftir 1930. Hann segir að fyr-
irtækið, þar sem starfa á milli 8 og
15 manns eftir árstíðum, standi
sæmilega.
„Við höfum síðan kvótaniður-
skurðurinn varð reynt að halda að
okkur höndum og ekki framkvæmt
neitt, aðeins sinnt nauðsynlegasta
viðhaldi. Nú blasir við að við þurf-
um að endurnýja skip og tæki
vinnslunnar," segir Elvar.
-rt
Á öllum póst- og símstöðvum er í gildi sérstakt jólapakkatilboð á bögglapóst-
sendingum innanlands til 23. desember.
Pósthús á höfuðborgarsvæðinu og víða
um land verða opin til kl. 18:00 alla
virka daga frá 9. desember fíl jóla og
til kl. 16:00 laugardaginn 21. desember.
Elvar Reykjalín meö hluta af þeirri framleiöslu sem fyrirtæki hans selur um alit land. DV-mynd ÞÖK
Gefum öUum
gleöilegjól meö
þvíaö senda
jólapóstinn tímanlega.
Náttúruverndarráð:
Segir nei við
Bjarnarflagi
Náttúruvemdarráð hefur neit-
að Landsvirkjun um undanþágu
frá lögum um verndun Mývatns
og Laxár til að reisa nýja gufuafls-
virkjun í Bjarnarflagi. Þetta var
ákveðið á fundi ráðsins fyrir
helgi. Líklegt er því að ekkert
verði af framkvæmdum í Bjam-
arflagi. -bjb
AUt vaðandi í hvölum:
Ógnar Irfríkinu
- segir Elvar Reykjalín
DV, Hauganesi:
„Hér er allt vaðandi i hrefn-
um, höfrungum, hnúfubökum og
hnísu. Þetta er meira en við höf-
um nokkum tíma séð áður og er
orðið mjög alvarlegt mál,“ segir
Elvar Reykjalín, fiskverkandi og
fyrrum skipstjóri á Hauganesi
um hvalagengd í Eyjafirði. Hann
segir að hvalavöðurnar leggist
illa í marga.
„Þetta er orðið alvarlegt mál.
Þetta er eins og ryksugur í seið-
um og öllum smáfiski. Þetta ógn-
ar því jafnvægi sem við viljum
hafa í lífríkinu og hlýtur að eijda
með því aðhafa verulega skaðleg
áhrif,“ segir Elvar.
Ölvunarakstur:
Stefnir
í metmánuð
Um tuttugu ökumenn voru
teknir í Reykjavík um helgina,
gmnaðir um ölvun við akstur,
og samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar stefnir í algeran met-
mánuð í ölvunarakstri. Troðfullt
var á öllum skemmtistöðum
miðbæjarins aðfaranótt sunnu-
dagsins en síðan var bærinn al-
veg orðinn tómur strax klukkan
5. Ástæðan er, að sögn lögreglu,
sú að pylsuvagnamir em allir
lokaðir þar sem verið er að end-
umýja leyfín hjá þeim. -sv
UMSB með nýtt
jólamerki
DV.Vestnrlandi
Ungmennasamband Borg-
arfjarðar hefur mörg undanfarin
ár gefið út jólamerki til fjáröfl-
unar. Á merkinu að þessu sinni
er mynd af Síðumúlakirkju.
Guðmundur Sigurjónsson,
skólastjóri í Borgamesi, teiknar
merkið að þessu sinni. Jóla-
merkið er til sölu í versluninni
ísbirninum í Borgarnesi og hjá
Ungmennasambandi Borgar-
fjarðar og kostar örkin 300 krón-
ur.
-Ó
f*KENWOODl*
'jk^Matvinnsluvél 400Wv:*
f *
jíkenwood;*
**Matvinnsluvél 500\l\l3un
Kennslumyndband*^.
á íslensku fylgir. » w
^bNWUUU*:
* & Chef hrærivél
með hakkavél
* *KENWOOD<,
Handþeytari jfZ
d*
I ENWOOD
HandþeytarLá stand
\
f
í
<