Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Blaðsíða 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
Sviðsljós
Arnold er svo
góður strákur
Ekki láta útlitið blekkja.
Arnold Schwarzenegger, vöðva-
búnt og vindlaáhugamaður, er í
rauninni besta skinn, blíður og
góður inn við beinið, þótt hann
lemji og skjóti og brjóti meira en
flestir félagar hans. Svo góður er
hann að kvennapressuklúbburinn
i Hollywood veitti honum Gullna
eplið um daginn, ásamt ljóskunni
Cybill Shepherd. Það eru verð-
laun fyrir samvinnulipurð.
Banderas reddar
víkingum
Spænski hjartaknúsarinn Ant-
onio Banderas hefur fallist á að
reyna að bjarga víkingum frá ógn-
valdi einum sem etur upp hold
þeirra. Það verður í myndinni
Náætum, eftir samnefndri sögu
Michaels Crichtons. Þar leikur
Antonio arabískan hirðmann sem
slæst í för með víkingum til villi-
mannalandanna i norðurálfu og
hneykslast mjög á ránum þeirra
og gripdeildum.
Eiginkona Clints
elur honum
stúlkubarn
Clint Eastwood er orðinn pabbi í
fjórða sinn. Dina, núverandi eigin-
kona hans, eignaðist forkunnarfag-
urt stúlkubarn á fimmtudag. Stúlk-
an, sem vó rúmar 15 merkur og var
54 sentímetrar á lengd, hlaut nafnið
Morgan. Bæði móður og dóttur
heilsast vel. Clint var að sjálfsögðu
viðstaddur fæðinguna og stóð sig al-
veg eins og hetja.
Clint Eastwood.
Hagstœð kjör
Viktoría krónprinsessa veldur allt að því vonbrigðum:
Madonna og sambýlismaöur hennar og barnsfaöir, Carlos Leon, viö frumsýninguna á Evitu. Madonna er hér í rós-
rauöri Givenchy-dragt. Slmamynd Reuter
Söngkonan Madonna:
Ætlar að halda áfram
að vera
„Mér líður eins og öskubösku,"
sagði söngkonan Madonna við
frumsýningu á kvikmyndinni Evitu
í Los Angeles um helgina. Söngkon-
an táraðist er þúsundir aðdáenda
hennar veinuðu af fögnuði þegar
hún gekk eftir rauðum dregli að
kvikmyndahúsinu. Mótleikari
Madonnu, Antonio Banderas, kall-
aði hins vegar allt imistangið í
kringum sýninguna sirkus. Og í
„sirkusnum" tóku meðal annarra
þátt Melanie Griffith, Glenn Close,
Marisa Tomei, David Hasselhofif,
Paula Abdul, James Belushi og
Melissa Etheridge. Þar var einnig
lagahöfundurinn Andrew Lloyd-
vonda
Webber sem efaðist í fyrstu um að
Madonna væri rétta manneskjan í
hlutverkið. Hann komst þó á aðra
skoðun.
Kvikmyndin Evita íjallar um ævi
Evu Peron, fátækrar bóndadóttur í
Argentínu, sem varð eiginkona Ju-
ans Perons, forseta Argentínu, og
komst sjálf til mikilla valda. Leik-
sfjórinn Alan Parker og aðrir sem
þátt tóku í kvikmyndagerðinni
segja að poppsöngkoncm hafi verið
■ kjörin í hlutverk Evitu sem alþýða
manna leit á sem dýrling. Yfirstétt-
in leit Evitu hins vegar oft hom-
auga.
Alan Parker segir Madonnu vera
stelpan
hörkuduglega í vinnu og alltaf frá-
bærlega vel undirbúna.
Aðstandendur myndarinnar von-
ast til að myndin fái metaðsókn og
unnendur söngleikja vonast til að
þeir fái nú uppreisn æru. Og fata-
hönnuðir gera ráð fyrir að konur
streymi nú í búðir til að leita að
„Evitu-fatnaði“.
Af Madonnu er það annars að
segja að hún kveðst ekki vera með
neinar áætlanir um að breyta ímynd
sinni sem vond stelpa þó hún sé orð-
in móðir. „Ég er listamaður og ég
mun útskýra það fýrir henni (dóttur-
inni) og ég vona að hún skilji það,“
sagði Madonna nýlega í viðtali.
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni
Smáauglýsingar
irrea
550 5000
í þykkri ullarpeysu
Viktoría krónprinsessa af Svíþjóð það & sér sína skýringu. —. ... 11 -l*.—:—i laume og dætrum þeirra tveimur
er svo stillt og prúð að skólafélagar
hennar hafa allt að því orðið fyrir
vonbrigðum með hana, sjálfsagt van-
ari því að sjá kóngafólkið sletta ein-
um um of úr klaufunum.
Viktoría, sem er orðin nítján ára
stórglæsileg stúlka, hefur hleypt
heimdraganum og stundar nú nám í
borginni Angers í Frakklandi. Nám-
ið sækist henni vel en hún verður þó
að leggja nokkuð á sig til að geta
fylgst með öllu sem fram fer í
kennslustundunum. Og hún er
ánægð með kennarana. Annars lang-
ar hana mest til að líta á námsdvöl-
ina sem fri þar sem hún getur farið
allra sinna ferða án þess að verða
fyrir of miklu aðkasti. Frakkamir
taka nefnilega varla eftir henni og
„Frakkarnir voru næstum því
skúffaöir yfir að hún skyldi ekki
vera með kórónu á höfðinu," segir
sænskur skólabróðir hennar við há-
skólann í Angers.
Krónprinsessan sker sig síður en
svo úr öðrum nemendum hvað
klæðaburð snertir. Hún fer í skólann
í þykkri ullarpeysu og snjáðum
gallabuxum, með bakpoka á bakinu
og stundum með þykka vettlinga á
höndunum. Eitt skilur hana þó frá
öðrum jafnöldum hennar: Hún hreyf-
ir sig ekki spönn frá rassi án þess að
lífverðir fylgi henni hvert fótmál. En
þeir eru ungir, svo það stingur ekki
eins mikið í stúf og ætla mætti.
Viktoría býr hjá franskri fjöl-
skyldu, hjónunum Isabelle og Guil-
Viktoría krónprinsessa þrífst vel í
Frakklandi.
sem era á svipuðu reki og prinsess-
an. Heimili þeirra er aðeins í nokk-
ur hundruð metra fjarlægð frá há-
skólanum.
Prinsessan sækir kaffihús af mikl-
um móð eins og títt er um náms-
menn í Frakklandi, sötrar
cappuccino og ræðir um heimsins
gagn og nauðsynjar eins og ungra
manna og kvenna er siður. Ekki fer
hún hins vegar mikið á diskótek.
Viktoría er nýbúin að taka bílpróf
og á það til að bregða sér í um 300
kílómetra ökuferð til Parísar. Hún
segist fara leiöina á hálfum öðrum
tíma. Það er því ljóst að Friðrik
krónprins í Danmörku hefur eignast
verðugan keppinaut um þyngsta
bensínfótinn af kóngakyni.
Með enga kórónu og