Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1997
Fréttir
Vaxandi óþreyja innan BSRB vegna samningamálanna:
Viðsemjendur forðast
þrætur um stóru málin
- segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB
„Vaxandi óþreyju er farið að
gæta innan BSRB. Fólk vill fá fast
land undir fætur. Mörgum spurn-
ingum er ósvarað hvað snertir líf-
eyrismál og breytingar á launa-
kerfum sem ríki og Reykjavíkur-
borg vilja koma á,“ segir Ögmund-
ur Jónasson, formaður BSRB.
Farið er að hitna í kolunum í
verkalýðsmálunum og í dag verður
sameiginlegur fundur stjómar og
formanna aðildarfélaga BSRB þar
sem ýmis mál verða rædd. Mikið
greinir á milli viðsemjenda og að-
ildarfélaga BSRB.
„Menn em engan veginn komnir
að verkföllum en grunur leikur á
að okkar viðsemjendur séu að
drepa málum á dreif og toga menn
inn í viðræður um tæknilega hluti
en forðast þrætur um stóru mál-
in,“ segir Ögmundur.
Að sögn hans eru aðildarfélög
BSRB tilbúin að ræða breytingar á
launakerfúm en þau hafa sett fram
þá grundvallarkröfu að um aUar
breytingar verði samið en ekki
verði um einhliða valdboð að
ræða. Þau vilja ekki launakerfi
sem byggir á geðþóttaákvörðimum
forstöðumanna eða forstjóra.
„Tónn okkar viðsemjenda hefur
verið í áttina að því að koma slíku
á. Það er almennt sett fram sú
krafa af hálfu aðildarfélaga BSRB
að grunnkaup verði hækkað vem-
lega og menn vilja ekki að launa-
hækkanir verði látnar renna inn í
einstaklingsbundna samninga af
þessu tagi. Þá er ljóst að margir
yrðu útundan og fengju minna í
sinn hlut.
Mér þykir mjög líklegt að full-
trúar heildarsamtakanna verði
gerðir út af örkinni til þess að
ræða við okkar viðsemjendur um
þessar forsendur samninganna.
Þau viija að þessari óvissu verði
eytt því það er farið að tefja við-
ræður við félögin," segir Ögmund-
ur.
-em
Rán upplýst-
ist við rann-
sókn á árás
Lögregla hefur fundið verð-
mætustu hlutina í tölvukerfl
Metró- Normann sem stolið var
úr versluninni fyrir helgi.
Hluti tölvukerfisins, sem er
allt að milljón króna virði,
fannst við rannsókn lögreglu á
árásarmáli í Breiðholti á föstu-
dagskvöld. Þá réðust sex menn
inn á heimili manns og veittu
honum áverka með golfkylfu.
Lögregla handtók árásarmenn-
ina sex og vom tveir þeirra
haföir í haldi. Þá var fómarlamb
árásarinnar handtekið eftir að-
hlynningu á slysadeild. í ljós
kom að þremenningamir tengd-
ust allir þjófnaðinum á tölvu-
kerfinu.
RLR hefur nú upplýst málið
og að sögn Gísla Pálssonar hjá
RLR hafa mennimir verið látnir
lausir úr haldi. -RR
Oddviti Kjósarhrepps ánægður með fámennan mótmælafund:
Erum ennþá harð-
ari í andstöðunni
gegn álverinu
„Okkur fannst þetta takast ágæt-
lega en ég hefði viljað sjá fleira fólk
á Arnarhólnum, ég hygg að kuldi og
stormur hafi aftrað mörgum að
koma þama upp. Ég veit um margt
eldra fólk sem var í bílunum og
kom ekki vegna kulda. Þetta vom
fyrst og fremst Kjósverjar og Borg-
firðingar samankomnir," segir Guð-
brandur Hannesson, oddviti Kjósar-
hrepps.
Andstæðingar álvers á Grundart-
anga fóra mótmælaför að iðnaðar-
ráðuneytinu og afhentu Finni Ing-
ólfssyni undirskriftalista gegn þvi.
Að því loknu var haldinn mótmæla-
fundur á Amarhóli þar sem á ann-
að hundrað manns voru viðstödd.
Búið er að setja á laggimar starfs-
hóp stjómvalda og forsvarsmann'a
sveitarfélaganna sunnan Skarðs-
heiðar. Hann fær það hlutverk að
fylgjast með mengunarmælingum af
völdum stóriðju á svæðinu og koma
upplýsingum um niðurstöður þeirra
á framfæri við íbúa svæðisins.
Fyrsta febrúar verður stofnfund-
ur með kjörorðinu Björgum Hval-
firði. Að sögn Guðbrandar munu
andstæðingar álvers á Gmndar-
tanga hitta umhverfisnefnd Alþing-
is í vikunni til þess að setja fram
sínar skoðanir.
„Við höfum ýmislegt uppi í
erminni sem við komum til meö að
leggja fyrir umhverfisnefndina,"
segir Guðbrandur.
Hann segist ekki hafa neinn
áhuga á því að fara til Þýskalands
til að skoða álver þar eins og Finn-
úr Ingólfsson iðnaðarráðherra bauð
þeim. „Þetta er verra mál heldur en
ég átti von á í upphafi. í starfsleyfi
Málmblendiverksmiðjunnar var
sett fram að rannsóknir á lífríkinu
fæm fram á fimm ára fresti. Það
hefur komið í ijós að engin rann-
sókn hefur farið fram á þeim sextán
árum sem verksmiðjan hefur starf-
að. Við eigum ekki von á að nýtt
fyrirtæki verði neitt betra. Þetta
hefur gert okkur harðari í andstöð-
unni,“ segir Guðbrandur.
-em
Kjósverjar óku til mótmælafundar á Arnarhólj og mótmæltu álveri á
Grundartanga á laugardag. Á annað hundraö manns var vlðstatt fundinn.
DV-mynd S
Dagfari
Þvoglumæltur lögmaður
Stóra fíkniefnamálið er enn til
rannsóknar hjá fikniefnalögreglu.
Eftir að hollenskt par var tekið og
staðið að verki með fikniefiii í sín-
um fómm hefur fjöldi manna verið
handtekinn og úrskuröaður í
gæsluvarðhald. Ljóst er að hér er
um að ræða umfangsmikið glæpa-
mál, þar sem fjöldinn allur af ís-
lensku og útlensku fólki tengist
smygli á verulegu magni af fikni-
efhum.
Fíkniefnalögreglan hefur unnið
þama gott og þarft verk og komið
upp um smyglhring og glæpastarf-
semi sem þjóðfélagið verður að
taka hart á.
Enda þótt smyglaramir séu
harðsvírað fólk sem svífst einskis
til að gerast sölumenn dauðans og
fórnarlömbin séu íslensk ung-
menni, þykir sýnt af málarekstri
að hættan stafar samt ekki mest af
hinum meintu sakbomingum,
heldur lögmanni nokkrum, sem
skipaður hefur verið verjandi eins
hinna grunuðu. Fíkniefnalögreglan
hefur haft þennan lögmann sjálfan
granaðan um að hafa verið ölvaður
og krafist þess að honum verði vik-
ið úr starfi. Málið gegn lögmannin-
um gekk jafnvel svo langt að
Hæstiréttur þurfti að taka málið til
meðferðar.
Lögreglan heldur því fram að
viðkomandi lögmaður hafi komið
til viðtals fjórum dögum fyrir jól
undir áhrifum áfengis. Lögreglan
kom auga á fjórar bjórflöskur í
tösku hans. Einnig hefúr lögreglan
upplýst að lögmaðurinn hafi verið
þvoglumæltur þegar hann hringdi
í fangelsið til að ræða við skjól-
stæðing sinn. Auk þess hafi lög-
maðurinn hringt margsinnis nótt
og dag og átt erfitt um mál vegna
ölvunar.
Þá hefur lögmaðurinn verið bor-
inn þeim sökum að ræða fullur við
aðra sakbominga og reynt að hafa
þannig áhrif á rannsókn málsins.
Allt er þetta auðvitað hið alvar-
legasta mál og sýnir svart á hvítu
að það em ekki endilega sakbom-
ingamir og smyglaramir sem eru
erfiðastir og hættulegastir viður-
eignar í stónun fíkniefnamálum,
heldur lögmennirnir sem taka að
sér vamir fyrir þeirra hönd.
Það sýnir hins vegar skilnings-
leysi dómsmálayfirvalda að sjálfur
Hæstiréttur tekur ekki kröfur
fikniefnalögreglunnar til greina og
vísar þeim frá á þeim forsendum
að ekki þyki sannað að lögmenn
séu fullir þegar þeir eru fullir.
Dómarar Hæstaréttar taka ekki
mark á fíkniefnlögeglumönnum
eöa fangelsisvörðum, þegar þeir
halda fram ölvun lögmanna, sem
hringja utan úr bæ á hinum ýmsu
tímum sólarhringsins. Auk þess
hefur lögmaðurinn bent á að bann
sé að öllu jöfnu frekar þvoglumælt-
ur dags daglega og jafnt á degi sem
nóttu og menn haldi þess vegna að
hann sé fúllur, þegar hann er alls
ekki fullur.
Nú geta menn að sjálfsögðu ver-
ið stirðmæltir og þvoglukenndir í
máli sínu án þess að það beri vott
um drykkjuskap og menn geta auð-
vitað verið svo uppteknir af starfi
sínu og hagsmunum skjólstæðinga
sinna að þeir sjá ástæðu til að afla
sér upplýsinga á hvaða tíma sólar-
hringsins sem er. Þar af leiðandi er
ekkert að marka þvoglukenndan
málróm um miðja nótt og menn
geta meira að segja þurft að hafa
með sér bjórflöskur og teyga bjór í
miðju réttarhaldi, til að ræskja sig.
Það er ekki hægt að refsa mönnum
fyrir þvoglumæli og fyllirí ef þeir
eru því aðeins fullir að þeir þurfi
aö drekka öl til að vera ekki of
þvoglumæltir.
Af þessu sést að stóra fikniefna-
málið er vandleyst meðan Hæsti-
réttur þarf að skera úr um hvenær
lögmenn em fullir eða bara þvoglu-
mæltir.
Dagfari