Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1997
13
Fréttir
Sami aðili handtekinn
vegna 11 innbrota
l/l/IAGE
HÁRSNYRTI-
VÖRURNAR
5513010
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTÍG
DV, Suðurnesjum:
Lögreglan í Grindavík upplýsti 11
innbrot og bílþjófnað sem einn og
sami maður framdi í Grindavík frá
1994 til 7. janúar 1997 en þá var
hann handtekinn við iðju sína.
Að sögn Sigurðar Ágústssonar að-
stoðaryfirlögregluþjóns hefur mað-
urinn, 25 ára Grindvikingur, viður-
kennt við yfirheyrslur að hafa átt
aðild að öllum málunum. Hann er
fíkniefnaneytandi og hefur áður
komist í kast við lögin en þá vegna
fíkniefnamála. Vegna góðra manna
i Grindavík samþykkti maðurinn aö
fara í meðferð sem hann er í nú.
Þau fyrirtæki í Grindavík sem
urðu fyrir barðinu á manninum
eru tvær hárgreiðslustofur, bátur,
áhaldahús, tvö fiskverkunarhús,
leikskóli og menningarmiðstöðin.
Hann náðist þegar hann var að
brjótast inn í Festi. Maðurinn
hafði alltaf eitthvað á brott með sér
úr innbrotunum; sjónvarp, tölvur,
hljómtæki, peninga og farsíma, svo
eitthvað sé neöit. Verðmæti þýfis
nemur hundruðum þúsunda. Sig-
urður segir að hann hafi selt þýfið
en vildi ekki segja hverjir kaup-
endur voru. Ekki gat hann þó selt
allt.
„Hann vísaði okkur á hluta þýfis-
ins sem hann faldi í hrauninu við
Grindavík. Hann gekk beint á stað-
inn sem kom okkur geysilega á
Egilsstaðir:
Fjölgun langt yfir
landsmeðaltali
óvart. Það var eins og hann væri
með kompás," sagði Sigurður
Ágústsson. -ÆMK
IUÁMSKEIÐ í
Taílen&kri matargerð ^
Manit Saifa, hinn rómaði matreiðslumaður af j veitingahúsinu SIAM, mun sjá um kennsluna. Kennslan ferfram mánudag - miðvikudag frá kl. 18-21. Nánari upplýsingar og skráning í síma 555-0203
Frá Skóla ísaks Jónssonar
DV, Egilsstöðum:
„Ég hef í raun enga einhlíta skýr-
ingu á þessari fjölgun. Það hefur
ekki orðið nein stökkbreyting í at-
vinnumálum á árinu. Fæðingar
voru að vísu fleiri en árið ’95.
Við höfum ekki kannað hvaðan
fólk kemur en aftur á móti létum
við athuga af hvaða ástæðum fólk
flutti af staðnum og þá kom í ljós að
það var ekki vegna þess að því lík-
aði hér illa. En við eru auðvitað
ánægð með þessa þróun,“ sagöi
Helgi Halldórsson, bæjarstjóri á Eg-
ilsstöðum.
íbúmn á Egilsstöðum fjölgaði um
62 á síðasta ári eða um 3,92%. Til
samanburðar fjölgaði á landinu öllu
um 0,72% en í Austfirðingafjórð-
ungi varð fækkun á árinu um
0,70%.
„Atvinnuástand batnaði milli
ára,“ sagði Guörún Ólafsdóttir á
verkalýðsskrifstofunni. Byggingar-
starfsemi hefur aukist og einnig er
aukning í ferðaþjónustu og verður
væntanlega stökk þar þegar hótelið,
sem nú er í byggingu, tekur til
starfa á næsta ári. -SB
Foreldrar, sem hafa átt börn í skólanum og ætla aö
innrita barn næsta skólaár, þurfa aö gera þaö fyrir
febrúarlok. Eftir þaö fellur forgangsréttur þeirra niöur.
Skólastjóri
mEc-n