Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Qupperneq 20
20
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1997
Fréttir
Glæsilegt íþrótta-
hús vígt
DV, Mývatnssveit:
Nýtt íþróttahús í Reykjahllð í
Mývatnssveit var vígt 11. janúar að
viðstöddu miklu fjölmenni eða um
250 manns. Leifur Hallgrímsson
oddviti setti samkomuna en nýráð-
inn sveitarstjóri, Sigbjöm Gunnars-
son, stjórnaði henni.
Ýmislegt var á dagskrá. Öm Frið-
riksson sóknarprestur fór með bæn
og blessaði húsið. Börn úr Reykja-
hlíðarskóla gengu fylktu liði í sal-
inn með islenska fána í fararbroddi
og sýndu leikfimi, íþróttir, léku á
hljóðfæri og dönsuðu.
Sigurður Rúnar Ragnarsson, frá-
farandi sveitarstjóri, rakti bygging-
arsögu hússins og Sigbjörn sveitar-
stjóri afhenti síðan Guðmundi Bald-
urssyni, forstöðumanni íþróttamið-
stöðvar Skútustaðahrepps, lyklana
aö nýja íþróttahúsinu sem er sam-
byggt við sundlaugarhúsið sem vígt
var 25. júní 1982.
Einnig tóku til máls Sigfríður
Steingrímsdóttir, formaður íþrótta-
Fjölmenni var viö vígsluna, m.a. Guömundur Bjarnason ráöherra - þriöji frá vinstri.
Sigbjörn Gunnarsson sveitarstjóri afhendir Guðmundi Baldurssyni, for-
stööumanni íþróttamiöstöövarinnar, lyklana aö húsinu. DV-myndir Finnur
félagsins Eilífs, sem færði háa pen-
ingagjöf frá félaginu til tækjakaupa,
Ormar Þór Guðmundsson, arkitekt
hússins, og Guðmundur Bjarnason
ráðherra. Fluttu þau heillaóskir og
auk þess höfðu borist kveðjur og
árnaðaróskir víða að. Þá var fjölda-
söngur við undirleik Jóns Áma Sig-
fússonar á harmóníku og húsið
skoðað.
Að lokum var öllum boðið til
kafFidrykkju í grannskóla hrepps-
ins er stendur skammt frá og svign-
uðu þar borð undan kræsingum.
Bygging hússins tók um 220 daga.
Arkitekt er Ormar Þór Guðmunds-
son, Reykjavík, og verktaki var
Sniðill hf. í Mývatnssveit að undan-
gengnu útboði. Eftirlit var í hönd-
um Tækniþjónustunnar á Húsavík
og heildarkostnaður var um 65
milljónir króna. Tilkoma þessa nýja
íþróttahúss á öragglega eftir að
valda algjörri byltingu í sveitinni og
þá í jákvæðri merkingu og er von-
andi að sem flestir Mývetningar
nýti sér þessa frábæru aðstöðu í
framtíðinni, sér til heilsubótar og
ánægju.
-FB
Slökkvilið Akureyrar:
Mikil fjölgun útkalla
Á árinu 1996 urðu samtals 100 út-
köll hjá slökkviliði Akureyrar. Þar
af voru 5 útköll utanbæjar á svæði
Brunavama Eyjaijarðar. Er þetta
mikil fjölgun frá árinu áður en þá
voru útköll slökkviliðsins 60, þar af
8 utanbæjar.
Af þessum 100 útköllum á síðasta ári
voru 55 vegna elds en 45 þar sem eldur
kom ekki við sögu. Stærstu brunatjón-
in á árinu 1996 voru þegar samkomu-
staðurinn 1929 skemmdist i eldi þann
22. september og þegar útihús á Staðar-
hóli eyðilögðust í eldi 6. október. Á
svæði slökkviliðs Akureyrar varð ekki
manntjón í bruna á árinu.
Sjúkraútköll voru 1091 á síðasta
ári og þar af voru 175 utanbæjar.
Árið áður voru sjúkraflutningar
1137 talsins, þar af 176 utanbæjar.
Af þessu 1091 sjúkraútkalli voru 262
bráðatilfelli. 53 sjúkraflutningar
voru yflr 40 km langir, þar af 24
meira en 90 km langir.
Minna var um forvamarstarf hjá
slökkviliði Akureyrar en áður og
var það einkum sökum veikinda
eldvamareftirlitsmanns. Þó var
fræðsla í grunnskólum bæjarins fyr-
ir 8 ára böm. -RR
Útköll og eldsvoðar á Akureyri
r.r< I rArtmnni AriA 1 QOC ^
og í nágrenni áriö 1996 -
Aukablað um
skatta og f jármól
Miðvikudaginn 29. janúar mun aukablað
um skatta og f jármal fylgja DV.
Blaöiö veröur fjölbreytt og efnismikiö en í því verður fjallað
um flest það er viðkemur sköttum og fjármálum heimilanna,
m.a. skattframtöl, húsnæðislán, kreditkort, greiðsludreifingu,
leiðir til sparnaðar o.fl.
Þeim sem vilja er bent á að koma fyrirspurnum, upplýsingum
og efni í blaðið á framfæri við Jóhönnu A.H. Jóhannsdóttur,
DV, fyrir 23. janúar. Bréfsíminn er 550-5020.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði vinsamlega hafi samband við Selmu Rut
Magnúsdóttur, auglýsingad. DV, hið fyrsta í síma 550-5720.
Vinsamlegast athugib að síbasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 23. janúar.
Slökkvilið Hafnarfjarðar:
Alls 213 útköll é síðasta éri
Alls urðu 213 útköll hjá slökkvi-
liði Hafnaríjarðar á síðasta ári.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
slökkviliðsins fyrir árið 1996.
„í þessum 213 útköllum var um
eld að ræða í 113 tilvikum en meiri-
hluti þeirra, eða 69 útköll, var í
rasli, sinu og gróðri. Árið 1995 vora
útköll 258 talsins þannig að nokkur
fækkun varð í útköllum hjá slökkvi-
liðinu á síðasta ári. Það eru nú 23
fóst stöðugildi við slökkviliðið í
Hafnarfirði og vaktirnEU' era fjórar.
Einn maður starfar við eldvamar-
eftirlit en ég tel að með auknu eld-
varnareftirliti og meiri fræðslu um
brunavamir í skólum og til almenn-
ings megi lækka til muna kostnað
og sársauka vegna brunatjóna,“ seg-
ir Helgi ívarsson, slökkviliðsstrjóri í
Hafnarfiröi.
-RR
Það er ekki algengt að sjá rjúpur vappa um íbúöahverfi höfuðborgarinnar en
fimm þeirra náöust á mynd í byrjun árs í Hraunbænum. Þær fóru sér að engu
oðslega í leit að æti, voru þar góða stund og sýndu ekkert fararsniö á sér þó
smellt væri af þeim mynd. DV-mynd Víglundur Jónsson