Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Qupperneq 36
44
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1997
Að brúka munn
við valdastéttina
„íslenskir hæstaréttardómar-
ar haga sér eins og franska bylt-
ingin hafi aldrei orðið: þeir eru
aldrei refsiglaðari en þegar ein-
hver hefur brúkað munn við
valdastéttina."
Guðmundur Andri Thorsson
rithöfundur, í DV.
Leiðinleg vinna
„Að skrifa bækur er bara
vinna og fyrir latan mann eins
og mig er það leiðinleg vinna.“
Indriði G. Þorsteinsson rithöf-
undur, i Alþýðublaðinu.
Að syngja sitt síðasta
„Ólafur hefur glæsilega rödd
en svona uppbyggða efnisskrá
má enginn tenór leyfa sér að
setja upp, nema hann sé ákveð-
inn í að syngja sitt síðasta."
Ragnar Björnsson tónlistar-
gagnrýnandi, í Morgunblaðinu.
Ummæli
Ómerkilegir loddarar
„Það eru ósköp einfaldlega
ómerkilegir loddarar sem halda
því fram að það sé hægt að bæta
kjör fólks með þeim hætti.“
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastj. VSÍ, um kröfugerð
Dagsbrúnar, í Alþýðublaðinu.
Ótrúlegir dagar
„Þessir dagar hafa verið ótrú-
legir hjá mér því ég hef aldrei
áður staðið niður þrjú mót í röð
og hvað þá að vinna þau öll.“
Kristinn Björnsson skíðakappi,
í Morgunblaðinu.
Myndin sýnir leiöangur sem kom
á noröurpólinn í apríl 1988.
Hver varð fyrst-
ur á norður-
heimskautið?
Hvorki er fullsannað að
bandaríski heimskautafarinn dr.
Frederick Albert Cook né banda-
ríski flotaverkfræðingurinn Ro-
bert Edwin Peary hafl í raun og
veru komið á norðurpólinn.
Leiðangur Wallys Herberts á ár-
unum 1968-1969 var með full-
kominn útbúnað og tæki á nú-
tímamælikvarða en fór samt
ekki nema 37 kílómetra á 15
klukkustundum þegar best lét og
yfir greiðfæran ís var að fara.
Cook kvaðst tvisvar hafa komist
42 kílómetra leiö á sama tíma en
Peary fullyrti að hann hefði að
meðaltali komist 61 km á dag,
átta daga í röð, sem verður að
telja fjarri öllum sanni.
Blessuð veröldin
Komu íyrstu menn
flugleiðis?
„Þeir sem komust fyrstir á
norðurpólinn svo sannað sé
(90°00’00”n.br. plús/mínus 300
metra) voru Rússarnir Geordi-
yenka, Senko, Somov og Ostrek-
in. 23. apríl 1948 komust þeir
flugleiðis á pólinn og fóru einnig
aftur flugleiðis. Sá sem fyrstur
braut sér leið á ísnum svo full-
sannað sé var Bandaríkjamaður-
inn Ralph Plaisted og þrír félag-
ar hans sem komust á pólinn kl.
15 19. apríl 1968, eftir 42 daga
ferð á fjórum snjóbílum. Banda-
rísk veðurathugunarstöð stað-
festi staðarákvörðun þeirra 18
tímum síðar. Heimleiðis fóru
þeir félagar með flugvél.
Rigning suðvestanlands
Suðaustur og austur af landinu er
hæðarhryggur sem hreyfist suð-
austur. Lægðardrag á Grænlands-
hafi hreyfist austur og suður af Ný-
fundnalandi er vaxandi 990 mb lægð
á hreyfingu norðnorðaustur.
Veðrið í dag
í dag er gert ráð fyrir sunnan- og
suðvestanátt, hvassri norðvestan til
en stinningskalda eða allhvössu víö-
ast annars staðar. Það verður rign-
ing um landið suðvestanlands með
allhvassri eöa hvassri sunnanátt ná-
lægt hádegi en síðdegis verður rign-
ing eða súld um allt land. Austan-
lands verður skýjað en þurrt að
mestu. Hiti verður á bilinu 0-7 stig
um vestan- og norðanvert landið en
vægt frost suðaustanlands.
Sólarlag í Reykjavík: 16.37
Sólarupprás á morgun: 10.39
Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.48
Árdegisflóð á morgim: 05.11
Veðriö kl. 12 á hádegi í gœr:
Akureyri alskýjaö 2
Akurnes alskýjaó -3
Bergstaöir skafrenningur 0
Bolungarvík úrkoma í grennd 5
Egilsstaöir skýjaö -3
Keflavíkurflugv. alskýjaö 4
Kirkjubkl. skýjaö -1
Raufarhöfn skýjaö 0
Reykjavík alskýjaö 1
Stórhöföi alskýjað 4
Helsinki þokumóöa 1
Kaupmannah. þokumóóa 2
Ósló þoka á síö.klst. -2
Stokkhólmur léttskýjaö 4
Þórshöfn léttskýjað 1
Amsterdam rigning 4
Barcelona þokumóöa 12
Chicago snjókoma -18
Frankfurt rigning 1
Glasgow rigning 7
Hamborg alskýjaö 3
London þoka 6
Lúxemborg rigning og súld 3
Malaga skýjaö 16
Mallorca alskýjaö 16
Miami léttskýjaó 3
París rigning 6
Róm þokumóóa 10
New York heiöskýrt -14
Orlando heiöskírt 0
Nuuk snjóél -9
Vín frostúöi -4
Winnipeg heiöskírt -7
Karl Bjömsson, bæjarstjóri Selfoss:
Góð útkoma er engum einum að þakka
DV, Selfossi:
í nýlegri könnun blaðsins Vís-
bendingar um fjárhags- og rekstrar-
stöðu sveitarfélaga kom fram að Sel-
fossbær er í efsta sæti hvað varðar
góðan rekstur. Selfossbær fær þar
bestu einkunn og einnig fær sveitar-
félagið góða útkomu þegar niður-
stöður neyslu- og kjarakönnunar
voru birtar nú á dögunum.
Bæjarstjóri í þessu fyrirmyndar-
sveitarfélagi er Karl Björnsson og
honum er þökkuö að stórum hluta
þessi góða útkoma bæjarfélagsins.
„Það er engum einum að þakka
þessi ánægjulega útkoma. Samhent
vinna bæjarstarfsmanna, sem og
bæjarstjórnarmanna allra, hefur
leitt þessa niðurstöðu af sér. Ég er
mjög ánægður með þær staðreyndir
Maður dagsins
sem koma fram í þessum könnunum
og vona að okkur beri gæfa til að
halda áfram á sömu braut.“
Karl Björnsson er viðskiptafræð-
ingur að mennt. Hann vann hjá Fyr-
irtækjadeild Byggðastofnunar áður
en hann réðst til starfa sem bæjar-
stjóri Selfoss árið 1986, þá einhleyp-
ur 29 ára gamall „strákur” , aö sum-
um fannst. Karl hefur verið farsæll í
Karl Björnsson.
starfi og leik á Selfossi sem leitt hef-
ur það af sér að hann fann maka
sinn þar, Katrínu Karlsdóttur, og
búa þau nú í fallegu einbýlishúsi
ásamt börnum sínum.
„Jú, starfið er tímafrekt og geng-
ur oft og tiðum fyrir öðru, en ég
reyni að eyða stopulum ffístundun-
um með fjölskyldunni. Ég á margt
gott vina- og kunningjafólk sem ég
reyni að rækta samband við eins og
ég mögulega get.
Besta leiðin til að slappa af er að
gera eitthvað allt annað en það sem
starfið krefst af mér. Ég hef áhuga á
að viðhalda húsinu og garðinum og
svo hef ég síöustu ár verið að byggja
sumarhús í Biskupstungum með að-
stoð fjölskyldumeðlima og vina.
Þaö er ótrúlega gaman að fást við
þessa hluti, að ég tali nú ekki um að
loknu verki ef það hefur tekist vel.“
Karl á sæti í ýmsum nefndum á
vegum Selfossbæjar. Hann er for-
maður í stjóm Brunavama Árnes-
sýslu, Almannavamanefndar Selfoss
og nágrennis og stjómar Sorpstöðv-
ar Suðurlands. Hann á sæti í Hér-
aðsnefnd og er fjárhaldsmaður
nefndarinnar. Einnig hefur Karl
gegnt fjölmörgum störfum fyrir
Samband ísl. sveitarfélaga. Þegar
unnið var aö flutningi grunnskólans
frá ríki tO sveitarfélaga kom Karl
verulega við sögu, hann vann þar i
kostnaðamefnd. Fram kom á full-
trúaráðsfundi ísl. sveitarfélaga í
Borgamesi að vera hans í þeirri
neöid hefði að stórum hluta orðið til
þess að meira íjármagn kom tO
sveitarfélaganna.
„Ö0 þessi vinna krefst skipulagn-
ingar á vinnutOhögun en ég verð þó
aö viðurkenna að of margar vinnu-
stundir fara stundum i þessi verkefni
sem vinna verður á kvöldin og um
helgar. Með góðum skilningi fjölskyld-
unnar tekst þetta allt,“ sagði Karl
Bjömsson, bæjarstjóri fyrirmyndar-
bæjarfélagsins Selfoss. -K.Ein.
Erfiðismunir
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
Handbolti
og körfu-
bolti
Eftir viðburðarika helgi er
frekar rólegt í innlendu íþrótta-
lrfi í dag. Körfuboltinn og hand-
boltinn halda þó áfram að rúOa
og eru fjölmargir leikir á dag-
skrá i handboltanum og er keppt
í 1. flokki karla og 2. flokki karla
og kvenna. í körfuboltanum eru
fjórir leikir á dagskrá í unglinga-
flokki og fara þeir fram víðs veg-
ar á Suðvesturlandi.
íþróttir
Vert er að benda þeim sem
heima sitja á tvo þætti i sjón-
varpinu, Mörk dagsins á Stöð 2,
þar sem ítalska knattspyrnan er
í fyrirrúmi, og Markaregn í
Sjónvarpinu þar sem enska bolt-
anum um helgina eru gerð skil.
Notkun áttavita
og landakorts
Björgunarskóli Landsbjargar
og Slysavarnafélags íslands
stendur fyrir námskeiði í notkun
áttavita og landakorts fyrir al-
menning í Reykjavík dagana 20.
og 22. janúar. Námskeiðið verð-
Námskeið
ur haldið í húsnæði Björgunar-
sveitarinnar Ingólfs, Gróubúð,
Grandagarði. Námskeiðið sam-
anstendur af grunnfræðslu í
notkun áttavita og landakorts og
er því tilvalið fyrir alla sem ferð-
ast utan alfaraleiða að sumri og
vetri til.
Bridge
Það getur komið sagnhafa í koll ef
hann þykist hafa fundið örugga
spilaáætlun og lætur það í ljós full-
ur yfirlætis. Fræg er sagan um
milljónamæringinn frá vesturrikj-
um Bandaríkjanna sem var sagn-
hafi í 4 spöðum:
♦ Á
44 104
♦ D764
♦ KDG1032
Vestur Norður Austur Suður
1 44 pass 2 * 4 4
Dobl p/h
Vestur hefði getað hnekkt spilinu
með því að spila út hjartakóng og
síðan laufi. En hann spilaði strax út
einspilinu og sagnhafi tók laufásinn
og spilaði spaðakóng. Austur drap á
ásinn og spilaði háu laufi sem sagn-
hafi drap á trompdrottningu.
Trompin voru nú tekin, hjarta-
drottningunni spilað og vestur átti
slaginn á kónginn í þessari stöðu:
4 —
* G8
* 932
* 97
v A 4 D764
S * DG
4 654
44---
4 ÁG108
4 —
4 —
4» Á9653
4 K5
4 --
4 982
44 ÁK96532
4 K5
4 8
4 DG10
44 D
4 ÁG10
4 4
í þessari stöðu var sagnhafi svo
viss í sinni sök að hann tók rándýrt
úr af hendi sinni, lagði á borðið og
sagði við vestur „ég veit allt um
spilið og skiptinguna, ef þú getur
hnekkt þessum samningi máttu eiga
úrið.“ Vandamálið snerist um að
tapa ekki tveimur slögum á tígul og
sagnhafi þóttist hafa endaspilað
vestur. En vestur átti mótleik sem
sagnhafi sá ekki. Hann spilaði ein-
faldlega lágu hjarta. Blindur átti
slaginn en sagnhafi tapaði alltaf
tveimrn- slögum á tígul.
ísak Öm Sigurðsson