Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1997, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1997
Stuttar fréttir Útlönd
DV
Skotiö á landflótta N-Kóreumann við Seoul:
Flugumenn frá N-Kóreu
sakaðir um morðtilraun
Skotárás í Stokkhólmi
Sænskur lífvörður skaut á fé-
laga sína við konungshöllina í
Stokkhólmi í gær. Særðust
tveir, þó ekki lifshættulega, er
sama kúlan fór í gegnum annan
og i fót hins.
Hótar skattaverkfalli
Umberto Bossi, leiðtogi Norð-
urbandalagsins á Ítalíu, hótaði í
gær að skipuleggja skattaverk-
fall verði réttindi norðursins til
sjálfstæðis ekki viðurkennd.
Lebed haltur
Alexander Lebed, fyrrum ör-
yggismálastjóri Kremlar, haltr-
aði í París í gær og varð að
hætta viö ýmsar skoðunarferðir.
Aðstoðarmenn Lebeds kváðu
hann vera með inngróna nögl.
Skíðamenn farast
Fimm skíðamenn létu lifið i
snjóflóðum í frönsku Ölpunum
og í Pýreneaijöllum í gær.
Konur gegn íslam
Átta þúsund konur efndu á
laugardag til mótmæla í Ankara
gegn tilraunum yfirvalda til að
draga úr réttindum kvenna.
Reuter
Robland
trésmíðavélar
Fyrir metnaðarfulla
iðnaðarmenn og
verkstæði sem velja
hámarks gæði og
rekstraröryggi I
Þegar gæðin skipta máli
Skeifan 7 7 D • Sími 568 6466
Yfírvöld í Suður-Kóreu hafa fyrir-
skipað að öryggisgæsla landflótta
Norður-Kóreumanna og leiðtoga
stjómarinnar verði aukin í kjölfar
skotárásar á Li Il-nam, frænda fyrr-
verandi eiginkonu leiðtoga Norður-
Kóreu, nálægt Seoul á laugardag-
inn.
Suðurkóreskir ráðherrar saka
yfirvöld í Norður-Kóreu um að hafa
sent tvo flugumenn til að reyna að
ráða Li Il-nam af dögum. Litið er á
morðtilraunina sem viövörun til yf-
irvalda í Suður-Kóreu og þeirra sem
hafa í hyggju að sækja þar um hæli.
í Peking var mikil öryggisgæsla í
gær við sendiráð Suður-Kóreu þar
sem Hwang Jang-yop, helsti hug-
myndafræðingur Norður-Kóreu,
leitaði hælis í síðustu viku. Vopnað-
ir kínverskir lögreglumenn reistu
varnarvegg umhverfis sendiráðið
og óku trukk með gríðarstórum
vatnsþrýstibyssum að byggingunni.
Þeir komu einnig fyrir hindrunum,
sem eyðileggja bíldekk, á nálægar
götur.
„Ef Suður-Kóreumenn ætla að
beita valdi til að flytja hann til Suð-
ur-Kóreu munum við svara með
valdbeitingu. Við erum ákveðnir í
að koma í veg fyrir að þeir flytji
hann til suðurs," sagði stjómarer-
indreki frá Norður- Kóreu, sem ekki
vill láta nafns síns getið, í gær.
Búist er við að Hwang, sem hefur
lýst því yfir að hann vilji heldur
deyja en snúa aftur heim, verði enn
um sinn í sendiráði Norður-Kóreu.
Ólíklegt er talið að kínversk yfir-
völd verði við beiðni hans um að fá
að fara til Suður- Kóreu fyrr en há-
tíðarhöldunum vegna afmælis Kims
Jong-ils, leiðtoga Norður-Kóreu,
lýkur en hann varð 55 ára í gær.
Fréttastofa í Tokyo í Japan, sem
fylgist náið með útvarpssendingum
í Norður-Kóreu, greindi frá því að
ekki virtist hafa verið efnt til stórra
athafna í tilefni afmælisins, ef frá er
talin leikfimisýning þúsunda skóla-
barna. Japanskir sérfræðingar í
málefnum Kóreu telja að Kim hafi
neyðst til að hafa hátíðarhöldin um-
svifaminni en ráðgert var vegna al-
varlegs skorts á matvælum. Aðrir
fréttaskýrendur eru þeirrar skoðun-
ar að hættulegt hefði verið fyrir yf-
irvöld að stefna tugþúsundum
hungraðra þegna til höfuðborgar-
innar. „Hafa verður í huga að fólkið
sveltur. Það gæti jafnvel ögrað sjálf-
um Kim Jong-il,“ er haft eftir einum
sérfræðinganna. Reuter
Lögregla í Suöur-Kóreu stöövar bifreiö fyrir utan Seoul í leit að tveimur meintum noröurkóreskum flugumönnum. Þeir eru grunaðir um aö hafa skotiö á land-
flótta N- Kóreumann. Slmamynd Reuter
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfr. er óskað eftir tilboðum i
viðbyggingu við vigtunarhús Malbikunarst. Höfða hf. Um er að
ræða uppsteypu og fullnaðarfrágang á 140 m2 viðbyggingu.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriöjud. 18. febr. nk.
Opnun tilboða: fimmtud. 6. mars 1997, kl. 11.00 á sama stað.
bgd 21/7
F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboðum í vinnu við lögn
brunaslöngukerfis í húseignum hafnarinnar og nefnist verkiö:
Grandagaröur 16 og 18 brunaslöngukerfi. Verkið felst í að
leggja aðfærslur að brunaslöngum og uppsetningu á þeim.
Helstu magntölur: Vatnslagnir: 025 290m Vatnslagnir: 032
450m Brunaslöngur: 37 stk. Hitaþráður: 10W 150 m.
Útboösgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 18. febr. nk.,
gegn kr. 10.000 skilatr. Opnun tilboða: miövikud. 5. mars
1997, kl. 11.00 á sama stað. rvh 22/7
F.h. Byggingadeildar borgarverkfr. er óskað eftir tilboðum í
lóðarframkvæmdir við Ásmundarsafn, 2. áfangi. Helstu mapn-
tölur eru um: Hellulagnir: 300 m2 Gróðurbeð: 1.000 m2 Ut-
boðsgögn fást á skrifstofu vorri. Opnun tilboða: þriöjud. 4.
mars 1997, kl. 14.00 á sama stað. bgd 23/7
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 552 58 00 - Fax 562 26 16
Vara erlenda fréttamenn við
Yfirvöld í Serbfu vöruöu í gær er-
lenda fréttamenn við vegna frétta-
flutnings þeirra af stjómmálakrepp-
unni í landinu. Kváðust yfirvöld
verða að bregðast við og heimta
leiðréttingu greini fréttamenn ekki
rétt frá. Áður hafa yfirvöld aftur-
kallað leyfi nokkurra erlendra
fréttamanna. Viðvörunin þykir
benda til þess að stjómvöld hyggist
ekki láta undan kröfum stjórnar-
andstæðinga um frjálsa fjölmiðla án
þess að berjast á móti.
Stjórnarandstæðingar hafa nú
gert hlé á mótmælum sínum á göt-
um úti sem staðið hafa yfir í þrjá
mánuði. Ætla þeir að gefa yfirvöld-
um frest til 9. mars til að koma á
fjölmiðlafrelsi.
Síðar á þessu ári verða haldnar
bæði þing- og forsetakosningar í
Serbíu. Eitt aðalbaráttumál stjóm-
arandstæðinga nú er því að fá að-
gang að helstu fjölmiðlunum sem
Slobodan Milosevic Serbíuforseti
stýrir með harðri hendi.
Útsendingar sjálfstæðra útvarps-
stöðva ná skammt og stjómvöld
skammta frjálsum dagblöðum og
tímaritum pappír. Reuter
Stjórnarandstæöingar í Serbíu hafa gert hlé á mótmælum sínum og torgiö í
miöborg Belgrad, þar sem tugir þúsunda hafa safnast saman á hverjum
degi, var því autt í gær. Simamynd Reuter
Mótmælaganga
gegn frönsku
Þjóðfylkingunni
Nokkur hundmð vinstrimenn
efiidu til mótmælagöngu í Vit-
rolle í Frakklandi í gær er Þjóð-
fylking Jean Maries Le Pens,
sem vill senda innflytjendur
heim, tók
formlega við
völdum í
borginni.
Hinn nýi
borgarstjóri,
Catherine
Megret,
hvatti til ein-
ingar meðal
borgarbúa.
Mennta-
og listamenn Catherine Megret.
í Frakklandi
hafa að undanfornu mótmælt
harðlega nýju lagafmmvarpi
ríkisstjómarinnar um innflytj-
endur. Segja þeir fmmvarpið
endurspegla skoðanir Le Pens.
Sé það lagt fram til að sýna kjós-
endum að stjómvöld geti, jafn-
vel og öfgasinninn Le Pen, hert
að innfiytjendum. Samkvæmt
frumvarpinu eiga franskir þegn-
ar meðal annars að láta lögreglu
vita þegar erlendir gestir þeirra
hafa yfirgefið landið. Reuter