Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1997, Page 11
MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1997
11
Fréttir
Loðnufrysting á Seyðisfirði:
Akureyringar
með frystihús
og togara
DV, Seyðisfirði:
Frystihúsið Norðursíld, sem er í
eigu SR-mjöls, hefur nú verið tekið
á leigu af Útgerðarfélagi Akureyr-
inga. Það gerðu þeir reyndar líka á
loðnuvertíðinni í fyrravetur en þá i
félagi við aðra.
Fulltrúi ÚA og verkstjóri á
staðnum er Sævar Þorsteinsson
og aðstoðcuverkstjóri hans Eð-
vald Garðarsson. Þeir eru báðir
ungir fiskiðnaðarmenn, reyndir í
starfi. Starfsmenn eru alls 28 og
er verbúð og mötuneyti á staðn-
mn.
Við bryggjuna liggur síðan togar-
inn Sólbakur EA og eru þar 17
menn sem frysta um borð. Frysting
hófst í sl. viku og hafa þegar verið
fryst um 470 tonn fyrir Rússlands-
markað.
Nú er loðnan að ná því gæðastigi
sem hún þarf að hafa til að uppfylla
kröfur Japana. Þá mun koma til
starfa meira af vönu fólki.
Japönsku kaupendurnir eru
kröfuharðir og senda ávallt sína
fulltrúa í vinnslustöðvar til eftirlits
með að gæðakröfur þeirra séu upp-
fylltar.
-JJ
Suðurnes:
Jarðskjálfta-
mælum fjölgað
DV, Suðurnesjum:
Þremur jarðskjálftamælum, sem
Hitaveita Suðurnesja festi kaup á,
hefur verið komið fyrir á þremur
stöðum - við Vogastapa, skammt frá
Sæbýli, úti á Stafnesi og sunnan við
Þorbjörn við Grindavík.
Að sögn Alberts Albertssonar,
aðstoðarforstjóra Hitaveitu Suð-
umesja, er mælunum komið fyrir
á litlum, steyptum steinpöllum.
Frá hverjum mæli liggur
símakapall í nærliggjandi hús
þar sem tölva tekur við mæling-
unum og sendir þær til Veður-
stofu íslands.
Mælarnir verða væntanlega tekn-
ir í notkun innan tveggja vikna. Al-
bert segir að hlutverk þeirra sé þri-
þætt: að fylgjast með jarðskjálftum
á Suðumesjum í þágu almanna-
vama, að staðsetja og teikna
sprungur jarðhitageymisins svo
skilningur manna á honum aukist
og loks á að þróa aðferð til að stað-
setja jarðhitaholur með öruggari
hætti en áður.
Hitaveitan kaupir mælana, setur
þá upp og rekur að hluta til. Mæl-
arnir verða hluti af neti jarðskjálfta-
mæla Veðurstofunnar og í rekstri
hennar að mestu. Andvirði búnað-
arins er um þrjár og hálf milljón
króna. -ÆMK
Fráveitumannvirki á Suðurnesjum:
Lægsta tilboðið
43,6% af kostn-
aðaráætlun
DV, Suðurnesjum:
„Við erum mjög ánægð með til-
boðin. Það kom okkur raunverulega
á óvart hvað þau eru lág. Ég hef
rætt við forsvarsmenn hjá Vamar-
liöinu og þeir hafa lýst yfir ánægju
sinni með þau. Niðurstaðan úr til-
boðunum mun auðvelda vinnu okk-
ar með Bandaríkjamönnum þegar
kemm- að sjálfúm byggingarfram-
kvæmdunum," sagði Kristján Páls-
son alþingismaður.
Hann er formaður verkefnis-
stjórnar sem er framkvæmdaaðili
fýrir Reykjanesbæ í fráveitumann-
virkjum sem Varnarliðið og
Reykjanesbær fyrirhuga að byggja
í Njarðvíkurhverfi Reykjanesbæj-
ar. Tilboð vom opnuð 10. febrúar.
Kostnaðaráætlun var 29 milljónir
króna.
Lægsta tilboðið hljóðaði upp á
12,6 milljónir sem er 43,6% af
kostnaðaráætlun. Fjögur fyrirtæki
áttu það tilboð: Hnit hf., Tækni-
þjónusta SÁ, Almenna verkfræði-
stofan og Rafteikning. Að sögn
Kristjáns hefur verkefnisstjómin
ákveðið að leggja til við bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar að taka
lægsta tilboðinu.
Tilboðið felur í sér hönnun á út-
rásum, sniðrásum og hreinsi- og
dælustöðvum. Hæsta tilboðið hljóð-
aði upp á 26 milljónir sem er 90% af
kostnaðaráætlun. Þrir hópar fengu
að bjóða í verkið en í hverjum hópi
vom nokkur fyrirtæki saman um
tilboð.
Að sögn Kristjáns er verið að
gera ráð fyrir að heildarkostnaður
við fráveituframkvæmdir verði inn-
an við einn milljarð króna. Hann
segir að með hægstæðum tilboðum
verði sú upphæð lægri en talað var
um í fyrstu.
-ÆMK
Fryst er í Sólbak við bryggju á Seyðisfirði,
DV-mynd Jóhann
CSD-ES600
fermingartilboð kr.
19.995
CSD-ES30
fermingartilboð kr.
17.995
CSD-ES200
fermingartilboð kr.
c >.
m
0 3 CZ~D
2ja diska geislaspilan
Hljómmiklir hátalarar
Tónjafnari m/Rock-Popp-Jazz
Bass-Boost
Einnar snertingar upptaka
FM-MB og LB útvarp
Heyrnatólatengi
Vandað segulband
oi£JrS
Fullkominn geislaspilari
Front Surround hljómkerfi
4 hljómmiklir hátalarar
Tónjafnari m/Rock-Popp-Jazz
Bass-Boost
Einnar snertingar upptaka
FM-MB og LB útvarp
Heyrnatólatengi
Vandað segulband
'^ ÖY'S- ■
Fullkominn geislaspilari
Hljómmiklir hátalarar
Bass-Boost
Einnar snertingar upptaka
FM-MB og LB útvarp
Heyrnatólatengi
Vandað segulband
Ö!