Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1997, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1997
31 '
Vj£)JjJ JjJ-1
ÍJjJJjJí'jjJj'1
m
Ný skótjar-
hbggsvel
Nýja skógarhöggsvélin
frá finnska fyrirtækinu
Plustech Oy í Finnlandi
gerir skógarhöggsmönnum
kleift að vinna vinnu sína
án þess að valda víðtæku
tjóni á skógarbotni en
hann skemmist oft þegar
vélar á hjólum eða beltum
fara yfir hann. Tækið veg-
ur tíu tonn og er með sex
„fætur“ og 8 metra langa
bómu með bandsög á end-
anum. Það getur fellt tré
sem eru allt að fimmtíu
sentímetrar í þvermál.
Rátt sjónarhorn
Þegar menn vilja mynda
hlutina frá rétta sjónar-
horninu ætti stafræna
myndavélin frá Minolta,
sem kallast Dimeage V, að
koma að góðu gagni. Það
sem er markverðast við
hana er að linsan og skjár-
inn eru á metralangri
snúru þannig unnt er að
stilla myndavélinni ná-
kvæmlega upp. Myndavél-
in skilar venjulegri VGA-
upplausn Hún er nýkomin
á markað vestanhafs og
kostar þar um 59-60 þús-
und krónur. Nánari upp-
lýsingar er að finna á vef-
síðu Minolta sem á slóð-
inni http://www.min-
olta.com
Skrautsýning úr
geimnum
Það verður fagurt um að
litast í himinhvolfmu þeg-
ar halastjarnan Hale Bopp
fer fram hjá jörðinni þann
22. mars. Þótt hún komi
ekki eins nálægt og Hayku-
halastjaman, sem heilsaði
upp á jarðarbúa i fyrra, þá
verður Hale Bopp hugsan-
lega mun bjartari séð frá
jörðu. Hale Bopp mun
þjóta fram hjá jörðinni í
um tæplega 200 milljón
kílómetra fjarlægð.
Tveir menn uppgötvuðu
Hale Bopp hvor í sínu lagi
23. júlí 1995. Annar þeirra
var hinn þrautþjálfaði
stjörnufræðingur Alan
Hale en hinn var áhuga-
maðurinn Thomas Bopp.
Þegar halastjarnan var
uppgötvuð var hún þúsund
sinnum bjartari en hin
goðsagnakennda Halley-
halastjarna og þótt hún
hafi ekki orðið eins björt
og menn bjuggust við er
skrautlegri sýningu lofað
seinni hluta marsmánaðar.
■ i/j£3JjJ JJj JJjJ
Suðurskautið bráðnar
/
Þessa dagana em tvær skoðanir
vísindamanna ríkjandi um ástand
Suðurskautslandsins. Hefðbundna
kenningin gerir ráð fyrir stöðugu
ástandi á Suðurskautslandinu þar
sem íshellan er talin hafa þakið
meginlandið í 15 milljónir ára. Ný
kenning um að íshellan sé ekki
nema þriggja milljóna ára gömul
hefur valdið nokkrum óróa meðal
vísindamanna enda felur hún í sér
að ástandið á Suðurskautslandinu
sé óstöðugt og ísinn þar geti hopað
skyndilega og mikið með alvarleg-
um afleiðingum fyrir alla jarðarbúa.
Þessar deilur koma upp á sama tíma
og ísbrjótur samtakanna umdeildu,
Grænfriðunga, fór í byrjun þessa
mánaðar auðveldlega í gegnum ís-
inn sem umlykur James Ross eyju.
Meðlimir samtakanna segja að þetta
sé í fyrsta sinn sem skip kemst
hringinn í kringum eyjuna en
venjulega sé James Ross eyja tengd
meginlandinu með þykkri íshellu.
Ferð Grænfriðunga var farin til
þess að vekja athygli á því sem þeir
segja vera sönnur fyrir því að lofts-
lag jarðarinnar sé að hitna af
mannavöldum með ófyrirséðum af-
leiðingum.
Vísindamenn, sem telja íshelluna
vera nýja (í jarðfræðilegum skiln-
ingi), styðjast við steingerðar leifar
af örsmáum sjávarlífverum. Þeir
telja að fundurinn bendi til
þess að „skammt“ sé
síðan hlýtt hafi
verið á Suður-
skautsland-
inu, svo
hlýtt að
utanað-
komandi
sjór hafi
blandast
vatni und-
ir íshell-
unni. Þannig
hafi smádýrin
komist þangað sem
þau fundust. Einnig hafa
þeir fundið steingerðar trjá- og
skordýraleifar. Utanaðkomandi
Sé
ísbrjótur Grænfriöunga fór vandræðalaust í gegnum ísinn í kringum James Ross eyju í byrjun þessa mánaöar. Þaö
segja þeir benda eindregið til þess aö ísinn viö Suöurskautslandiö sé aö bráöna af mannavöldum.
rannsóknir styðja þessar fullyrðing-
ar. Nýlegar
Suðurskautslandiö
r a n n ■
sóknir benda til dæmis til þess að
sjór hafi eitt sinn verið 25-30 metr-
um hærri en hann er nú. Margir
vísindamenn eru einfaldlega ósam-
mála þessum rökum og segja að
Suðurskautslandið hafi verið fros-
in eyðimörk í að minnsta kosti
15 milljónir ára.
Þeir benda á jarðfræði Suð-
urskautslandsins og efna-
samsetningu og staðsetn-
ingu ösku. Að þeirra sögn
bendir askan á Suður-
skautslandinu til að þeir
sem telji að stöðugt ástand
hafi ríkt á heimsálfunni
köldu hafi rétt fyrir sér. Enn
fremur ber grjót ekki þess merki
að hafa komist í snertingu við renn-
andi vatn. Reyndar segja þessir vís-
indcunenn að það sé fullkomlega í
samræmi við kenningar þeirra að
plöntu- og skordýraleifar finnist á
Suðurskautslandinu. Það var nefni-
lega eitt sinn hluti af sama megin-
landi og Suðúr-Ameríka og Nýja-Sjá-
land. Steingervingarnir séu einfald-
lega ævagamlar leifar frá þessum
tíma. Hafi þeir rétt fyrir sér er lítil
ástæða til þess að ætla að meiri
háttar bráðnun eigi sér stað á Suð-
urskautslandinu i náinni framtíð.
Þá þarf mannkynið ekki að yfirgefa
strandborgir sínar og aðlaga sig
gjörbreyttu loftslagi.
Til þess að skorið verði úr þess-
um ágreiningi þarf að aldursgreina
með áreiðanlegum hætti steingerv-
ingana sem fundist hafa eða að
minnsta kosti að sjá hvort þeir hafi
borist til Suðurskautslandsins fyrir
tilviljun. Þangað til verða menn að
biða og sjá.
Fflar á heljarslóð
„Ef litið er til síðustu fimm
milljón áranna sem risaeðlurnar
lifðu og það tímabil borið saman
við undanfarin fimm milljón ár þá
sést glögglega að fílar eru á sömu
leið og risaeðlurnar fóru á sínum
tíma,“ segir Roger J. Cuffey hjá
Pennsylvaniuháskóla. Einungis
tvær tegundir þykkskinnunga eru
eftir, indverski fíllinn og sá
afríski. Eitt sinn titraði jörðin
undan 30 tegundum þessara vold-
ugu dýra og eru hinir risavöxnu
mammútar frægastir fulltrúar
þessarar tegundar. Cuffey segir að
þegar veldi risaeðlanna var sem
mest á jörðinni hafi verið til um 30
tegundir þeirra. Það er nú sannað
mál að stór loftsteinn rakst á jörð-
ina nokkru áður en síðasta risaeðl-
an gaf upp öndina. Kenningin er
sú að loftslagsbreyting í kjölfar
árekstursins hafi valdið útrým-
ingu risaeðlanna. „Þegar risaeðl-
urnar fengu náðarhöggið hafði
þeim þegar fækkað afar mikið og
þær voru að verða útdauða hvort
sem var.“ Cuffey segir að náðar-
höggið fyrir fílana verði ágengni
mannkynsins, hvort sem það er í
formi veiðiþjófnaðar eða eyðingar
þess á heinikynnum filanna.
Vissir þú...
Vissir þú að ein miðilstegundin sem til er eru
miðlar sem geta líkamnað hina framliðnu
fyrir utan miðilinn svo allir viðstaddir
geti séð og þreifað á?
Og vissir þú það að a.m.k. hundruð slíkra
líkamninga hafa náðst fram hér á landi
sem annars staðar í sögu spíritismans
í veröldinni og verið rannsakaðir
mjög ítarlega?
Ef svo er ekki þá áttu ef til vill samleið með okkur og yfir 500
nemendum skólans sl. þrjú ár. Því Sálarrannsóknarskólinn
var hugsaður fyrir venjulegt fólk eins og þig og
mig sem langar að vita flestallt sem vitað er um lífið eftir dauð-
ann og hvar og hvemig því er háttað, og hvers eðlis þessir
handanheimar em, í þægilegum skóla eitt kvöld
eða eitt laugardagssíðdegi í viku fyrir hófleg skólagjöld.
Síðasti bekkur vetrarins byjar á morgun ...
Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um langskemmtilegasta
skólann í bænum sem í boði er í dag. Svarað er í síma skólans
alla daga vikunnar, kl. 14 -19
Sálarrannsóknarskólinn
- Mest spennandi skólinn i bænum -
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050