Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1997, Side 34
42
MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1997
Afmæli
Sigurvin Hannibalsson
Guðmundur Sigurvin Hannibals-
son vélfræðingur, Hafnarbyggð 55,
Vopnafirði, er sextugur í dag.
Starfsferill
Sigurvin fæddist í Þernuvik í Ög-
urhreppi en ólst upp á Hanhóli í
Bolungarvík. Hann lauk miðskóla-
prófl frá Héraðsskólanum í Reykja-
nesi við Djúp 1954, prófi á fiskmats-
námskeiði 1956, stundaði nám í
plötu- og ketilssmíði í Stálsmiðjunni
hf. 1957-61 og lauk vélskólaprófi
1964.
Sigurvin var vélstjóri á hátum
1964-67, stundaði verslunarstörf í
Reykjavík 1967-68, stundaði við-
gerðir á þungavinnuvélum á verk-
stæði Reykjavíkurborgar 1968-70,
starfaði í skipasmíðastöð Kockums í
Malmö 1969, var vélstjóri á Gretti,
var einn af stofnendum
heildverslunarinnar
Goss hf., Reykhólaskips
hf. og Dýpkunarfélags
Siglufjarðar hf. Hann er
nú vélstjóri á Sunnu-
berginu frá Vopnaflrði.
Fjölskylda
Sigurvin kvæntist
17.9. 1960 Sigrúnu Jónas-
dóttur, f. 25.7. 1942. Hún
er dóttir Jónasar Jóns-
sonar og Fanneyjar Jón-
asdóttur er bjuggu í Reykjavík. Sig-
urvin og Sigrún skildu á síðasta ári.
Böm Sigurvins og Sigrúnar eru
Svala, f. 31.12. 1960, kennari í
Reykjavík; Hannibal, f. 15.2. 1965,
vélvirki í Reykjavík; Arnór, f. 6.6.
1967, tækniteiknari í Reykjavík;
Harpa, f. 20.4. 1972, flug-
freyja í Reykjavík.
Systkini Sigurvins eru
Guðríður Hannibalsdótt-
ir, f. 30.3. 1938, kennari í
Mosfellsbæ; Jón Hanni-
balsson, f. 17.6.1939, kenn-
ari í Mosfellsbæ; Lilja
Hannibalsdóttir, f. 28.6.
1940, hjúkrunarfræðingur
í Stykkishólmi; Haukur
Hannibalsson, f. 18.9.1941,
verkstjóri í Kópavogi;
Hulda Hannibalsdóttir, f.
4.2. 1943, húsmóðir og
verktaki á Eskifirði; Ásdis Hannib-
alsdóttir, f. 20.3. 1944, húsmóðir og
verktaki á Norðfirði; Bragi Hannib-
alsson, f. 9.12. 1945, skrifvélavirki í
Reykjavík; Sigríður Halldóra
Hannibalsdóttir, f. 17.12. 1947, mat-
artæknir í Kópavogi; Sigrún
Hannibalsdóttir, f. 21.4. 1950, hús-
móðir og verktaki í Kópavogi; Mar-
grét Hannibalsdóttir, f. 25.1. 1952,
bóndi að Neðra-Núpi í Miðfirði; Jó-
hann Hannibalsson, f. 27.7. 1954,
bóndi að Hanhóli í Bolungarvík;
Fjóla Hannibalsdóttir, f. 22.4. 1953,
ræstitæknir í Danmörku; Rebekka
Hannibalsdóttir, f. 13.2. 1956, hús-
móðir í Danmörku; Þorsteinn
Hannibalsson, f. 10.9. 1961, verktaki
í Hveragerði.
Foreldrar Sigurvins: Hannibal
Guðmundsson, f. 24.4. 1907, d. 9.12.
1984, bóndi á Hanhóli í Bolungarvík,
og k.h., Þorsteina Jónsdóttir, f.
16.11.1914, húsfreyja.
Sigurvin verður við störf úti á sjó
á afmælisdaginn.
Sigurvin
Hannibalsson.
Þóra Ingvaldsdóttir
Þóra Ingvaldsdóttir
hjúkrunarforstjóri,
Bjólfsgötu 8, Seyðisfirði,
er fertug í dag.
Starfsferill
Þóra fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Kópavoginum. Hún
lauk gagnfræðaprófi frá
Vörðuskóla í Reykjavík
1974, lauk stúdentsprófi
frá Strombergsskolen í
Lundi í Svíþjóð 1981,
hjúkrunarfræðiprófi frá
Þóra Ingvaldsdóttir.
Hjúkrunarskóla íslands
1984 og stundaði nám í
fornleifafræði við Lunds
Universitet 1989-90.
Þóra vann ýmis verka-
mannastörf á árunum
1970-81, m.a. í fiskvinnslu,
hjá Sláturfélagi Suður-
lands, á Hótel Lundia í
Svíþjóð og við umönnun
aldraðra hjá Papegojelyck-
an í Lundi í Svíþjóð. Hún
varð hjúkrunarfræðingur
við Sjúkrahús Seyðisfjarð-
ar 1984 og er hjúkrunarfor-
stjóri þar frá 1992.
Þóra var formaður stjómar Aust-
urlandsdeildar Hjúkrunarfélags Is-
lands 1985-87 og var trúnaðarmaður
á vinnustað 1984-85.
Fjölskylda
Þóra giftist 12.12.1975 Pétri Krist-
jánssyni, f. 31.7. 1952, þjóðfræðingi.
Hann er sonur Kristjáns Inga Ein-
arssonar myndlistarmanns sem er
látinn og Sigríðar Ágústu Soebech,
fyrrv. bankastarfsmanns í Reykja-
vík.
Dóttir Þóru og Péturs er Avanti
Ósk Pétursdóttir, f. 1.7. 1995 (kjör-
dóttir).
Systkini Þóru eru Haukur, f. 5.8.
1959, vaktmaður við Landspítalann,
búsettur í Reykjavík; Hörður, f.
12.10. 1960, verslunarmaður í Kópa-
vogi; Barði, f. 18.3.1962, hagfræðing-
ur í Kópavogi; Eyrún, f. 9.11. 1967,
skrifstofumaður, búsett í Kópavogi.
Foreldrar Þóru eru Ingvaldur
Rögnvaldsson, f. 18.3. 1931, verslun-
armaður í Kópavogi, og k.h., Hafdís
Gústafsdóttir, f. 13.9. 1937, starfs-
maður bæjarverkfræðings í Kópa-
vogi.
Fréttir
Bílaleiga Flugleiða hefur fest kaup á 35 Opel Corsa bifreiöum. Bllaleiga Flugleiöa, sem er meö umboö fyrir bíla-
leiguna Hertz á fslandi, bætir viö sig einum fiokki bílaleigubila meö þessum kaupum. Er þaö minnsti flokkurinn
en talsverö eftirspurn hefur verið eftir bilum í þeim flokki. Á myndinni sjást þeir Grétar Br. Kristjánsson, for-
stööumaöur Bflaleigu Flugleiöa, Siguröur Helgason, forstjóri Fiugleiöa, og Júlíus Vffill Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Bílheima. DV-mynd Hilmar Þór
Tryggingafélag tapar slysabótamáli:
Dæmt til að greiða tvisvar
hluta bótafjárhæðar
- hafði greitt bæturnar lögmanni sem stakk stórum hluta þeirra í eigin vasa
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
undirréttar í máli manns gegn
tryggingafélaginu Sjóvá-Almennum
um að tryggingafélagið skuli greiða
manninum tæpa eina milljón króna
sem eru eftirstöðvar slysabóta eftir
vinnuslys. Tryggingafélagið hafði
greitt lögmanni mannsins bæturnar
að fullu en lögmaðurinn hins vegar
stungið stórum hluta þeirra í eigin
vasa þegar hann gerði upp við skjól-
stæðing sinn.
Maðurinn, Aðalbjöm Steingríms-
son, sem er smiður, slasaðist við
vinnu sína vorið 1985 og hlaut var-
anlega örorku. Sjóvá-Almennar
voru dæmdar til að greiða Aðalbimi
slysabætur að upphæð rúmlega 3,6
milljónir króna vorið 1991 og
greiddi tryggingafélagið upphæðina
til Guðnýjar Höskuldsdóttur, lög-
manns Aðalbjamar. Guðný greiddi
Aðalbimi hins vegar aðeins eina
milljón króna en tók afganginn til
eigin þarfa.
Þegar Aðalbjöm varð þessa vís
kærði hann Guðnýju til Lögmanna-
félags íslands og RLR en skömmu
síðar varð Guðný gjaldþrota og bú
hennar reyndist eignalaust. Aðal-
bjöm fékk upp úr því greitt tvisvar
úr ábyrgðarsjóði Lögmannafélags-
ins upp í það sem á vantaði, samtals
1.488.714 krónur, en krafði Sjóvá- Al-
mennar um það sem vantaði upp á
fulla bótafjárhæð.
Þegar tryggingafélagið neitaði að
greiða upphæðina höfðaði Aðal-
bjöm mál gegn því á þeim forsend-
um að hann hefði aldrei gefið Guð-
nýju Höskuldsdóttur umboð til að
taka við greiðslum fyrir sína hönd
og væri þvi óbundinn af þvi upp-
gjöri sem fór fram milli hennar og
Sjóvár- Almennra. Hún hefði ein-
ungis verið skipuð málaflutnings-
maður hans og slíkt umboð næði
einungis til málflutnings fyrir rétti.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á
þetta og var tryggingafélagið dæmt
til að greiða Aðalbirni það sem
hann vantaði upp á af þeim bótum
sem honum höfðu verið dæmdar,
eða 982.441 kr. ásamt vöxtum frá 17.
maí 1985 til greiðsludags og máls-
kostnaði. Sjóvá-Almennar áfrýjuðu
dómi héraðsdóms en Hæstiréttur
hefur nú staðfest hann og gert
tryggingafélaginu að greiða auk
þess 150 þúsund króna málskostnað
fyrir Hæstarétti.
-SÁ
DV
111 hamingju með afmælið 17. febrúar
90 ára
Guðfinna Sveinsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík.
80 ára
Ágústa Björnsdóttir, Hlíðarvegi 23, Kópavogi. Bjarai Blomsterberg, Brekkuhvammi 9, Hafnarfirði.
75 ára
Jenfrid H. Wheeler, Háhæð 1, Garðabæ. Petrfna Eldjára, Suðurbyggð 1, Akureyri.
70 ára
Ásmundur Bjarnason, Uppsalavegi 20, Húsavík. Már Hall Sveinsson, Bárðarási 8, Hellissandi.
60 ára
Guðbjörg Kristinsdóttir, Brautarholti, Staðarhreppi. Hermanda S. Jóhannesdótt- ir, Karlsrauðatorgi 5, Dalvík. Kristín S. Guðmundsdóttir, Vesturvangi 8, Hafnarfirði.
50 ára
Hartmann Óskarsson, Smáratúni 15, Keflavík. Eygerður Anna Jónasdóttir, Hrauntúni 15, Vestmannaeyj- um. Anna Fjalarsdóttir, Efstasundi 18, Reykjavík. Kristján Steinsson, Deildarási 22, Reykjavík. Einar Birkir Árnason, Dalskógum 3A, Egilsstöðum. Karl Tryggvason, Brekkubyggð 28, Blönduósi. Stefán Sandholt, Skriðuseli 9, Reykjavík.
40 ára
Haukur Vilhjálmsson, Hvassaleiti 6, Reykjavík. Kolbrún Jónatansdóttir, Suðurhólum 20, Reykjavík. Viðar Svavarsson, Brekkubraut 18, Akranesi. Jón Guðmundur Jóhanns- son, Hjallabraut 1, Þorlákshöfn. Bjarni Harðarson, Unufelli 29, Reykjavík.
WFFJ
Áskrifendur
aukaafslátt af
smáauglýsingum
a\tt mil/í' hirr)in$
Smáauglýsingar
DV
550 5000