Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1997, Blaðsíða 40
í<5.
Vhmingstölwr laugardaginn 15.2.97
5 12 20
HeildarvinningsupphæÓ
3.974.784
Aðal- 21 tölur *1 Vinningar 27 Fjöldi vinninga (31 j Vinn ingsupp hæð
l.Sqfð 0 2.021.024
2.4 <írs+ ®Ti 290.610
3. 4ltfS 63 7.950
4. 3 qfS L2Z2 590
Vinningstölur
15.2/97
> Q O FRÉTTASKOTIÐ
OC J LLJ — SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
S! LTD <C Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
oo C"">
LTD I— 550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1997
Kópavogur:
Hass í bíl og
eltingaleikur
Lögreglan í Kópavogi stöðvaði sl.
r,jgr laugardag ökumann. innanbæjar
vegna gruns um að hann hefði fíkni-
efni undir höndum. í bílnum fundust
nokkur grömm af hassi og við húsleit
heima hjá honum bættist við talsvert
magn af efninu. Við yfirheyrslur ját-
aði maðurinn að hafa átt efnið og telst
það upplýst.
Ungur ökumaður sinnti ekki stöðv-
unarbeiðni lögreglunnar í Kópavogi
þegar hann átti leið um Hafnarfíarð-
arveg í gærmorgun. Hann var því elt-
ur uppi og kallaði lögreglan upp
kollega sina í Hafnarfirði. Ekki kom
til þess að lögreglan þyrfti að stöðva
hann því ökumaðurinn velti bílnum á
Hafnarfjaröarvegi við Garðabæ. Hann
reyndist vera ölvaður en slapp
Bjarni Sveinsson á Eskifirði, sem slasaðist í „lyftaraatlögunni“:
Ég tel mig heppinn
að hafa komist lífs af
„Maðurinn kom á vélinni á móti
okkur út götuna eins og hann væri á
leið til vinnu. Síöan vissum við ekki
fyrri til en hann skipti um vegar-
helming og skellti göfflunum niður
og undir lögreglubílinn hægra meg-
in að framan. Mér leist illa á þetta
enda er lyftarinn öflugt tæki. Maður-
inn byrjaði strax að lyfta lögreglu-
bílnum sem hallaðist á þá hlið þar
sem Þórhallur félagi minn sat. Hann
náði að opna dyrnar sín megin og
skjótast út. Ég tók beltið af mér og
reyndi að opna mín megin til að
komast út en tókst það ekki. Nú fór
billinn að sporðreisast aftur á bak.
Ég var undrandi á þessum aðfórum.
Þegar billinn var að fara á hvolf var
ég búinn að losa mig úr beltinu og
lenti því harkalega með höfuðið í
toppnum, án þess að geta borið
hendurnar fyrir mig. Þetta var ansi
vont. Fyrst í stað hafði ég ekki fund-
ið til hræðslu en þetta gerðist allt
svo snöggt að enginn tími var til að
hugsa. Ég varð að vera fljótur á lapp-
ir og koma mér út. Ég heyrði að
maðurinn bakkaði vélinni frá og ók
svo áfram. Ég átti von á að hann
myndi keyra gafflana í botn bílsins.
Nú var bara að hrökkva eða stökkva
og reyna að vera fljótur,“ sagði
Bjarni Sveinsson, aðalvarðstjóri lög-
reglunnar á Eskifirði, sem komst í
hann krappan á laugardagsmorgim
þegar æðiskast rann á 22 ára karl-
mann sem fór upp í öflugan lyftara
og réðst á nánast allt sem fyrir varð
- fyrst á lögreglubíl Bjarna og Þór-
halls Árnasonar varðstjóra, sem
náði að forða sér út úr bílnum á und-
an Bjarna, en síðan á fleiri bíla og
hús.
DV náði tali af Bjarna á sjúkra-
húsinu í Neskaupstað í gær en hann
hlaut meiðsl á hálsi, öxl og baki.
Hélt aö félaginn hefði orðið
undir bílnum
„Ég tel mig heppinn að komast
lífs af úr þessu,“ sagði Bjarni. Þegar
Bjami var að skreiðast út úr lög-
reglubílnum óttaðist hann að Þór-
hallur hefði orðið undir honum því
hann sá hann hvergi fyrst í stað.
„Hann var að elta Þórhall sem
hljóp eins og fætur toguðu á undan
lyftaranum. Síðan tók hann eftir þvi
að ég var kominn út og renndi þá
strax aftur að mér og lögreglubíln-
um. Ég rétt slapp upp á tröppur skól-
ans en hefði getað klemmst á milli
lögreglubílsins og hússins þegar lyft-
arinn fór að hamast aftur á bílnum.
Maðurinn vissi ekkert hvar ég var
þegar hann var að stúta bílnum. Þór-
hallur var kominn til mín og maður-
inn brjálaðist þegar hann sá okkur.
Við Þórhallur stungum okkur síðan
á bak við sundlaug til að taka upp
GSM-síma og hringja. Þá fór maður-
inn að lögreglustöðinni og skemmdi
þar fordyri og glugga. Við heyrðum
mikinn gauragang."
Unnusta lyftaramannsins
aðstoðaði hinn slasaöa
„Ég komst ekki hratt yfir vegna
meiðsla og átti erfitt með að hreyfa
mig. Eymslin voru verst í hálsi og
öxl. Ég átti orðið erfitt um gang,“
sagði Bjarni.
Bjami sagðist hafa hitt unnustu
mannsins á lyftaranum og hún fór
með hann inn í hús til sjúkraliða
sem býr að Strandgötu 45. Þar var
Bjarni látinn setjast í stól og hlúð
vel að honum og hann beðinn að
halda kyrru fyrir vegna meiðslanna.
Bjarni sagðist aldrei hafa lent í
öðru eins og kvaðst viss um að Þór-
halli hefði liðið illa á meðan hann
var enn inni í braki lögreglubílsins
á meðan atgangurinn stóð sem hæst.
„Ég varð eiginlega mest hræddur
þegar ég taldi jafinvel að Þórhallur
hefði orðið undir bílnum. Ég sá
hann hvergi þegar ég skreiddist út,“
sagði Bjarni.
Bjarni sagði að ekki væri enn vit-
að hvort meiðsl hans yrðu varanleg.
Hann átti von á því að fara heim til
Eskifjarðar frá sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað í dag. -Ótt
Örtröð var í bækistöövum ferðaskrifstofanna í gær þegar þær kynntu ferðabæklinga sína og ferðatilboö sumarsins.
Sannkölluð kjötkveðjuhátíðarstemning var í miðborg Reykjavíkur og fólk flykktist í þúsundatali inn á ferðaskrifstof-
urnar. Helgi Pétursson, upplýsingafulltrúi Samvinnuferða-Landsýnar, og Goði Sveinsson, framkvæmdastjóri Úrvais-
Útsýnar, sögöu að mjög mikið hefði verið bókað í ferðir í gær, mun meira en síðustu ár. DV-mynd Hilmar Þór
Patreksfjörður:
Beit gjaldkera
kvenfélagsins!
Hundur af scháfer-kyni á Patreks-
firði beit póstburðarkonu í lærið er
hún var að bera póst að heimili eig-
anda hundsins í síðustu viku. Þetta
teldist vart fréttnæmt nema fyrir þá
sök að eigandi hundsins er Sigurður
Pálsson, húsvörður félagsheimilisins
á Patreksfirði og eigandi Felgunnar,
og póstburðarkonan er gjaldkeri
kvenfélagsins á staðnum. Kvenfélag-
ið lenti sem kunnugt er í rimmu við
Sigurð á dögimum er hann neitaði
konunum að koma með eigið vín á
þorrablót í félagsheimilinu. Svo fór
að þorrablótið var flutt á Tálknaíjörð
og haldið nú um helgina.
Gjaldkerinn, Karólína Jónsdóttir,
staðfesti við DV að hún hefði kært at-
burðinn til lögreglu en hún segist
vera sár og marin á öðru lærinu. Þó
ekki svo illa að hún fór á blótið.
Hún segir hundinn hafa sloppið úr
vörslu sonar Sigurðar sem var með
hann úti í garði er hana bar að. Ekki
væri við strákinn að sakast því hund-
urinn væri gríðarstór. Gárungar
hefðu haft á orði að Sigurður hefði
hins vegar „þjálfað" hundinn í að
þefa uppi kvenfélagskonumar! -bjb
Veðrið á morgun:
Éljagangur á
vestanverðu
landinu
Suðvestanátt verður ríkjandi á
landinu í dag með allhvössum élja-
gangi um vestanvert landið en
þurru og víða léttskýjuðu austan
tiL Hitinn verður nánast alls stað-
ar undir frostmarki, kaldast á
Vestfjöröum þar sem frost getur
orðið 5 stig. Hlýjast verður á suð-
austurhorninu og sjálfsagt fer hita-
stigið þar ekki undir frostmark.
Veðrið í dag er á bls. 44
Opel Vectra
Caravan
# fyrsta sinn
á íslandi
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfba 2a Sími:S25 9000