Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 T">'V7
2 '★
Fyrsta kynskiptiaðgeröin á íslandi heppnaðist vel:
Breyting kynfæra vandasömust
Eins og DV skýrði frá í gær er
fyrstu kynskiptiaðgerðinni hérlend-
is lokið. Um er að ræða konu sem
breytt var í karl. í fyrstu var rann-
sakað að einstaklingurinn sem um
ræðir hefði raunverulegar ástæður
til þess að stíga jafn afdrifaríkt
skref. „Það þarf að fjarlægja brjóst-
in með skurðaðgerð. Það er fyrsta
skrefið en eftir nokkurn tíma er
gerð stóraðgerð þer sem innri getn-
aðarfæri konunnar eru fjarlægð og í
sömu aðgerð er hafin uppbygging á
nýjum getnaðarlim. Til þess er not-
aður vefur sem sóttur er í nárann,"
segir Jens.
Hann segir aö þá verði tveggja
vikna bið verði getnaðarlimurinn
losaður að hluta frá sinni festingu
og viku síðar sé hann alfarið losað-
ur frá festingunni og þar með sé
hann orðinn sjálfstætt líffæri með
þvagrás,“ segir Jens.
Hann segir að þegar þessu lýkur
sé vandasamasti hluti aðgerðarinn-
ar að baki.
„Þetta er vandasamasta stig að-
gerðarinnar og það þarf að gæta vel
að því að þetta lifi allt. Á þessu stigi
eru aðeins smærri aðgeröir eftir til
að gera þetta betur tlr garði,“ segir
Jens.
Hann segir að þar með sé getnað-
arlimurinn orðinn eins og hann á
að vera og geri svipað gagn og á
þeim sem fæddir eru karlkyns.
Hann segir að tæknilega sé svip-
uð aðgerð aö breyta karli í konu.
Ytri kynfæri eru þá fjarlægð og það
sem til fellur þar er notað til að búa
til leggöng og ný kynfæri. Hormóna-
meðferðin sé síðan öfug þar sem
notaður sé kvenhormón í stað karl-
hormóns. Hormónameðferðin sé í
báðum tilvikum sá hluti aðgerðar-
innar sem standi ævilangt.
Ekki klæðskiptingar
Jens segir að á íslandi fæðist á
fimm ára fresti einstaklingar sem
eru með þetta vandamál. Þama sé
ekki um að ræða klæðskiptinga eða
samkynhneigt fólk. Þetta sé með-
fæddur kvilli sem börn uppgötvi
mjög snemma á lífsleiðinni með til-
heyrandi andlegri þjáningu.
„Þetta er allt annað vandamál
heldur en klæðskiptingar og sam-
kynhneigt fólk á við að glíma. Þetta
er raunverulegt vandamál sem ekki
má rugla saman við lík fyrirbrigði.
Menn hafa velt fýrir sér hvort um
sé að ræða áhrif frá uppeldi eða
öðru sem valdi þessu en svo er ekki,
Ytri kynfæri fiarlægð
og notuð að hluta til
að byggja upp leggöng.
Geðlæknismeðferð
Hoimónameðferð
Karihormónar
Innri kynfæri fiariægð.
Kyn-
skipti
Brjóstin fiariægð
með skurðaðgerð.
Sævar Ciesielski kveðst hafa verið þvingaður til játninga:
Þeir hefðu aldrei
sleppt mér lifandi
Sævar Ciesielski á
blaðamannafundi f
gær þar sem hann
kynnti útkomu
bókar sinnar. DV-
mynd Hilmar
„Það er auðvitað mjög alvarlegt
að saka menn um refsiverðan
verknað. En það verður eitthvað að
vera til staðar til að byggja
ákæruna á,“ sagði Sævar Ciesielski,
þegar DV spurði hann um afstöðu
hans til sakarefnanna í ákærum um
manndráp í Guðmundar- og Geir-
finnsmálunum í gær.
- En getur þú svarað með jái eða
neii?
„Nei, ég svara því ekki. Þetta er
svo fáránlegt. Ég þekkti hvorki Guð-
mund né Geirfinn. Ég held að öll
þjóðin viti það.“
- Komstu aldrei nálægt þessum
mönnum?
„Ég kom ekki nálægt þeim, ég
þekkti ekki þessa menn, það eru
engin vitni og það finnst hvergi
neitt um það í gögnum málsins. Það
er ekkert mótíf.“
- Varstu saklaus fenginn til að
játa?
„Já, en það er líka spuming þeg-
ar verið er að fá játningar - hvem-
ig var að þeim staðið?
Ég ætla að segja þér eitt sem er
kannski grundvallaratriði. Þeir
hefðu aldrei sleppt mér lifandi út.“
- Áttu þá við án þess að þvinga
ffam játningar?
„Þvingað? Þeir heföu bara gengið
frá mér,“ sagði Sævar.
Posamir bila:
Skildi eftir
fullar körfur
„Þetta er ferlegt ástand. Við
fáum enga svömn og fólk hef-
ur þurft að skilja fullar körfur
eftir í búðunum," segir Guð-
mundur Marteinsson, rekstr-
arstjóri Bónuss, við DV í gær-
kvöld um bilanir í posunum.
Vegna verkfalls RSÍ hefúr ekki
verið gert við bilanir sem upp
hafa komið hjá Reiknisstofnun
bankanna og margt fólk geng-
ur aðeins með greiðslukort.
„Það gengur allt miklu hæg-
ar vegna þessa og fólk verður
verulega pirrað,“ sagði Guð-
mundur. -sv
„Ný gögn“ um þátt Sakadóms
Sævar hefur nú gefið út bók, Rétt-
armorð, sem inniheldur greinargerð
Ragnars Aðalsteinssonar, réttar-
gæslumanns hans, þar sem fariö er
fram á að mál Svæars verði endur-
upptekið í Hæstarétti. Þar er einnig
að finna greinargerð Sævars sem
hann lagði sjálfur fram áður en hon-
um var skipaður réttargæslumaöur
og umsögn Ragnars Hall, sérstaks
saksóknara við kröfu Sævars.
Aöspurður um það sem hann
teldi helst vera ný gögn í greinar-
gerð Ragnars umfram ýmis atriði
sem komu fram í sjónvarpsþáttun-
um Aðfór að lögum, benti Sævar á
þátt Sakadóms í sjálfri rannsókn
málsins.
Þar hefði m.a. farið fram rann-
sókn fyrir luktum dyrum þar sem
allir verjendur, að undanskildum
veijanda Kristjáns Viðars Viðars-
sonar, hafi vikið áður en vitna-
leiðslur hófust.
Sævar sagði að bókin Réttarmorð
væri gefin út í eitt þúsund eintök-
um. Hann sagði að ákvörðun um út-
komu bókarinnar væri hans sjálfs
enda væri þaö hann sem færi fram
á endurupptöku. Aðspurður um
hvort Ragnar Aðalsteinsson hefði
verið mótfallinn útkomu bókar-
innar sagði Sævar að Ragnar
hefði sagt að Sævar réði sjálfur
hvað hann gerði. -Ótt
Handknattleikur:
Slen og ráðleysi í fýrsta
leik Spánarmótsins
- og íslendingar töpuðu fyrir Þjóðverjum, 20-23
DV, Madrid:
íslenska landsliðið byrjaði illa á
Spánarmótinu í handknattleik sem
hófst í Madrid í gær. íslendingar
áttu á brattann aö sækja gegn Þjóð-
verjum og urðu að sætta sig við
þriggja marka tap, 23-20, eftir að
Þjóðverjar höföu leitt í hálfleik, 10-9.
Töluvert slen var ríkjandi í ís-
lenska liðinu og leikmenn virkuðu
þreyttir eftir erfiðar æfingar að und-
anfómu. Þjóðverjar náðu undirtök-
unum snemma og unnu sannfærandi
sigur á frekar slöku íslensku liði.
Leikur íslenska liðsins var alls
ekki nógu góður, og þá einkum og
sér í lagi sóknarleikurinn. Fimm/
einn vömin gekk ágætlega framan
af en þegar líða fór á seinni hálfleik-
inn fékk stórskyttan Daniel Stephan
að leika of lausum hala og skoraði
hann fjögur mörk á skömmum tíma.
Sóknarleikurinn var afar ráðleys-
islegur á kafla í síðari hálfleik og
mikið um klaufagang íslensku leik-
mannanna. Ólafur Stefánsson og
Róbert Duranona, sem léku lengst
af í skyttuhlutverkunum, náðu sér
alls ekki á strik og sama er að segja
um Patrek Jóhannesson. Duranona
var alltof ragur og skorti greinilega
sjálfstraust og þeir Ólafúr og Patrek-
ur virtust þreyttir.
Dagur Sigurðsson og Geir Sveins-
son léku einna best í íslenska liðinu
en flestir vora undir getu. Homaspil-
ið var ekki virkt, leikkerfin gengu
illa og markvarsla Guðmundar og
Bergsveins var ekki til að hrópa
húrra fyrir. Strákamir verða að bæta
leik sinn til muna fyrir viðurreign-
ina gegn Spánverjum í dag, enda era
heimamenn með eitt besta lið heims
um þessar mundir. íslenska liðið
þarf á stemmningu og baráttu að
halda en þessir hlutir vora ekki til
staðar gegn Þjóðverjum í gær.
„Þetta var slakur leikur af okkar
hálfú, bæði í vöm og sókn. Auðvit-
að er hægt að segja að keyrslan hafi
verið mikil að undanfórnu en við
geram okkur grein fyrir því að við
getum gert miklu betur. Við geröum
alltof mikið af mistökum, sérstak-
lega í sókninni, og náðum aldrei
upp stemmningu og baráttu. Það er
kannski ágætt að fá svona leik í
byijun og við munu öragglega taka
hann fyrir og læra af mistökunum,"
sagði landsliðsmaðurinn Bjarki Sig-
urðsson við DV eftir leikinn.
Mörk fslands: Valdimar Grímsson
5/4, Ólafur Stefánsson 4/2, Róbert Dura-
nona 3, Dagur Sigurðsson 3, Gústaf
Bjamason 2, Patrekur Jóhannesson 1,
Geir Sveinsson 1.
Bergsveinn Bergsveinsson varði 6 skot
og Guðmundur Hrafnkelsson 4.
Markahæstur Þjóöverja voru Daniel
Stephan með 8 mörk.
ísland leikur við Spán í dag og
Hvíta-Rússland á morgun. -GH
þetta er eins og hver önnur van-
sköpun,“ segir Jens.
Dáti varð kona ársins
Hann segir að fyrsta þekkta að-
gerðin sem gerð var í heiminum
hafi verið þegar amerískum dáta
var breytt í konu í Kaupmannahöfn
eftir seinni heimsstyrjöldina.
„Það sem var skemmtilegt við
þetta tilvik var að þessi einstakling-
ur var síðar útnefndur kona Amer-
íku. Hún þótti hafa til að bera slík-
an kvenlegan þokka,“ segir Jens.
Jens segir að ekki séu fleiri að-
gerðir sjáanlegar framundan hér á
landi í bili. -rt
stuttar fréttir
SIF græddi 117 milljónir
Hagnaður af rekstri SÍF eftir
skatta varð 117 milljónir króna á
síðasta ári, sem er nokkra minna
en árið þar á undan. Velta fyrir-
tækisins varð 10 milljarðar og
jókst um 9% milli ára.
Slökkviliðsmenn
hætta
Átta slökkvfliðsmenn hafa sagt
upp störfum vegna lélegra kjara
að sögn formanns Landssam-
bands slökkviliösmanna. Kröfúr
hafa verið hertar um menntun
umsækjenda um stöður slökkvi-
liðsmanna undanfarin ár án þess
að þess gæti í launum þeirra, seg-
ir formaðurinn. Stöð 2 greindi
frá.
Síldveiðar hafnar
Veiðar á norsk-íslensku síld-
inni hófúst á miðnætti í nótt í
Síldarsmugunni. vfir 40 skip
vora komin á miöin og var lóðað
á talsvert mikla síld um 60 mflur
norðaustur af Færeyjum. Mikið
kapphlaup verður irni að veiða
sem mest, því að þannig skapast
veiðireynsla á skip sem kemur
þeim til góða þegar síldarkvóta
verður úthlutað síöar meir. RÚV
sagði frá.
Hvalir sýna slg
Tveir hnúfubakar spókuðu sig
í logni og sléttum sjó uppi í land-
steinum viö Húsavík í gær. Þeir
svömluðu þar um, byltu sér og
blésu mjög. Þetta þykir óvenjuleg
hegðun hjá hvölum, að halda sig
svo nærri landi. RÚV sagöi frá.
Rtthöfundar fá hús
Rithöfúndasamband íslands
hefur eignast hús Gunnars Gunn-
arssonar rithöfúndar viö Dyngju-
veg 8 í Reykjavík, en Reykjavik-
urborg hefur gefið sambandinu
húsið. Rithöfúndasambandiö ætl-
ar aö nýta húsið sem athvarf fyr-
ir rithöfunda. Húsið er teiknað af
Hannesi Kr. Davíðssyni og er
talið merkflegt á byggingarsögu-
lega vísu. RÚV sagöi frá.
Nemar í póstferð
Níu nemendur úr grunnskól-
anum á Drangsnesi era lagðir af
stað í póstferð að hætti gömlu
landpóstanna frá Drangsnesi í
Kjörvog, um 80 km erfiða leið.
Forsetinn á Húsavik
Forseti íslands og forsetafrúin
era í opinberri heimsókn i Þing-
eyjarsýslum. í gær setti forsetinn
KÞ-mót í handknattleik á Húsa-
vík, sótti kirkju og síðan sam-
komu í félagsheimilinu á Húsa-
vík í gærkvöldi. í dag heimsækja
forsetahjónin Mývatnssveit
Nýtt sjálfstæöisfélag
Nýtt sjálfstæðisfélag verður
stofnað í Hveragerði í næstu
viku. Þeir sem standa að því eru
m.a. bæjarfulltrúar Hveragerðis-
bæjar sem reknir vora úr sjálf-
stæöisfélaginu Ingólfi á dögun-
um. Búist er við að 97 manns sem
áður vora í Ingólfi verði stoöifé-
lagar hins nýja félags. RÚV sagöi
frá. -SÁ