Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Blaðsíða 47
> í i I i I h i? i i > i i I i i I i I t i i > > I ) XXST LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 a fmæli « Benedikt Davíðsson Benedikt Davíðsson, fyrrv. forseti ASÍ, Víghólastíg 5, Kópavogi, er sjö- tugur í dag. Starfsferili Benedikt fæddist á Patreksfirði 3.5. 1927 og ólst þar upp. Hann stundaði sjómennsku og fiskvinnslu á Patreks- firði 1942-45, var iðnnemi i húsasmíði í Reykjavík 1945-49 og lauk sveins- prófi í húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík 1949 en meistari hans var Snorri Halldórsson. Benedikt stundaði húsasmíðar í Reykjavík 1949-54, 1957-60 og 1965-68. Þá starfaði hann að félagsmálum hjá Trésmíðafélagi Reykjavíkur 1954-57 og frá 1970 og hjá ASÍ 1960-65. Hann var forseti ASÍ 1992-96. Benedikt sat í stjórn Trésmíðafélags Reykjavíkur 1953 og 1959-62 og var for- maður þess 1954-57, sat í miðstjórn ASÍ 1958-88, var varamaður eða aðal- maður í stjórn Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs á árunum 1958-86, var for- maður Sambands byggingarmanna 1966-90, hefur setið í stjórn Lífeyris- sjóðs byggingarmanna frá stofnun 1970, í framkvæmdastjórn Sambands almennra lífeyrissjóða frá stofnun 1973, í bankaráði Iðnaðarbankans 1972-74 og formaður bankaráðs AI- þýðubankans 1976-87, sat í miðstjórn Sósíalistaflokksins 1956 og lengst af í miðstjórn og framkvæmdastjórn Al- þýðubandalagsins frá stofnun 1968. Fjölskylda Fyrri kona Benedikts var Guðný Stígsdóttir, f. 24.8. 1928, d. 8.3. 1972, saumakona. Seinni kona Benedikts er Finnbjörg Guðmundsdóttir, f. 5.8. 1951, skrif- stofumaður. Finnbjörg er dóttir Guð- mundar Oddssonar, bónda og verka- manns, og k.h., Elínar Kristgeirsdótt- ur húsfreyju. Böm Benedikts og Guðnýjar era Guðríður, f. 2.8. 1950, fóstra í Kópa- vogi, gift Hagerup Isaksen rafvirkja og eiga þau fjögur böm; Viggó, f. 28.8. 1951, trésmiður í Garði, kvæntur Diljá Markúsdóttur, starfsmanni við vist- heimilið í Garði, og eiga þau þrjú böm; Elfa Björk, f. 24.7. 1956, skrif- stofumaður í Kópavogi, gift Magnúsi Reyni Ástþórssyni bílstjóra og eiga þau flögur börn; Jóna, f. 18.1. 1962, kennari á isafirði, gift Henry Bærings- syni rafvirkja og eiga þau þrjú börn. Börn Benedikts og Finnbjargar eru Stefnir, f. 12.6. 1980, nemi, og Bima Eik, f. 6.7. 1982, nemi. Stjúpsonur Benedikts og sonur Finnbjargar er Guðbergur Egill Eyjólfsson, f. 27.11. 1971, kennari á Grenivík. Benedikt og Finnbjörg skildu 1996. Bræður Benedikts eru Ólafur, f. 7.8. 1929, sjómað- ur í Sandgerði; Davíð Jó- hannes, f. 21.3. 1933, sund- laugarvörður, búsettur í Kópavogi. Hálfsystkini Benedikts, samfeðra, eru Sigurlína, f. 13.11.1942, sálfræðingur og kennari við HÍ; Guðný, f. 13.2.1944, húsmóðir í Reykjavík; Hösk- uldur, f. 1.1. 1948, trésmiður i Noregi; Hreggviður, f. 8.2. 1953, trésmiður í Svíþjóð. Foreldrar Benedikts: Davíð Daviðs- son, f. 21.8. 1903, d. 1981, smiður, sjó- maður og formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Patreksfjarðar, síðar odd- viti á Sellátrum, og f.k.h., Sigurlina Benediktsdóttir, f. 8.11. 1900, d. 18.4. 1941, verkakona. Ætt Davíð er sonur Davíðs, smiðs á Geirseyri, Jónssonar, b. á Geitagili, Hjálmarssonar, b. á Stökkum, Sig- mundssonar, bróður Kristínar, langömmu Sigurvins Ein- arssonar alþm. Móðir Davíðs smiðs var Sigríður Bjarnadóttir, b. á Bakka í Tálknafirði, Torfasonar, bróður Jóns í Hænuvík, langafa Magnúsar Torfa, fyrrv. ráðherra, og Gunn- ars Guðmundssonar, fyrrv. hafnarstjóra. Móðir Davíðs oddvita var Elín Ebenesersdóttir, b. á Vaðli, Þórðarsonar, b. í Haga á Barðaströnd, Jónssonar. Móðir Ebenes- ers var Ingibjörg Jónsdóttir, systir Guðmundar, prests í Árnesi, langafa Þórarins Kristjánssonar símritara, fóður Leifs tónskálds. Bróðir Sigurlínu er Guðmundur, sjómaður á Patreksfirði, faðir Bene- dikts, fyrrv. siglingamálastjóra. Sigur- lína var dóttir Benedikts, skipstjóra á Patreksfirði, Sigurðssonar, bókbind- ara í Botni, bróður Sólveigar, langömmu Guðmundar J. Guðmunds- sonar, fyrrv. formanns Dagsbrúnar. Móðir Sigurlínu var Elín Svein- björnsdóttir, bróður Gísla, föður Gísla á Uppsölum. Benedikt verður með opið hús hjá Tré- smíðafélagi Reykjavikur að Suðurlands- braut 30 laugardaginn 3.5. frá kl. 17.00. Benedikt Davíösson. Ásgeir Sigurgestsson Ásgeir Sigurgestsson, framkvæmda- stjóri Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins, Litlubæjarvör 2, Bessastaða- hreppi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Ásgeir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Skerjafirðinum. Hann var í Melaskólanum, lauk landsprófi frá Hagaskólanum, stúdentsprófi frá MR, stundaði nám í sálfræði við Óslóarhá- skóla 1968-73 með vinnuhléum, stund- aði nám við Árósaháskóla frá 1973 og útskrifaðist þaðan með embættispróf í sálfræði 1977. Ásgeir shmdaði margvísleg störf til sjávar og sveita á námsámnum og vann m.a. á Kleppsspítalanum og við Barna- og unglingageðdeild Landssp- ítalans. Hann var sálfræðingur við áfengisdeildir ríkisspítalanna 1977-79, sálfræðingur við Athugunar- og grein- ingardeildina í Kjarvalshúsi 1979-84, var framkvæmdastjóri Landssamtak- anna Þroskahjálp 1984-88 og er fram- kvæmdastjóri Greiningar- og ráðgjafa- stöðvar ríkisins frá 1988. Þá hefur hann sinnt stundakennslu í sálfræði við KHÍ, við HÍ en þó einkum kennt við Tónlist- arskólann í Reykjavík jafnhliða öðrum störfum. Ásgeir hefur ver- ið búsettur í Reykjavík, Kópavogi og á Seltjarn- arnesi en hefur nú verið búsettur í Bessastaða- hreppi frá 1984. Ásgeir sat i stjórnum Sálfræðifélags íslands og BHMR 1979-84, var vara- formaður BHMR, sat í hreppsnefnd Bessastaða- hrepps 1986-90, í stjórn ís- lensku hljómsveitarinnar 1981-90, situr í fram- kvæmdastjórn FÍB frá 1993 og í stjórn Rúrek-jasshátíðarinnar 1997. Fjölskylda Fyrri kona Ásgeirs er Sigríður S. Júlíusdóttir, f. 9.5. 1951. Þau slitu sam- vistum. Ásgeir kvæntist 10.12. 1982 Stefaníu Harðardóttur, f. 16.3.1948, deildarstjóra hjá Flugmálastjóm. Hún er dóttir Harðar Ólasonar og Ástu Thorarensen sem bæði em látin. Fósturböm Ásgeirs og börn Stefaníu eru Ásta Sigríður Guðmundsdóttir, f. 3.4. 1964, sjúkraþjálfari í Bandaríkjun- um, gift Tryggva Þ. Egilssyni lækni og eru böm þeirra Egill, f. 1992, og Ásgeir, f. 1994; flörður Þórhallsson, f. 27.4. 1967, hagverkfræðingur í Reykjavík, í sambúð með írisi Karlsdóttur landa- kortafræðingi. Dóttir Ásgeirs og Stefan- íu er Vigdís, f. 19.11.1986. Systkini Ásgeirs eru Hörður, f. 2.6. 1938, for- stjóri í Reykjavík; Sigrún, f. 28.1. 1941, skrifstofumað- ur í Garði; Ásdís, f. 29.1. 1949, verslunarmaður i Reykjavík. Foreldrar Ásgeirs: Sigurgestur Guð- jónsson, f. 5.6.1912, bifvélavirkjameist- ari, og Vigdís Hansdóttir, f. 3.9.1911, d. 27.2.1978, húsmóðir. Ætt Sigurgestur var sonur Guðjóns, verkamanns í Reykjavík, Jónssonar, b. í Hafliðakoti, Jónssonar, á Ormsvelli, Erlendssonar, b. í Þúfu á Landi, Jóns- sonar. Móðir Erlends var Halldóra Halldórsdóttir, b. á Rauðnefsstöðum, af Víkingslækjarætt, bróður Brands, langafa Margrétar, langafa Guðríðar, ömmu Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Móðir Guðjóns var Hólmfríður Sveins- dóttir sem reri tólf vertíðir frá Land- eyjasandi. Móðir Sigurgests var Jóhanna Jóns- dóttir, b. í Hreiðarskoti, Jónssonar, bróður Þorsteins, langafa Berthu, móð- ur Markúsar Arnar Antonssonar, fyrrv. borgarstjóra. Móðir Jóns í Hreið- arskoti var Steinunn Jónsdóttir, af Kópvatnsætt. Vigdís var dóttir Hans, sjómanns í Hafnarflrði Sigurbjörnssonar, b. í Kjal- ardal Bjarnasonar. Móðir Hans var Vig- dís Jónsdóttir, b. í Móakoti Hanssonar, bróðir Ögmundar, langafa Guðrúnar, móður Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB. Móðir Vigdísar var Sigríður Jóns- dóttir, systir Þorbjargar, langömmu Þorgils, afa Árna Mathiesen alþm. Móðir Vigdísar Hansdóttur var Sess- elja Helgadóttir, verkamanns í Hafnar- firði, Sigurðssonar. Móðir Sesselju var Sigríður, systir Ingveldar, langömmu Páls Jenssonar, forstöðumanns Reikni- stofnunar Háskólans. Sigríður var dótt- ir Jóns, ættfóður Setbergsættarinnar, Guðmundsonar, b. í Haukadal, Eiríks- sonar og Guðbjargar Jónsdóttur, ætt- fóður Hörgsholtsættarinnar, Magnús- sonar. Ásgeir er i útlöndum. Ásgeir Sigurgestsson. lil hamingju með afmælið 4. maí 75 ára Kristinn D. Hafliðason, Kárastíg 2, Reykjavík. Haraldur Árnason, Laugarvegi 33, Sigluflrði. 70 ára Svanhildur Ámý Siguijónsdóttir, Austurbrún 4, Reykjavík, verður sjötug á mánudaginn. Hún verður með kaffi fyrir Sölskyldu og vini í morgunverðarsal Hót- el Esju sunnudaginn 4.5. kl. 15.00. Garðar Ólason, Hrafnistu við Skjólvang, Hafnarfirði. Hallgrimur Jónsson, Skálanesi II, Reykhólahreppi. Geirfinnur Sigurgeirsson, Hátúni 10A, Reykjavík. Gyða Guðvarðardóttir, Æsufelli 6, Reykjavík. 60 ára Björn Einarsson, Lyngholti, Hofshreppi. Geður Sigurbjörnsdóttir, Veghúsum 31, Reykjavík. Sigurður Guðmundsson, Esjubraut 12, Akranesi. Edda Hrönn Hannesdóttir, Einholti 9, Reykjavfk. Bergþóra Ragnarsdóttir, Víðilundi 11, Garðabæ. Erlingur Antoníusson, Kleppsvegi 140, Reykjavík. 50 ára Kristján Jónasson, Lálandi 7, Reykjavík. Eiginkona hans er Kristin Brynjólfsdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum aö heimili sínu, laugardaginn 3.5. milli kl. 18.00 og 21.00. Sigurður B. Óskarsson, Birkibergi 10, Hafnarfirði. Sigurður Karlsson, Ártröö 4, Egilsstöðum. Kristín Harðardóttir, Látraströnd 38, Selfjamarnesi. Sigurður Guðmundsson, Ingólfsstræti 7, Reykjavík. Jóhanna Margrét Guðjónsdóttir, Vogatungu 32, Kópavogi. Magnús Þór Jónasson, Höfðavegi 28, Vestmannaeyjum. 40 ára Helga Elinborg Jónsdóttir, Furugrund 73, Kópavogi. Margrét Sonja Kristjánsdóttir, Bjargarstíg 2, Reykjavík. Halldór Sveinbjörnsson, Seljalandi 21, ísafirði. Birgir Ólasson, Nesbakka 11, Neskaupstað. Sigurður Grétar Sigurðsson, Baðsvöllum 4, Grindavík. Einar Geir Guðnason, Borgarheiði 10V, Hverageröi. Valdimar Guðnason, Grandavegi 9, Reykjavik. Svanborg Björnsdóttir, Skálanesgötu 14, Vopnafjarðarhreppi. Sigurður Guðmundsson Sigurður Guðmundsson, formaður FSV, Ingólfsstræði 7, Reykjavík, verður fimm- tugur á morg- un. Sigurður fæddist á Brekku í Hróarstungu. Að loknu fulln- aðarprófi úr Barnaskóla Tunguhrepps á Stóru-Brekku var hann tvo vetur í Héraðsskólanum á Laugavatni. Sigurður vann í síld á síldarplani og bræðslu. Hann hóf síðan störf hjá Kaupfélagi Austfjarða á Seyðisfirði en 1967 flutti Sigurður til Reykjavík- ur ásamt eiginkonu. Hann hóf störf í Kjöt og grænmeti og síðan hjá Kron á Snorrabraut, starfaði hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkur 1972-74, hjá Teppa- versluninni Persíu 1974-78, hjá Gunn- ari Ásgeirssyni hf. 1979 en hefúr ver- ið framkvæmdastjóri FSV og jafn- framt formaður þess frá 1980. Þá var hann dyravörður á Hótel Loftleiðum 1972-81. Sigurður hefur tekið þátt í alþjóða- starfi starfsfólks í veitingahúsum frá Siguröur Guö- mundsson. 1983, situr í stjórn NU frá 1984 og í varastjórn HRC-hópsins í IUL frá 1988. Fjölskylda Eiginkona Sigurðar er Elísabet Magnúsdóttir húsmóðir, f. 07.08. 1947. Hún er dóttir Magnúsar Jónssonar og Elínborgar Guðmundsdóttur að Ball- ará í Klofningi. Böm Sigurðar og Elísabetar eru Guömundur Magnús, f. 9.11. 1967, prentsmiður í Reykjavik, en kona hans er Birgitta Hilmarsdóttir, f. 20.8. 1966, og börn þeirra eru Jóhannes Smári Smárason, f. 28.8.1987, Elísabet Karen Guðmundsdóttir, f. 13.10.1991, og Alex- andra Tanja Guðmundsdóttir, f. 3.8. 1996; Páll Línberg, f. 28.12. 1968, skrif- stofumaður, búsettur í Hafnarfirði, en kona hans er Halldóra G. Hinriksdótt- ir, f. 4.3.1973; Guðrún Ósk, f. 15.8.1972, nemi á Ítalíu. Systkini Sigurðar eru Jón verka- maður, f. 10.2. 1949; Þórbergur Austri verkamaður, f. 18.6. 1954, á Nýja-Sjál- andi; Hermann Vestri ökukennari, f. 30.6. 1955; Einar Hólm verkamaður, f. 28.3. 1961; Sigurjón Þórir verkamaður, f. 4.3. 1965. Foreldrar Sigurðar eru Guðmundur Sigurðsson, bóndi og verkamaður, f. 16.3. 1916, látinn, og Pálína Jónsdóttir, húsmóðir og starfsmaður á sjúkrahúsi, f. 27.6. 1925, Norðurgötu 10, búsett á Fljótsdalshéraði í átján ár og á Seyðis- firði frá 1964. Sumarbúðir skáta, Úlfljótsvatni Fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Dagskránni er best lýst með orðinu ÆVINTÝRI Útivera • gönguferðir • náttúruskoðun • íþróttir • leikir • vatnasafarí • sund • bátsferðir • föndurvinna • leikræn tján- ing • kvöldvökur • varðeldur. Dvalartími: • Innritun hefst 5. maí í Skátahúsinu við Snorrabraut og er innritað alla virka daga frá kl. 10.00-14.00. • Verð á námskeiðum er frá 13.700-15.900 kr. Veittur er systkinaafsláttur. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Bandalags ísl. skáta í síma 5621390. 1. 4. júní -10. júní 2.11. júní-16. júní -6 dagar 3.19. júní-25. júní 4. 26. júní-2. júlí 5. 5. júlí-11. júlí 6.12. júlí-18. júlí 7. 23. júlí-29. júlí 8. 6 ágúst-12 ágúst -unglinganámskeið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.