Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Blaðsíða 19
33LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997
19
____________________________________________________________________ ffréttaljós
wT #C
Umdeild för biskupsins og sonar til Hong Kong á vegum kirkjunnar:
Séra Gunnari Kristiánssyni
gert að fjármagna eigin ferð
- Kirkjuráð hafnaði tilnefningu utanríkisnefndar kirkjunnar
Fjögurra manna sendinefnd þjóð-
kirkjunnar fer væntanlega á þing
Lútersku heimskirkjunnar í júlí i
sumar. Það vekur nokkra athygli að
í fór með Ólafi Skúlasyni, biskupi
íslands, er sonur hans, séra Skúli
Sigurður Ólafsson, aðstoðarprestur
á ísafirði, sem vigður var i vor. Auk
þeirra feðga eru í ferðinni séra Þor-
björn Hlynur Ámason, formaður ut-
anríkisnefndar þjóðkirkjunnar, og
Halla Jónsdóttir, skrifstofustjóri
Biskupsstofu.
Umdeilt val
Val sendimanna kirkjunnar er
sagt grundvallað á þeim tilmælum
Lútersku heimskirkjunnar og Al-
kirkjuráðsins að þeirra sjónarmiða
sé gætt að valdir séu til farar full-
trúar kvenna, ungs fólks með
Fréttaljós á
laugardegi
Reynir Traustason
reynslu af æskulýðsstarfi og leik-
manna. Halla Jónsdóttir uppfyllir
skilyrði um leikmenn og konur.
Skúli Sigurður Ólafsson er siðan
valinn sökum æsku sinnar og séra
Þorbjöm Hlynur fer sem formaður
utanríkisnefhdar. Utanríkisnefnd
samþykkti á dögunum að leggja til
við biskup og kirkjuráð að þessir
aðilar fæm til Hong Kong. Að auki
lagði nefndin til að séra Gunnar
Kristjánsson færi með sem eins
konar fjölmiðlafulltrúi. Ástæða þess
að hann var tilnefndur sem slíkur
var sögð sú að með því væri ætl-
unin að friður yrði um að Skúli Sig-
urður tæki sæti sem aðalmaður.
Séra Gunnar, sem óskaði eftir því
að fara með, hefur lengi haft mikinn
áhuga á alþjóðlegu kirkjustarfi og
hefur sinnt þeim málum um árabil.
Þrýstingur biskups?
Herra Ólafur Skúlason er sagður
hafa beitt utanríkisnefhd þrýstingi
til að Skúli sonur hans færi með í
fórina. I samræmi við þá ósk bisk-
ups hafi formaður utanríkisnefndar
lagt til að Skúli yrði einn þriggja
sendimanna. Bent er á að Þorbjörn
Hlynur sé fyrrum biskupsritari og
nokkrir kærleikar séu með honum
og biskupi. Það geti ekki verið til-
Séra Gunnar Kristjánsson.
Óanægja er meöal presta vegna þeirrar ákvöröunar aö senda séra Skúla Sigurð Ólafsson, son
Óiafs Skulasonar biskups, til Hong Kong á kostnaö þjóökirkjunnar. Biskup er sagöur hafa beitt
þrýstingi í málinu en hann þvertekur fyrir þaö.
viljun að nafn
Skúla Sigurðar
kom upp í huga
Þorbjöms Hlyns.
Þessi ákvörðph er
gagnrýnd/mnan
kirkjunnar og
telja' margir
þeirra presta sem
DV hefur rætt við
að ekki séu nein
rök fyrir því að
sonur biskups fari
með í förina. Fjöl-
níargir ungir
prestar uppfylli
mun betur skil-
yrði til að sitja
þingið.
Þorbjöm Hlyn-
ur Árnason, for-
maður nefndar-
innar, staðfesti í
samtali við DV að
þetta væri tillaga
nefndarinnar.
Hann sagðist
reikna með að
séra Gunnar
Kristjánsson yrði
með í for og ann-
aðist það hlutverk
að halda saman
upplýsingum.
Hann svaraði
spumingunni um meint afskipti
biskups þannig að „virðulegir fjöl-
miðlar“ ættu ekki að vera með get-
gátur um að biskup hefði haft af-
skipti af málinu.
séð sér fært að verða við óskum um
frekari fjárstuðning. Þess vegna
verði ekki um stuðning að ræða
vegna séra Gunnars Kristjánssonar.
„Það kom til tals hjá utanríkis-
nefndinni en Kirkjuráð sá sér því
miður ekki fært að greiða fyrir
fleiri. Við vorum að vona að hann
fengi farareyri annars staðar frá.
Kjalarnesprófastsdæmi var búið að
samþykkja að greiða hluta af kostn-
aðinum,“ segir herra Ólafur Skúla-
son sem stöðu sinnar vegna situr
sem formaður Kirkjuráðs.
Hann segir að þrír sendimanna
fari með maka sína utan en það
verði alfarið á eigin kostnað.
„Meira að segja biskupsfrúin fær
ekki borgað og við greiðum meira
að segja þátttökugjaldið fyrir hana
úr eigin vasa,“ segir Ólafur.
Óvænt höfnun
Séra Gunnar Kristjánsson hafði
ekki heyrt af höfnun Kirkjuráðs
þegar DV ræddi við hann og það
virtist koma honum á óvart.
„Ég lít þannig á að ég eigi ekki að
útvega þessa fjármuni og það sé
hlutverk kirkjunnar,“ sagði Gunn-
ar. Hann sagði ljóst að væri stuðn-
ingnum hafnað þá sæti hann heima.
Heimildarmenn DV segja fráleitt
að séra’ Gunnar, sem er prófastur
Kjalarnesprófastsdæmis, geti þegið
fé úr sjóðum eigin prófastsdæmis til
fararinnar. Samkvæmt þeirri yfir-
lýsingu hans að hann eigi ekki að
leggja til fjármuni til fararinnar
virðist því ljóst að hann muni sitja
heima.
„Þetta er dæmigert kirkjustjóm-
armál sem Prestafélag Islands er
enginn formlegur aðili að,“ segir
Geir Waage, formaður Prestáfélags
íslands, um hina fyrirhuguðu Hong
Kong för.
-rt
Hugmynd utanríkis-
nefndar
Herra Ólafur Skúlason biskup
sagði í samtali við DV að alrangt
væri að hann hafi lagt til að Skúl
færi til Hong Kong; hugmyndi
hefði alfarið komið frá utamíki:
nefhd.
„Þetta var alfarið hugmynd utan-
ríkisnefndar og ég kom þar hvergi
nærri. Kirkjuráð samþykkt síðan
val nefndarinnar án minna af-
skipta. Rökstuðningurinn var sá að
þarna væri um að ræða ungan
mann sem hefði þá kosti og upp-
fyllti þau skilyrði sem æskileg eru
talin. Þá nam hann við Kaupmanna-
hafnarháskóla og hefur því kynni af
kirkjulegu starfi í útlöndum,“ segir
Ólafur.
Kirkjuráð neitaði
Hann segir að Kirkjuráð hafi ekki
Séra Skúli Sigurður Ólafsson.
nduð og öragg
leiktæki sem henta
jafnt í heimagarða
sem leikskóla
BA]|Na6aMAn
Smiðjuvegi 5 • Sími 544 5700