Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Blaðsíða 10
10
ingyakeppnin
LAUGARDAGUR 3. MAI1997
Jdnjjd
< H
j ijjj'uyjjjjujj
Ár Lag Sætl
1986 Gleöibankinn 16.
1987 Hægt og hljótt 16.
1988 Sókrates 16. |
1989 Þaö sem engin sér 21.
1990 Eitt lag enn 4. §
1991 Nína 15.
1992 Nei eöajá 7.
1993 Þá veistu svariö 13.
1994 Nætur 12.
1995 Núna 15.
1996 Sjúbídú 13.
1997 Minn hinsti dans ?
STIGA-
GIÖF
Þín stigagjöf
CL
ro
a—
'CG
Q.
</>
JE
(G
'>a
£L
<G
txo
I,
Cö
(G
Mjög ánægður með
athyglina sem við fáum
r
- segir Páll Oskar sem hefur verið mikið í sviðsljósinu í Dublin
„Undirbúningurinn hefur
gengið hreint ótrúlega vel. Ég er
mjög ánægður með þá athygli
sem ég og lagið höfum fengið. Ég
tel að við höfum verið mjög mik-
ið í sviðsljósinu hér og meira en
aðrir keppendur," segir Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson sem stígur á svið
í kvöld fyrir íslands hönd í
Eurovision söngvakeppninni.
Hann mun flytja lagið Minn
hinsti dans á sviðinu í Point
Theatre i Dublin. Páll óskar verð-
ur síðastur i flytjendaröðinni á
eftir 24 öðrum lögum frá jafn-
mörgum löndum. Hann segist
ætla að nota tækifærið til hins
ýtrasta og ná athygli dómnefnda
og þeirra hundruð milljóna sem
flygjast með keppninni.
Besti
kynningarfundurinn
„Við héldum blaðamannafund
á næturklúbbnum Rumours sem
er sá „heitasti“ í Dublin. Við not-
uðum tækifærið og héldum
„drag-show“. Ég kom fram í gervi
hinnar þekktu írsku söngkonu
Dönu og Reynir félagi minn birt-
ist á sviðinu í gervi Celine Dion.
Þetta tókst ótrúlega vel og áhorf-
endur, sem hreinlega pökkuðu
salinn, voru yfir sig hrifnir. í lok-
in tókum við síðan Minn hinsta
dans. Margir komu á tal við mig
eftir á, bæði blaðamenn og
þátttakendur annarra þjóða, og
sögðu þetta hafa verið besta
Eurovision kynningarfund sem
sögur færu af.
Ég hef fundið fyrir miklum
stuðningi frá fulltrúum nokkurra
landa eins og Frakklands, ír-
lands, Bretlands og Spánar.
Margir hafa komið til mín og sagt
að lagið sé mjög gott. Það hefur
ekki verið neinn sleikjugangur
því þeir hafa rökstutt það með
ýmsum hætti. Þetta gefur manni
byr undir báða vængi.
Annars er vonlaust að spá um
úrslitin. Ég hef ekki hugmynd
um hvar ég lendi. Ég er ekki
kominn til að bursta i þessari
keppni heldur til að fá að taka
þátt. Ég ætla að nota þessar þrjár
mínútur sem ég fæ til hins ýtr-
asta. Það eru alltaf einhverjar
spár í gangi, bæði í veðbönkum
og síðan meðal Eurovision aðdá-
enda. Þessar spár ganga eiginlega
aldrei eftir svo við héma tökum
ekki mikið mark á þeim núna.
Fyrir utan mitt lag þá er ég hrifn-
astur af franska laginu. ítalska
lagið virðist þó sigurstranglegast
samkvæmt spádómum.
Hvíti sófinn á sviðinu
Hvíti sófinn úr myndbandinu
verður að sjáifsögðu á sviðinu.
Svo verða fjórar frábærar ís-
lenskar danspíur með mér. Við
erum búin að æfa atriðið rosa-
lega vel. Það verða frekar fáar en
fágaðar hreyfingar á sviðinu þeg-
ar lagið er flutt. Sviðið er mjög
flott og töff þó það sé ekki stórt.
Það er mun nýtískulegra en við
eigum að venjast í Eurovision.
Það hentar mínu lagi mjög vel.
Annars er ég orðinn svo
spenntur að ég get varla beðið eft-
ir stóru stundinni. Á móti kemur
að það er búið að vera svo mikið
að gerast hérna að maður hefur
ekki haft tíma að bíða og vera
stressaður. Ég ætla að reyna að
sofa vel í nótt og slappa bara af.
Ég vona að sem flestir heima
horfi á keppnina því hún verður
góð,“ segir Páll Óskar.
gengi
Páli Óskari er víðast spáð
þokkalegu gengi í veðbönkum. í
breska veðbankanum er hann í
10.-13. sæti. Þar er breska laginu
spáð sigri og því ítalska öðru sæt-
inu. Á lista aðdáenda Eurovison-
keppninnar er Páli Óskari spáö
9.-10. sæti. Sigurstranglegustu
lögin þar eru frá Ítalíu, Frakk-
landi og Svíþjóð. Þar á eftir koma
Bretland, írland og Króatía.
Frændum vorum Dönum og
Norðmönnum er hins vegar spáð
botnsætunum. En þetta kemur
allt í Ijós í kvöld þegar fulltrúar
25 dómnefnda hafa lokið við at-
kvæðagreiðsluna. Hér að ofan er
tafla sem áhorfendur geta nýtt
sér ef þeir vilja sjálfir gefa stig.
Einnig er grafísk tafla um gengi
Islendinga í Evróvision frá upp-
hafi.
-RR