Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Blaðsíða 10
10 ingyakeppnin LAUGARDAGUR 3. MAI1997 Jdnjjd < H j ijjj'uyjjjjujj Ár Lag Sætl 1986 Gleöibankinn 16. 1987 Hægt og hljótt 16. 1988 Sókrates 16. | 1989 Þaö sem engin sér 21. 1990 Eitt lag enn 4. § 1991 Nína 15. 1992 Nei eöajá 7. 1993 Þá veistu svariö 13. 1994 Nætur 12. 1995 Núna 15. 1996 Sjúbídú 13. 1997 Minn hinsti dans ? STIGA- GIÖF Þín stigagjöf CL ro a— 'CG Q. </> JE (G '>a £L <G txo I, Cö (G Mjög ánægður með athyglina sem við fáum r - segir Páll Oskar sem hefur verið mikið í sviðsljósinu í Dublin „Undirbúningurinn hefur gengið hreint ótrúlega vel. Ég er mjög ánægður með þá athygli sem ég og lagið höfum fengið. Ég tel að við höfum verið mjög mik- ið í sviðsljósinu hér og meira en aðrir keppendur," segir Páll Ósk- ar Hjálmtýsson sem stígur á svið í kvöld fyrir íslands hönd í Eurovision söngvakeppninni. Hann mun flytja lagið Minn hinsti dans á sviðinu í Point Theatre i Dublin. Páll óskar verð- ur síðastur i flytjendaröðinni á eftir 24 öðrum lögum frá jafn- mörgum löndum. Hann segist ætla að nota tækifærið til hins ýtrasta og ná athygli dómnefnda og þeirra hundruð milljóna sem flygjast með keppninni. Besti kynningarfundurinn „Við héldum blaðamannafund á næturklúbbnum Rumours sem er sá „heitasti“ í Dublin. Við not- uðum tækifærið og héldum „drag-show“. Ég kom fram í gervi hinnar þekktu írsku söngkonu Dönu og Reynir félagi minn birt- ist á sviðinu í gervi Celine Dion. Þetta tókst ótrúlega vel og áhorf- endur, sem hreinlega pökkuðu salinn, voru yfir sig hrifnir. í lok- in tókum við síðan Minn hinsta dans. Margir komu á tal við mig eftir á, bæði blaðamenn og þátttakendur annarra þjóða, og sögðu þetta hafa verið besta Eurovision kynningarfund sem sögur færu af. Ég hef fundið fyrir miklum stuðningi frá fulltrúum nokkurra landa eins og Frakklands, ír- lands, Bretlands og Spánar. Margir hafa komið til mín og sagt að lagið sé mjög gott. Það hefur ekki verið neinn sleikjugangur því þeir hafa rökstutt það með ýmsum hætti. Þetta gefur manni byr undir báða vængi. Annars er vonlaust að spá um úrslitin. Ég hef ekki hugmynd um hvar ég lendi. Ég er ekki kominn til að bursta i þessari keppni heldur til að fá að taka þátt. Ég ætla að nota þessar þrjár mínútur sem ég fæ til hins ýtr- asta. Það eru alltaf einhverjar spár í gangi, bæði í veðbönkum og síðan meðal Eurovision aðdá- enda. Þessar spár ganga eiginlega aldrei eftir svo við héma tökum ekki mikið mark á þeim núna. Fyrir utan mitt lag þá er ég hrifn- astur af franska laginu. ítalska lagið virðist þó sigurstranglegast samkvæmt spádómum. Hvíti sófinn á sviðinu Hvíti sófinn úr myndbandinu verður að sjáifsögðu á sviðinu. Svo verða fjórar frábærar ís- lenskar danspíur með mér. Við erum búin að æfa atriðið rosa- lega vel. Það verða frekar fáar en fágaðar hreyfingar á sviðinu þeg- ar lagið er flutt. Sviðið er mjög flott og töff þó það sé ekki stórt. Það er mun nýtískulegra en við eigum að venjast í Eurovision. Það hentar mínu lagi mjög vel. Annars er ég orðinn svo spenntur að ég get varla beðið eft- ir stóru stundinni. Á móti kemur að það er búið að vera svo mikið að gerast hérna að maður hefur ekki haft tíma að bíða og vera stressaður. Ég ætla að reyna að sofa vel í nótt og slappa bara af. Ég vona að sem flestir heima horfi á keppnina því hún verður góð,“ segir Páll Óskar. gengi Páli Óskari er víðast spáð þokkalegu gengi í veðbönkum. í breska veðbankanum er hann í 10.-13. sæti. Þar er breska laginu spáð sigri og því ítalska öðru sæt- inu. Á lista aðdáenda Eurovison- keppninnar er Páli Óskari spáö 9.-10. sæti. Sigurstranglegustu lögin þar eru frá Ítalíu, Frakk- landi og Svíþjóð. Þar á eftir koma Bretland, írland og Króatía. Frændum vorum Dönum og Norðmönnum er hins vegar spáð botnsætunum. En þetta kemur allt í Ijós í kvöld þegar fulltrúar 25 dómnefnda hafa lokið við at- kvæðagreiðsluna. Hér að ofan er tafla sem áhorfendur geta nýtt sér ef þeir vilja sjálfir gefa stig. Einnig er grafísk tafla um gengi Islendinga í Evróvision frá upp- hafi. -RR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.