Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Blaðsíða 25
TfrHF LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997
__________________________________________________________________________________ fréttir
......................... ..-..... ~.M— . ... ■ -. - ........-......I ..
Hörð barátta um leiðtogasætið í breska íhaldsflokknum fram undan:
Talið að Major styðji Heseltine
Michael Heseltine, sem hér er meö John Major, fráfarandi forsætisráöherra Bretlands og fráfarandi leiðtoga íhalds-
flokksins, þykir líklegur til afreka í leiötogaslagnum. Símamyndir Reuter
John Major er fluttur úr Down-
ingstræti 10. Hann er ekki einasta
búinn að missa forsætisráðherra-
stólinn í Bretlandi heldur hefur
hann einnig tilkynnt að hann muni
segja af sér sem leiðtogi íhalds-
flokksins.
Slagurinn um eftirmann hans er
þegar hafinn. Baráttan í Ihalds-
flokknum, sem nú þarf að verma
bekki stjómarandstöðunnar í þing-
inu í fyrsta sinn í átján ár, stendur
ekki aðeins um eftirmann Johns
Majors í sæti leiðtoga flokksins
heldur verður einnig barist hart um
hugmyndafræðilega ásýnd hand
hans.
Slagur rriilli hægri og
vinstri
Efasemdamenn um ágæti Evrópu-
samstarfsins og stuðningsmenn
þess munu bítast sem aldrei fyrr
um stefnu flokksins i þessu mikil-
væga máli sem hefur valdið alvar-
legum klofningi innan hans um
langt skeið.
Dálkahöfundurinn Anne Apple-
baum segir í Lundúnablaðinu Even-
ing Standard í gær að hægri armur
íhaldsflokksins muni nú kenna
vinstri arminum um ófarirnar í
kosningunum - og öfugt. Hún segir
að sá armur sem fari með sigur af
hólmi í þeim slag muni ráða hver
næsti leiðtogi flokksins verður og
hvaða stefnu verður fylgt.
Fyrir kosningarnar voru tveir
menn einkum nefndir til sögunnar
sem helstu keppinautarnir um leið-
togasætið. Þeir eru Michael Heselt-
ine aðstoðarforsætisráðherra og
Michael PortiUo landvarnaráð-
herra. Portillo, sem telst til hægri
arms íhaldsflokksins og er í hópi
efasemdamannanna, er hins vegar
úr leik í bili þar sem hann náði ekki
kosningu í kjördæmi sínu. Ekki
frekar en Malcolm Rifkind utanrík-
isráðherra sem einnig hafði verið
orðaður við leiðtogasætið. Heseltine
telst aftur á móti til Evrópuvinanna
innan flokksins.
Fyrstur hins vegar til að tilkynna
um framboð sitt til
leiðtogaembættisins varð Kenneth
Clarke, fráfarandi fjármálaráð-
herra.
Enn einn Mikjáll heyrist einnig
nefndur sem hugsanlegur for-
mannskandídat. Sá er Michael How-
ard innanríkisráðherra. Háttsettir
ráðherrar íhaldsflokksins voru þeg-
ar fyrir kosningarnar famir að
nefna leiðtogaslaginn „baráttu
Michaelanna þriggja". Það gengur
þó ekki lengur.
Ekki má gleyma hægrisinnanum
John Redwood, sem sagði af sér ráð-
herraembætti fyrir tveimur árum
til að keppa við John Major um leið-
togastöðuna. Jafnvel var búist við
að hann yrði fyrstur til að lýsa þvi
yfir að hann ætlaði í leiðtogaslag-
inn. Það er þó ljóst að vinstri arm-
ur flokksins muni aldrei geta sætt
sig við hann.
Þá hefur Chris Patten, sem hefur
gegnt embætti landstjóra í Hong
Kong, einnig verið orðaður við for-
mannsembættið. Patten útilokaði
hins vegar í gær að hann færi fram
að sinni. Loks nefndu bresku blöð-
in í gær að minnsta kosti tvo hugs-
anlega leiðtogakandídata til viðbót-
ar, þá Peter Lilley og William
Hague, ráðherra málefna Wales.
Vinir Majors höfðu lagt að hon-
um að segja ekki af sér leiðtogaemb-
ættinu fýrr en eftir tvo mánuði í
fyrsta lagi til að koma í veg fyrir að
Redwood gæti nýtt sér þann stuðn-
ing sem hann hefur aflað sér á und-
anfomum tveimur árum.
Stuðningsmenn Tarsans
vongóðir
Stuðningsmenn Heseltines, sem
manna á meðal gengur undir nafn-
inu Tarsan vegna makkans á höfði
hans, telja næsta víst að Major
muni styðja aðstoðarforsætisráð-
Hægrisinninn John Redwood er
ekki talinn eiga mikla möguleika.
herrann í leiðtogasætið. Sömuleiðis
fái hann stuðning Kenneths Clarkes
fjármálaráðherra.
„Maðurinn sem Major vill í raun
að taki við af honum er Chris Patt-
en,“ segir einn stuðningsmanna
Heseltines. „En hann er ekki kom-
inn aftur á þing.“
Sami stuðningsmaður segir í við-
tali við Sunday Times að ef Major
ætli sér að sigrast á hægriarmi
flokksins og leggja Patten lið, verði
hann að hjálpa Heseltine.
„Að hluta til er það vegna þess að
Heseltine og Patten em úr sama
armi flokksins og að hluta til vegna
þess að Heseltine er orðinn svo
gamall að hann verður ekki í emb-
ættinu til eilífðarnóns," segir þessi
sami stuðningsmaður aðstoðarfor-
sætisráðherrans.
Michael Heseltine er 64 ára, 21 ári
eldri en Tony Blair, leiðtogi Verka-
mannaflokksins og nýbakaður for-
sætisráðherra Bretlands. Stuðnings-
menn Heseltines segja að þessi
mikli aldursmunur verði til þess að
vekja enn frekar athygli á reynslu-
leysi Blairs. Forsætisráðherrann
nýi var kjörinn á þing árið 1983 og
hann hefur aldrei gegnt ráðherra-
embætti. Heseltine settist hins veg-
ar fyrst á þing fyrir 31 ári. Hann
komst í hóp áhrifamanna flokksins
árið 1969. Ráðherra varð hann svo
ári síðar.
Erlent fréttaljós
á laugardegi
Ef stjórn Tonys Blairs situr fullt
fimm ára kjörtímabil verður Heselt-
ine 69 ára þegar næst verður gengið
til almennra þingkosninga. Stuðn-
ingsmenn hans benda á að Ronald
Reagan hafi verið á þeim aldri þeg-
ar hann var kjörinn forseti Banda-
ríkjanna í fyrra sinn. Stuðnings-
mennirnir benda einnig á fyrrum
Bandaríkjaforseta þegar vangavelt-
ur um heilsufar Heseltines eru ann-
ars vegar. Hann fékk hjartaáfall
árið 1993. Lyndon B. Johnson fékk
líka hjartaáfall, tíu árum áður en
hann var kjörinn forseti.
Höfðar líka til hægri
armsins
Stuðningsmenn Heseltines eru
sannfærðir um að honum muni
takast að fá stuðning einhverra
þingmanna úr hægri armi flokks-
ins. Þeir benda á að í kosningabar-
áttunni hafi Heseltine sveigst í átt
til efasemdamannanna um ESB.
Það var líka hann sem átti hug-
myndina að hinni umdeildu blaða-
auglýsingu íhaldsflokksins sem
sýndi Tony Blair sem strengjabrúðu
á hné Helmuts Kohls Þýska-
landskanslara.
Andstæðingar Heseltines eru
ekki á sama máli og stuðnings-
mennimir þegar aldurinn og heilsu-
farið eru annars vegar. „Hann væri
besti leiðtogi stjórnarandstöðunnar
núna og hann mundi hakka Blair í
sig. En íhaldsþingmenn væru þar
með að kjósa besta forsætisráðherr-
ann í fimm ár,“ segir einn andstæð-
ingur Heseltines.
Stuðningsmenn Portillos land-
varnaráðherra hafa ekki áhyggjur
þótt aðstoðarforsætisráðherrann
ætli að hella sér í slaginn. „Þetta er
núna flokkur efasemdamanna um
Evrópusamstarfið og Heseltine, sem
er stuðningsmaður ESB, getur ekki
sigrað," segja menn Portillos.
Byggt á Reuter og bresku blöðunum
BILAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 5
SÍMI 567 4943 '%Z>ý
Nissan Patrol '91, rauður, 5 d., ek.
133 þús. km, rafdr. rúður, samlæs., álf.,
35" dekk, brettak., ek. 133 þús. km.
Verö 2.480.000. Ath. skipti.
Nissan Patrol ’91, rauður, 5 d., rafdr.
rúður, samlæs., álfelgur, 33” dekk,
læstur aftan, ek. 121 þús. km.
Verð 2.250.000. Ath. skipti.
Toyota Camry ’94, svartur, 4 d., ABS,
leður, álfelgur, rafdr. rúður, samlæs.,
rafm. í sætum, cruise, topplúga.
Verð 2.390.000. Ath. skipti.
Ford Mondeo Ghia '94, blár, 4 d.,
topplúga, ABS, rafdr. rúður, samlæs.,
þjófavörn, ek. 63 þús. km.
Verð 1.440.000. Ath.skipti.
Toyota Corolla XLi '96,
rauður, 5 d„ samlæs., rafdr. rúður,
ek. 5 þús. km.
Verð 1.190.000. Ath. skipti.
Jt JR-BÍLASALA
BÍLDSHÖFÐA 3 ( löggild
SÍMI 567 0333 'vBILASAL*
MMC L-300 ’90, grár, 5 d.,
ek. 80 þús. km.
Verð 1.150.000. Ath. skipti.
Chrysler Voyager ’91, vínr.,
4x4, 4 d., ek. 120 þús. km.
Verð 1.690.000. Ath. skipti.
Cherokee ’95, blár, 5 d.,
ek. 12 þús. km.
Verö 3.780.000. Ath. skipti.
Chevrolet Blazer ’96, rauður,
5 d., ek. 2 þús. km.
Verö 3.450.000. Ath. skipti.
Subaru Legacy ’96, hvítur,
5 d., ek. 1 þús. km.
Verö 2.280.000. Ath. skipti.