Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Page 16
16 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 JD'V sviðsljós Hjónin Judy og Donald Feeney enn í sviðsljósinu fyrir „björgunarafrek" sín: Fengu 21 milljón á meðan Donald var á Litla-Hrauni - fyrir að ná breskri konu úr ánauð í Jemen - ekkert varð úr björguninni í breska blaðinu The Observer er nýlega greint frá baráttu móður í Birmingham í Englandi við að ná dóttur sinni úr ánauð í fjallaþorpi í Jemen. Kunningjar okkar úr frétt- um hér heima, hjónin Judy og Don- ald Feeney, sem án árangurs aðstoð- uðu Brian Grayson fyrir fjórum árum við að ná til sín tveimur dætr- um þeirra Ernu Eyjólfsdóttur frá ís- landi, koma við sögu í því máli. At- hygli vekur að á meðan Donald sat inni á Litla-Hrauni fyrir Grayson- málið greiddi móðirin þeim röska 21 milljón króna fyrir að bjarga dótturinni frá Jemen en verkefnið gekk ekki upp. Móðirin fékk pening- ana ekki endurgreidda frá Feeney- hjónunum og situr eftir slypp og snauð ásamt tveimur öðrum böm- um hennar. Forsaga málsins er sú að móðirin, Miriam, bjó í Birmingham með manni frá Jemen, og átti með hon- um þrjú böm. Árið 1980 „seldi“ hann tvær dætur þeirra, Zönu og Nadiu, til heimalands síns til að giftast þar innfæddum mönnum. Þær vom á unglingsaldri og pabb- inn sagði að þær væru að fara í „sumarfrí". Þetta gerði hann án vit- undar Miriam. Þegar hún uppgötv- aði þetta varð hún eðlilega brjáluð og skildi við mann sinn. Eftir þetta helgaöi hún öllum sínum tíma i að ná dætrunum frá Jemen með dyggri aöstoð yngsta barnsins, sonarins Mo. Zana náði á ævintýralegan hátt að flýja frá Jemen árið 1988 og skildi ungan son sinn þar eftir. Hún fékk Nadiu ekki til að flýja með sér, sem þorði ekki að fara frá manni og þremur börnum. Eftir að Zana kom heim til Birmingham fór hún að að- stoða móður sína í baráttunni við að ná Nadiu til baka. Hún settist niður og skrifaði bók um málið sem nefndist Sold, eða Seld. Bókin vakti athygli um allan heim, kom m.a. út ** *> „Donald tók málið að sér þegar hann losnaði úr fangelsinu á íslandi um áramótin 1993 og 1994. í júní 1994 sögðu þau Muhsen-mæðgunum að peningarnir væru bara horfnir," sagði Nick. Miriam og Zana settu allt sitt traust á hjónin og söfhuðu saman því fé sem þær komust yfir, alls 185 þúsund sterlingspundum eða ríflega 21 milljón króna. Mestur hluti þess var söluhagnaður bókar Zönu. Þennan mikla kostnað sögðu Fee- ney-hjónin vera að mestu tilkominn vegna þyrlu og skips sem nota átti við björgun Nadiu úr fjallaþorpinu í Jemen. Hins vegar komst leiðangur- inn einhverra hluta vegna aldrei að þorpinu og Feeney gafst upp. í heimildarmyndinni segjast þau vera miður sín með málalokin. Verkefnið hafi einfaldlega ekki tek- ist. Slíku megi alltaf gera ráð fyrir. Einkaspæjari ráðinn Af skiljanlegum ástæðum eru mæðgumar svekktar yfir að leið- angm- Feeneys gekk ekki upp. Þær hafa aldrei heyrt frá þeim aftur og réðu m.a. einkaspæjara til að hafa upp á þeim hjónum, greiddu honum tæpa milljón en sá spæjari lét sig hverfa. „Ég lét þau fá allt sem ég á, alla mína peninga. Nú á ég ekkert eftir til að greiða skattaskuldir vegna út- gáfu bókarinnar og framfleyta böm- um mínum," segir Zana m.a. í við- tali við blaðamann Observer en hún hefur eignast þijú önnur böm eftir að hún flúði frá Jemen. Hún, ásamt Miriam og bróður sínum, eru á framfærslu félagsmálayfirvalda í Birmingham. Örn Clausen hæstaréttarlög- maður, sem var verjandi Feeneys hér á landi, hafði aldrei heyrt af þessu máli í Jemen þegar DV hafði samband við hann. Hann sagðist einu sinni hafa heyrt frá Feeney Fjölskyldan í Birmingham sem Feeney-hjónin léku heldur grátt. Móðirin, Miriam Muhsen, er hér ásamt börnum sín- um Mo og Zönu. Hún heldur á mynd af þeim systrum, Zönu og Nadiu, sem tekin var um það leyti og faðir þeirra seldi þær til Jemen. Mynd: Observer Nadia Muhsen ásamt einu barna sinna. Hún býr enn í fjallaþorpi í Jemen, þaðan sem Judy og Don- ald Feeney reyndu að bjarga henni en án árangurs. Mynd Observer á íslensku og var í hópi söluhæstu bóka fyrir jólin 1992. Heimildar- mynd á ITV Heimildarmynd sem nefnist Stolen Brides var nýlega sýnd á. sjónvarps- stöðinni ITV um þetta mál. Fram- leiðandi þáttarins, Nick Gray, sagði í samtali við DV að í júní 1993, á meðan Donald var á Litla- Hrauni, hefði Miri- am hitt Judy konu hans i New York. í október sama ár hefðu Miriam og Zana verið búnar að greiða þeim alla upphæðina, 21 milljón. Enn sat Donald þá inni á Litla-Hrauni. Donald Feeney kemur úr réttarsal í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar 1993. Hann var dæmdur í 2 ára fangelsi en sat inni í tæpt ár á Litla-Hrauni. Á meðan út- vegaði kona hans, Judy, þeim verkefni upp á 21 millj- ón króna, verkefni sem ekkert varð úr. DV-mynd BG eftir að hann lauk afplánun á Litla-Hrauni en vissi ekkert um af- drif hans í dag. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.