Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Qupperneq 26
26 Íhglingar LAUGARDAGUR 3. MAI1997 Samvinna fimm ungmenna og Bílanausts: 200 brúsa graffití „Graffití hefur fengiö mjög neikvæða umfjöllun og allt litið sömu augum, hvort sem um er að ræða ómerkilegt krot á veggi eða hrein listaverk sem mikil Listamennirnir á bak við listaverkiö á húsi Bílanausts, f.v.: Ólafur Breiðfjörö, Trausti Skúlason, Andrea Helgadóttir, Tómas Davíð Lúðvíksson og Kjartan Páll Sveinsson. DV-myndir E.ól vinna hefur verið lögð í. Fólk heldur að graffití sé ekki annaö en útrás fyrir skemmdarfýsn. Þess vegna er frábært að hafa fengið að vinna að svona stóru verki i friði og fengið algera útrás fyrir sköpunargleðina.“ Þetta segja fimm ungmenni nálægt tvítugu sem unnið hafa listaverk á vesturgafl húss Bílanausts í Borgartúni. Þau eru Andrea Helgadóttir, Ólafur Breiðfjörð, Kjartan Páll Sveinsson, Trausti Skúlason og mikið púl skólatíma. áhugamál er frekar dýrt,“ segja þau. Vinnan við verkið var og tók eina viku utan „Við vorum sífellt að hlaupa frá veggnum til að sjá verkið í samhengi og príla upp í stiga.“ Fimmmenningarnir hafa hug á listnámi en taka fram að ekkert sé kennt um graffití hér heima. Það sé hins vegar kennt í listaskólum erlendis og viðurkennt sem listform. -hlh Arna Herdís Pátursdóttir, Ijósmyndafyrirsæta Reykjavíkur 1997: Sex on the Beach í uppáhaldi Arna Herdís Pétursdóttir var á dögunum kjörin Ljósmyndafyrir- sæta Reykjavíkur 1997. Hún undir- býr sig nú af kappi fyrir keppnina um Ungfrú ísland sem fram fer í lok mánaðarins. Ásamt því að starfa í tískuversluninni Mótor á Laugavegi hefur hún verið fyrir- sæta um nokkurt skeið. Til dæmis var hún í Mílanó á Ítalíu sumarið 1995 á vegum Kolbrúnar Aðal- steinsdóttur og nýlega sat hún fyr- ir hjá ítölskum ljósmyndara vegna tískuþáttar í þarlendu tímariti. Þá tók hún þátt í sýningu Joe Boxers í Reykjavík á dögunum. í samtali við DV sagði hún keppnina um Ungfrú ísland leggj- ast mjög vel í sig. Hún væri að taka þátt í fegurðarsamkeppni í fyrsta sinn og til þessa hefði þetta verið mjög skemmtilegt. -bjb FuUt nafn: Arna Herdís Pétm-s- dóttir. Fæðingardagur og ár: 14. apríl 1979. Maki: Enginn. Börn:Engin. Bifreið: Engin. hlli ivS/Aff 9 0 4 - 5 0 0 0 Verð aðeins 39,90 mín. Þú þarft aðeins eitt símtal í Lottósíma DV til að fá nýjustu tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó og Kínó ? Starf: Hjá tísku versluninni Mótor á Laugavegi. Laun: Trúnað- armál. Hefur þú unnið í happ- drætti eða lottói? Nei, aldrei. Hvað þér skemmti- legast að gera? Slappa af meö vinum mínum, borða góðan mat, skemmta mér og ferðast erlendis. LOTfOs/fl® 9 0 4 - 5 0 0 0 Hvað finnst þér leiðinleg- ast að gera? Taka strætó og borga Visareikninga. U ppáhaldsmatur: Hamborgarhryggur. Uppáhalds- drykkur: Sex on the Beach og malt og appelsin. Hvaða íþrótta- maður stendur fremstur í dag? Eng- inn sérstakur. Uppáhaldstímarit: Vouge. Hver er faUegasti karl sem þú hefur séð? Þeir eru svo margir falleg- ir að ég vil ekki gera upp á milli þeirra. Ertu hlynnt eða andvíg rík- isstjórninni? Hlutlaus. Hvaða per- sónu langar þig mest til að hitta? Mari- lyn Monroe á himnum. Arna Herdís Pétursdótt- ir, Ijós- myndafyrir- sæta Reykjavíkur 1997, á sig- urstund.DV- mynd Hari Uppáhaldsleikari: Richard Gere. Uppáhaldsleikkona: Michelle Pfeiffer. Uppáhaldssöngvari: Celine Dion. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Enginn sérstakur. Uppáhaldsteiknimyndaper- sóna: Bart Simpson. Uppáhaldssjónvarpsefni: Mel- rose Place. Uppáhaldsmatsölustað- ur/veitingahús: Ítalía. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ævisögu Ármanns Kr. Ein- arssonar þegar hún kemur út næsta haust. Hver útvarpsrásanna þykir þér best? FM 95.7. Uppáhaldsútvarpsmaður: Stef- án Sigurðsson. Hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest á? Stöð 2, annars horfi ég sjaldan á sjónvarp. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Logi Bergmann Eiðsson. Uppáhaldsskemmtistað- ur/krá: Astro. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ekkert sérstakt. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíðinni? Mennta mig í ferðamálum, læra ýmis tungumál úti í heimi og starfa sem farar- stjóri. Svo á ég fullt af framtíðar- draumum sem ég mun láta rætast! Hvað ætlar þú að gera í sum- arfríinu? Vinna í tískuverslun- inni Mótor og ef ég verð svo hepp- in að fá frí þá skelli ég mér út í sól- ina og slappa af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.