Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 Fréttir Versnandi sambúð á stjórnarheimilinu? Tekist a um stoðuveitingar - greinilegur skoöanamunur um næstu skref í hvalamálinu Heimildarmenn DV um væntanleg- ar breytingar á ráðherraliði ríkis- stjómarinnar halda fast við það að breytingar séu í aðsigi og Friðrik Sophusson sé á leið út, eins og DV greindi frá sl. laugardag. Viðbrögð Davíðs Oddssonar við frétt DV urðu þau að hann sagði að Friðrik Sophus- son myndi leggja fram fjár- lagafrumvarp næsta árs, sem verður í október í haust, og að engin breyting væri fyrirhuguð á ríkisstjóminni á ár- inu. Landsvirkjun laus um áramót Þessi svör forsætisráðherra útiloka alls ekki að Friðrik Sophusson sé á leið út úr ríkisstjóminni. Reyndin er t.d. sú að forstjórastóll Landsvirkjun- ar er ekki laus fyrr en um áramót þeg- ar Halldór Jónatansson dregur sig í hlé. Raunar hafði Halldór viljað hætta fyrr en, eins og einn stjómarmanna í Landsvirkjun orðaði það við DV, féllst hann á að gegna starfmu áfram til næstu áramóta, en í fúndargerð stjóm- ar Landsvirkjunar er þessi beiðni til forstjórans bókuð. En ekki er allt sem sýnist og þó að Sjálfstæðisflokkurinn og ráðherrar hans, þar á meðal Friðrik Sophusson sjálfur, séu þess fýsandi að hann verði forstjóri Landsvirkjunar þá liggur það ekki þráðbeint við. Framsóknarmenn hafa tryggt sér töglin og hagldimar í stjóm Landsvirkjunar eftir lagabreyt- inguna sem var gerð á Alþingi nýlega og, eins og Svavar Gestsson benti á í ffétt í DV fyrir skömmu, þá á Alþýðu- flokkurinn hönk upp í bakið á þeim síðan Sighvatur Björgvinsson gerði Steingrím Hermannsson að banka- stjóra Seðlabankans. unarvaldi sínu á dögunum og skipaði flokksbróöur sinn, Jóhannes Geir Sig- urgeirsson, bónda á Öngulsstöðum í Eyjafirði, formann sjómarinnar en aðrir ráðherrafúlltrúar eru Sigfús Jónsson, Alþýðuflokki, og Ámi Grétar Finnsson, Sjálfstæðisflokki. Aðrir í stjóminni em fúlltrúar Reykjavíkur, þau Kristín Ein- arsdóttir, Kvennalista, Pétur Jónsson, Alþýðuflokki, og loks Jakob Bjömsson, fúll- trúi Akureyrar, sem er framsóknarmaður. Framsókn- armenn em því í þeirri stöðu í stjóm- inni að geta myndað meirihluta að geðþótta í hvaða máli sem er en era milli steins og sleggju með forstjóra- stólinn. Annars vegar era sjálfstæðis- menn með sinn kandídat, Friðrik Sophusson, og hins vegar era kratar formaður sjávarútvegsnefndar. ...Vítavert gá- leysi af landsfeörunum aö vera meö glannalegar og gagnstæöar yfirlýs- ingar í Ijósi núverandi stööu hval- veiðimálsins. Formenn stjórnarflokkanna, Davíö Oddsson og Halldór Ásgrímsson. Ósam- stiga og glannalegar yfirlýsingar þeirra um hvalveiöar vitna um greinilegan pirring í stjórnarsamstarfinu, segir formaöur sjávarútvegsnefndar Alþingis. DV-mynd ÞÖK Fréttaskýring Stefán Ásgnmsson Framsókn með tögl og hagldir Samkvæmt nýju lögunmn um Landsvirkjun sitja nú sjö menn í stjóm fyrirtækisins í stað níu áður en þrir þeirra era skipaðir af ráðherra í stað þess að vera kosnir af Alþingi áður. Hin nýja stjóm hefur vald til þess að ráða nýjan forstjóra og mun væntanlega gera það um næstu ára- mót. Finnur Ingólfsson beitti stjómskip- með Sighvat Björgvinsson sem sam- kvæmt heimildum DV innan Alþýðu- flokksins mun ekki fráhverfúr stóln- um. Sjálfstæðismenn era að vonum ekk- ert of kátir yfir valdi framsóknar- manna í þessum efnum en auk þess að geta ráðið Landsvirkjunarstólnum er forstjórastaða við hinn nýja Fjárfest- ingarbanka einnig í valdi framsóknar- manna og Finns Ingólfssonar við- skiptaráðherra og er Þorsteinn Ólafs- son þeirra kandídat í þá stöðu. Pirraöir foringjar Mjög ósamstiga yfirlýsingar þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ás- grímssonar um helgina um hvalveiðar íslendinga hljóta að skoðast sem af- leiðingar ýmiss konar togstreitu sem ríkir innan ríkisstjómarinnar. Þannig er t.d. ágreiningur milli stjómarflokk- Halldór Jonatansson. Stjórn Lands- virkjunar baö hann sérstaklega aö gegna forstjórastööunni áfram til næstu áramóta. Friðrik Sophusson. Tekur varla viö stjórn Landsvirkjunar fyrr en um áramótin. anna um mjög mikilvægt mál sem er eignarhald og lögsaga á hálendinu. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp frá Páli Péturssyni um breytingar á sveit- arstjómarlögum sem m.a. kveða á um að hálendið verði í eigu þeirra sveitar- félaga sem að því hggja. Það er á skjön við anda frumvarps forsætisráðherra um þjóðlendur. Þá er ljóst að ágrein- ingur er einnig milli stjómarflokk- anna um hvalveiöar eða ekki og þótt sá ágreiningur fari ekki að öllu leyti eftir flokkslínum er hann þó til staðar eins og löng töf á því að ríkisstjómin taki af skarið um hvort hefja skuli hvalveiðar á ný staðfestir. Formaöur sjávarútvegsnefndar undrast Steingrímur J. Sigfússon, formaður sjávarútvegsneöidar Alþingis, segir í samtali við DV að það liggi í augum uppi að nauðsynlegt sé að varðveita eins mikla pólitíska samstöðu um hvalveiðimálið meðal þjóðarinnar og mögulegt er og forðast að e&a til óvinafagnaðar um innbyrðis ósam- þykki meðal ríkisstjómar og þjóðar. Steingrímur segir að það sé orðinn greinilegur pirringur meðal stjóm- arflokkanna sem hafi verið að koma betur og betur í ljós frá því eftir lands- þing Framsóknarflokksins sl. haust. Þá sé einnig ljóst að skiptar skoðanir séu um hvalveiðimálið sem fylgi síður en svo flokkslínum stjómarflokkanna. Glannalegar yfirlýsingar „Það var athyglisvert hvemig Hall- dór Ásgrímsson kaus, í framhaldi af ummælum Davíðs á fundi Varðbergs, að ganga hart fram í yfirlýsingiun sín- um. Ég tel yfirlýsingar formanna stjómarflokkanna vitaverðar þegar málið á að heita á því stigi að það sé til umfjöllunar í ríkisstjóm í kjölfar nefiidarstarfs. Ég hafði reiknað með því að framhaldið fæli meðal annars í sér að reynt yrði að leita sem viðtæk- astrar pólitískrar samstöðu um næstu skrefrn. Þetta er ekki heppilegur fram- gangsmáti og ekki gott að sjálfir lands- feðumir standi fyrir því,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon. Steingrímm- segir að sjálfur hafi hann verið þögull sem gröfm hingað til um málið og virt þann trúnað í tvo mánuði sem samþykkt var að hafa á því meðan ríkisstjómin mót- aði sér stefnu og ákvarðaði næstu skref. „Ég er hins vegar undrandi á því nú hvemig þeir Davíð og Halldór hegða sér gagnvart þessu vanda- sama og viðkvæma máli og get ekki kallað það annað en vítavert ábyrgð- arleysi aö forystumenn rikisstjóm- arinnar skuli vera með glannalegar og gagnstæðar yffrlýsingar sitt í hverja áttina í ljósi núverandi stöðu málsins," segir Steingrímur J. Sig- fússon, formaður sjávarútvegsnefnd- ar Alþingis, í samtali við DV. Dagfari Drengskaparpólitíkin Þrennt markvert gerðist á aðal- fundi Landsvirkjunar í síðustu viku. í fyrsta lagi skilaði fyrirtæk- ið af sér 1700 milljón króna gróða. Það hefur ekki gerst í mörg ár. í öðru lagi var skipaður nýr for- maður og í þriðja lagi var alþýðu- bandalagsmanni bolað út úr stjóminni. Það hefur lítið verið gert með gróðann. Mönnum finnst það greinilega ekki mikið tiltöku- mál þótt Landsvirkjun skili um- talsverðum tekjuafgangi. Að minnsta kosti hefur þess lít- ið verið getið í fréttum og umræð- an snýst um flest annað. Ryndar var það þannig að við síðustu stjómarskipti var kjörinn formað- ur í stjóm Landsvirkjunar, kona að nafni Helga Jónsdóttir. Hún er jafnffamt borgarritari í Reykjavík og kennd við Framsókn. Undir for- ystu Helgu hefur taprekstri Lands- virkjunar verið snúið við og fyrir- tækið skilar hagnaði. Það þótti gefa tilefni til að skipta um for- mann. Ekki fyrir það að hún væri bendluð við Framsóknarflokkinn, enda var annar framsóknarmaður skipaður í hennar stað. Ekki var það heldur talin frá- gangssök hjá Helgu að vera kona vegna þess að Framsókn er hætt að vera á móti konum. Hugsanleg skýring er sú að Helga komi úr Reykjavík, enda á Reykjavíkur- borg ekki nema 40% í fyrirtækinu og auðvitað getur hugsast að það sé varhugavert í augum iðnaðar- ráðherra, sem skipar formanninn, að Reykvíkingar ráði of miklu ef þeir hafa stjómarsetu í samræmi við eignarhluta sinn. Langeðlileg- asta skýringin er þó sú að það hafi farið fyrir brjóstið á ráöherranum og ráðamönnum fyrirtækisins að Landsvirkjun hafi skilað of mikl- um gróða og þess vegna verði að refsa formanninum með því að setja hann af. En þetta eru aukaatriði með gróðann og formanninn. Langal- varlegasta gagnrýnin sem kemur í kjölfarið á þessum aðalfundi er að Svavar Gestsson, sem sat í stjórn- inni af hálfu Alþýðubandalagsins, var settur út í kuldann. Þetta telur Svavar vera svik á drengskapar- loforði. Vísar hann þá til þess að einhvem tímann í fyrndinni hafi Alþýðubandalaginu verið lofað, eiður sær, að mega alltaf eiga mann í stjóm Landsvirkjunar - á hverju sem gengi að öðm leyti. Jafnvel þótt Alþýðubandalagið hrapaði niður í fylgi og völdum þá skyldi alltaf vera víst sæti handa þeim flokki í stjórn Landsvirkjun- ar. Stjórnmálamenn geta svikið all- an andskotann. Þeir geta komið aftan að fólkinu í landinu Þeir geta logið og prettað gagnvart kjósendum, þeir geta svikið öll kosningaloforð. En þeir geta ekki svikið hver annan. Grundvallarreglan í póli- tíkinni er að flokkamir semji um völdin og sætin og kjötkatlana og þau loforð verði að efha. Þar ligg- ur drengskapur við. Og þar sem Alþýðubandalagið hefur ekki leng- ur neina fastmótaða stefnu og er búið að missa fyrrverandi for- mann sinn til Bessastaða og tapa núverandi formanni inn í þoku- móðu og þrugl um sameiginlegt framboð svokallaðra vinstri flokka þá er ekkert eftir í pólitík- inni fyrir Svavar Gestsson nema það eitt að beita sér fyrir þeirri gömlu og góðu stefnu að hinir flokkarnir gleymi ekki Alþýðu- bandalaginu alveg og efni þau lof- orð sem fyrir löngu voru gefin um að Alþýðubandalagið og Svavar megi vera með þegar sest er að kjötkötlunum. Og nú era menn að svíkja það- líka! Hvað er þá eftir? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.