Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 5 Fréttir Stjórnendur þáttarins Good Morning America koma allir til íslands þegar þátturinn verður sendur út héðan. Þau eru Charles Gibson, Joan Lunden og Spencer Christian. Þátturinn veröur sendur út frá Blóa lóninu og af Austurvelli. Bein útsending ABC-sjónvarpsstöövarinnar: Verkfallið truflar ekki - segir Sigmar B. Hauksson „Standi verkfallið enn yfir þegar kemur að útsendingu þáttarins munum við flytja inn jarðstöðvar frá Evrópu. Við munum með öðrum orðum ekki láta verkfallið stoppa okkur,“ segir Sigmar B. Hauksson sem stýrir framkvæmdum í sam- bandi við útsendingu bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC föstu- daginn 16. maí næstkomandi. Fyrirhugað er að senda þáttinn Good Moming America út frá öllum Norðurlöndunum, einn þátt frá hverju landanna. Útsendingin frá íslandi fer fram á tveimur stöðum, Bláa lóninu og Austurstræti. „Þátturinn fjallar um landið og þessa sérkennilegu þjóð sem byggir það. Fjallað verður um tískuna, fiskinn, íslenska hestinn og allt mögulegt tengt landinu og fólkinu. Þetta er virkilega spennandi dæmi og undirbúningur hefur gengið vel. Tæknimenn hafa verið á ferð og flugi og allar þrjár aðalsfjömur þáttarins koma til landsins og stjóma þættinum héðan,“ segir Sig- mar. Hér er um að ræða samvinnu- verkefni Ferðamálaráðs og tveggja ráðuneyta, sjávarútvegs- og utan- ríkisráðuneytisins. Þátturinn verð- ur sendur út á milli kl. 11 og 13 föstudaginn 16. maí. -sv Akureyri: Hætta þrír af foringjunum í bænum? ?DV, Akureyri: Ýmislegt bendir til þess að þrír af oddvitum flokkanna fjögurra sem eiga menn í bæjarstjórn Akureyrar muni draga sig í hlé og ekki skipa oddvitasætin í kosning- unum á næsta ári. Nær öruggt má telja að Gísli Bragi Hjartarson, oddviti krata, hætti pólitísku starfi í bæjar- stjórn, en hann hefur um árabil verið eini bæjarfulltrúi kratanna og sem slíkur þurft að axla geysi- lega mikla vinnu. Sigríður Stefánsdóttir, oddviti Alþýðubandalagsins, íhugaði al- varlega að hætta fyrir síðustu kosningar en lét til leiðast og sagði þá að núverandi kjörtímabil yrði örugglega hennar síðasta í bæjar- stjórninni. Þá heyrast þær raddir úr her- búðum Sjálfstæðisflokksins að Sig- urður J. Sigurðsson, oddviti flokksins í bæjarstjórn, hyggist draga sig í hlé. Sigurður hefur ekki, frekar en Gísli Bragi og Sig- ríður, staðfest að svo sé, en heim- ildarmaður DV innan raða sjálf- stæðismanna sagði að fastlega væri reiknað með að sjálfstæðis- menn þyrftu að finna sér nýjan foringja fyrir næstu kosningar. - gk Stökktu til Costa del Sol 1 21. og 28. maí frá kr. 29.932 Við höfum fengið stærri vél í brottfarir 21. og 28. maí til Costa del Sol og getum nú boðið viðbótarsæti í sólina á hreint einstöku verði. A Costa del Sol finnur þú besta aðbúnaðinn á Spáni. Glæsilegir gististaðir Heimsferða bjóða þér frábæran aðbúnað í fríinu og heillandi stemmningin á snekkjubátahöfninni eða Tivolíinu er einstök, og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu farastjóra Heimsferða allan tímann. Bíldudalskirkja: Minningarsteinn veldur deilum „Okkur greinir á við manninn sem gerði steininn. Hann fer ekki eftir okkar tillögum um staðsetn- ingu og hefur fengið tvo menn sér til aðstoðar. Þetta er mjög bama- legt því vitaskuld á sitjandi sókn- amefnd að ráða,“ segir Herdís Jónsdóttir, formaður sóknar- nefndar Bíldudalskirkju. Minningarsteinninn sem um ræðir var gerður til minningar um Jón Kr. ísfeld, prest og prófast, og konu hans, Auði H. ísfeld. Jón Kr. þjónaði vestra á fimmta ára- tugnum. Steinninn er um einn metri á breidd. Herdís segir litlu muna á stað- setningunni. Hún segir sóknar- nefndina munu leysa þetta mál fljótt og vel. „Við ætlum að funda um málið í kvöld og þá skýrist þetta mun betur. Þetta er fyrst og fremt kjánaskapur og það að fólk gerir sér ekki grein fyrir því að sóknar- nefnd, sem kosin hefur verið til fjögurra ára, á að ráða öllum mál- um sem tengjast kirkjunni á með- Einhver hluti sóknarbarna Bíldudalskirkju er í andstöðu við sóknarnefnd kirkjunnar um staðsetningu á minningarsteini við kirkjuna. DV-mynd ÞÖK an hún situr,“ sagði Herdís í gær. Ekki náðist í Jón Kr. Ólafsson í gær þar sem hann var sagður vera á leið til landsins frá Danmörku. Verðkr. 29.932 M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, E1 Pinar, vika, 21. og 28. maí Verðkr. 39.960 M.v. 2 í studio, vika, E1 Pinar, 21. og 28. maí. Glæsilegur aðbúnaður ★ Loftkæling ★ Sjónvarp ★ Sími ★ Eldhús ★ Mótaka allan sólarhringinn ★ Glæsilegur garður ★ Tennisvellir ★ Líkamsrækt ★ Veitingastaðir Verðkr. 39.932 M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, E1 Pinar, 2 vikur, 21. og 28. maí. Austurstræti 17-2. hæó - Sími 562 4600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.