Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997 15 Margrét Hauksdóttir, lögfræöingur hjá dómsmálaráðuneytinu, hefur m.a. starfað við ættleiðingarmál á undanförnum árum. DV-mynd Hilmar Þór Hefur dregið úr ætt- leiðingum íslenskra barna - segir Margrét Hauksdóttir lögfræðingur „Ættleiðingum er skipt í tvo flokka, frumættleiðingu og stjúp- barnaættleiðingu. Frumættleiðing sr þegar hjón ættleiða barn saman. Stjúpbamaættleiðing er þegar ann- að hjóna ættleiðir barn hins, þ.e. konan á bamið með öðrum manni en eiginmaður hennar er þá stjúp- faðir bamsins. Hann einn ættleiðir þá bcurnið og verður þá faðir þess. Þá rofna lagalegu tengslin á milli bamsins og kynföður þess en stofn- ast á milli barnsins og kjörföður," segir Margrét Hauksdóttir, lögfræð- ingur hjá dómsmálaráðuneytinu, en bún hefur starfað við ættleiðingar- tnál á undanförnum árum. Félagsleg aðstoð mun meiri „Frumættleiðingar ná bæði til ís- enskra og erlendra bama. Varð- andi íslensku bömin hefur bömum verið ráðstafað í fóstur af barna- vemdamefnd til viðkomandi hjóna. Oft kemur umsókn um ættleiðingu Eram í tengslum við fermingu þess- ara fósturbama. Eru því bömin nokkuð stálpuð þegar að ættleið- ingu verður. Aftur á móti em er- lend börn, sem hjón ættleiða saman, mun yngri. Eru þau oftast á fyrsta eða öðm ári. Fram til um 1970 vom flest ís- iensk böm ættleidd hér innanlands. Nú hefur dregið úr framættleiðing- um íslenskra bama. Aðalástæðum- ar era að félagsleg aðstoð er mun meiri í þjóðfélaginu nú en var áður. Einstæðar mæður þurfa ekki að líta á þetta sem eina valkostinn í stöð- unni eins og áöur var. Árið 1975 voru sett lög um ráðsgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og bameignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisað- gerðir. Ef foreldrar eða móðir vilja gefa íslenskt bam til ættleiðingar og til ókunnugra þá mundi hún snúa sér til félagsmálastofnunar eða bamavemdamefndar í viðkomandi heimaumdæmi. Viss skilyrði sett Áður en ættleiðingarleyfl er veitt þurfa viss skilyrði að vera uppfyllt. Veiting ættleiðingarleyfis er ætíð bundin því að fullvíst þyki að ætt- leiðing sé bami til gagns þvi það eru fyrst og fremst hagsmunir barnsins sem era hafðir í fyrirrúmi. Því eru kannaðir vandlega hagir og uppeldishæfni kjörforeldra. Viss skilyrði þarf að uppfylla sem koma ýmist fram í lögum um ættleiðingar eða í leibeiningum dómsmálaráðu- neytisins til barnavemdamefnda. Kjörforeldrar þurfa að vera hjón og hafa verið gift í a.m.k. eitt ár. Sam- anlagður sambúðar- og hjúskapar- tími þeirra þarf að hafa verið a.m.k. 3 ár ef um framættleiðingu er að ræða en 5 ár ef um stjúpbamaætt- leiðingu er að ræða. Lágmarksaldur er 25 ár og há- marksaldur 45 ár. Umsækjendur þurfa að búa við fjárhagslegt öryggi og mega ekki vera á sakaskrá vegna alvarlegra brota. Að öllu jöfnu mega ekki vera meira en 2-3 böm í fjöl- skyldunni. Ættleidda bamið verður að vera yngra en þau sem fyrir era. Þetta eru mjög sambærileg skilyrði og sett eru í nágrannalöndum okk- ar,“ segir Margrét. -RR Ættleiddu litla stúlku frá Indlandi: Erum yfir okkur hamingjusöm - segir Ingvar Kristjánsson sem var sjálfur ættleiddur „Við hjónin erum yfir okkur ham- ingjusöm með að hafa fengiö þessa fcillegu litlu stúlku. Þetta hefur ver- ið hreint frábær tími síðan hún kom til okkar fyrir tveimur áram,“ segir Ingvar Kristjánsson, tæknistjóri hjá Landhelgisgæslunni. Hann og eiginkona hans, Halla Ágústsdóttir, ættleiddu stúlkubam frá Indlandi fyrir 2 árum. Ingvar var sjálfur ættleiddur þeg- ar hann var ný- fæddur. Því má með sanni segja að hann hafi setið beggja meg- in borðsins hvað ættleið- ingu varðar. Ingvar og Halla eru nú á biðlista eftir ingar um hana. Fljótlega fóram við til Indlands til að sækja hana. Við hjónin voram fyrst efíns að við vær- um að gera rétt að taka hana frá heimalandi sínu. En þegar við komum til Kalkútta og sáum allar aðstæður þar hvarf allur efi. Aðstæður þar voru slæmar og við þóttumst örugg um að við gætum veitt litlu stúlkunni betra líf heima á íslandi en beið hennar þarna. Við tókum hana því næst með heim til íslands. Hún var skráð sem íslenskur ríkisborgari og skírð inu að bömið viti um uppruna sinn og að þau séu ættleidd. Ég veit það þar sem ég er sjálfur ættleidd- ur hve mikilvægt það er. Hvað mig varðar þá breytir það ekkert tengslunum á milli mín og minna kjörfor- eldra þó að við vitum hverjir þeir eru. Ég veit það og ég hef talað við þá. Það breytir engu tilfinningalega eða samskiptalega á milli min og þeirra. Vissi maður hins vegar ekki hverjir ky nfor- e 1 d r - arn- Þau eru hamingjusöm fjölskylda. Ingvar Kristjánsson og Halla Ágústsdóttir, stoltir foreldrar, meö litlu stúlkuna sína, Ágústu Kristrúnu. DV-mynd S því að ættleiða annað bam frá Indl- andi. Fengum mynd af henni „Við hjónin áttum engin böm fyr- ir. Við sóttum um að ættleiða erlent barn árið 1994. Við voram að sjálf- sögðu sett á biðlista. Það var mikill spenningur að bíða en síðan kom að því. Við fengum senda mynd af litlu indversku stúlkunni og allar upplýs- Ágústa Kristrún. Það hefur gengið mjög vel síðan. Litla stúlkan okkar veit um uppruna sinn svo langt sem' hennar skilningur og vit nær því hún er jú ekki nema 2 ára gömul. Ég hef ekki fundið fyrir neinum for- dómum, hvorki í garð okkar hjón- anna né stúlkunnar. Er sjálfur ættleiddur Það er mjög mikilvægt í uppeld- ir væra eða kæmist einhvern tím- ann að því á lífsleiðinni að maður væri ættleiddur þá kæmi upp mik- ill efi og óvissa. Ef eitthvað er þá held ég að við höfum farið of seint af stað. Því vil ég hvetja þau hjón sem geta af ein- hverjum ástæðum ekki eignast bam til að sækja um að fá að ættleiða. Það er þess virði og miklu meira en það,“ segir Ingvar. -RR N-770 > Magnari: 2x1 OOw (RMS, 1kHz, 80) > Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni* Geislaspilari: Tekur 26 diska ■ Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B • Hátalarar: Þrískiptir 100w (DIN) N -170 Magnari: 2x25w (RMS, 1kHz, 6£i) Útvarp: FM/AM, 30 stöðva minni Geislaspilari: Þriggja diska Segulbandstæki: Tvöfalt Hátalarar: Tvískiptir 30w (DIN) N -470 Magnari: 2x70w (RMS, 1kHz, 6£2) Útvarp: FM/AM, 24 stööva minni Geislaspilari: Einfaldur „Slot ln“ Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B Hátalarar: Tvískiptir 70w (DIN) PIONEER The Art of Entertainment - Umbo&smenn um íand allt 2800 Reykjavík: Byggt og Búiö Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúö.Búöardal Vestfirðir: Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafiröi. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Hóraösbúa, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstaö. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshðfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavík. Rafborg, Grindavík._________________________________________

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.