Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
Neytendur
Bragökönnun matgæðinga DV á blönduðum safa:
Almennt slæmar einkunnir
Vatnsblandaður appelsínusafi
fékk almennt slæma einkunn hjá
matgæðingum DV. Alls voru
smakkaðir 9 tegundir af vatnsblön-
duðum safa eða appelsínudrykkjum,
eins og þeir eru yfírleitt kallaðir til
aðgreiningar frá 100% safa. Granini
nektar fékk hæstu einkunn með
heildareinkunn 7 en Sól-sólríkur
appelsínudrykkur og Hagkaup-app-
elsínudrykkiu- fylgdu fast á eftir
með 6 í einkunn. Þar á eftir komu
Del Monte-fruit burst, Tommi og
Jenni- appelsínudrykkur og Svala-
appelsínudrykkur. Allir þessir
drykkir voru jafnir að einkunn með
4. Þrjár tegundir, Frissi fríski, Hi-Ci
og Emig, voru í neðsta sæti með 3 í
einkunn.
Dómnefndin var sem fyrr skipuð
Úlfari Eysteinssyni, matreiðslu-
meistara á Þremur Frökkum,
Dröfn Farestveit hússtjómarkenn-
ara og Sigmari B. Haukssyni,
áhugamanni um matargerð. Þau
fengu allar 9 tegundirnar á bakka
til sín í merktum glösum. Ein-
kunnagjöfin fyrir hvert sýnishorn
er á bilinu 1-5. (l=mjög vont,
2=vont, 3=sæmilegt, 4=gott,
5=mjög gott). Einnig voru þau beð-
in um að punkta niöur athuga-
semdir um bragð, útlit og áferð
ífamleiðslunnar.
Allar fernur hristar
Safamir em keyptir í fimm versl-
unum á höfuðborgarsvæðinu: Hag-
kaupi, Nóatúni, 10-11, Bónusi og
Fjarðarkaupum. Það skal tekið fram
að aðeins er dæmt um bragð, útlit
og áferð. Ekki er tekið tillit til verðs
sem er eins misjafnt og tegundirnar
eru margar. Umbúðir eru ekki
dæmdar, aðeins innihaldið.
Drykkimir voru keyptir tveimur
sólarhringum áður en prófunin fór
fram og geymdir í kæli fram að
prófun. Gætt var þess að hrista fem-
umar vel áður en hellt var í glösin.
Granini efstur
Granini nektar fékk heildarein-
kunn 7. Eins og sjá má á grafinu var
einkunnagjöf dómnefndarmanna frá
0 og upp í 4. Sigmar gaf 0. „Ógeðs-
legt“ var hans mat. Dröfn gaf 4 og „í
þessum er þó ávaxtakjöt“. Úlfar gaf
3: „Það kemur bragð fyrst, síðan
hvað?“
Sól og Hagkaup meö sömu
einkunn
Næstar í röðinni komu tegundir-
nar Sól og Hagkaup með einkunn-
ina 6 hvor tegund. Sól-sólríkur app-
elsínudrykkur fékk umsögnina
„ógeðslegt“ og 1 hjá Sigmari. Úlfar
gaf 3, „of milt fyrir minn srnekk", og
Dröfn gaf 2 og „ekkert í þessu sem
mm
Nýjungar hjá ÁTVR:
Bjór í lausasölu
- áfengi og tóbak hækkaði í verði í gær
í gær var tekin upp sú nýjung hjá
verslunum ÁTVR að selja bjór í
lausasölu en ekki einungis í kippum
eins og gert hefur verið frá upphafi
bjórsölu á íslandi. Bjórinn verður
seldur í lausu á öllum útsölustöðum
ÁTVR en einungis veröur hægt að
kaupa hann kaldan í nýopnaðri
verslun ÁTVR við Dalveg í Kópa-
vogi þar sem sú verslun er sú eina
sem er með kæli. Einungis verður
hægt að fá bjór i dósum í lausasölu,
ekki verður hægt að kaupa flösku-
bjór í stykkjatali og miðast verðið
við kippuna, þ.e. hver bjór mun
kosta 1/6 af kippuverði og er því
hlutfallslega á sama veröi og áður.
Annars hækkaði áfengi í verði í
gær að meðaltali um 0,54% miðað
við sölu síðustu 12 mánaða. Að sögn
Bjarna Þorsteinssonar, forstöðu-
manns sölu- og skýrsluvinnslu hjá
ÁTVR, er með þessari hækkun ver-
ið að aðlaga verð á víni nýju gengi.
Sömuleiðis hækkar tóbak í heild-
sölu um 1,25% og er tilgreint lág-
marksverð í smásölu í verðskrá.
Smásölum tóbaks er aftur á móti
heimilt að selja tóbak á þvi verði
sem þeir óska, svo framarlega að
ekki sé farið niður fyrir tilgreint
lágmarksverð. -ggá
Bragðprófun á
uðum appelsínusafa
/
■ A
/ j
Sýnishorn
Granini
Sól
Dröfn
★★★★
★★
Sigmar
o
Ulfar
★★★
Samtals
7
Del Monte ★ , ★ . ’fcit’ - L .. V . ' J , Á ., Jíft-rLM 4
Svali ★ ★ ★★ 4
Tommi og Jenni fw, vw v mgr ’H 4
Frissi fríski ★ ★ ★ 3
Hi-Ci 3
Emig ★ ★ ★ 3
DV
minnir á appelsínu".
Hagkaup fékk líka 2 hjá Dröfn og
umsögnina „ekkert appelsínu-
bragð“. Sigmar gaf 1 og „hvað er
þetta? Grín? Hræðilegt“. Úlfar gaf 3
og sömu umsögn og Sól-drykknum
eða „of milt fyrir minn smekk“.
Hver dómnefndarmaður um sig gef-
ur báðum tegundum sömu einkunn
og sömu umsögn. Það gefur til
kynna að þeir bragðist mjög svipaö.
Þrír meö 4 í einkunn
Þrír drykkir, Del Monte, Svali og
Tommi og Jenni, urðu jafnir með 4
í heildareinkunn. Drykkurinn Del
Monte fékk 1 hjá Dröfn, „hræðilegt
gervibragð og vatnsglundur". Úlfar
gaf 2 og „gervibragð" en Sigmar gaf
1 og umsögnina „myglubragð -
hræðilegt". Um Svala sagði Dröfn
„vont óbragð" og einkunnina 1. Sig-
mar sagði „vatn með einhvers kon-
ar ávaxtabragði" og
gaf 1. Úlfar sagði „of
væmið“ og gaf 2.
Tommi og Jenni fékk
sömu einkunnagjöf
hjá hverjum dóm-
nefndarmanni eða 1,1
og 2. „Litur torkenni-
legur og of sætur
(bragðlaus)“ sagði Úlf-
ar. „Gerviappelsínu-
bragð“ sagði Sigmar
en Dröfn gaf umsögn-
ina „ótrúlegt hvað
þetta er allt vont“.
Samhljóöa dómur
Þrjár tegundir,
Frissi fríski, Hi-Ci og
Emig, fengu hver um
sig 3 í heildareinkunn.
Dómnefhdarmenn
voru svo sammála í
öllum þremur tilfell-
unum þegar þeir gáfu
öllum tegundum 1.
Um Frissa fríska
sagði Dröfn „ótrúlegt
hvað þetta er allt
vont“. Sigmar sagði
„bragð af melónum og
banönum en ekkert
appelsinubragð". Úlfar sagði
„hræðilegt dósabragð".
Um Hi-Ci sagði Dröfh það sama
og um Frissa fríska. „Vatn með
skrýtnu bragði" sagði Sigmar og
Úlfar „vont, bragðlaust, bara sykur-
bragð“.
Um Emig-drykkinn sagði Dröfn
ekkert. Sigmar sagði „vont vatn“ og
Úlfar „vont“. -jáhj
Vatnsveita Reykjavíkur:
Fær gæðaviöurkenningu
Vatnsveita Reykjavíkur hlýtur á
morgun viðurkenningu sem heil-
brigðiseftirlitið veitir matvælafyrir-
tækjum sem gengið hafa í gegnum
ákveðið innra gæðaeftirlit. Með
þessari viðurkenningu er Vatnsveit-
an orðin vottað matvælafyrirtæki.
„Þetta gerir okkur að einu stærsta
matvælafyrirtæki landsins hvað
varðar framleiðni og neytenda-
fjölda," sagði Loftur R. Gissurarson,
gæöastjóri Vatnsveitunnar.
Vatnsveitan er einnig með verk-
efni í gangi þessa dagana sem mið-
ar að því að kanna ástand lagna í
húsum í Reykjavík. Sendur hefur
verið út spumingalisti þar sem fólk
er beðið að svara nokkrum spurn-
ingum um gæði vatns og ástand
lagna. Hér er um að ræða verkefni
sem hefur verið í gangi í nokkurn
tíma en sú könnun sem nú er í
gangi er sú stærsta hingað til. Er
verið að leita markvissra ábendinga
í þeim tilgangi að bæta þjónustu
fyrirtækisins og verða tveir heppnir
þátttakendur dregnir út og þeim
boðið út að borða í Perlunni. -ggá
Þjófnaður á geislaspilara:
100 þúsund króna tjón
fyrir bíleigandann
„Þjófarnir brjótast að öllu jöfnu
ekki inn í bíla nema þeir sjái eitt-
hvað verðmætt í þeim eins og
geislaspilara, GSM-síma, veski o.fl.
Því miður er fólk ekki nógu vel á
varðbergi og er að gleyma verðmæt-
um hlutum í bílunum. Það býður að
sjálfsögðu hættunni heim.
Ef geislaspilaranum er stolið þá
bætist við það rúðubrot og einnig
skemmdarverk á mælaborðinu þeg-
ar græjumar em rifnar burt. Kunn-
ugir hafa tjáð mér að þetta sé kostn-
aður upp á 100 þúsund krónur. í
fæstum tilfellum eru geislaspilar-
arnir tryggðir," segir Björn.
„Innbrot í bíla em orðin mjög al-
varlegt vandamál. Á siðasta ári
voru 903 innbrot í bíla tilkynnt til
lögreglu í Reykjavík og þau hafa
aldrei verið fleiri. í langflestum til-
fellum voru þjófamir í leit að geisla-
spilurum,“ segir Björn Ágúst Ein-
arsson, lögreglumaður i forvama-
deild lögreglunnar í Reykjavík.
Árið 1994 voru innbrot 425 í
Reykjavík og árið 1995 vom 699 inn-
brot. í fyrra vom innbrotin 903. Það
hefur því orðiö veruleg aukning á
innbrotum í bila. Á síðasta ári voru
einnig bókuð 428 skemmdarverk á
bílum.
Bjóöa hættunni heim