Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Qupperneq 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
23
íþróttir
íþróttir
Enn not fýrir
Beardsley
Kenny Dalglish, framkvæmda-
stjóri enska knattspyrnuliðsins
Newcastle, sagði í gær að hinn
36 ára gamli Peter Beardsley
myndi leika áfram með liðinu.
Beardsley hefur lítið verið í náð-
inni síðan Dalglish tók við liðinu
í vetur og er gömlum væringum
þeirra á milli kennt um.
„Peter spurði mig hvort hann
ætti enn framtíð fyrir sér sem
leikmaður Newcastle. Ég sagði
honum að svo væri en kannski
yrði hann ekki notaður eins
mikið og hann vildi helst. Ég
færi aldrei að ráðleggja honum
að leggja skóna á hilluna," sagði
Dalglish. -VS
Charles Barkley og samherjar hans í Houston unnu fyrsta leikinn gegn Seattle í
urslitakeppni NBA í nótt. Barkley skoraði 19 stig í leiknum og tók níu fráköst
Úrslitakeppni NBA í nótt:
Frábær hittni
hjá Houston
- gerði gæfumuninn gegn Seattle
Houston Rockets og Seattle SuperSon-
ics áttust við í fyrsta leik liðanna í nótt
sem leið í úrslitakeppni NBA. Leikar
fóru þannig aö Houston sigraði með 112
stigum gegn 102. Houston byrjaði mun
betur og vann fyrsta leikhluta, 35-25.
Seattle vann annan leikhluta, 29-30,
Houston þann þriðja, 32-16, en Seattle
kom til bcika í fjórða leikhluta, 31-16.
Mcæio Elie átti stórleik fyrir Houston,
skoraði fimm þriggja stiga körfur, sem
er met í úrslitakeppninni, en alls skoraði
hann 20 stig. Clyde Drexler var stiga-
hæstur með 22 stig, Charles Barkley var
með 19 stig.
Shawn Kemp skoraði mest fyrir
Seattle, alls 24 stig og 11 fráköst. Gary
Payton skoraði 19 stig.
„Við gáfum þeim of mikinn frið í skot-
unum. Þriggja stiga körfumar gerðu út
af við okkur,“ sagði Gary Payton hjá
Seattle eftir leikinn.
Fyrsta viðureign Utah Jazz og Los
Angeles Lakers var háð í fyrrinótt. Það
vakti athygli hvað Utah vann auðveldan
sigur en lokatölur urðu, 93-77.
Karl Malone og samherjar hans í
Utah voru með yfirhöndina frá upphafi
til enda. Lið Lakers lék langt undir getu
og verður að gera miklu betur en þetta
til að eiga möguleika gegn sterku liði
Utah.
Malone var stigahæstur hjá Utah,
skoraði 23 stig og tók 13 fráköst. John
Stockton og Jeff Hornacek skoruðu tíu
stig hvor.
Hjá Lakers skoraði Nick Van Exel 23
stig. Shaquille O’Neal náði sér engan
veginn á strik og munar um minna.
Shaq skoraði aðeins 17 stig og það gerði
Eddie Jones einnig.
„Ég er núna hamingjusamur ungur
maður. Þetta var góður sigur en ég er
hræddur um að næsti leikur verði
hreint og klárt stríð á milli liðanna,"
sagði Karl Malone. Tírs
Ótrúlegur leikur á Old Trafford í gær:
„Held ég viti hvert vandamálið er“
- sagði Alex Ferguson eftir 3-3 jafntefli Manchester United við Middlesbrough
Manchester United varð í gær að
sætta sig við sitt annað jafntefli á
þremur dögum, nú 3-3 á heimavelli
við Middlesbrough. Og aftur þurftu
meistaraefnin að vinna upp tveggja
marka forskot því Boro komst óvænt í
1-3 í ótrúlegum fyrri hálfleik.
United er þó áfram með titilinn í
höndunum. Liðið á eftir tvo heima-
leiki, við Newcastle á fimmtudag og
West Ham á sunnudag, og nægir að
vinna annan þeirra.
Þá gæti Manchester United orðið
meistari í kvöld því Newcastle og Liv-
erpool spila bæði á útivelli, gegn West
Ham og Wimbledon, og méga ekki
tapa stigum.
Juninho kom Boro yfir á 15. mínútu
en Roy Keane jafnaði korteri síðar. Þá
fór í hönd magnaður kafli. Fabrizio
Ravanelli, ítalinn snjalli hjá Boro,
haltraði tognaður af velli en félagar
hans svöruðu því með tveimur mörk-
um. Emerson og Craig Hignett voru
þar að verki, 1-3. Gary Neville minnk-
aði muninn fyrir hlé og Ole Gunnar
Solskjær jafnaði um miðjan síðari
hálfleik. Þrátt fyrir látlausa pressu
tókst United ekki að knýja fram sigur
og Boro fékk mikilvægt stig í fallbar-
áttunni. Staða Boro er þó erfið áfram
en. liðið á eftir útileiki við Blackburn
og Leeds og þarf minnst þrjú til fjögur
stig enn, helst sex.
„Mínir menn eiga hrós skilið fyrir
að jafna eftir að hafa lent 3-1 undir en
varnarleikur okkar var afleitur, já
hreint hrikalegur. Ég held að ég viti
hvert vandamálið er og vonandi leys-
um við það fyrir leikinn við Newcastle
á fimmtudag," sagði Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Manchester Unit-
ed, eftir leikinn.
Bryan Robson, stjóri Boro, sem
íhugaði að spila sjálfur en hætti við
það, sagði að stigið hefði verið dýr-
mætt því það héldi lífi í voninni um að
ná liðunum fyrir ofan. „Annað markið
þeirra gerði útslagið, ef við hefðum
farið inn í leikhlé með tveggja marka
forystu er eins víst að útkoman hefði
verið önnur,“ sagði Robson. -VS
- meiri líkur á aö hann leiki með Drammen
„Það er alveg öruggt að ég mun
ekki þjálfa Aftureldingu á næsta
keppnistímabili. Ég ætla að einbeita
mér að því að leika handknattleik
næstu þrjú árin,“ sagði Bjarki Sig-
urðsson landsliðsmaður í hand-
knattleik í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Enn er óljóst hvort Bjarki leikur
með Aftureldingu eða norska liðinu
Drammen á næstu leiktíð. Hann er
með i höndunum tilboð frá norska
liðinu sem hann er að mörgu leyti
sáttur við en þó ekki alveg.
„Það eru ákveðin atriði sem ég
þarf að fá lagfærð. Ef þeir fallast
ekki á það er öruggt að ég leik
áfram með Aftureldingu. Fallist
þeir hins vegar á þessi atriði má
segja að þetta sé komið langleiðina.
Tilboðin frá Drammen og Aftureld-
ingu eru bæði freistandi. Þetta er
erfið ákvörðun sem ég mun ekki
taka alveg strax. Ég þarf að skoða
þessi mál vel. Það er hins vegar al-
veg öruggt að ég mun hvergi þjálfa
næstu þrjú árin og einbeita mér að
handknattleiknum sem leikmaður,"
sagði Bjarki í gærkvöld.
Einar hefur afskrifaö
Fredenbeck
Einar Þorvarðarson, sem þjálfað
hefur Aftureldingu undanfarin ár,
vakti áhuga hjá þýska liðinu
Fredenbeck, því sama og Héðinn
Gilsson leikur með.
„Félagið hafði samband við mig
en það er nokkuö um liðið. Ég hef
því afskrifað það mál,“ sagði Einar
í samtali við DV i gærkvöld.
Samkvæmt heimildum DV hafa
lið i 2. deildinni hér heima sýnt Ein-
ari áhuga en hann heur ekki gert
upp hug sinn.
„Nafn Páls hefur komiö upp
í huga okkar“
Stjórn Aftureldingar hefur ekki
enn ráðið þjálfara fyrir næsta tíma-
bil. „Við erum að skoða þessi mál
þessa dagana. Skúli Gunnsteinsson
mun svara okkur fljótlega en ef
hann verður ekki inni í myndinni
leitum við á önnur mið.“
- Er Páll ÓMsson inni í mynd-
inni?
„Ég neita því ekki að nafn hans
hefur komið upp í huga okkar en
við höfúm ekki rætt við hann. Það
kann þó að verða gert á síðari stig-
um. Annars höfum viö haft það fyr-
ir reglu að vera ekki með marga í
takinu í einu,“ sagði Jóhann Guð-
jónsson, formaður handknattleiks-
deildar Aftureldingar, í samtali við
DV í gærkvöld.
-SK
Ravanelli
ekki meira
með Boro?
ítalski sóknarmaðurinn Fabr-
izio Ravanelli leikur líklega ekki
með Middlesbrough í tveimur
síðustu leikjum liðsins í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Ravanelli, sem hefur skorað 31
mark í vetur, tognaði illa á læri
í leiknum við Manchester United
í gær. Fjarvera hans yrði mikið
áfall fyrir Boro sem berst harðri
baráttu fyrir lífi sínu í úrvals-
deildinni og á tvo erfiða útileiki
eftir í vikunni. -VS
íslenska landsliðið í borðtennis lék 11 leiki á nýafstöðnu heimsmeistara-
móti sem fram fór í Manchester. Sigur vannst í 6 leikjum og fimm töpuð-
ust. Arangur liðsins verður að teljast nokkuö góður. Árangur leikmanna
íslenska liðsins var þannig: Guömundur Stephensen sigraöi í 11 leikjum
en tapaöi fimm. Kjartan Briem sigraði í sex leikjum en tapaöi fimm. Ingólf-
ur Ingólfsson sigraði í tveimur leikjum en tapaði þremur. Loks sigraöi
Adam Harðarson í tveimur leikjum en varð undir t fimm. -JKS
Hermann Hauksson
til Grindvíkinga?
- hef áhuga á að breyta til, segir Hermann
Eyjólfur
komst í liö
vikunnar
DV, Berlín:
Eyjólfur Sverrisson komst i
lið vikunnar hjá hinu virta
knattspyrnutímariti, Kicker,
sem kom út í gær mánudag.
Eins og fram kom í DV í gær
átti Eyjólfur ----------
mjög góðan
leik meö liði I
sínu Hertha
Berlín gegn
Bjarka Gunn-
laugssyni og |
félögum í
Mannheim. Fyr- ---------
ir leikinn fékk Eyjólfur.
Eyjólfur 2 í einkunn en hæst er
gefið 1. Félagi Eyjólfs hjá Hertha
Berlín, Michael Preetz, var
einnig í liði vikunnar en hann
skoraði annað mark liðsins í 2-2
jafnteflinu gegn Mannheim.
Þetta er í annað sinn á tíma-
bilinu sem Eyjólfur kemst í lið
vikunnar hjá Kicker. Bjarki fékk
ekki einkunn hjá Kicker enda
lék hann skamma stund með
Mannheim. Hins vegar er
minnst á hættulegar sendingar
hans i Kicker, en upp úr einni
slíkri skoraði Mannheim annað
mark sitt í leiknum. -bjb
Grindvíkingar hafa sett sig í sam-
band við Hermann Hauksson, lands-
liösmann KR-inga í körfuknattleik,
og hafa áhuga á að fá hann til liðs
við sig fyrir næsta leiktímabil.
Hermann var kjörinn leikmaður
ársins á nýloknu íslandsmóti.
„Það er rétt að Grindvíkingar
hafa rætt við mig en ekki gert mér
tilboð. Ég er laus undan samningi
hjá KR og neita því ekki að ég hef
áhuga á að breyta til í fyrsta skipti
á ferlinum. Það er einnig verið að
athuga fyrir mig með lið erlendis en
enn hefUr ekkert gerst á þeim víg-
stöðvum. Ég neita því ekki að ráðn-
ing Benedikts Guömundssonar sem
þjálfara Grindvíkinga hefur gert
þetta enn áhugaverðara. Ég vil hins
vegar taka fram að málið hefði líka
verið freistandi með Friðrik Inga
Rúnarsson sem þjálfara. Þar er
toppþjálfari á ferð,“ sagði Hermann
Hauksson í samtali við DV í gær-
kvöld.
-SK
Kristján meistari
þriðja árið í röð
- stefnir á atvinnumennsku í haust
Kristján Helgason varð á laugar-
daginn íslandsmeistari í snóker
þriðja árið i röð. Hann vann þá sinn
skæðasta keppinaut, Jóhannes R. Jó-
hannesson, 9-5, í úrslitaleik. Þeir
mættust einnig í úrslitunum í fyrra.
„Þetta var erfiður leikur lengi vel.
Jói komst í 5-3 en þá var gerð
klukkutíma pása sem ég nýtti vel.
Eftir hana kviknaði á mér og þetta
gekk allt upp,“ sagði Kristján í
spjalli við DV.
Kristján og Jóhannes eru á förum
á Evrópumeistaramótið í Frakklandi
í næsta mánuði. Kristján varð í öðru
sæti þar í fyrra og sagðist ekki
stefna á neitt annað en sigur að
þessu sinni.
Þá eru þeir komnir með keppnis-
rétt á HM í Zimbabwe næsta vetur.
Kristján sagði hinsvegar óvíst hvort
hann færi þangað. „Ég hef meiri hug á að reyna fyrir mér í atvinnu-
mennsku i haust og fer þá væntanlega til Belgíu og síðan til Englands ef vel
gengur," sagði Kristján Helgason. -VS
Pétur skoraði
fyrir Hammarby
Pétur Marteinsson átti mjög
góðan leik og skoraði eitt mark í
3-0 sigri Hammarby á Bromma-
pojkama í sænsku 1. deildinni í
knattspymu í gærkvöldi.
Pétur skoraði annað mark
liðsins á 39. minútu með hörku-
skoti eftir hornspyrnu. Hann
hefur nú gert tvö mörk í fyrstu
þremur leikjunum en í fyrra
náði Pétur ekki að skora. Hann
fékk hæstu einkunn leikmanna
Hammarby, ásamt tveimur öðr-
um, í einkunnagjöf félagsblaðs-
ins.
Eftir þrjár umferðir er Gefle
efst með 9 stig en síðan koma
Umeá með 7 stig og Hammarby
með 6. -VS
Óvænt tap hjá
Glasgow Rangers
Glasgow Rangers náði ekki að
tryggja sér skoska meistaratitil-
inn í gær, enda þótt liðinu
dygðili við næstneðsta liðið,
Motherwell, á heimavelli.
Motherwell sigraði óvænt, 0-2,
og á nú góða möguleika á að
forðast fail. Rangers þarf enn eitt
stig úr tveimur síðustu leikjun-
um til að verða meistari níunda
árið í röð. -VS
Klinsmann ræðir
við Everton
Everton ætlar að láta einskis
ófreistað til að krækja í Júrgen
Klinsmann, sóknarmanninn
fræga hjá Bayern Múnchen. Pet-
er Johnson, stjómarformaður
Everton, sagði í gær að rætt yrði
við Klinsmann innan tveggja sól-
arhringa. Um helgina kom fram
að Tottenham vildi fá Klins-
mann til sín á ný. -VS
Þróttarar til Örgryte
Tveir Þróttarar úr Neskaup-
stað fóru í gær til sænska knatt-
spymufélagsins Örgryte og
dvelja þar i eina viku. Það era
Guðjón Guðmundsson, þjálfari
og leikmaður, og Marteinn Hilm-
arsson, leikmaður. Þá er líklegt
að Þróttarar fái liðsstyrk frá Sví-
þjóð í sumar en sennilega koma
einn til tveir leikmenn þaðan til
liðs við Austfiarðaliðið. -VS
Barcelona vann úti
Barcelona sigraði Extrema-
dura, 1-3, á útivelli í spænsku 1.
deildinni í knattspyrnu í gær-
kvöld. Þar meö minnkaði
Barcelona forskot Real Madrid í
deildinni í átta stig. Real er með
83 stig en Barcelona 75. -VS
Fyrst á Hornafirði
Grindavík og KRléku ekki
fyrsta grasleik tímabilsins á
föstudag eins og sagt var í DV í
gær. Homfirðingar vora á und-
an því degi áður vann Sindri sig-
ur á Þrótti frá Neskaupstað, 5-2,
í deildabikamum á grasvellinum
við Nesjaskóla. -VS
Sænska knattspyrnan:
Elfsborg eina taplausa liðið
DV, Svíþjóð:
Nýliðar Elfsborg tróna áfram á
toppi úrvalsdeildarinnar í knatt-
spymu eftir 1-1 jafntefli við Malmö
á heimavelli í gærkvöld. Kristján
Jónsson lék allan leikinn með Elfs-
borg sem hefur komiö mjög á óvart
og er eina ósigraða liðiö í deildinni
að loknum fimm umferðum.
Örgryte vann Degerfors, 3-1.
Rúnar Kristinsson lék vel á miðj-
unni hjá Örgryte og lagði upp eitt
markanna. Þá gerðu Helsingborg
og Norrköping ú-0 jafhtefli.
Arnór fékk hæstu einkunn
Amór Guðjohnsen fékk mjög
góða dóma í sænskum blöðum í
gær fyrir frammistöðu sína i 4-1
sigri Örebro á Trelleborg á sunnu-
dag. Arnór átti þátt í öllum mörk-
um Örebro og sýndi snilldartilþrif
hvað eftir annað. Haft var á orði að
ótrúlegt væri að hann væri á 36.
aldursári og Arnór virðist vera í
sínu besta formi um þessar mund-
ir. Aftonbladet gaf honum hæstu
einkunn, fimm, og Sigurður Jóns-
son var talinn í hópi fiögurra bestu
manna Örebro.
Elfsborg er með 11 stig, Gauta-
borg 10, Halmstad 9, Örgryte 9,
Örebro 8, Malmö 8, Norrköping 8,
AIK 8, Helsingborg 8, Öster 5,
Trelleborg 4, Ljungskile 3, Deger-
fors l og Vásterás 1 stig.
-EH/VS
Eyjamenn
lögðu
Leiftur
ÍBV og Valur komust í gær-
kvöldi í undanúrslit deildabik-
arsins í knattspyrnu. ÍBV með
3-1 sigri á Leiftri í Eyjum og Val-
ur þegar ÍA og FH geröu marka-
laust jafntefli á Akranesi. Reynd-
ar hefði FH þurft að vinna ÍA
með fiórum mörkum til að skáka
Valsmönnum.
Undanúrslitin verða á fimmtu-
dag. Þá mætast annarsvegar
Breiöablik og Valur og hinsveg-
ar Grindavík og ÍBV.
Davið Garðarsson skoraði fyr-
ir Leiftur strax á fyrstu mínútu
í Eyjum. Sumarliði Árnason
jafhaði fyrir hlé og í seinni hálf-
leik skoruðu Tryggvi Guð-
mundsson og Sumarliði og inn-
sigluðu sigur Eyjamanna. Bjarn-
ólfur Lárasson hefði getað bætt
viö marki en hann skaut í stöng
úr vltaspymu.
Skallagrímur vann óvæntan
sigur á KR í Vesturbænum, 0-1.
Hjörtur Hjartarson skoraði sig-
urmark Borgnesinga. Grindavík
hafði þegar unnið þennan riðil.
Fram vann Fylki, 1-0, á gervi-
grasinu í Laugardal. Ásmundur
Amarsson skoraði í síðari hálf-
leik. Breiðablik vann riðilinn.
-ÞoGu/VS
ENGLAND
Manch.Utd-Middlesbrough . . 2-2
0-1 Juninho (15.), 1-1 Keane (34.), 1-2
Emerson (37.), 1-3 Hignett (40.), 2-3
G.Neville (42.), 3-3 Solskjær (67.)
Staöa efstu og neðstu liða:
Man.Utd 36 20 11 5 74-44 71
Liverpool 36 19 10 7 60-34 67
Arsenal 37 18 11 8 59-31 65
Newcastle 35 18 9 8 68-40 63
Everton 37 10 12 15 43-55 42
Blackburn 36 9 14 13 40-39 41
Southampt. 37 10 11 16 50-55 41
West Ham 36 10 11 15 39-46 41
Leicester 36 10 11 15 41-52 41
Sunderland 37 10 10 17 35-52 40
Coventry 37 8 14 15 36-53 38
Middlesbro 36 10 10 16 50-59 37
Nott.For. 37 6 16 15 31-54 34
Leikir í vikunni:
West Ham-Newcastle........i kvöld
Wimbledon-Liverpool ......í kvöld
Leicester-Sheff.Wed. . . .miðvikudag
Blackbum-Middlesbro . . fimmtudag
Manch.Utd-Newcastle . . fimmtudag
lió Tindastóls
- sex leikmenn Tindastóls æfa í Reykjavík á næsta
tímabili og hinir á Króknum. Hinrik aftur í Tindastól
Páll Kolbeinsson verður næsti
þjálfari úrvalsdeildarliðs Tinda-
stóls frá Sauðárkróki í körfuknatt-
leik.
Páll er öllum hnútum kunnugur
á Króknum enda lék hann lengi
með liðinu áður en hann tók við
þjálfun þess. Páll þjálfaði liðið árin
1994 og 1995 með góðum árangri.
„Ég mun þjálfa lið Tindastóls en
enn á þó eftir að ganga frá forms-
atriðum,“ sagði Páll Kolbeinsson í
samtali við DV í gærkvöldi en
hann mun stjóma fyrstu æfing-
unni hjá Tindastóli í kvöld.
„Það verður gifúrlega spennandi
að takast á við þetta verkefhi og
það er mikill hugur í mönnum hér.
Við ætlum okkur að vera með
sterkt lið næsta vetur og stefnum
ekki á neitt annað en toppbarátt-
una,“ sagði Páll.
Helmingurinn í Reykjavík og
heimingurinn á Króknum
Forráöamenn Tindastóls ætla að
bregða á það ráð að gera liðið út
frá tveimur stöðum á næstu leik-
tíð, Sauöárkróki og Reykjavík.
Sex leikmenn liðsins dvelja við
nám í Reykjavík næsta vetur og
munu þeir æfa í Reykjavík.
Afgangurinn mun æfa á Sauðár-
króki undir stjóm Páls Kolbeins-
sonar og verður vægast sagt fróð-
legt að fylgjast með þessari ný-
breytni Tindastólsmanna.
„Við verðum að grípa til þessa
ráðs. Viö höfum verið að missa
einn og tvo leikmenn á hveiju ári
og það er ekki hægt að mæta þessu
öðravísi en svona. Fólk hér á
Króknum er spennt fyrir þessari
tilraun en ég hef heyrt í mönnum
fyrir sunnan sem telja þetta algjört
glapræði,“ sagði Páll.
Leikmannamálin era að skýrast
hjá Tindastóli. Hinrik Gunnars-
son, landsliðsmaður, mun leika á
ný með Tindastóli eftir árs vera í
herbúðum KR-inga. Verður hann
liðinu mikill styrkur.
„Við erum að leita fyrir okkm- í
Evrópu að leikmanni og síöan
munum við mæta til leiks með
sterkan bandarískan leikmann.
Þaö er ekki enn ákveðið hver það
veröur en Torrey John, sem lék
með Njarðvík á síðustu leiktið, hef-
ur líst yfir áhuga á að koma á ný
til okkar. Þessi mál munu
væntanlega skýrast fljótlega,“
sagði Páll Kolbeinsson. -SK
Robson hafnaði
boði Everton
Bobby Robson hefur hafhað
boði enska knattspymufélagsins
Everton um að gerast fram-
kvæmdastjóri þar.
„Everton vildi fá mig strax og
það var ekki hægt. Það eru stór-
leikir framundan hjá Barcelona í
spænsku deildinni og tveir bik-
arúrslitaleikir og því sagði ég
nei við Everton," sagði Robson í
gær.
Hann vildi hinsvegar ekki úti-
loka að hann færi til Celtic í
Skotlandi. „Ég veit hvaða mögu-
leikar eru fyrir hendi þar og þeir
hjá Celtic vilja fá einhvem sem
getur komið í veg fyrir aö
Rangers verði meistari tiunda
árið í röð,“ sagði Robson. -VS
Draumalið
DV
- sjá bls. 25
Páll þjálfar
Bjarki þjálfar ekki
hjá Aftureldingu