Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1997, Blaðsíða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1997
Afmæli
Jón Olgeirsson
Jón Olgeirsson, framkvæmda-
stjóri Korra ehf., Baldursbrekku 6,
Húsavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jón fæddist á Húsavík og ólst þar
upp. Hann var þar í Barnaskóla
Húsavíkur og lauk síðan gagnfræða-
prófi á Húsavík.
Jón fór ungur til sjós og var há-
seti og matsveinn á bátum frá Húsa-
vík. Hann kom í land 1987 og hefur
síðan rekið fiskverkunarfyrirtæki
og eigin útgerð.
Jón hefur starfað í Kiwanisklúbb-
num Skjálfanda frá stofnun, setið í
stjórn hans og verið þar formaður.
Þá hefur hann sungið með Karla-
kórnum Hreimi á Húsavik að und-
anfornu.
Fjölskylda
Jón kvæntist 27.12. 1969 Huldu
Salómonsdóttur, f. 12.2.1950, sjúkra-
liða. Hún er dóttir Salómons Er-
lendssonar, húsgagnasmíðameist-
ara á Húsavík, og k.h., Öddu Jóns-
dóttur húsmóður.
Börn Jóns og Huldu eru Björg, f.
22.4. 1967, skrifstofumaður á Húsa-
vík, gift Sveini Freyssyni og er son-
ur þeirra Rúnar Freyr, f.
1991; Örvar Þór, f. 17.12.
1972, læknanemi við HÍ,
búsettur í Reykjavík;
Særún, f. 22.4.1981, nemi.
Systkini Jóns eru Sig-
urður Valdimar Olgeirs-
son, f. 1942, útgerðarmað-
ur á Húsavík; Hreiðar 01-
geirsson, f. 1943, skip-
stjóri, búsettur á Húsa-
vik; Pétur Olgeirsson, f.
1945, framkvæmdastjóri í
Reykjavík; Skarphéðinn
Olgeirsson, f. 1948, vél-
stjóri á Húsavík; Egill Olgeirsson, f.
1949, tæknifræðingur og fram-
kvæmdastjóri á Húsavík; Aðalgeir
Olgeirsson, f. 1952, verslunarmaður
í Hafharfirði; Kristján Olgeirsson, f.
1960, trésmiður á Húsavík; Björn 01-
geirsson, f. 1962, málarameistari á
Húsavík; Heiðar Geir, f. 1967, skip-
stjóri á Húsavík.
Foreldrar Jóns eru Olgeir Sigur-
geirsson, f. 22.5. 1924, úigerðarmað-
ur á Húsavík, og k.h., Ragnheiður
Jónasdóttir, f. 28.4. 1924, húsmóðir.
Ætt
Olgeir er sonur Sigurgeirs, bú-
stjóra á Húsavík, Péturssonar, b. í
Álftagerði, Guðmunds-
sonar. Móðir Péturs var
Kristín Jónsdóttir, b. á
Grænavatni, Þórðarson-
ar, b. á Grænavatni, Jóns-
sonar.
Móðir Olgeirs var Björg,
systir Jakobínu, móður
Guðmundar Bjarnasonar
landbúnaðarráðherra.
Björg var dóttir Jóns, b. á
Höskuldsstöðum í Reykja-
dal, Olgeirssonar, á Hellu-
vaði í Mývatnssveit, bróð-
ur Jóns, skálds á Hellu-
vaði, föður Sigurðar skálds á Amar-
vatni. Jón var einnig faðir Jóns í
Múla, afa Jóns Múla og Jónasar
Ámasona. Olgeir var sonur Hin-
riks, b. í Heiðarbót í Reykjahverfi,
Hinrikssonar. Móðir Hinriks var
Katrín Sigurðardóttir, b. á Litla-
Vatnsskarði, Ólafssonar og Þórunn-
ar Jónsdóttur, ættföður Harða-
bóndaættarinnar, Jónssonar. Móðir
Jóns Olgeirssonar var Guðbjörg Ei-
ríksdóttir.
Ragnheiður er dóttir Jónasar,
vegaverkstjóra á Þórshöfn, bróður
Bjarna, föður Matthíasar, fv. ráð-
herra. Jónas var sonur Bjama, b. á
Hraunshöfða í Öxnadal, Kráksson-
ar, landpósts á Hólum í Öxnadal,
bróður Guðbjargar, langömmu
Bjöms Jónssonar, ráðherra og for-
seta ASÍ. Krákur var sonur Jóns, b.
á Skjaldarstöðum, Bjarnasonar,
bróður Sigríðar, langömmu Guðríð-
ar, langömmu Jóns Helgasonar ráð-
herra. Móðir Jónasar var Sigríður,
systir Óskar, langömmu Sigfúsar
Jónssonar, fyrrv. bæjarstjóra á Ak-
ureyri. Sigriður var dóttir Guð-
mundar, b. á Brún í Svartárdal,
Jónssonar. Móðir Guðmundar var
Ingiríður, systir Ingibjargar,
langömmu Jóns Pálmasonar alþing-
isforseta, föður Pálma, fyrrv. alþm.
á Akri. Systir Ingiríðar var Guðrún,
langamma Páls á Guðlaugsstöðum,
afa Páls Péturssonar félagsmálaráð-
herra. Ingiríður var dóttir Guð-
mundar ríka, b. í Stóradal, Jónsson-
ar, ættföður Skeggstaðaættarinnar,
Jónssonar.
Móðir Ragnheiðar var Kristjana
Þorsteinsdóttir, b. á Engimýri í
Öxnadal, Jónassonar, b. á Engi-
mýri, Magnússonar, bróður Krist-
jáns, föður Magnúsar fjármálaráð-
herra.
Jón og Hulda taka á móti gestum
í Litla sal Félagsheimilis Húsavikur
miðvikudaginn 7.5., eftir kl. 20.
Jón Olgeirsson.
Valborg Þorvaldsdóttir
Valborg Þorvaldsdóttir, dagmóð-
ir og starfskona við heimilishjálp,
Suðurgötu 40, Akranesi, er fimm-
tug í dag.
Starfsferill
Valborg fæddist að Lundi í Þver-
árhlíð. Hún ólst þar upp og var í
bamaskóla á Varmalandi.
Valborg fór í vist til Akureyrar
1962, auk þess sem hún starfaði þar
við kexverksmiðjuna Lórelei. Hún
flutti aftur að Lundi 1964 og bjó þar
með manni sínum í fjögur ár. Þá
fluttu þau aftur til Akureyrar þar
sem Valborg stundaði ýmis störf,
einkum við Sambands-
verksmiðjurnar og á leik-
skólum og við leikvelli á
vegum bæjarins. Þá var
hún dagmóðir á Akur-
eyri.
Þau hjónin fluttu á
Akranes 1987 þar sem þau
hafa átt heima síðan. Þar
starfaði Valborg við
Sjúkrahúsið á Akranesi
um skeið en stundar nú
heimilishjálp og er dag-
móðir.
Valborg giftist 14.5. 1963
Herði Óskarssyni, f. 4.6.
1939, verkamanni. Hann er
Óskars Kristjánssonar
og Guðnýjar Stefáns-
dóttur, búenda í Sam-
komugerði í Eyjafirði.
Börn Valborgar og
Harðar eru Jón Borg-
fjörð, verkamaður á
Neskaupstað, sambýlis-
kona hans er Hólmfríð-
ur Jónsdóttir og eru
börn hans frá því áður
Aðalsteinn og Guðlaug
María; Arnar Eyfjörð,
leikskólakennari á Ak-
ureyri, sambýliskona
hans er Heiða Hrönn
sonur Hreiðarsdóttir og eru dætur þeirra
Valborg
Þorvaldsdóttir.
Erika Mist og Urður Ylfa; Hilmar
Trausti, starfsmaður við sambýlið
á Akureyri, sambýliskona hans er
Hjördís Vala Þórsdóttir og eru börn
hans frá því áður Thelma Björk,
Andri Dan og Haukur; Linda
Eygló, fiskverkakona á Akureyri.
Systur Valborgar: Vilhelmína
Torfhildur, f. 11.7.1942, d. 4.12.1993,
var búsett í Reykjavík; Amdís, f.
24.4. 1945, búsett á Egilsstöðum
Foreldrar Vilborgar voru Þor-
valdur Þorkelsson, f. 10.1. 1911, d.
3.6. 1996, bóndi á Lundi og síðan á
Akranesi, og Sigríður Ingólfsdóttir,
f. 23.6.1912, d. 4.7.1991, húsfreyja.
Finnur ValdimaGr Bjamason
Finnur Valdimar Bjamason,
Hnjúkabyggð 27, Blönduósi, varð
fimmtugur í gær.
Starfsferill
Finnur fæddist á Ytri-Varðgjá í
Eyjafirði. Hann hóf störf við Hótel
Akureyri er hann var fimmtán ára,
lærði þar matreiðslu og nam auk
þess iðn sína við Hótel Borg og Hót-
el Sögu í Reykjavík.
Finnur starfaði við Hótel Sögu til
1972 en tók síðan við framkvæmda-
stjóm á Félagsheimilinu Valaskjálf
á Egilsstöðum, nú Hótel Valaskjálf,
og gegndi hann því starfi til ársins
1988.
Hann var síðan matsveinn á skip-
um Nesskips og Samskipa, auk þess
sem hann starfrækti matsölu og krá
í Reykjavík.
Fyrir tveimur árum flutti Finnur
til Blönduóss þar sem hann hefur
átt heima síðan. Hann starfar nú
við Blönduskálann.
Fjölskylda
Sambýliskona Finns er Karen
Grétarsdóttir.
Sonur Finns og Karenar er Grét-
ar Hafsteinn.
Systkini Finns era Hallfríður, bú-
sett á Reyðarfirði, sambýlismaður
hennar er Einar Þorvarðarson og
eiga þau þrjú böm; Tryggvi, búsett-
ur í Reykjavík og á hann tvö böm.
Hálfsystkini Finns, samfeðra, era
Svava, búsett í Reykjavík; Bjamey,
búsett í Reykjavík; Elsa, búsett í
Reykjavík; Friðrik, búsettur á landi
Ytri-Varðgjár, í Litluhlíð.
Foreldrar Finns eru Bjami
Tryggvason frá Ytri-Varðgjá, bif-
reiðarstjóri í Reykjavík, og Dýrleif
Finnsdóttir frá Skriðuseli í Aðaldal,
húsmóðir i Reykjavík. Þau skildu.
Fréttir
Hátíð á
Djúpavogi
DV, Djúpavogi:
Árshátíð Grannskólans á Djúpa-
vogi var haldin í íþróttahúsinu ný-
verið að viðstöddu fjölmenni. Nem-
endur buðu upp á vandaða og fjöl-
breytta dagskrá og var greinilegt að
allir skemmtu sér vel.
í Grunnskóla Djúpavogs era um
100 nemendur og af þeim er hluti í
skólaseli í Kerhamraskóla í Álfta-
gerði. Fluttu nemendur þess skóla
söngleik sem ber nafnið 3 litlir her-
menn. Stóðu krakkamir sig með
prýði og greinilegt að þama era
framtíðarsöngvaramir okkar. -HEB
Börnin í Kerhamraskóla sungu vet
DV-mynd Hafdís
Hl hamingju
með afmælið
6. maí
85 ára
Ragna R. Sigurðardóttir,
Espigerði 2, Reykjavík.
Helgi Gunnlaugsson,
Heiðargerði 7, Reykjavík.
Valgerður Guðmvmdsdóttir,
Lundi, Grindavík.
70 ára
Gunnþórunn Þorsteinsdótt-
ir,
Höfðabrekku 29, Húsavík.
Hreinn Þórhallsson,
Ljósavatni, Ljósavatnshreppi.
60 ára
Kristbjörg Kristjánsdóttir,
Hellulandi, Aðaldælahreppi.
Margrét S. Kristinsdóttir,
Aðalstræti 82, Akureyri.
Hafliði Þór Olsen,
Hverfisgötu 64, Reykjavík.
Jóhanna Sigfúsdóttir,
Amarhrauni 25, Hafnarfirði.
Ingvar Ásgeirsson,
Dalbraut 27, Bíldudal.
Olga Steingrímsdóttir,
Sökku, Svarfaðardalshreppi.
Lilja Soffia Jónasdóttir,
Brekkustig 35 B, Njarðvík.
50 ára
Guðni Karlsson,
Miðtúni 25, Höfn í Homafirði.
Kristín Sveinsdóttir,
Áshlíð 3, Akureyri.
Bryndís Pétursdóttir,
Sunnuhvoli, Akrahreppi.
Tómas Bergþór Þorbjörns-
son,
Frostafold 34, Reykjavik.
Gunnar S. Pétursson,
Brekkutúni 9, Sauðárkróki.
Þrúður Karlsdóttir,
Laufrima 35, Reykjavík.
40 ára
Ágúst Þorsteinsson,
Keilugranda 6, Reykjavík.
Ellert Rúnar Finnbogason,
Skútahrauni VII, Skútustaða-
hreppi.
Geir Svansson,
Bræðraborgarstíg 23 A,
Reykjavík.
Margrét Elizabet Harðar-
dóttir,
Birkibergi 32, Hafnarfirði.
Herdís Þorkelsdóttir,
Hraunbæ 26, Reykjavík.
Sigríður Karlsdóttir,
Hamrahlíð 16, Vopnafirði.
Björg Kristín Finnbogadótt-
ir,
Skólastíg 15, Stykkishólmi.
Ámi Elias Albertsson,
Skipasundi 10, Reykjavík.
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
ÍÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5752