Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1998, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
23
Iþróttir
íþróttir
URVALSDEILDIN
KR-ingum hefur gengid verst allra liða í úrvals-
deildinni að hitta körfu andstæðinganna. Hittnin
fyrri hluta úrvalsdeildarinnar var aðeins 43,5%.
Þegar léleg skotnýting KR-inga er
skoðuð kemur í ljós að þrír lykilmenn
liðsins hafa verið að hitta mjög illa í
vetur. Hermann Hauksson (t.h.) er
með 40,8%, Ingvar Ormarsson 35,9%
og Marel Guðlaugsson með aðeins
31,4%.
Lið Grindavíkur skorar mest allra liða úr
3ja stiga skotum. Að meðaltali 11 slíkar körfur í leik.
KFÍ kemur næst á eftir Grindavík með 8,3 3ja stiga
körfur i leik.
Engir eru betri á vitalinunni en Keflvíkingar.
Liðið er með 79,8% nýtingu sem er mjög gott þegar
um heilt lið er að ræða. í liöi Keflvíkinga eru fjórir
leikmenn sem eru á lista yfir fimm mestu vítaskytt-
ur deildarinnar.
Þessir fjórir leikmenn, Gunnar Einarsson, Falur
Harðarson, Guðjón Skúlason og Kristján Guðlaugs-
son, hafa hitt úr 102 vítum af 108, 94,4% nýting. Hin-
ir leikmenn liðsins eru hins vegar með 67,2% nýt-
ingu, hafa hitt úr 84 vítum af 125.
Liðin þrjú frá Vesturlandi virðast hafa æft körfu-
skot best allra liða í úrvalsdeildinni ef marka má
hittni liðanna. Skallagrímur er með bestu nýtinguna,
51,7%. Þá kemur Akranes með 50,8% og loks KFÍ með
48,8%.
Haukar eru öflugastir í að taka fráköstin. Þeir
eru bæði á toppnum hvað varöar flest fráköst að með-
altali í leik (38,7) og að hafa náð mestu hlutfalli frá-
kasta í sínum leikjum (58,3%).
ísfirðingar eiga tvo leikmenn sem eru iðnir við
að taka fráköst. David Bevis er í fyrsta sæti með 13,3
fráköst að meðaltali í leik og Friðrik Stefánsson er í
6. sæti með 11,3 fráköst. Friðrik er efstur íslendinga
yfir frákastahæstu leikmenn deildarinnar.
Haukar og Tindastóll eru óumdeilanlega bestu
vamarlið deildarinnar. í 9 leikjum hefur Tindastóli
tekist að halda andstæðingnum undir 80 stigum og
Haukum hefur tekist það í 8 leikjum.
Lið Tindastóls hefur fengið fæst stig á sig aö með-
altali í leik, 72,2 stig. Haukar koma næstir en and-
stæöingum þeirra hefur aðeins tekist að skora 75,2
stig hjá þeim að meðaltali í leik.
Góðum varnarleik fylgja oft margar villur. Hauk-
ar hafa fengið á sig flestar villur í deildinni, samtals
22,6 villur að meðaltali í leik. Keflavík er næst með
19.3 villur í leik. ÍR-ingar eru prúðastir með 15,3 vill-
ur að meðaltali í leik.
ísfirðingar eru með ágæta vítahittni á heimavelli
sínum, 85,4%, en gengur ekki eins vel á útivelli. Þar
hafa ísfirðingar aðeins nýtt 64,2% vítaskota sinna.
Flestar 3ja stiga körfurnar hingað til hafa verið
skoraðar á heimavelli Vals að Hlíðarenda, 18,3 körf-
ur að meðaltali í leik. Leikmönnum úrvalsdeildar-
innar hefur hins vegar gengið verst að hitta utan 3ja
stiga línunnar á Sauðárkróki þar sem körfumar eru
11.3 að meðaltali í leik.
Jón Arnar Ingvarsson, Haukum, er mesta skytt-
an í úrvalsdeildinni eftir fyrri hlutann. Hann er bæði
með bestu hittnina innan og utan 3ja stiga línunnar.
Jón Arnar er eini bakvörður deildarinnar sem nær
inn á topp 10 listann.
Tveir ungir og efnilegir risar leiða deildina í
vörðum skotum. Þar fer fremstur Grikkinn Konstant-
inos Tsartsaris í Grindavík með 5,0 varin skot að
meðaltali i leik. Hjörtur Þór Hjartarson, Val, er næst-
ur með 2,4 varin skot í leik.
Tveir leikmenn deildarinnar komast á listcmn
yfir 10 bestu leikmennina í þremur helstu þáttum töl-
fræðinnar í körfuknattleiknum. Damon Johnson er í
2. sæti í meðalskori í leik, 3. sæti í fráköstum í leik
og í 8. sæti yfir stoðsendingar.
Warren Peebles, Val, er hinn leikmaðurinn.
Hann er í 5. sæti yfir stigaskorun, 10. sæti hvað frá-
köstin varðar og efstur og bestur í stoðsendingunum.
Helgi Jónas Guöfinnsson, Grindavík,
nær inn á topp 20 í þessum þremur
þáttum, einn íslendinga. Hann er í 5.
sæti í stoðsendingum, í 16. sæti yfir
frákastahæstu leikmennina og í 9.
sæti yfir þá stigahæstu. Helgi Jónas
er greinilega á góðu róli.
-SK
Tölulegar staðreyndir úr úrvalsdeildinni:
Keflavík best
á vítalínunni
Jón Amar Ingvarsson, Haukum,
er hittnasti leikmaður úrvalsdeildar-
innar þegar keppnin um íslands-
meistaratitilinn er hálfnuð. Jón Am-
ar er með bestu hittnina úr þriggja
stiga skotum af öllum leikmönnum
deiidarinnar og einnig innan þriggja
stiga línunnar.
í þriggja stiga skotum er Jón Am-
ar með 56,3% hittni sem er um 18%
betri hittni en á síðustu tveimur
keppnistímabilum. Innan þriggja
stiga línunnar er hittnin hjá Jóni
Amari 60,4%. Hér er um að ræða
frábærar tölur og verður fróðlegt að
sjá hvort Jóni Arnari tekst að halda
þessari frábæru hittni út tímabilið.
Hér fara á eftir nokkrar tölulegar
staðreyndir úr úrvalsdeildinni að af-
loknum 11 umferðum:
Stigahœstu leikmenn
1. Darryl Wilson, Grindavík ...36,55
2. Damon Johnson, ÍA...........30,73
3. David Bevis, KFÍ............29,64
4. Lawrence Culver, ÍR ........29,13
5. Warren Peebles, Val.........28,00
Stigahæsti íslenski leikmaðurinn
er Helgi Jónas Guðfinnsson, Grinda-
vík. Hann er í 9. sæti með 20,82 stig
að meðaltali.
Flest fráköst
1. David Bevis, KFÍ..............13,3
2. Sherrick Simpson, Haukum......12,9
3. Damon Johnson, ÍA.............12,0
4. Dana Dingle, Keflavlk.........11,7
5. Christopher Gamer, SkaUagr. . . . 11,5
Friðrik Stefánsson, KFÍ, er sá ís-
lenski leikmaður sem hefur tekið
flest fráköst. Hann er í 6. sæti með
11,3 fráköst að meðaltali í leik.
Flestar stoðsendingar
1. Warren Peebles, Val............7,7
2. Jón A. Ingvarsson, Haukum .....6,4
3. Marcos Salas, KFÍ..............5,5
4. Tómas Holton, SkaUagrími.......5,4
5. Helgi J. Guðfmnsson, Grindavík . . 5,2
Skotnýting
1. Jón A. Ingvarsson, Haukum . . . .60,4%
2. Christopher Gamer, SkaUagr. . . 60,3%
3. Birgir Ö. Birgisson, Keflavík .. 58,9%
4. Friðrik Stefánsson, KFÍ .....57,8%
5. David Bevis, KFÍ ............56,1%
NBA-körfuboltinn:
Sætur sigur Washington
Lið San Antonio Spurs skaust
upp á topp miðvesturriðilsins í nótt
með því að bera sigurorð af Or-
lando á útivelli. Nýliðinn Tim
Duncan átti stórleik í liði Spurs.
Hann skoraöi 21 stig og átti frábær-
an leik í vörninni þar sem hann
hirti 11 fráköst.
Washington vann sinn fyrsta sig-
ur í Madison Square Garden í New
York í sjö ár eða í 14 leikjum þegar
liðið vann öruggan sigur á liði
heimamanna sem sárt sakna Pat-
ricks Ewing um þessar mundir.
Chris Webber og Juwan Howard
léku báðir sérlega vel fyrir Was-
hington, skoruðu 26 stig hvor,
Webber tók að auki 11 fráköst og
átti 7 stoðsendingar.
Úrslit leikja í nótt:
Toronto-Houston ............96-120
MiUer 22, Tabak 17, Christie 12 - WUlis
20, BuUard 19, Drexler 16.
New York-Washington .... 106-113
Starks 24, Johnson 22, MiUs 15 - Webber
26, Howard 26, Strickland 21.
Orlando-SA Spurs ..........69-74
Armstrong 21, Seikaly 12, Evans 11 -
Duncan 20, Robinson 12, Johnson 12.
Portland-MUwaukee ..........92-98
Sabonis 32, Rider 17, Trent 15 - Robinson
26, AUen 17, Johnson 17.
ÚrsUtin í fyrrinótt:
Washington-Phoenix ........109-99
Howard 29, Strickland 26, Webber 22 -
Chapman 33, Mcdyess 16, Robinson 13.
Vancouver-Seattle.........109-120
Rahim 21, Mack 21, Lynch 17 - Baker 30,
Schrempf 22, Hawkins 22, Payton 22.
Sacramento-Charlotte.......106-90
Richmond 23, Polynice 18, Owens 16 -
Wesley 17, Rice 15, Mason 14.
LA Lakers-Philadelphia . . . 107-113
Shaq 26, Bryant 20, Fox 16 - Iverson 31,
Jackson 28, Ratliff 20.
-GH
Colin Montgomerie vann
Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie nældi sér í 70 milljónir króna þegar
hann tryggði sér sigur á heimsmeistaramóti atvinnumanna í golfi sem lauk f
Arizona í Bandaríkjunum í fyrrinótt. Davis Love frá Bandaríkjunum varð annar
og S-Afríkubúinn Ernie Els hafnaði í þriðja sæti á mótinu. Á myndinni heldur
Montgomerie á sigurlaunum sínum. Reuter
Skotnýting 3ja stiga skota
1. Jón A. Ingvarsson, Haukum . . . 56,3%
2. Baldur Jónasson, KFf..........53,7%
3. Darryl Wilson, Grindavlk.....50,4%
4. Gunnar Einarsson, Keflavík . . . 50,0%
5. Márus Arnarson, ÍR............46,2%
Nýting úr vítaskotum
1. Gunnar Einarsson, Keflavík . . 100,o%
2. Falur Harðarson, Keflavík .... 95,7%
3. Guðjón Skúlason, Keflavík .... 93,3%
4. Marcos Salas, KFÍ ............92,6%
5. Kristján Guðlaugsson, Keflavik 91,9%
Flest varin skot
1. K. Tsartsaris, Grindavik........5,0
2. Hjörtur Þór Hjartarson, Val ....2,4
3. Alexander Ermolinski, ÍA........2,3
4. Friðrik Stefánsson, KFf.........1,8
5. Torrey John, Tindastóli.........1,6
Flestar villur
1. Baldvin Johnsen, Haukum ........4,0
2. Dagur Þórisson, ÍA..............4,0
3. Bergur EmUsson, Val ............3,8
4. Friörik Stefánsson, KFÍ.........3,4
5. Jón A. Ingvarsson, Haukum ......3,4
-SK
ENGLAND
Tottenham gekk í gær frá kaupum á
Andy Hinchcliffe, hinum sterka bak-
verði Everton. Kaupverð Tottenham
á þessum 28 ára gamla leikmanni er 3
miUjónir punda.
Everton er líklega að missa fleiri
sterka leikmenn úr sinum röðum en
líklegt er að Gary Speed, fyrirliði Ev-
erton, gangi i raðir Sheffield Wednes-
day. Wednesday hefur boðið Everton
6 mUljónir punda eöa 5 mUljónir og
miðjumanninn Graham Hyde að
auki.
Howard Kendall, stjóri Everton,
ætti því að hafa góða summu sem
hann getur eytt i sterka leikmenn.
Einn þeirra leikmanna sem KendaU
mun örugglega bjóða i er Georgíu-
maðurinn Georgi Kinkladze.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er á
höttunum eftir nígeriska landsliðs-
manninum Ushe Okechukwu, leik-
manni Fenerbache í Tyrklandi. Wen-
ger bauð á dögunum 5,6 mUljónir
punda í þennan sterka vamarmann
sem var hafnað og talið er að hann
hækki upphæðina í 7,5 miUjónir
punda.
Gianluca Vialli, framherji Chelsea,
segir lið Manchester United vera í
hópi þeirra bestu liða sem hann hef-
ur leikiö gegn á ferlinum. ViaUi, sem
kom inn á sem varamaður og skoraði
2 mörk gegn United í bikarnum á
sunnudaginn, segist mjög hissa ef
Man.Utd hampi ekki Evrópubikarn-
um.
Brad Friedel, landsliðsmarkvörður
Bandaríkjanna, leikur væntanlega
sinn fyrsta leik á mUli stanganna hjá
Liverpool þegar liðiö sækir New-
castle heim í deUdabikarkeppninni
annað kvöld.
Roy Evans, stjóri Liverpool, mun ör-
ugglega rusla eitthvað tU í liði sinu
eftir skeUinn gegn Coventry. AUir
vamarmennimir í þeim leik, Jason
McAteer, Bjöm Tore Kvarme, Domin-
ic Matteo og Steve Harkness, gætu
misst sæti sitt í liðinu.
Arnar Gunnlaugsson og Guðni
Bergsson léku aUan leikinn með Bol-
ton þegar liöið tapaöi fyrir Bamsley i
bikamum á laugardag. Hermann
Hreiðarsson lék að vanda aUan leik-
inn með Crystal Palace sem sigraði
Scunthorpe.
Guðni Bergsson hefði átt að skora í
þriðja leiknum í röö fyrir Bolton.
Hann fékk dauöafæri tU að jafna met-
in rétt fyrir leikslok en þrumaöi bolt-
anum hátt yflr mark Barnsley.
Arnar Gunnlaugsson fær þá ein-
kunn í DaUy Telegraph að hann sé
óútreiknanlegur leikmaður og sveifl-
urnar í leik hans miklar. -GH/VS
„Mér gafst þama gott tækifæri
sem ég vildi ails ekki sleppa. Ég er
mjög spenntur en ég hef lengi
stefnt að því að komast í atvinnu-
mennsku og segja má að biðin hafi
verið löng. Þetta lið sýndi mér
áhuga í fyrra en þá fékk þjálfari
liðsins ekki fjármagn til að kaupa
mig,“ sagði Jón Arnar Ingvarsson,
landsliðsmaöur í körfuknattleik úr
Haukum, sem gert hefur samning
belgfska 1. deUdarliðið Castors
Mjog spenntur
- segir Jón Arnar Ingvarsson sem er á leið til Belgíu
Braine út þetta tímabU.
Umrætt lið hefur átt í mesta
basli á yfirstandandi timabUi og er
í neðsta sæti þegar búið er að leika
14 umferðir. Liðið hefur aðeins
unnið þrjá leiki tU þessa i vetur.
Illa hefur gengiö í vetur
Stjórn félagsins ákvað þvi að
styrkja leikmannahópinn og láta í
staðinn menn fara sem ekki hafa
staðið undir væntingum. Leik-
stjórnandinn var vikið burt og Jón
Amar Ingvarsson fenginn tU að
stjórna leik liðsins það sem eftir er
vetrarins. Einnig var keyptur tU fé-
lagsins Bandaríkjamaður sem leik-
ur í stöðu framvarðar. Fyrir hjá
liðinu er miðherji upp á 2,10 metra
en hann var á mála hjá Boston
Celtics í fyrra.
„Nú verður maður að sanna sig
og það ætla ég svo sannarlega að
gera. Það verða viðbrigði að geta
aUt í einu einbeitt sér að körfubolt-
anum en ég samdi tU vorsins viö
félagið. Það verður síðan undir
mér komið hvort ég verð áfram í
atvinnumennskunni,“ sagði Jón
Arnar við DV í gærkvöldi.
Það veröa því tveir íslendingar
sem leika i Belgíu í vetur en Her-
bert Arnarson er þar fyrir hjá Ant-
werpen.
-JKS
Jón Arnar Ingvarsson á fullri ferð með Haukum í deildinni fyrir skemmstu. Jón Arnar leikur ekki meira
meö Haukum í vetur en hann er á leið til Belgíu þar sem hann leikur fram á voriö hið minnsta.
Barcelona lá
í Salamanca
Barcelona missti í
gærkvöldi kjörið tæki-
færi til að auka forskot
sitt i spænsku 1. deUd-
inni þegar liðið tapaði
fyrir smáliðinu Sala-
manca á útivelli, 4-3.
Salamanca hefur lengst
af í vetur verið í botn-
baráttu.
Barcelona er sem
fyrr I efsta sætinu með
40 stig og á að auki
einn leik tU góða við
Real Madrid sem er í
öðru sæti með 39 stig.
-JKS
Þjálfari Rosenborg
á leið til íslands
Trond SoUied, þjálfari norsku
meistaranna í Rosenborg, kemur
hingað tU lands síðar í þessum mán-
uði og heldur fyrirlestra á námskeiði
fyrir íslenska knattspyrnuþjálfara.
Rosenborg hefur náð ótrúlegum ár-
angri undanfarin ár og ljóst er að
mikið er hægt að læra af þeim þjálf-
unaraðferðum sem þar hefur verið
beitt. Með í för verða Rolf Ingvars-
son, prófessor í tækniþjálfun, og Her-
mundur Sigmundsson íþróttafræð-
ingur og þeir munu íjaUa um tækni-
og grunnþjálfun í knattspyrnu og
handknattieik. -VS
Markakóngur
á Skagann
Skagamenn hafa
fengið tU liðs við sig
markahæsta leikmann
deUdakeppninnar í
knattspyrnu á síðasta
sumri, Hálfdán Gísla-
son frá Bolungarvík.
Hálfdán, sem er að-
eins 18 ára, skoraði 32
mörk i 12 leikjum með
Bolungarvík í 3. deild-
inni, þar af 11 i einum
leik. Þá vann hann sér
sæti í unglingalands-
liðinu síðasta haust og
lék með því tvo leiki.
-VS
Heimsbikarinn á skíðum:
Sigurgangan hja Ylfu
Nowen heldur áfram
- sigur í svigi í gær á 28 ára afmælisdeginum
Sænska skíðastúlkan Ylva Nowen
hefur heldur betur slegið í gegn í
heimsbikarkeppninni á skiðum upp á
síðkastið. í gær hélt hún upp á 28 ára
afmæli sitt með því að sigra í svigi á
heimsbikarmóti í Bormio á Ítalíu og
var þetta fjórði heimsbikarsigur
hennar í röð.
Fyrir þetta timabil hafði Nowen
aldrei tekist að komast á verðlauna-
paU á stórmóti og 15. sæti var besti
árangur hennar.
Þýska stúlkan HUde Gerg varð önn-
ur í sviginu í gær og Spela Pretnar frá
Slóveníu hafnaði i þriðja sætinu.
Ylva Nowen fagnar sigr-
inum í gær. Reuter
„Snjórinn í brekkunni var mjög
góöur, sérstaklega í fyrri umferð-
inni,“ sagði Nowen eftir sigurinn
en hún var með besta tímann eftir
fyrri umferðina ásamt Ursku
Hrovart frá Slóveníu sem hlekktist
á í síðari umferðinni.
Nowen er með örugga forystu í
svigkeppninni og er í þriðja sæti í
samanlögöum greinum. Þýska
stúlkan Katja Seizinger er efst með
931 stig, HUde Gerg er önnur með
754 stig og Nowen er í þriðja sæti
með 633 stig.
-GH
Kristinn áttundi
- í stigakeppninni í svigi
Þó Kristinn
Björnsson
hafi ekki náð
að ljúka
keppni í svig-
inu í Kranska
Gora á
sunnudaginn
er hann i átt-
unda sæti í
stigakeppni
heimsbikars-
ins í svigi,
með þau 80
stig sem hann fékk fyrir annað sæt-
ið í fyrstu keppninni.
Þremur mótum af níu er lokið og
Austurríkismenn eru í tveimur
efstu sætunum. Tíu efstu eru eftir-
taldir:
1. Thomas Sykora, Austurríki .... 180
2. Thomas Stangassinger, Aust. ... 173
3. Finn Christian Jagge, Noregi ... 167
4.-5. Pierrick Bourgeat, Frakkl.
4.-5. Hans Petter Buraas, Noregi
6. Michael von Grúnigen, Sviss .
7. Kiminobu Kimura, Japan . . . .
8. Kristinn Björnsson, íslandi . ..
9. Thomas Grandi, Kanada.......
. 100
. 100
. 87
. 82
. 80
. 76
10. Martin Hansson, Svíþjóð .74
Ef Kristinn hefði ekki verið
dæmdur úr leik á sunnudaginn
væri hann í 4. sætinu með 134 stig.
Neðar á listanum eru margir
frægir kappar með Alberto Tomba
fremstan í flokki. Þar eru líka Norð-
mennimir kunnu, Lasse Kjus, Kjet-
il Andre Aamodt, Tom Stiansen og
Ole Christian Furuseth.
Næst verður keppt í svigi í
Schladming i Austurríki á laugar-
daginn kemur og síðan í Wengen í
Sviss 18. janúar og í Kitzbúhel í
Austurriki 25. janúar.
-VS
Körfuknattleikur:
Lið á meginlandinu líta
hýru auga til íslands
- í kjölfar árangurs landsliösins í EM
Frammistaða íslenska landsliðs-
ins í körfuknattleik í riðlakeppni
Evrópumótsins hefur vakið athygli
víða og er nú svo komið að lið á
meginlandi Evrópu eru farin að líta
í æ meira mæli til íslands í leit að
leikmönnum. Umboðsskrifstofur
víða í Evrópu hafa á síðustu vikum
fengið inn á borð til sín beiðnir um
islenska leikmenn.
Það ætti því ekki að koma á óvart
þótt fleiri leikmmenn fylgdu í kjöl-
far þeirra sem nú þegar leika á meg-
inlandinu.
Hróður landsliðsins gegn Lettum
og Króötum vakti gífurlega athygli
körfuboltasérfræðinga og hafa
spænskir fjölmiðlar meðal annars
séð ástæðu til að fjalla um fram-
göngu íslenska landsliðsins.
-JKS
Spurs áfram í bikarnum
Tottenlíam komst í gærkvöldi áfram í ensku bikarkeppninni þegar
liðið lagði nágranna sína í 2. deildarliði Fulham, 3-1, á White Hart Lane
í Lundúnum. Leikur Tottenham þótti ekki rismikill en hafði sigur engu
að síður. Stephen Clemence og Colin Calderwood skoruðu fyrir
Tottenhan í fyiri hálfleik. Neil Smith minnkaði muninn fyrir Fulham en
Maik Taylor, markvörður Fulham, gerði síðan sjálfsmark. Tottenham
mætir Bamsley í 4. umferð 24. janúar.
-JKa
Guðni í 2ja
leikja bann
Guðni B ergsson, fýrirliði Bol-
ton, er á leið i tveggja leikja
bann vegna 5 gulra spjald í
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spymu.
Guðni, sem hefur leikið alla
leiki Bolton í vetur, má spila
gegn Southampton um næstu
helgi en missir síðan af deilda-
leikjum gegn Newcastle og Cov-
entry. -VS
Guðrún fær
harða keppni
Guðrún Amardóttir fær harða
keppni í 50 m grindahlaupi á
stórmóti ÍR í Laugardalshöllinni
þann 24. janúar.
Ingeborg Leschnik, einn besti
grindahlaupari Þýskalands, hef-
ur staðfest þátttöku sína. Hennar
besti tími er 13,15 sekúndur en
íslandsmet Guðrúnar er 13,18
sekúndur. Þær munu einnig
mætast í 50 metra hlaupi á mót-
inu. -VS
Blcmd í poka
íslenska unglingalandsliðið i körfu-
knattleik sigraði Englendinga, 79-61,
i Wembley Arena höllinni í Lund-
únum í fyrrakvöld. Sigurður Sigurðs-
son var stigahæstur í islenska liðinu
með 18 stig, Steinar Kaldal skoraði 17
og Ingvar Þór Guðjónsson 11.
Sean Dundee, framherji Karlsruhe í
Þýskalandi, sagði í viðtali við tíma-
ritið Kicker um helgina að hann vildi
fara frá félaginu. Þessi 25 ára gamli
leikmaður, sem fæddur er í S-Afriku,
sló í gegn í fyrra og skoraöi 17 mörk
í 1. deildinni en hefur aöeins skorað 2
á þessu tímabili.
Norómenn hefja lokaundirbúning
sinn fyrir úrslitakeppni HM i knatt-
spyrnu um næstu helgi. Þá halda þeir
í æfingabúðir í Blackbum á Englandi
og þangað eru kallaðir 23 leikmenn.
Þar af leikur 21 á Englandi, einn í
Þýskalandi og einn i Austurríki.
Siguröur Jónsson nær ekki enn að
vera í sigurliði með Dundee United í
skosku knattspymunni. Lið hans tap-
aði, 1-0, fyrir Aberdeen í úrvalsdeild-
inni á laugardag. Sigurður lék allan
leikinn í vörninni og fékk að líta gula
spjaldiö.
Celje Lasko frá Slóveníu vann Badel
Zagreb frá Króatíu, 26-21, í meistara-
deildinni í handbolta um helgina en
þessi lið eru með KA í riðli. Króatinn
öflugi Istvan Puc skoraði 7 mörk fyr-
ir Lasko gegn löndum sinum en Boz-
idar gerði 6 mörk fyrir Badel, sem
sækir KA heim um næstu helgi.
Drammen fékk sin fyrstu stig í
meistaradeildinni með því að sigra
Rauðu stjörnuna frá Júgóslavíu,
25-23, í fyrrakvöld. Ademar Leon og
Winterthur eru með 4 stig hvort en
Drammen og Rauða stjarnan 2 stig.
Drammen á heimaleik gegn Winter-
thur um næstu helgi.
Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Drammen, hrósaði flestum leik-
manna sinna í samtölum við norska
fjölmiðla eftir leikinn. Þó ekki Bjarka
Sigurðssyni. „Hann var úti að aka frá
fyrstu mínútu," sagði Gunnar við
staöarblað í Drammen.
Bjarki Sigurðsson segir sjálfur við
blaðið að hann viti ekki hvaö sé að en
einbeitingin virðist ekki alveg i lagi.
„Ég veiktist um jólin og fannst ég
vera mjög þungur þegar viö fórum
aftur af stað,“ segir Bjarki.
Gunnar Gunnarsson notar jafnan
myndbönd til hins ýtrasta I undir-
búningi liðs Drammen. Hann vann
heimavinnuna vel fyrir leikinn gegn
Rauðu stjörnunni. „Ég var búinn að
sjá út sóknarleik þeirra og þeir spil-
uðu nákvæmlega eins og ég reiknaði
með,“ sagði Gunnar.
Jón Arnar Ingvarsson hét af landi
brott í morgun og er talið allt eins lik-
legt að hann leiki fyrsta leikinn með
sínu nýja liði um næstu helgi.
Castors Braine hafnaði í 8. sæti í 1.
deild í fyrra. I vetur hefur liðinu hins
vegar gengiö illa. Liöið hefur aðsetur
rétt sunnan við höfuðborgina Brussel.
Skagamenn sigruðu Eyjamenn í
úrslitaleik hins árlega Gróttumóts í
innanhússknattspymu á sunnudag-
inn. Þeir höfðu betur i vítakeppni eft-
ir jafntefli, 2-2, i framlengdum leik.
Leiftur sigraði KA, 3-1, i úrslitaleik á
innanhússmóti Blíðfara I knatt-
spymu á Ólafsfiröi fyrir áramótin.
-JKS/GH/VS/HJ