Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1998, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
Fréttir
Hærri húsaleiga hjá borginni:
Mun rýra afkomu
flestra leigjendanna
- segir formaöur Leigjendasamtakanna
„Eftir tvo fundi með stjómarfor-
manni og framkvæmdastjóra Félags-
bústaða hf. liggnr það fyrir að þeir
ætla að hækka húsaleiguna í félags-
legum leiguíbúðum
borgarinnar um
helming. Það er ver-
ið að búa til skuld
upp á fjóra millj-
arða sem leigjendur
borgarinnar eiga að
fá að borga,“ segir
Jón Kjartansson,
formaður Leigj-
endasamtakanna, í
samtali við DV.
Jón segir það
mjög líklegt að tO-
koma Félagsbústaða hf. inn á leigu-
markaðinn eigi eftir að hafa veruleg
Jón Kjartans-
son, formaöur
Leigjendasam-
takanna.
og mótandi áhrif á leiguverð yfirleitt.
Þá segir hann að almennar yfirlýsing-
ar sumra borgarfulltrúa um að bæta
fólki væntanlegar húsaleiguhækkanir
séu vafasamar. Engin svör hafi feng-
ist við því hvemig það verði gert.
Samkvæmt nýjum lögum um húsa-
leigubætur ná þær nú til alls ibúðar-
húsnæðis. Jón segir að það dragi sára-
lítið upp í fyrirhugaða helmingshækk-
un leigu hjá borginni og muni skapa
mörgum leigjendum hennar mikinn
fjárhagsvanda. Leigjendasamtökin
hafi haldiö nokkra fundi með leigjend-
um hjá borginni og farið yfir málið og
séu margir mjög uggandi.
Jón nefnir sem dæmi um áhrif
húsaleiguhækkananna konu sem
hann segir vera dæmigerðan íbúa í fé-
lagslegri leiguíbúð. íbúinn er kona
sem lifir af ellistyrk sem er 54 þúsund
kr. á mánuði auk þess að fá greiðslu-
úr lífeyrissjóði sem er 11 þúsund kr.
Húsaleiga hennar er 14 þúsund kr. á
mánuði þannig að hún á nú eftir 51
þúsund kr. á mánuði til að fæða sig og
klæða.
Á næstunni mun húsaleiga kon-
unnar stíga í 28 þúsund kr. á mánuði
en jafnframt mun hún fá húsaleigu-
bætur upp á 4 þúsund krónur þannig
að hún greiðir sjálf 24 þús. kr. í stað
14 þúsund króna og ráðstöfunarfé
hennar verður 41 þúsund krónur á
mánuði í stað 51 þúsund króna.
Jón segir að eina fólkið sem eigi að
fá hækkunina bætta að fullu séu þeir
sem hafa tekjur undir skerðingar-
mörkum, sem er 1,5 milljónir á ári og
hafa þrjú eða fleiri börn á framfæri.
Fé flutt milli byggða
DV, Hólmavík:
Eftir nokkrar endurbætur á vegin-
um yfir Steinadalsheiði á milli KoOa-
fjarðar og GOsfjarðar fyrir nokkrum
árum hefur sá tími nokkuð lengst sem
hann er fær ár hvert. Með tOtölulega
litlum endurbótum á tveimur stöðum
mætti enn lengja þann tíma.
Algengt getur það þó ekki talist að
hann sé jeppafær síðari hluta des-
embermánaðar eins og nú var raunin
enda tíðarfar það sem af er vetri
nokkuð með óvenjulegum hætti hvað
snjóalög snertir.
Fé var flutt á paOi jeppabifreiðar
fjórum dögum fyrir jól á miOi þessara
byggða og gekk vel. Ökumaður
jeppans var Bergsveinn Reynisson,
bóndi á Gróustöðum, og með honum
var Kristján Garðarsson, bóndi á Efri-
Múla í Saurbæjarhreppi. -GF
Bergsveinn til vinstri ásamt Kristjáni og Tíla, fjárhundur Bergsveins, sem
fékk að vera með ef hennar hefði verið þörf við rekstur kindanna sem ekki
var. DV-mynd Guöfinnur
„Það er því ekki nema brot af því fólki
sem leigir af borginni sem fær hækk-
unina bætta að fidlu, því að flestir
leigjendurnir eru eUi- og örorkulífeyr-
isþegar."
-SÁ
Amerískur
útivistarfatnaður
Cortina Sport
Skólavörðustíg 20 - Sími 552 1555
VERSLUN FYRIR ALLA !
8 eldunaraðgerðir
• Þrívíddarblástur
• Grill með grillteini
• 3 hitaelement
• Sjálfhreinsibúnaður
• Klukka
• Helluborð með 4 hellum
• Burstað stál eða hvítt
Tilboðsverð
Aðeins
kr. 42.900,- stgr.
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kt. 9-18, laugard. kl. 10-16
COHa
RADGREIÐSLUR
)
l
i
i
i
NA LENGRA
GUNNAR BERNHARD EHF.
VATNAGARÐAR24
SÍMI: 520 1100
FYRST KEM EG