Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1998, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
9
Utlönd
Finnar smíðuðu
snekkju Saddams
Finnsk skipasmíðastöð smíðaði
lystisnekkju fyrir Saddam Hussein
íraksforseta, að því er finnska sjón-
varpið greindi frá um helgina.
I byrjun níunda áratugarins áttu
Finnar ýmis viðskipti við íraka sem
þeir vilja helst ekki tala hátt um nú.
Lystisnekkjan, sem smíðuð var
fyrir Saddam, er 120 metra löng. Á
myndum, sem finnskur háseti tók af
snekkjunni, má sjá gullhúðaða
krana, kristalsljósakrónur,
marmara, risastórt hjónarúm og
matarstell úr gulli og silfri fyrir 100
gesti sem kostaði um 150 milljónir
íslenskra króna, að því er fram
kemur í sænska dagblaðinu Dagens
Nyheter. Samkvæmt skrám trygg-
ingafélags notar Saddam enn
snekkjuna.
í lystisnekkjunni, Al-Mansur, eru
skotheld rými og rými sem ekki er
Saddam getur hleraö samræður
allra gesta í snekkjunni.
Þessir skemmtilegu fýrar fóru á stjá f borginni Lviv í vesturhluta Úkraínu f
rnorgun, sungu jólasálma og léku „vertep", en þaö er sagan um fæöingu
Krists. Úkrafnumenn halda jól 7. janúar og veröur engin undantekning á þvf
þetta áriö.
Símamynd Reuter
ísraelska þingiö:
Stjórn Netanyahus
hafði sigur að sinni
Stjóm Benjamins Netanyahus,
forsætisráðherra ísraels, stóðst
fyrstu prófraun sína á þingi í gær
eftir afsögn Davids Levys utanríkis-
ráðherra. Fjárlagafrumvarpið fyrir
1998 var samþykkt með 58 atkvæð-
um gegn 52. Aðeins einn þingmaður
Likud, flokks Netanyahus, sat hjá.
Ágreiningur um fjárlagafrumvarpið
var helsta ástæða afsagnar Levys.
Netanyahu brosti breitt þegar
niðurstöður atkvæðagreiðslunnar
lágu fyrir. Hann hafði annars setið
með áhyggjusvip og hlustað á um-
ræðumar.
„Þeir hafa flutt líkræðuna yfir
mér að minnsta kosti átján sinnum
á síðustu átján mánuðum en ég er
samt enn hér,“ sagði Netanyahu við
fréttamenn. Atkvæðagreiðslan um
fjárlögin var mikilvæg vísbending
um stöðu Netanyahus þar sem
stjóm hans hefúr nú aðeins 61 þing-
mann af 120.
Netanyahu sagðist ekki telja að
boðað yrði til kosninga á næstunni.
Stjómmálaskýrendur sögðu þó að
stjómin, sem þarf nú að reiða sig
meira á harða hægrisinna, kæmist
senn í vandræði vegna deilna um
frekari brottflutning ísraelskra her-
manna frá hemumdu svæðunum á
Vesturbakkanum.
Reuter
hægt að hlera. Hins vegar getur
Saddam hlerað gesti sína því skipið
er útbúið þróuðum hlerunarbúnaði.
Að káetu forsetans sjáifs er leyni-
gangur falinn á bak við spegladyr.
Smíði snekkjunnar fór fram með
mikilli leynd og sá sem pantaði
hana krafðist þess að öll gögn um
skipið yrðu eyðilögð. Þegar snekkj-
unni var siglt um Kielarskurð til
Marokkó til þess sem pantaði hana
urðu skipverjar að þekja íraska öm-
inn á reykháfmum. Var það gert af
ótta við hryðjuverk íraskra náms-
manna í Þýskalandi.
í sjónvarpsþættinum var einnig
getið um ýmis önnur verk sem
finnsk fyrirtæki unnu fyrir íraka.
Meðal annars áttu Finnar þátt í
byggingu kjamorkuvers og úran-
námu í írak. Þeir byggðu einnig
loftvamabyrgi fyrir íraka.
Slegisf um miða
að gröf Díönu
Símalinur í Bretlandi voru rauð-
glóandi í gær er sala hófst á að-
göngumiðum að grafreit Díönu
prinsessu. Tekjunum af miðasöl-
unni á að verja til góðgerðarstarf-
semi sem prinsessunni var sérstak-
lega umhugað um.
Sala miðanna hófst klukkan 9 í
gærmorgun. Átta klukkustundum
síðar höfðu selst 10 þúsund miðar.
Þó komust ekki allir sem vildu í
samband við miðasöluna.
Díana var jarðsett á eyju í vatni
á ættarjörð fjölskyldu sinnar. Al-
menningur fær ekki að fara út í eyj-
una. En fjölskylda Díönu ákvað að
leyfa 2500 gestum aðgang á hveijum
degi að vatninu frá 1. júlí, sem er
fæðingardagur prinsessunnar, til
30. ágúst sem er dagurinn fyrir dán-
ardag hennar. Díana lést aðfaranótt
31. ágúst síðastliðinn.
Aðgangurinn kostar um 1 þús-
und krónur fyrir fullorðna og um
500 krónur fyrir böm. Gestir geta
jafnframt skoðað ættarsetur
Spencerfjölskyldunnar og safn tengt
Díönu.
30 milljarðar
í vaskinn
DV, Ósló:
Norskur fiskiprófessor hefur
reiknað út að Norðmenn tapi um
30 milljörðum íslenskra króna ár-
lega á að flytja fisk út óunninn í
stórum stíl. Prófessor Vassdal
segir að fyrst verði ríkið að láta
af ofstýringu á sjávarútveginum
og þar á hann sjávarútvegsráð-
herranum Öngulssyni að mæta
þvi ráðherrann segir að opinber
stýring á veiðum og vinnslu sé
homsteinn byggðastefnunnar
norsku. Prófessorinn vill að
frystitogarar verði látnir um fúll-
vinnsluna og að fiskverð verið
gefið ffjálst.
-GK
Lífogjjör í ballettskób
Getuin bætt við nyium nemenduin
Byijenda-
og framhaldsílokkar
frá íjögurra ára
Ballettskóli
ra Eddu Scheving
Leng>
Félag íslenskra listdansara
Skúlatúni 4 • Innritun og upplýsingar í síma: 553 8360
Líf mitt hefur tekið miklum breytingum til hins betra, ég
lít björtum augum á framtíðina og er hætt að velta mér
uppúr fortíðinni. Sjálfstraustið hefur aukist til muna og
ég á betur með að koma skoðunum mínum á
framfæri. Dale Carnegie® var svarið.
Björg Ólöf Bjarnadóttlr
Ég mæli eindregið með Dale Carnegie® námskeiðinu.
Þaö hefur aukið sjálfstraust mitt og einnig kennt mér
að lifa í „dagþéttri veröld“. Ég er óhræddari við að
standa upp og tjá mig og halda tölu í áheyrn fjölda
manna.
Elfn Þorbergsdóttir
Samskipti mín við yfirmenn mína hafa gjörbreyst auk
þess sem áhyggjur mínar af bókstaflega öllu hafa
minnkað verulega.
Trausti Jónsson
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konráð Adolphson - Einkaumboð á íslandi
581-2411
FJÁRFESTING í MENNTUN SKILAR ÞÉR ARÐI ÆVILANGT
KYNNINGARFUNDUR
fimmtudaginn 8. janúar kl. 20.30
aö Sogavegi 69, 108 Reykjavík