Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1998, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 5 pv__________________________________Fréttir Síldin finnst ekki þrátt fyrir mikla leit: Skelfingu lostnir - segir Lárus Grímsson, skipstjóri á Júpiter DV, Akureyri: „Við höfum ekki séð þetta ástand áður varðandi síldina, að það skuli ekki fmnast nokkurt einasta kvikindi og menn eru hreinlega skelfingu lostnir vegna þessa ástands," segir Lárus Grímsson, skipstjóri á nóta- skipinu Júpiter frá Þórshöfn. Lárus er i hópi reyndustu skipstjórnarmanna landsins og hann segir að það ástand sem nú er varðandi síldina sé ugg- vænlegt og mikill kvíði meðal sjó- manna vegna þess sem virðist vera að gerast. Páli Reynisson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir að síldarleysið nú hafi án efa áhrif á til- lögur um veiði fyrir næstu vertíð. „Undanfarin ár höfum við alltaf vit- að af síldinni, höfum séð hana, en nú bara sést ekki neitt og við vitum ekk- ert hvar hún er ef hún er þá til á ann- að borð. Þess vegna urðu menn smeykir og strax i haust bentum við Hafrannsóknastofnun á að nú ættu menn að fara sér varlega ef einhver síld fyndist og þetta var undirritað af flestum skipstjórum. í haust sást örlítið af síld en alis ekki nóg til að það réttlætti áframhaldandi veið- ar. Það var hins veg- ar ekki hlustað á okkur og sú síld tek- in sem náðist í. Við skipstjórarnir höfum ekki kært okkur neitt um það að ganga nærri stofnin- um og ef einhver vafi væri um stofn- inn ætti síldin að njóta hans. Við sjófarendur höfum því verið eini ábyrgi aðilinn í þessu máli en það er bara ekki hlustað á okkur. Ástand- ið er hræðilegt og þótt Hafró hafi far- ið í tvo síldarleiðangra hefur ekki fundist nein síld. Þetta er alveg skelfi- legt, þeir hjá Hafró virðast bara taka einhverja ákvörðun um hvað stofninn sé stór og svo á það að gilda hvort sem einhver síld er til eða ekki. Ástandið meðal okkar sjómanna er þannig að menn eru skíthræddir," segir Lárus Grímsson. Áhyggjur eðlilegar „Það er eðlilegt að sjómenn hafi áhyggjur af þessu ástandi því menn finna miklu minna af stórsíld en reiknað hafði verið með,“ segir Páll Reynisson, leiðangursstjóri á Árna Friðrikssyni, en nú er að Ijúka öðrum leiðangri skipsins í vetur í leit að síld. Fyrst var farið í nóvember og desemh- er og þá fannst sáralítið og Páll segir það sama uppi á teningnum í þeim leiðangri sem staðið hefur yfir frá ára- mótum og er nú að ljúka. „Annaðhvort hefur síldin hreinlega drepist eöa að umhverfisaðstæður í sjónum hafa breyst þannig að síldin safnar sér ekki saman eins og venja er á þessum árstíma, en það er ekkert hægt að fullyrða um þetta,“ segir Páll. En er hægt að taka einhverja áhættu i þessu, verður ekki bara að loka á all- ar síldveiðar þar til málin skýrast? „Við þurfum fyrst að skoða þau gögn sem við erum með og ég er ekki viss um að veiðar verði stöðvaðar á þeirri vertíð sem nú stendur yfir. En þetta hefur vafalaust áhrif á tillögur um veiði fyrir næstu vertíð," segir Páll. -gk Amerískur útivistarfatnaður Dömu- og herrasnið Krumpast ekki Lífstíöa.rá.jbyrg-0 Cortina Sport Skólavörðustíg 20 - Sími 5521555 / IJrval -gottíbátinö Lárus Grímsson ÐALENO BALENO ALLIR SUZUKI BALENO • SWIFT • VITARA TEGUND JLXSE3d JLXSESd DIESEL 5d V6 5d BALENO * r-':m Komdu og sestu inn! Sjáðu rýmið og alúðina við smáatriði. Skoðaðu verð og gerðu samanburo. VKnEiWm SUZUKI AFLOG ÖRYGGI SUZUKI SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvéiasalan hf., Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 55S 15 50. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Seifoss: Bílasala Suðuriands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. AflmikHr, rúmgóðir, öruggir og einstaklega hagkvœmir í rekstri BALENO TEGUND: 1,3GL 3d l,3GL4d l,6GLX4d 1,6 GLX 4x4 4d l,6GLXWAGON WAGON 4x4 VERÐ: 1.140.000 KR. 1.265.000 KR. 1.340.000 KR. 1.495.000 KR. 1.445.000 KR. 1.595.000 KR. TEGUND: GLS 3d GLX 5d VERÐ: 980.000 KR. 1.020.000 KR. VERÐ: 1.580.000 KR. 1.830.000 KR. 2.180.000 KR. 2.390.000 KR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.