Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1998, Síða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
23
íþróttir
DV
íþróttir
B-lid Þróttar úr Reykjavík vann alla
leiki sína i fyrsta hluta 2. deildar
karla í blaki sem fram fór um síðustu
helgi. Þróttur er með 10 stig, Fram 8,
Hamar 8, Hrunamenn 4, Nató 4 en
Sindri ekkert stig.
Júltus Jónasson og félagar
i St. Otmar töpuðu
fyrir Kadetten, 33-28,
I úrslitakeppninni um
svissneska meistara-
titilinn i handknattleik
á sunnudag. St. Otmar
datt þar meö niður í
sjötta sæti af átta liðum
en liðið hóf úrslitin í
öðru sæti með tvö bónus-
stig.
Jesper Parnevik sigraði á opna
Phoenix-mótinu í golfi sem lauk í
Arizona í fyrrinótt. Svíinn snjalli lék
á 269 höggum og á eftir honum komu
Bandaríkjamennirnir Tommy Ar-
mour, Steve Pate, Brent Geiberger og
Tom Watson, allir á 272 höggum.
Tiger Woods er orðinn
efstur á stigalista at-
vinnumannanna í golfl
eftir sigurinn á
Johnnie Walker-mót-
inu um helgina.
Næstur kemur Astr-
alinn Greg Norman
og í þriðja sæti er
Emie Els írá S-Afr-
iku.
Paulo Sousa, portúgalski lands-
liðsmaðurinn í knattspymu, er á leið
til Inter Milan frá Dortmund. Inter
kaupir þennan 27 ára gamla miðvall-
arleikmann á 600 milljónir króna.
Jupp Heynckes, þjálfari Real Madrid,
þykir nú mjög valtur í sessi eftir slakt
gengi liðsins að undanfornu. Madrid-
arliðið tapaði um helgina fyrir Real
Sociedad og í síðustu viku var liðið
slegiö út úr bikarkamum af 2. deild-
arliði. Það þykir því aðeins tíma-
spursmál hvenær Heynckes fær
sparkið.
Heynckes tók við liði Real Madrid af
Fabio Cappello fyrir 7 mánuöum.
Sögusagnir eru á Spáni að Lorenzo
Sanz, forseti félagsins, vilji fá Arsene
Enger, stjóra Arsenal, til að taka við
starfi Heynckes.
Real Madrid hefur boðið 20 milljón-
ir dollara í brasilíska landsliösmann-
inn Junior Baiano sem leikur með
Flamenco. Fleiri lið eru á eftir þess-
um 27 ára gamla varnarmanni, þar á
meðal Barcelona og Atletico Madrid.
Kim Magnús Nielsen
sigraði í meist-
araflokki karla á
Lottó-mótinu í
skvassi sem fram
fór í Veggsporti um
helgina. Kim sigraði
Magnús Helgason i
úrslitum, 3-1.
Ragnheiöur Vikings-
dóttir sem er betur þekkt á knatt-
spymuvellinum vann sigur í kvenna-
flokki en hún sigraði Elínu Blöndal i
úrslitum, 3-0.
Haukur Eiríksson, Akureyri, sigraði
í 10 km göngu karla á Kristinsmótinu
svokallaða sem haldið var í Ólafsfirði
á sunnudaginn. Jón Árni Konráðs-
son, Ólafsfirði.varð annar og Þórhall-
ur Ásmundsson, Fljótum, þriðji.
Baldur Helgi Ingvarsson, Akureyri,
sigraöi í flokki 17-19 ára pilta en þeir
gengu 7,5 km. Annar varð Þóroddur
Ingvarsson, Akureyri, og Helgi Jó-
hannesson, Akureyri, varð þriðji.
-GH/VS
Sund:
Meistaramótiö
á Vellinum?
„Við höfum haft þennnan mögu-
leika til athugunar og niðurstöðu er
að vænta I vikunni Eins og staðan
er í dag bendir allt til þess að mótið
verði á Vellinum. Aðstöðuleysið er
algjört í Reykjavík en uppi á Velli
er aðstaðan góð, nýuppgerð laug
með 8 brautum," sagði Sævar
Stefánsson formaður SSÍ, við DV í
gærkvöldi.
„Síðustu átta ár hefur mótið ver-
ið haldið í Eyjum en kostnaðurinn
að senda stóra hópa þangað er orð-
inn mikill, allt að 15 þúsund krónur
á manninn," sagði Sævar.
-JKS
Jónatan Bow stendur fyrir sínu í þýska körfuboltanum:
„Fjölhæfur og liðinu
mjög mikilvægur"
- Bayreuth í baráttu um aö komast í úrslitakeppnina
Jónatan Bow hefur fengið ágæta
dóma fyrir frammistöðu sína með
Bayreuth í þýsku 1. deildinni í
körfuknattleik i vetur. Hann gekk til
liðs við félagið fyrir þetta tímabil eft-
ir að hafa leikið á íslandi um árabil,
en hann er sem kunnugt er íslenskur
ríkisborgari og einn fremsti körfu-
^boltamaður okkar í dag.
Á heimasíðu Bayreuth er eftirfar-
andi ummæli að finna um Bow: „Jón-
atan er mjög fjölhæfur leikmaður og
þrátt fyrir skort á sentiímetrum tekur
hann mikið af fráköstum með krafti
og góðum staðsetningum. Jónatan er
baráttuglaður og spilar allan tímann
fyrir samherjana og liðið. í erfiðri
stöðu er hann liðinu mjög mikilvæg-
ur með yfirvegun sinni og styrkleika.
Hann hefur sérstakan leikstil sem
fellur áhorfendum vel í geð.“
Bayreuth stendur höllum fæti í 1.
deildinni þrátt fyrir sex sigra í síð-
ustu sjö leikjunum. Liðið er í 11. sæti
af 14 liðum og ekki er líklegt að því
takist að komast í átta liða úrslitin
um þýska meistaratitilinn.
Bow hefúr í vetur leikið að meðal-
tali í 19 mínútur i leik, skorar að með-
altali 8 stig og tekur 4,2 fráköst. Um
fyrri helgi átti hann sinn besta leik og
gerði 18 stig í óvæntum útisigri á
Bonn.
Hef spilað allar stööur nema
skotbakvörö
„Ég vildi að sjálfsögðu spila meira
en ég reyni að gera mitt besta fyrir
liðið og nýtast því eins og þjálfarinn
leggur upp. Ég hef spilað allar stöður
nema skotbakvörð og það er mikil
áskorun," sagði Bow í samtali við DV.
„Hér er leikinn mjög góður og
hraður körfubolti og flest liðin eru
með minnst tvo leikmenn sem eru
yfir 2,10 á hæð. Þaö mæta að meðal-
tali um 2.500 manns á heimaleikina
okkar en á útileikjunum eru áhorf-
endur yfírleitt um 3.500. Við eigum
enn möguleika á að komast í úrslita-
keppnina. Ef það tekst ekki fórum við
í aukakeppni um sæti í deildinni
ásamt efstu liðum 2. deildar og þá
gæti vel farið svo að við lékjum gegn
Guðmundi Bragasyni og félögum í
BCJ Hamburg."
Skemmtilegt að spila meö
íslenska landsliöinu
Bow hefur leikið með íslenska
landsliðinu en má enn sem komið er
ekki spila með því í Evrópukeppni.
Hann þarf að bíða lengur, samkvæmt
reglum Alþjóða körfuknattleikssam-
bandsins.
„Beiðni um að ég fengi að spila
strax var hafnað í haust og sennilega
má ég ekki byrja með landsliðinu fyrr
en í júní árið 2000, eða eftir rúm tvö
ár. En ég stefni á að spila með lands-
liðinu og hlakka mikið til þess, sér-
staklega undir stjórn Jóns Kr. Gísla-
sonar. Þessir fáu landsleikir sem ég
hef spilað hafa verið mjög skemmti-
legir og það er virkilega gaman að
spila með þessum strákum sem ég hef
verið að leika með og á móti í úrvals-
deildinni heima. Ég er mjög þakklát-
ur fyrir þann áhuga sem Jón Kr. og
Körfuknattleikssamband íslands hafa
sýnt á því að nota mig með landsliði
íslands,“ sagði Bow.
Hann hefur komið sér vel fyrir í
Bayreuth ásamt Ester, unnustu sinni,
og syni sínum, Davíð.
„Þau kunna mjög vel við sig hérna.
Davíð er sjö ára og talar íslensku,
ensku og þýsku reiprennandi. Ester
er nýbyrjuð á hárgreiðslustofu og
gengur allt í haginn. Ég bið svo að
Opna ástralska meistaramótið í tennis:
Agassi sleginn út
- óvænt úrslit urðu einnig hjá kvenfólkinu
Andre Agassi, sem um árabil hef-
ur verið í fremstu röð tennisleikara,
mátti bíta i það súra epli í gær að
vera sleginn út í 4. umferð á opna
ástralska meistaramótinu í tennis í
Melbourne.
Það var ekki mikið þekktur
tennismaður, Spánverji að nafni Al-
berto Berasategui, sem lagði Agassi
í hörkuspennandi og jöfnum leik,
3-6, 3-6, 6-2, 6-3, 6-3, og stóð viður-
eignin yfir í tvær og hálfa klukku-
stund. Alberto var fyrir mótið í 25.
sæti á styrkleikalista Alþjóða tenn-
issambandsins
Agassi var fáorður við frétta-
menn eftir tapið en viðurkenndi þó
að hann væri mjög svekktur því
hann ætlaði sér að fara lengra.
Marcelo sjóöheitur
Alberto mun hann mæta Chile-
búanum Marcelo Rios. Marcelo lagði
Frakkann Lionel Roux í 4. umferð,
6-2, 4-6, 6-2, 6-4. Margir er þeirrar
skoðunar að Marcelo hafa alla hæfi-
leika til að komast langt á einu af
sterkustu mótum heims í tennis.
Þjóðverjinn Nicolas Kiefer er
kominn í átta manna úrslit eftir sig-
urinn á Guillaume Rauox frá Frakk-
landi.
í kvennakeppninni er franska
stúlkan Mary Pierce komin í 8
manna úrslit eftir auðveldan sigur á
Henrieta Nagyova frá Slóvakíu. Pi-
erce þykir hafa alla möguleika til að
komast í úrslitin en hún hefur leik-
ið af miklu öryggi í mótinu.
Öruggt hjá Hingis
Það tók svissnesku stúlkuna
Martinu Hingis aðeins 38 mínútur
að leggja indónesísku stúlkuna
Yayuk Basuki, 6-0, 6-0.
Þýska stúlkan Anke Huber kom
verulega á óvart þegar hún sigraði
Amöndu Coetzer frá S-Afríku en
Coetzer er um þessar mundir í
þriðja sætinu á styrkleikalistanum.
-JKS
Super bowl:
Sætur sigur hjá
Denver Broncos
Lið Denver Broncos er besta liðið
í bandaríska ruðningnum en liðið
sigraði í hinum árlega Super bowl
leik sem fram fór í San Diego í Kali-
fomíu í fyrrinótt. Denver mætti
meisturum síðasta árs, Green Bay
Packers, í úrslitum og í einum mest
spennandi leik frá upphafi í Super
bowl hafði Denver Broncos betur,
31-24, þar sem úrslitin réðust ekki
fyrr en á lokamínútunni þegar
Terrell Davis skoraði sitt þriðja
snertimark í leiknum. í leikslok var
svo Davis útnefndur besti leikmaö-
ur úrslitaleiksins.
Enginn var ánægðari en John
Elway, hinn 37 ára gamli leikstjóm-
andi Denver, sem var að vinna
Super bowl í fyrsta sinn eftir að
hafa tapað þremur úrslitaleikjum og
á myndinni má sjá hann í sjöunda
himni fagna sigrinum. -GH
heilsa Andreu, sex ára dóttur minni
heima á íslandi," sagði Jónatan Bow
að lokum. -VS
Jónatan Bow er hér í búningi
Bayreuth sem leikur í þýsku 1.
deildinni í körfuknattleik.
$
NBA-DEILDIN
Úrslitin í nótt:
Boston-New York...........94-85
Billups 25, Walker 16, Mccarty 10 -
Houston 21, Johnson 13, Oakley 12.
Toronto-Philadelphia......91-97
Christie 26, Stoudamire 20, Slater 10 -
Thomas 14, Iverson 13, Coleman 12.
Atlanta-Phoenix............91-96
Blaylock 26, Mutombo 20, Corbin 15 -
Chapman 26, Manning 19, Nash 13.
Miami-Cleveland ...........93-94
Hardaway 33, Mourning 23, Austin 14
- Dgauskas 23, Potapenko 18, Person 16.
SA Spurs-Houston .........115-90
Robinson 34, Johnson 27, Del Negro
17 - Barkley 19, Johnson 14, Willis 13.
Sacramento-Seattle.......111-92
Richmond 34, Polynice .17, WiUiam-
son 12 - Baker 20, Perkins 16, Payton
12.
Zydrunas Ilgauskas tryggði
Cleveland sigurinn á Miami með því
að skora úr tveimur vítaskotum á sið-
ustu sekúndunni.
Sacramento vann sjöunda sigur sinn
i röð og svona löng sigurganga hefur
ekki gerst hjá liðinu í 9 ár.
Byrjunarlið vesturstrandarinnar í
stjömuleiknum sem fram fer í New
York 8. febrúar verður þannig skipað:
Kobe Bryant , LA Lakers, Gary
Payton, Seattle. Karl Malone, Utah,
og Kevin Gamett, Minnesota, og
Shaquille O’Neal, LA Lakers. Þjálfari
liðsins verður George Karl þjálfari
Seattle.
Austurstrandarlióiö veröur þannig:
Michael Jordan, Chicago, Dikembe
Mutombo, Atlanta, Grant Hill,
Detroit, Shawn Kemp, Cleveland og
Penny Hardaway, Orlando en óvíst er
hvort hann geti leikið sökum
meiðsla. Þjálfari liðsins verður Larry
Bird, þjálfari Indiana, á sínu fyrsta
ári sem þjálfari í NBA. -GH
Ogaba til Leifturs
- Ólafsfirðingar hafa samið við landsliðsmann frá Nígeríu
Peter Ogaba, knattspymumaður
frá Nígeríu, er væntanlegur til
landsins í dag en Leiftursmenn frá
Ólafsfirði hafa samið við hann um
að leika með þeim í úrvalsdeild-
inni í sumar.
Ogaba er 24 ára miðjumaður
sem hefur undanfarin tvö ár spilað
með Desportivo Beja í Portúgal.
Hann hóf ferO sinn með Lokeren í
Belgíu og lék á unga aldri 11 leiki
með félaginu í efstu deild. Hann
spilaði um skeið í Finnlandi og síð-
an með Duisburg í Þýskalandi, þar
sem hann lék tvo leiki í efstu defld.
DV hefur fengið staðfest að
Ogaba lék mikið með yngri lands-
liðum Nígeriu, sem voru mjög sig-
ursæl á þeim tima, og tók þátt í úr-
slitakeppni heimsmeistaramóta 17
ára og yngri og 21 árs og yngri. Þá
á Ogaba að baki 8 A-landsleiki fyr-
ir Nígeríu.
„Það er óhætt að treysta því að
Ogaba er mjög góður leikmaður.
Hann spilaði mikið meö yngri
landsliðum okkar. Ég missti sjónar
af honum þegar hann fór frá Duis-
burg en það er gott að fá fréttir af
honum á ný,“ sagði nígerískur
blaðamaður sem DV leitaði til með
upplýsingar um Ogaba.
DV spurðist einnig fyrir um
Ogaba hjá Lokeren en þar var
hann í nokkur ár, 15 til 19 ára gam-
all. „Ogaba var litill en mjög flink-
ur og hafði alla burði tU að verða
mjög góður leikmaður. Hann átti
hins vegar í vandamálum utan
vaUar og gat verið erfiður i um-
gengni," sagði heimildarmaður DV
hjá belgíska félaginu.
Peter Ogaba kemur tU landsins í
dag ásamt eiginkonu sinni og Páli
Guðlaugssyni, þjálfara Leifturs,
sem fór til Portúgals og fylgdist
með honum í leik.
Ogaba hefur átt erfiða vist hjá
Beja en félagið hefur ekki greitt
honum eða öðrum leikmönnum
laun í sjö mánuði.
-VS
Malmo vill
fá Sverri
Sænska úrvalsdeUdarliðið Malmö vill semja við Sverri Sverrisson,
miðvaUarleikmanninn úr liði ÍBV, en eins og DV greindi frá fyrir helg-
ina bauð félagið honum að koma út tU æfinga í vikutíma og spila einn
leik með liðinu. Sverrir kemur heim á morgun en forráðamenn félagsins
hitta Sverri á fundi í kvöld og leggja fram tUboð.
„Ég get í raun ekkert sagt fyrr en ég sé tUboðið en mér líst mjög vel á aUt
héma, þjálfarann, leikmannahópinn og aðstöðuna. Þetta þarf hins vegar að
vera gott tUboð svo ég taki því. Ég fer ekki frá ÍBV og góðri vinnu í Eyjum
nema eitthvað spennandi sé í boði,“ sagði Sverrir í samtali við DV í gær.
Eins og kom fram í blaðinu í gær en Grindvíkingurinn Ólafur Öm
Bjamason einnig í skoðun hjá Malmö. Hann kom fyrir helgina og verður
fram að næstu helgi og eftir það verður tekin ákvörðun hjá forráðamönn-
um Malmö hvort honum verður boðinn samningur. -GH
Andre Agassi, sem margir spáðu að færi alla leið í úrslitaleikinn á opna ástralska meistaramótinu í tennis, féll úr
leik i gær þegar hann hann tapaöi óvænt fyrir lítt þekktum tennisleikara frá Spáni. Viö þessi tíðindi þykir nokkuð
öruggt aö Bandaríkjamaöurinn Pete Sampras hampi titlinum. Reuter
m
ENGLAND
Blackburn tryggði sér í gær sæti í 5. umferð í
bikarkeppninni með 3-0 sigri á Sheffield
Wednesday á útvelli. Chris Sutton, Tim
Sherwood og Damian Duff skoruðu mörkin.
Blackbum mætir West Ham í næstu umferð.
Roy Evans, stjóri Liverpool, hefur áhuga á að
kaupa Andy Griffin, ungan vinstri bakvörð í
liði Stoke City. Pilturinn hefur vakið athygli
margra liöa og það lítur allt út fyrir harðan slag
um að fá hann.
Everton hefur fengið John O’Kane frá
Manchester United að láni í nokkra daga en
Howard Kendall, stjóri Everton, vill skoða
þennan hægri bakvörð með það í huga að fá
hann í sínar raöir. Kane hefur ekki komist í lið
meistaranna enda að keppa við Gary Neville um
stöðu í liðinu.
Andy Hinchcliffe, vamarmaðurinn sterki hjá
Everton, er líklega á leiðinni til Sheffield
Wednesday. Á dögunum benti allt til þess að
hann væri á leið til Tottenham en ekkert varð
út því eftir að hann komst ekki í gegnum
lækinsskoðun. Nú hefur Ron Atkinson, stjóri
Wednesday, borið víurnar í Hinchcliffe og sagan
segir að hann hafi náð samkomulagi við
Everton um kaupin.
Ian McCall, sem lék nokkra leiki með FH-
ingum i 1. deildinni í sumar, hefur staðið sig vel
i stöðu framkvæmdastjóra hjá skoska
úrvalsdeildarliðinu Clydebank. Undir hans
stjórn er liðið langefst i 2. deildinni og McCall
var útnefndur stjóri mánaðarins í 2. deildinni I
október, nóvember og desember.
Daniele Dichio skrifaði í gær undir samning
við Sunderland sem er i toppbaráttu 1.
deildarinnar. Þessi ítalskættaði framherji
kemur til Sunderland frá Sampdoria á Ítalíu en
þangað fór hann frá QPR í fyrra. Honum líkaði
ekki vistin á Ítalíu enda fékk hann ekki að
spreyta sig með liðinu.
Bryan Robson, stjóri Middlesbrough og fyrrum
fyrirliði Manchester United og enska
landsliðsins, tilkynnti í gær að hann væri
endanlega hættur að spila. Robson, sem varð 41
árs á dögunum, hefur spilað nokkra leiki með
Middlesbrough síðan hann tók við liðinu.
David Unsworth hjá West Ham verður frá í
nokkrar vikur vegna meiðsla í nára sem hann
hlaut í leiknum gegn Manchester City um helg-
ina.
Lunduúnafélagiö missir á sama tíma Frakk-
ann Samassi Abou í þriggja leikja bann en hann
hefur leikið sérlega vel með liöinu að undan-
fomu.
Danny Williamson, sem gekk i raðir Everton
frá West Ham fyrir 5 mánuðum, er hugsanlega
á fóram til Crystal Palace. -GH/JKS
Auðun með tilboð
frá Helsingborg
- Álaborg einnig inni í myndinni
Auöun Helgason, varnarmaður
inn öflugi í liði Leifturs á Ólafsfirði,
kom heim frá Svíþjóð og
Danmörku á sunnuaginn
með tilboð í farteskinu frá
sænska úrvalsdeildarlið-
inu Helsingborg.
Auðun æfði með liðinu í
nokkra daga og hélt þaðan
til Danmerkur þar sem
hann æfði og lék einn leik
með danska úrvalsdeildar-
liðinu Álaborg.
„Ég er kominn með í hendurnar
tilboð frá Helsingborg sem ég á eftir
að fara betur yfir. Þá er Álaborg
einnig inni í myndinni en
sænska liðið hefur þó for-
gang hjá mér og ég er bjart-
sýnn á að það gangi upp,“
sagði Auðun við DV í gær.
Geri Auðun samning við
Helsingborg verða tveir ís-
lendingar í liðinu en í
haust samdi KR-ingurinn
Hilmar Björnsson við félag-
ið.
-GH
Heimsbikarinn á skíöum:
Kristinn stigalaus
frá Kitzbuhel
- Kristinn og Arnór féllu á sama stað í brautinni
Kristinn Björnsson og Arnór
Gunnarsson féllu báðir í fyrri ferð í
heimsbikarkeppinni í svigi í
Kitzbúhel í gær. Þeir félagar féllu
nánast á sama stað, ofarlega í braut-
inni í erfiðri beygju sem mörgum
svigmanninum hlekktist á.
Austurríkismaðurinn Thomas
Sykora vann sigur, Norömaðurinn
Hans-Petter Burás varð annar og
Thomas Stangassinger, sem varð
hlutskarpastur á sunnudaginn,
hafnaði í þriðja sætinu. Slóveninn
Juri Kosir varð fjórði, Kiminobu Ki-
mura frá Japan lenti í fimmta sæt-
inu og Alberto
Tomba, Ítalíu,
varð að láta
sér lynda 6.
sætið en hann
er enn að
reyna að inn-
byrða 50.
heimsbikar-
sigur sinn.
Hinn 29 ára
gamli Sykora
var með ann-
gera betur en Norðmaðurinn í
þeirri síðari. Þetta var annar sigur
Sykora á tímabilinu og margir spá
því að hann muni bítast um gull-
verðlaunin á Ólympíuleikunum í
Nagano í næsta mánuði.
Þetta var siðasta heimsbikarmót-
ið fyrir Ólympíuleikana. Kristinn
Björnsson er í 10. sætinu í stiga-
keppninni í svigi með 160 stig.
Thomas Stangassinger er efstur
með 443 stig, Sykora 440, Burás 340,
Japaninn Kimura 242 og Juri Kosir
er fimmti með 207 stig.
Kristinn er væntanlegur til ís-
lands í dag
og ætlar
hann að
dvelja hér á
landi í
nokkra daga.
Héðan liggur
leiðin til Sví-
þjóðar þar
sem hann
ætlar að æfa
með sænska
landsliðinu
an bestan tím- Thomas Sykora gat ekki leynt gleöi sínu þegar fram aQ
ann á eftir sigurinn í sviginu var í höfn. Reuter ólympíu-
Hans-Petter leikunum.
Burás eftir fyrri ferðina en tókst að -GH
Knattspyrnuþjálfari óskast
Snæfeil Stykkishólmi auglýsir eftir
knattspyrnuþjálfara fyrir m.fl. karla
(spilandi þjálfara), auk þess að þjálfa
yngri flokka.
Upplýsingar veita Finnur Sigurðsson í síma 438
1279 og Rafn Rafnsson í síma 438 1517