Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1998, Qupperneq 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR
íþróttir unglinga
Aðalsteinn Ömólfeson mðinn finmkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Fjölnis:
Mikil verkefni
fram undan
- segir nýi framkvæmdastjórinn á tíunda afmælisári félagsins
Ungmennafélagið Fjölnir í Graf-
arvogi verður 10 ára 14. febrúar
næstkomandi. Félagið hefur vaxið
mjög á þessum 10 árum og eru nú
starfandi 9 deildir innan þess og
félagar alls um 5000 talsins.
Fjölnir hefur tekið að sér að
halda unglingalandsmót UMFÍ 3.-5.
júlí í ár og í tilefni af því verður ný
sundlaug opnuð og þá í leiðinni sett
á laggimar sunddeiid.
Vegna hins mikla umfangs hefrn-
Fjölnir ráðið Aðalstein Ömólfsson
af fjölda umsækjendum, fram-
kvæmdastjóra félagsins, en hann
hefur starfað mikið að íþrótta-
málum og með góðum árangri.
DV hafði því samband við
Aðalstein til að afla upplýsinga um
hið nýja starf hans og þá hverjar
yrðu helstu áherslur hans.
Aukið samstarf við skólana
„Ég geri mér grein fyrir því að
það er mikið verkefni að vera
framkvæmdastjóri hjá félagi sem
hefur um 5000 meðlimi á sínum
snærum. Það er mikið að gerast i
íþróttamálum í Grafarvogi og mun
ég leggja allt kapp á gott samstarf
við skólana, Foldaskóla, Hamra-
skóla, Engjaskóla og Húsaskóla. Ég
hef mikinn hug á að tengja þá betur
íþróttastarfmu en hingað til. í því
sambandi er vert að velta því fyrir
sér hvemig standi á hinu mikla
brotthvarfi í kvennaíþróttum, sem
engan veginn getur talist eðlilegt en
á því þarf að vera breyting. En að
sjálfsögðu er stefnan sú að efla allt
íþróttastarf í Grafarvogi.
Ég geri mér miklar vonir um að
samstarfið við skólana og foreldra
takist sem allra best þvi það er
lykimálið í þessu öllu saman.“
Vegleg afmælishátíð
„Mikið verður um dýrðir á 10 ára
afmælisdegi Fjölnis en það var
. stofnað 11. febrúar 1988. Á afmæl-
isdaginn verður vegleg afmælis-
hátíð í Fjölnishúsi (Dalhúsum 2) í
Grafarvogi. Allar deildir innan fé-
lagsins munu sýna frá starfsemi
sinni. Einnig verður minja-, verð-
launa- og myndasafn sett upp á 2.
hæðinni. Einnig verða gamlar
myndir sýndar frá iþróttaviðburð-
um úr sögu félagsins. í tilefni
afmælisins er einnig verið að gera
barmmerki.
Afmælisbömum félagsins, þ.e.
þeim sem eiga afmæli 11. febrúar
verður sérstaklega boðið á hátíðina.
En svo skemmtilega vill til að ein
stúlknanna á einnig 10 ára afmæli
11. febrúar og býr hún í Grafarvogi.
Hún verður sérstakt afmælisbam
sem mun skera afmælistertuna, sem
er mjög stór enda á milli.
Þessi afmælishátíð er fyrir alla
Grafarvogsbúa og vonumst við til
aö sem flestar fjölskyldur geti séð
Þann 14. febrúar næstkomandi verður Ungmennafélagið Fjölnir 10 ára. Myndin er af þeim sögulega atburði 1989
þegar Fjölni var úthlutað fþróttasvæðið í Grafarvogi. Séra Guðmundur Þorsteinsson er hér að blessa svæðið. Til
vinstri er Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóri. DV-mynd Hson
sér fært að koma og átt skemmti-
legan dag saman. Stjómandi á af-
mælishátíðinni verður hinn vinsæli
Magnús Scheving."
Landsmót UMFÍ er
toppurinn
„Mjög gott samstarf hefur verið
milli fyrirtækja i Grafarvogi og
Ungmennafélagsins Fjölnis og verð-
ur vonandi svo áfram, því í sumar
verður haldið ijölmennasta ungl-
ingalandsmót UMFÍ í sögunni í
Grafarvogi og stendur það yfir 3.-5.
júlí. Búist er við um 2000 þátttak-
endum.
Mér flnnst einhvem veginn að
Grafarvogsbúar hafi ekki gert sér
almennilega grein fyrir umfangi
þessa móts. Síðast var landsmótið
haldið á Blönduósi og vom kepp-
endur um 1600 talsins. Keppt verður
í eftirtöldum hefðbundnum íþrótt-
um: knattspyrnu, handknattleik,
körfubolta, frjálsum íþróttum,
glímu, skák, sundi og ýmsum
öðrum greinum sem allt of langt
yrði upp að telja. Vegna
stærðargráðu mótsins er mikilvægt
að allir leggist á eitt um að gera
þenna merka atburð sem
minnisstæðastan. Samvinna við
einstaklinga og fyrirtæki í Grafar-
vogi og víöar er því afar mikilvæg
svo allt geti gengið upp. Einnig
kalla ég til aðstoðar sem flesta
félagsmeðlimi Fjölnis því framlag
þeirra er kannski það mikilvægasta
og gæti skipt sköpum."
Sameina þarf betur deild-
irnar
„Eitt af þeim verkum sem ég mun
leggja mikla áherslu á er að reyna
að sameina betur hinar ýmsu deild-
ir innan félagsins til að\styrkja
betur allt unglingastarf félagSins og
koma skólár og foreldrar þar mjög
sterkt inn í iriyndina.
Fjölnir er þegar orðið mjög sterkt
sameiningartákn yngri sem eldri
íþróttaunnenda í hverfinu og í
næstu framtíð mun félagið verða
stórveldi í íslenskum íþróttum, ef
rétt er á spilunum haldið. Það er
ekkert sem getur stöðvað það,“
sagði Aðalsteinn Ömólfsson, nýráð-
inn framkvæmdastjóri Fjölnis.
-Hson
Knattspyrna unglinga:
Sandarar sterkir
í 4. flokki
DV, Vesturlandi:
Þann 4. janúar síðastliðinn
var haldið héraðsmót í innan-
hússknattspymu stráka í
íþróttamiðstöðinni í Stykkis-
hólmi fyrir 2., 3. og 4. flokk
stráka og er ljóst að Sandarar
era með mjög öflugan 4. flokk. -
Úrslit urðu sem hér segir:
4. flokkur:
1. Reynir, Hellissandi. 2. Umf.
Grundarfjarðar. 3. Snæfell. 4.
Reynir, Hellissandi (B).
3. flokkur:
1. Umf. Grundarfjarðar. 2.
Snæfell (A). 3. Snæfell (B). 4.
Staðarsveit. 5. Víkingur, Ólafs-
vík.
2. flokkur:
1. Víkingur, Ólafsvík. 2. Reyn-
ir, HeOissandi. 3. Snæfell. 4. Vík-
ingur, Ólafsvík (B).
Verðlaun fyrir þetta mót gáfu
Verslun Gissurar Tryggvasonar
og Skipavík hf. -DVÓ
Knattspyrna:
Félagaskipti
leikmanna
Félagaskipti knattspyrnu-
manna í yngri flokkunum í janú-
ar 1998 urðu sem hér segir.
Hans Sævar Sævarsson, '80, úr
Þrótti í KR.
Haukur Aöalsteinsson, '81, úr
Keflavík yfir í Njarðvík.
Helgi Einarsson, '80, úr KFR til
Selfoss.
Ingi Sævar Ingason, '81, úr Val, R. í
Leikni, R.
Jónas Þór Guðmundsson, '80, úr
Breiöabliki í HK.
Jónatan Þór Magnússon, '80, úr KA
yfir í Hugin.
Katrín Heiða Jónsdóttir, '79, úr
Leikni, F. í Val.
Konráð Guðmundsson, '79, frá
Gróttu yfir í KR.
Kristján Helgi Jóhannsson, '79, úr
Reyni, S. í Akranes.
Kristján Þór Þorvaldsson, '83, frá
8róttu yfir í KR.
lafur Gíslason, '80, frá Selfossi I
Hamar.
Bergur Þrastarson, '81, úr Breiða-
blikt í HK.
Bjarki Hraunfjörð Kristinsson, '82,
úr Gróttu í Fram.
Björgólfur Takefusa, '80, úr Þrótti,
R. í KR.
Björgvin Þór Aðalsteinsson, '79, frá
Þrótti, R. í Leikni, R.
Daníel Ómar Frímannsson, '81, úr
Keflavík i Þrótt, R.
Davíö Þorsteinsson, '81, úr Breiöa-
bliki í HK.
Eiður Ágúst Kristjánsson, '82, úr
KS í Breiðablik.
Elfar Þór Bragason, '81, úr Val 1
Ægi.
Eyrún Jana Sigurðardóttir, '81, frá
Keflavík í Reyni, S.
Guðjón Heiðar Sveinsson, '80, úr
Hvöt til Akraness.
Guðmundur Þórir Guöjónsson, '80,
frá Þrótti til FH.
Gunnar Bjöm Helgason, '80, frá
Selfossi til FH.
Gunnar Borg Jónsson, '79, frá KVA
til Hugins.
Starfsferill Aöal-
steins Örnólfssonar
Aðalsteinn Örnólfsson, framkvæmdastjóri Litrófs ehf.
síðastliðin 5 ár, á mikið starf fyrir höndum hjá Ung-
mennafélaginu Fjölni. DV-mynd JAK
Ferill Aðalsteins Örnólfs-
sonar í íþróttum og starfi er
mjög fjölbreyttur. Hann lék
upp alla yngri flokka hjá
Þrótti, Rvík og spUaði samtals
um 1000 leiki fyrir félagið í
hinum ýmsu flokkum.
Aðalsteinn er með lærðustu
knattspyrnuþjálfurum lands-
ins og hefur sótt fjöldann sdlgn
af námskeiðum erlendis.
Hann er einn sigursælasti
unglingaþjálfari landsins í
knattspymu, hefur unnið alls
119 bikara í Reykjavikur-, ís-
landsmóti og Bikarkeppni. Á
Tommamótið hefur hann farið
aUs sjö sinnum með lið og náð
góðum árangri.
Aðalsteinn hefur þjálfað aUs
hjá 10 knattspymufélögum á
landinu á sínum ferli. Hann er
auk þess dómari í handknatt-
leik og golfi. Hann hefur einn-
ig starfað sem ráðgjafi hjá
fjölda liða sem hafa átt við
vanda að stríða.
Aðalsteinn hefur þjálfað
aUa flokka karla og kvenna
frá þeim yngstu upp i þá elstu.
Hann hefur einnig þjálfað A-
landslið og unglingalandslið
kvenna í knattspyrnu með
góðum árangri.
Þrátt fyrir þennan góða
ferU hefur Aðalsteinn aldrei
verið staðinn að því að ein-
blína um of á sigra en ávaUt
reynt að beina athygli yngri
sem eldri leikmanna meir að
skemmtUegum hliðum íþrótt-
arinnar svo sem tæknUegum
atriðum, og kannski hefur það
einmitt stuðlað hvað mest að
velgengni hans, fátt er nefni-
lega jafn þrúgandi fyrir yngra
íþróttafólk og að vera stöðugt
undir eftirrekstri um sigur og
aftur sigur.
Vonandi tekst Fjölnismönn-
um að nýta sér vel starfs-
krafta Aðalsteins tU heUla fyr-
ir Fíölni og hinn fjölmenna
hóp unglinga sem búa í hinu
skemmtilega borgarhverfi
sem Grafarvogurinn er.
-Hson