Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1998, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
25
DV
Útlönd
Snemma beygist kynlífskrókurinn:
Clinton alltaf verið
þurftafrekur í bólinu
Hvers vegna í ósköpunum?
Já, er nema von aö menn spyrji
hvers vegna Vcildamesti maður
heimsins, Bill Clinton Bandaríkja-
forseti, skuli stofna setu sinni á for-
setastóli í stórhættu með þvi að
eiga í ástarsambandi við ungan lær-
ling í Hvíta húsinu? Ef ásakanimar
um meint samband hans og Monicu
Lewinsky eiga þá við einhver rök
að styðjast.
í grein í dagblaðinu International
Herald Tribune í gær er löng og
mikil grein þar sem reynt er að átta
sig á því hvers vegna svo geti verið.
í því skyni er skyggnst aftur i tím-
ann, til þeirra ára sem hann var
ríkisstjóri í Arkansas og jafnvel
lengra aftur, allt til barnæskunnar.
ímyndun og veruleiki
Kynlíf Clintons var á allra vörum
þegar árið 1974, þegar hann bauð
sig fram til þings í norðvesturhluta
Arkansas. Samstarfsmenn hans
þurftu þá að glíma við bæði ímynd-
uð vandamál og raunveruleg tengd
kynlífi frambjóðandans. ímynduð
þar sem voru ásakanir íhaldssamra
guðsmanna um að Clinton væri
samkynhneigður. Raunveruleg þar
sem vora fjölmargar gamlar
kærastur hans.
Þeir sem hafa sett líf Clintons
undir smásjána hafa þóst sjá þar
ákveðnar endurtekningar, bæði í
atburðunum sjálfum og í skapgerð-
areinkennum hans. Sömu menn
segja að hægt sé að nota þessa vitn-
eskju til að spá að einhverju leyti
fyrir um hvað hann muni gera, svo
og til að skýra gjörðir hans eftir á.
Strax í æsku Clintons í Arkansas
komu í ljós persónuleikaeinkenni
sem hafa fylgt honum alla tíð síðan.
Þar má telja tilhneigingu hans til
að útiloka ákveðna hluti, skipa
ákveðnum þáttum lífs síns í sér-
staka bása, afneita raunveruleikan-
um á stundum, halda áfram hvað
sem tautar og raular og finna fyrir
sífelldri þörf á viðurkenningu.
Aðrir skapgerðarþættir era
kunnuglegri í augum sagnfræðinga
og geðlækna sem einkenni margra
valdamikilla og metnaðarfullra
manna. Lífsþorstinn er mikill og
kynorkan sömuleiðis. Þá eru þeir
umkringdir fóiki sem er tilbúið að
fara í bólið með þeim hvenær sem
er. Ekki má svo gleyma því að þess-
ir sömu menn hafa sjálfstjómina
ekki alltaf í lagi og þeir verða háð-
ir þeim forréttindum sem opinber
embætti þeirra veita þeim. Loks
hafa þessir valdamiklu menn fullt
af aðstoðarfólki sem keppist við að
hlifa þeim við góni hins alsjáandi
auga almennings.
Drifkrafturinn
Sagnfræðingar og geðlæknar
segja að þessir skapgerðarþættir
hafi verið drifkrafturinn í pólitísk-
um ferli Clintons. Á sama tíma hafi
þeir nærri steypt honum í glötun.
Clinton á enn eitt einkenni sam-
eiginlegt meö mörgum valdamikl-
um og mikils metnum mönnum,
nefnilega blekkinguna um að ekkert
bíti á honum.
James Lieberman, geðlæknir í
Washington, segir að þessi skap-
gerðarþáttur, öðrum fremur, kunni
að hafa tekið völdin af Clinton, ef
staðhæfingarnar um kynferðislegt
samband hans og Monicu Lewinsky
eru réttar.
Clinton eins og Títanic
„Þetta minnir mig á Títanic," seg-
ir Lieberman. „Ofboðslegur kraftur.
Stór. Kynþokkafullur. Heldur að
ekkert bíti á honum, rétt eins og
þeir sem smiðuðu skipið. Og svo er
það 21 árs gamli ísjakinn."
Ekki þar með sagt að núverandi
hneykslismál muni sökkva Clinton.
Fyrri staðhæfingar um kynhegðun
hans megnuðu það ekki. Bandarísk-
ir kjósendur hafa meira að segja
látið bólfarir forsetans sér í léttu
rúmi liggja, að minnsta kosti þar til
nú. Þeir hafa haft meiri áhuga á
frammistöðu hans í embætti.
Því hefur áður verið spáð að
stjómmálaferill Clintons væri senn
á enda. Þar var í upphafí fyrri kosn-
ingabaráttu hans fyrir kapphlaupið
um Hvíta húsið. Þá vora fjölmiðlar
fullir af fréttum um áralangt ástar-
samband hans og Gennifer nokk-
urrar Flowers, svo og um það að
hann hafl komið sér undan her-
þjónustu.
Afneitar raunveruleikanum
Sá skapgerðarþáttur Clintons
sem kom hvað fyrst í ljós af þeim
sem koma við sögu í núverandi
vandræðum hans er áðurnefnd til-
hneiging hans til að afneita raun-
veraleikanum, eða þeim þáttum
hans sem eru óþægilegir. Virginia
móðir hans sagði eitt sinn að hún
væri svo flink að útiloka vandamál
að hún afneitaði hreinlega tilvist
þeirra. Hún sagði ennfremur að
elsti sonur hennar væri gæddur
þessum sömu hæfileikum. Þetta
væru viðbrögð þeirra við ólgu inn-
an fjölskyldunnar.
Stjúpfaðir Clintons var hin versta
fyllibytta sem átti það til að ganga i
skrokk á piltinum, fyrir nú utan það
að húðskamma hann. Bill litli lét þá
sem ekkert væri að. Margir æsku-
vinir hans segjast ekki hafa haft
hugmynd um sannleikann í málinu,
Bill hafi aldrei sagt þeim hvernig í
pottinn væri búið á heimilinu.
Tvöfalt siðgæði
Fjölskylda forsetans tilvonandi
bjó á þessum áram í ferðamanna-
bænum Hot Springs í Arkansas þar
sem tvöfalt siðgæði ku hafa grasser-
að og karlmennimir komust upp
með hvaða ósóma sem er.
„Þeir áttu allir hjákonur," segir
Judy Ellsworth, eiginkona borgar-
stjórans í Hot Springs á bernskuár-
um Clintons.
Hér á því greinilega við hið forn-
kveðna: Hvað ungur nemur gamall
temur.
Hættulegar konur
Eitt skýrasta dæmið um afneitun
Clintons á þáttum úr hans eigin
kynlífi er nokkuð sem gerðist árið
1987. Þá hrökklaðist Gary Hart úr
baráttunni um tilnefningu demó-
krataflokksins fyrir forsetakosning-
arnar 1988 vegna kvennafars. Clint-
on kallaði þá til sín helstu ráðgjafa
sína í Arkansas og bjóst til aö hella
sér út í prófkjörsslaginn.
Sögur um framhjáhald ríkisstjór-
ans þáverandi voru komnar á
kreik á nýjan leik. Það vora því all-
ar líkur á að Clinton mundi hljóta
sömu örlög og Gary Hart, gerði
hann sig líklegan til að fara fram.
Það kom í hlut Betsey Wright,
ráðgjafa Clintons til margra ára, að
telja honum trú um að bjóða sig
ekki fram. Það gerði hún með því
að láta hann fá lista yfxr konur sem
hann kynni að hafa átt í ástarsam -r
bandi við. Þau fóru tvisvar yfir list-
ann til að vinsa úr þær konur sem
kynnu að verða til vandræða ef
hann færi í forsetaslaginn. Svo fór
að Wright hvatti hann til að láta
það ógert.
Clinton mun víst hafa trúað því
fram á síðustu stundu að hann gæti
komist upp með það sama og varð
Gary Hart að falli. Hann hafði
aldrei þurft að horfast í augu við
afleiðingarnar sem endalaust
kvennafar hans gæti haft í för með
sér þar sem alltaf voru einhverjir
til að bjarga honum.
Nánustu samstarfsmenn Clint-
ons hafa haldið áfram að halda
hlífiskildi yflr honum, að vemda
hann fyrir sjálfum sér, eftir að
hann varð forseti. Heimildarmenn
innan Hvíta hússins halda því fram
að ástæðan fyrir þvi að Monica
Lewinsky var flutt til í starfi, úr
Hvíta húsinu yfir í varnarmála-
ráðuneytið, hafi verið sú að ein að-
stoðarkona Clintons, Evelyn
Lieberman, hafi haft áhyggjur af
daðrinu í ungu stúlkunni og greini-
legum viðbrögðum forsetans við
því.
Hillary forsetafrú hefur lengi
mátt þola framhjáhald bónda sínsj.
Hún hefur engu að síður alltaf
komið honum til vamar, og svo er
einnig nú. Fræg era orð hennar
þegar hún visaði á bug fullyrðing-
um Gennifer Flowers um að hún
hafi átti vingott við Clinton í tólf
ár. Hillary líkti þeirri fullyrðingu
við að Elvis Presley hefði sést ein-
hvers staðar á lífi nýlega.
Þegar Clinton var ríkisstjóri í
Arkansas, sagði hann eitt sinn: „Ég
tel að við séum öll háð einhverju.
Sumir eru háðir fikniefnum. Sumir
eru háðir völdum. Sumir era háðir
mat. Sumir eru háðir kynlífi. Við
erum öll háð einhverju."
Svo mörg voru þau orð.
Þýtt og endursagt úrj
International Herald Tribune.
Þarftu
vinnufrið?
mUmmíímmmm
Þella eímamsor
http://www.mmedia.is/sima
Monica Lewinsky horfir með aðdáunaraugum á forsetann sinn, Bill Clinton, eftir að hann var endurkjörinn fyrir rúmu
ári. Clinton er nú í miklum vandaræðum vegna fullyrðinga um að þau hafi átt í ástarsambandi.