Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1998, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
27
Fréttir
íslensk sendinefnd á ferð 1 Maine-ríki í Bandaríkjunum:
Miklir möguleikar á við-
skiptum fyrir Húsvíkinga
DV, Akureyri:
„Ég er mjög ánægður með ferð-
ina og tel að hún muni skila okkur
verulegum árangri þegar litið er til
framtíðar," segir Einar Njálsson,
bæjarstjóri á Húsavík, en hann var
í íslenskri sendinefnd sem er ný-
komin til landsins eftir ferð um
Maine-ríki í Bandaríkjunum. Auk
Einars voru í sendinefndinni forseti
bæjarstjórnar Húsavíkur, fulltrúar
frá Fiskiðjuscimlagi Húsavíkur og
Aldins hf., Finnur Ingólfsson iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra og fulltrú-
ar ráðuneyta hans.
Einar Njálsson segir að Maine-
riki hafi orðið fyrir valinu, ekki síst
vegna þess að þaðan kemur trjávið-
ur sá sem þurrkaður er í verk-
smiðju Aldins á Húsavík og voru
haldnir fundir með verslunar- og
viðskiptaráði ríkisins. Einar segir
ljóst að sú ódýra orka sem Húsvík-
ingar hafa yfir að ráða til þurrkun-
ar á harðvið sé mjög áhugaverð fyr-
ir bandarísku aðilana og gegnum ís-
land opnist greið leið að Evrópu-
markaði fyrir harðviðinn. Ýmsir
möguleikar á frekara samstarfi hafi
verið ræddir í þvi sambandi, s.s.
frekari fullvinnsla á viðnum hjá
Aldin.
Einar segir einnig ljóst að mögu-
leikar séu tvímælalsust fyrir hendi
á samstarfi í fiskiðnaði en þau mál
þurfi að vinna betur. Hann telur
eðlilegt að það næsta sem gerist í
þessum málum sé að til Húsavíkur
komi sendinefnd frá Maine-ríki svo*
bandarísku aðilamir geti kynnt sér
af eigin raun hvað Húsavík hafi upp
á að bjóða fyrir þá.
-gk
Félagsstofnun stúdenta:
Styrkir fatlaða
nemendur í Hl
Félagsstofnun stúdenta færði Há-
skóla íslands 700 þúsund króna
styrk til tækjakaupa fyrir fatlaða
nemendur og nemendur með sér-
þarfir. Styrknum var varið til
kaupa á tölvubúnaði og forritum
sem svara þörfum þessara nem-
enda, og einnig var keypt sjúkra-
rúm fyrir nemendur sem eiga við
langvarandi veikindi eða fótlun að
etja og þurfa því að geta hvílst á
skólatíma eða í prófi. Alls era 104
fatlaðir nemendur við nám í Há-
skólanum. Flestir þeirra eru með
dyslexíu, eða alls 38 nemendur.
Birkir R. Gunnarsson hóf nám
við tölvunarfræði í haust og er
fyrsti blindi nemandinn sem er
skráður í raunvísindadeild. Hann
segir að mikill akkur sé í tækjabún-
aði fyrir nemendur með sérþarfir.
Birkir segir lífsnauðsynlegt að hafa
séraöstöðu í námi sem þessu. Hann
segir mun erfiðara fyrir fatlaða
nemendur að hefja nám í Háskólan-
um en í framhaldsskóla þar sem
bekkjarkerfíð er við lýði, og hver
kennari þarf aðeins að sinna 20
nemendum í stað 200. Samskipti við
nemendur og kennara verði því
mun ópersónulegri í Háskólanum.
-Sól.
Stjórnarmenn Félagsstofnunar stúdenta færðu Háskólanum tækjabúnað fyrir fatlaöa nemendur aö gjöf í tilefni af því
að 30 ár eru liöin frá því stofnunin var sett á iaggirnar. DV-mynd Brynjar Gautt^
Toyota Carina E, árg.
1993, grár, ek. 93 þús. km.
Verö 1.230 þús.
Land Rover Defender, árg.
1997, vínrauður, ek. 10 þús.
km. Verö 2.590 þús.
Peugeot 405 stw., árg.
1995, hvítur, ek. 50 þús. km.
Verö 1.290 þús.
Dodge Sratus, árg. 1995,
vínrauður, ek. 69 þús. km.
Verö 1.790 þús.
Plymouth Breeze, árg.
1997, grár, ek. 29 þús. km.
Verö 1.990 þús.
Peugeot 405 SRi, árg.
1995, vínrauður, ek. 59 þús.
km. Verö 1.350 þús.
Chrusler Neon, arg. 1996,
dökkgrænn, ek. 46 þús. km.
Verö 1.390 þús.
Jeep Cherokee Laredo,
árg. 1991, dökkgrænn, ek.
81 þús. km.
Verö 1.590 þús.
Dodge Grand Caravan,
árg. 1996, drappl., ek. 34
þús. km. Verö 2.790 þús.
Plymouth Caravan Rally,
árg. 1996, vínrauður, ek. 69
þús. km. Verö 2.490 þús.
Jeep Wrangler Rene, árg.
1992, svartur, ek. 70 þús.
km. Verö 1.690 þús.
Grand Cherokee Laredo,
árg. 1996, dökkgrænn, ek.
49 þús. km.
Verö 3.390 þús.
Nissan Patrol dísil, árg.
1993, rauður, ek. 123 þús.
km. Verö 2.390 þús.
Dodge Dakota LE, árg,
1992, grár/blár, ek. 50 þús.
km. Verö 1.250 þús.
Chrysler Grand Caravan,
árg., 1995, hvítur, ek. 49
þús. km. Verö 2.490 þús.
Suzuki Sidekick, árg.
1993, svartur, ek. 50 þús.
km. Verö 1.290 þús.
NÝBÝLAVEGUR 2 • SÍMI 554 2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18 OG LAUGARDAGA 13-17
*
t*