Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1998, Qupperneq 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
Afmæli_______________
Arthur Morthens
Arthur Morthens, forstöðumaður
þjónustusviðs Fræðslumiðstöðvar
Reykjavikurborgar, Hringbraut 114,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Arthur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp við Barónsstíginn og
Gnoðarvoginn. Hann lauk kennara-
prófi 1973 og lauk kandídatsprófi í
sérkennslufræðum í Osló 1987.
Arthur var kennari í Keflavík
1973-78 og við Árbæjarskólann
1978-87, var deildarstjóri og sér-
kennslufulltrúi á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur 1987-96 og er forstöðu-
maður þjónustusviðs Fræðslumið-
stöðvar Reykjavikurborgar frá 1996.
Arthur var varaborgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans 1994-96, var for-
maður stjórnar SVR 1994-96, sat í
stjórn samninganefndar Kennara-
sambands Islands 1988-95, var einn
af stofnendum Barnaheilla og for-
maður þeirra 1991-96 og hefur gegnt
margvislegum trúnaðarstörfum fyr-
ir Alþýðubandalagið, ma. setið í
framkvæmdastjóm þess 1991-97.
Fjölskylda
Arthur er í sambúð
með Steinunni Stefáns-
dóttur, f. 26.5. 1962,
deildarstjóra á Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur-
borgar. Hún er dóttir
Stefáns Karlssonar og
Helgu Ólafsdóttur.
Sonur Arthurs og
fyrrv. eiginkonu hans,
Sigríðar Elínar Ólafs-
dóttur kennara, er Ólaf-
ur Arnar Arthursson, f.
27.2. 1974, háskólanemi.
Systkini Arthurs,
samfeðra, eru Hjördís
Emma, f. 26.10. 1936, húsmóðir í
Reykjavík; Ágúst Rósmann, f. 5.1.
1943, verslunarmaður og málari á
Selfossi; Ævar Hólm Guðbrandsson,
f. 28.9. 1946, myndmenntakennari
við Fellaskóla í Reykjavík.
Albræður Arthurs eru Sveinn
Allan, f. 10.6. 1951, forstöðumaöur
Svæðistjómar um málefni fatlaðra á
Norðurlandi vestra; Þorlákur Hilm-
ar (Tolli) f. 3.10. 1953, myndlistar-
maður að Álafossi í Mosfellsbæ; Ás-
björn (Bubbi) f. 6.6.
1956, tónlistarmaður,
búsettur á Seltjamar-
nesi.
Fósturbróðir Arthurs
er Bergþór, f. 22.8.
1959, hljómlistarmað-
ur og bílaviðgerðar-
maður, búsettur í
Hafnarfirði.
Foreldrar Arthurs:
Guðbrandur Kristinn
Morthens, f. 18.10.
1917, listmálari í
Fjallakofanum við
Meðalfellsvatn, og
Grethe Skotte
Morthens, f. 18.3. 1928 á Lálandi í
Danmörku, d. 30.1. 1982, húsmóðir.
Ætt
Meðal systkina Kristins var
Haukur Morthens söngvari. Krist-
inn var sonur Edvard Wiig
Morthens, frá Nærð í Noregi. Ed-
vard var sonur Morten Hofstad
Viig og Emilie Lovise Sofie Jakob-
sen, af norskum ættum.
Móðir Kristins var Rósa, systir
Elínar, ömmu Sverris Haraldsson-
ar, listamanns í Selsundi. Rósa var
dóttir Guðbrands, b. í Ölvisholti og
síðar á Tjörvastöðum í Landsveit,
bróður Sæmundar á Lækjarbotnum,
afa Sigríðar sagnfræðings og Guð-
rúnar hæstaréttardómara Erlends-
dætra. Systir Guðbrands var
Katrín, amma Signýjar Sæmunds-
dóttur óperusöngkonu. Önnur syst-
ir Guðbrands var Guðrún, móðir
Guðlaugs í Tryggvaskála, afa Guð-
laugs Tryggva Karlssonar hagfræð-
ings. Guðbrandur var sonur Sæ-
mundar, ættföður Lækjarbotnaætt-
arinnar Guðbrandssonar, bróður
Guðbrands, langafa Guðmundar
Daníelssonar rithöfundar. Móðir
Guðbrands í Ölvisholti var Katrín,
ljósmóðir Brynjólfsdóttir, b. á Þing-
skálum Jónssonar, og Sigríðar
Bárðardóttur, b. í Krótúni Sigvalda-
sonar.
Móðir Rósu var Margrét Hin-
riksdóttir, b. í Ölvisholti Vigfússon-
ar.
Arthur Morthens.
Karólína Þorsteinsdóttir
Karólína Þorsteins-
dóttir, Bröttuhlið 8,
Seyðisfirði, er sjötug í
dag.
Starfsferill
Karólína er fædd að
Hoffstöðum í Helga-
fellssveit. Fyrstu árin
átti hún heima á
Reykhólum við
Breiðaijörð og í
Berufirði en siðar
flutti fjölskyldan að
Hreiðurborg í
Sandvíkurhreppi í
Árnessýslu.
Karólína gekk í
bamaskóla, stundaði undirbúnings-
nám undir Kvennaskólann í eitt ár
hjá sr. Árelíusi Níelssyni sem þá
var prestur á Eyrarbakka. Hún fór
svo í Kvennaskólann og lauk námi
þaðan. Eftir skóla vann hún í
Reykjavík í verslun L.H. Múller og í
Laugavegsapóteki.
Fyrstu tvö árin eftir að Karólína
gifti sig bjuggu þau hjónin í
Reykjavík þar sem maður hennar
stundaði nám viö Iðnskólann en að
því loknu fluttu þau á Seyðisfjörð
þar sem þau hafa búið síðan.
Karólina hefur verið mjög virk í
félagslífi á Seyðisfirði.
Var m.a. í mörg ár
formaður Kvenfélags-
ins Kvik. Hún hefur
einnig tekið þátt í
þjóðfélagsumræðu og
skrifað margar greinar
í blöð þar sem hún
hefur m.a. haldið á lofti
málefnum landsbyggð-
arinnar. Hún rak
veislunina Bjölfsbæ í
mörg ár eða til ársins
1996. Hún er einnig
fréttaritari RÚV á
Seyðisfirði.
Fjölskylda
Karólína giftist 1949 Garðari
Eymundssyni, f. 29.7.1926 trésmíða-
meistara. Hann er sonur Eymundar
Ingvarssonar, verkamanns á
Seyðisfirði en ættaður úr Grímsey,
og k.h., Sigurborgar Gunnarsdóttur
húsmóður.
Böm Karólinu og Garðars eru
Ómar, f. 17.9. 1949, ritstjóri
Vestmannaeyjum, kvæntur Þor-
steinu Grétarsdóttur hárgreiðslu-
meistara og þau eiga fjögur böm,
Grétar, Berglindi, Karólínu og
Vigdísi Lára en Grétar á soninn
Sindra Þór; Sævar, f. 6.2. 1951,
starfar við trésmíðar á Seyðisfirði,
en kona hans er Lára
Vilhjálmsdóttir verslunarmaður og
á Sævar tvö böm, Silvíu Lára og
Karólínu Rut en Lára á fjögur börn,
Lindu, Hildi, Agnar og Ester Rut, og
Silvía Lára á soninn Reyni; Gréta, f.
31.10. 1962, bókhaldari á Seyðisfirði
en hennar maður er Þórður
Jakobsson trésmiður og eru börn
þeirra Garðar Bakmann, Jökull
Snær og Kjartan; Júlíana Björk, f.
21.6. 1965, starfsmaður hjá Hans
Petersen í Reykjavík en sam-
býlismaóur hennar er Jónas
Jónasson sem starfar við bíla-
viðgerðir en dóttir Júlíönu er
Sesselía Hlín.
Albróðir Karólínu er Brynjólfur
Þorsteinsson, f. 27.8. 1920, fyrrv.
bóndi í Hreiðurborg.
Hálfsystir Karólínu, samfeðra, er
Þórunn Þorsteinsdóttir húsmóðir.
Foreldrar Karólínu voru Þor-
steinn Brynjólfsson f. 8.6. 1887, d.
16.4. 1961 bóndi í Hreiðurborg, og
k.h., Júlíana Jóhanna Sigur-
geirsdóttir f. 8.9. 1890 d. 29.11. 1979,
húsfreyja.
Ætt
Þorsteinn var sonur Brynjólfs, b.
á Broddanesi í Kollafirði Jónssonar,
b. á Skriðnesenni Jónssonar, b. á
Skriðnesenni Andréssonar, b. á
Skriðnesenni Sigmundssonar, ætt-
fóður Ennisættarinnar. Móðir Þor-
steins var Ragnheiður, systir
Björns, prófasts á Miklabæ, afa
prestanna Björns Jónssonar, Jóns
Bjarmans, Stefáns Lárussonar og
Ragnars Fjalars Lárussonar, fóður
Þórsteins prests. Ragnheiður var
dóttir Jóns, b. og hreppstjóra á
Broddanesi, Magnússonar og Guð-
bjargar Björnsdóttur.
Júlíana Jóhanna var dóttir Stur-
laugs, b. í Ytri-Fagradal á Skarðs-
strönd Tómassonar, b. á Vaðli á
Barðaströnd Jónssonar. Móðir Stur-
laugs var Jóhanna Jóhannsdóttir,
prests í Garpsdal Bergsteinssonar.
Móðir Júlíönu var Herdís Kristín
Jónsdóttir Vestmanns, smiðs í
Skriðukoti í Haukadal Jónssonar, b.
á Bakka á Langadalsströnd Jóns-
sonar. Móðir Herdísar var Ástríður
Einarsdóttir, b. í Skriðukoti Jóns-
sonar og Ingibjargar Helgadóttur.
Karólína tekur á móti gestum
laugardaginn 7.2. í húsakynnum
Austfars á Seyðisfirði. Fyrr gefst
ekki tækifæri vegna þorrablóta á
staðnum.
Karólfna Þorsteinsdótttir.
Björn Z. Ásgrímsson
Björn Z. Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Kerfis hf., Huldulandi
46, Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Björn fæddist á Siglufirði og
ólst þar upp. Hann lauk raun-
greinaprófi frá Tækniskóla ís-
lands 1979 og prófi í iðnaðarverk-
fræði frá Tekniska Högskolan í
Lindköping í Svíþjóð.
Björn var rekstrarráðgjafi hjá
Iðntæknistofnun íslands 1984-86,
markaðs- og innkaupastjóri hjá
Umbúðamiðstöðinni hf. 1986-96
og hefur verið framkvæmdastjóri
Kerfis hf. frá 1997.
Björn var fulltrúi starfsmanna í
stjóm Iðntæknistofnunar 1985, sat
í nefnd um mótun náms í iðn-
irfræði og iðn-
íknifræði við
skóla íslands
1, í stjórn Hag-
'afélags íslands
5 og situr í
nefnd Bú-
irkju frá 1994.
Fjölskylda
Eiginkona Bjöms
er Jónína Sóley
Ólafsdóttir, f. 9.12.
1960, hjúkrunarfræð-
ingur. Hún er dóttir
Ólafs Jóhannssonar,
lögregluþjóns á Siglu-
firði, og Önnu Björnsdóttur hús-
móður.
Börn Björns og Sóleyjar eru Ás-
BjörnZ.
Ásgrímsson.
rik Már, f.
Reykjavík.
Foreldrar
grímur G. Björnsson,
f. 14.7. 1983; Anna
Lind Björnsdóttir, f.
25.8.1987; Sunna Lind
Bjömsdóttir, f. 18.10.
1989.
Alsystkini Björn eru
Eiríksína Kristbjörg,
f. 1.6. 1960, kennari í
Hafnarfirði; Stefán, f.
9.9. 1961, verkfræð-
ingur á Egilsstöðum.
Hálfbróðir Björns,
samfeðra, er Sigurð-
ur, f. 3.12. 1951, raf-
virki hjá Landhelgis-
gæslunni.
Hálfbróðir Bjöms,
sammæðra, er Frið-
31.7. 1955, vélstjóri í
Björns: Ásgrímur
Guðmundur Björnsson, vélstjóri á
Siglufirði, og Guðbjörg Oddný
Friðriksdóttir húsmóðir.
Ætt
Föðurforeldrar Bjöms voru Björn
Z. Sigurðsson í Vík í Héðinsfirði, og
Eiríksína Kristbjörg Ásgrimsdóttir
frá Hólakoti í Fljótum.
Móðurforeldrar Bjöms vora Frið-
rik Ingvar Stefánsson, b. í Nesi í
Fljótum, f. að Steinavöllum í Haga-
neshreppi í Fljótum, og Margrét
Eggertsdóttir húsmóðir.
Bjöm heldur upp á afmælið í Vík-
ingsheimilinu, laugardagskvöldið
31.1.
Tll hamingju
með afmælið
27. janúar
90 ára
Guðbjartur Betúelsson,
Urðarhæð 6, Garðabæ.
80 ára
Auður Guðmundsdóttir,
Heiðarvegi 59,
Vestmannaeyjum.
75 ára
Jóhanna Valsteinsdóttir,
Lindasíðu 2, Akureyri.
70 ára
Arndís Þorvaldsdóttir,
Árbraut 1, Blönduósi.
60 ára
Bragi Skúlason,
húsasmíða-
meistari,
Hólmagrand 22,
Sauðárkróki.
Eiginkona hans
er Ingunn Sigin-ðardóttir
sérkennari.
Þau taka á móti gestum í
Tjarnarbæ, laugard. 31.1. kl.
21.00-23.30.
Anna M. Jónsdóttir,
Sólvallagötu 9, Keflavík.
Sigrún Guðmundsdóttir,
Búlandi 15, Reykjavík.
Ægir Ólason,
Tjamarbóli 15, Seltjamarnesi.
50 ára
Arnþrúður Jónasdóttir,
Lónabraut 24, Vopnafirði.
Ásbjörn Eydal Ólafsson,
Leirubakka 6, Reykjavík.
Bima Ósk Árnadóttir,
Heiðarhjalla 12, Kópavogi.
Gísli Haraldsson,
Æsufelli 4, Reykjavík.
Gunnar Ástvaldsson,
Hvammi II, Áshreppi.
Rannveig Þórðardóttir,
Öldugerði 9, Hvolsvelli.
40 ára
Edda Olgeirsdóttir,
Framnesvegi 62, Reykjavík.
Einar Valur Einarsson,
írabakka 26, Reykjavík.
Grétar Bjöm Sigurðsson,
Fagrahjalla 1, Kópavogi.
Hans-Konrad Kristjánsson,
Borgarholtsbraut 1, Kópavogi.
Helgi Edward Jónsson,
Hringbraut 40, Hafnarfirði.
Hjördís Gunnarsdóttir,
Þinghólsbraut 82, Kópavogi.
Hrönn Sigurðardóttir,
Breiðvangi 4, Hafnarfirði.
Jóhanna Rún Leifsdóttir,
Safamýri 37, Reykjavík.
Jón Atli Ólafsson,
Fossagötu 9, Reykjavík.
Kristín Eyjólfsdóttir,
Valbraut 8, Garði.
Sigurður Helgi Hreinsson,
Hálsi, Dalvík.
/
IJrval
- gott í hægindastólinn