Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Side 10
enning
\
\
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
Ég hélt alltaf að ég myndi fara að gráta þeg-
ar fréttin um lát Halldórs Laxness bærist mér
til eyma. Þegar hún kom að morgni 9. febrú-
ar grét ég ekki. En hægt og hægt fylltist
brjóstið af fólkinu hans, Bjarti og Ástu Sólli-
lju, Sölku og Sigurlinu, Snæfríði og Áma,
Úglu og organistanum að ógleymdu ljósi
heimsins Ólafi Kárasyni og heitkonu hans.
Yfir þeim öllum hef ég grátið. Og ljóðin úr
Kvæðakverinu tóku að óma i höfði mér. Ég
fór tregandi niður í bæ, hitti konu á fórnum
vegi og sagði: - Nú er skáldið okkar góða dáið,
og konan sagði: - Já, það var gott að hann
fékk hvíldina. Það var gott að guö tók hann til
sín. Lofið þreyttum að sofa, það var sú tilfinn-
ing sem gagntók okkur. Og svo þetta djúpa,
djúpa þakklæti. Því hver getur gefið þjóð
sinni stærri gjöf en Halldór Laxness hefur gef-
ið okkur? Gjöf, sem við verðum vonandi menn
og konur til að þiggja og ávaxta um langa
framtíð.
Besta bók aldarinnar
Enginn íslendingur hefur skilað af sér
drýgra dagsverki á þessari öld. Enginn læri-
meistari hefur haft jafn mikil áhrif á jafn
marga landa sína og Halldór Laxness. Éng-
inn hefur hugsað jafn djúpt og hátt og vítt og
af jafn miklu innsæi og þetta mikla sagna-
skáld, skáld skálda. Ég bjó í Svíþjóð milli
1986 og 90 og á þeim árum voru Svíar að end-
urútgefa nokkur af helstu snilldarverkum
hans og hann var kynntur á breiðsíðum stór-
blaðanna. Þar sagði einn gagnrýnandinn að
Heimsljós væri besta bók sem hefði verið
skrifuð í heiminum á tuttugustu öld. Kona
sem ekki hefur lesið nema lítið brot af litter-
atúr heimsins á kannski ekki með að sam-
sinna ummælum af þessu tagi. Ég gerði það
samt. Og þó vildi ég heldur gefa þessa ein-
kunn höfundaverki hans í heild. Enn hef ég
ekki rekist á höfund sem hefur farið fram úr
honum að áhrifamætti, höfund sem hefur
höfðað til mín með jafn altækum hætti aftur
og aftur. Hann er meðal hinna mestu, jafn-
oki þeirra bestu sem hafa beitt penna á öld-
inni. Hann er skáld fyrir allan heiminn. Og
þó var hann einkum ætlaður okkur. Okkur
sem hlutum ísland og íslenska tungu í arf.
Ábyrgð á snilldinni
Og hverjum er svo allt þetta að þakka því
enginn vex af sjáifum sér? Guði, sem gaf hon-
um gáfumar og þeim Sigríði Halldórsdóttur
og Guðjóni Helgasyni á Laugaveginum og í
Laxnesi sem fóm svo farsællega með uppeld-
isumboð sitt. Það hafa ekki öll séní verið jafn
heppin með foreldra og Halldór Laxness. Og
ekki skal hlutur ömmunnar Guðýjar Klængs-
dóttur vanmetinn í menntun drengsins. En
það var hann sjálfur sem ávaxtaði sitt pund,
vann verkin og fylgdi þeim eftir með dyggri
aðstoð vina og samverkamanna auk magn-
aðra kvenna. Halldór Laxness var maður sem
tók fulla ábyrgð á snilligáfu sinni. Hann
þrammaði um sveitir og álfur, ölvaður af engu
nema köllun sinni, leitaði víða fanga og gerði
mat úr öllu sem dugði og duga mun í ótal
veislur. Við sem höfum notið og njótum lútum
höfði í þökk við brpttför hans. Þökk sé honum
og þökk sé þeim sem honum unnu.
Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur
Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Halldór á skáldafmælinu 1989
þegar afhjúpuð var brjóstmynd af honum í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Er
hún lík þér? spurði Svavar. Skáldið gerði lítið úr því: „Það getur svo margt
verið líkt mér!“
Halldór og púltið góða sem hann
vann við. Hann handskrifaði venju-
lega bækur sínar - og urðu upp-
köstin allt að átta, að hans sögn.
Halldór ásamt frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta og Ingvari Gíslasyni
menntamálaráðherra í veislu ríkisstjórnarinnar í tilefni áttræðisafmælisins
1982.
Hér gefur Halldór Gunnari Eyjólfssyni leikara lifandi lýsingu á því hvernig
ber að túlka atburð.
Skáldið gerir athugasemd við texta blaðamanns á Vísi.
Halldór Laxness samdi nokkur leikrit, hiö fyrsta þeirra var Straumrof, 1934. Ennþá vinsælli meðal almennings hafa leikgerðirnar eftir skáldsögum
hans orðið, bæði eftir hann sjálfan og aðra. Má heita að leikrit hafi verið samin eftir öllum helstu skáldsögum hans. Á myndinni er hann hylltur af
Guðlaugi Rósinkrans Þjóðleikhússtjóra og leikurum eftir frumsýningu á Sjálfstæðu fólki 1972.
Halldór og Hvutti