Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Blaðsíða 21
JL>V LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
21
I
fréttaljós
Lögregla og stjórnvöld í Tyrklandi í hættulegum félagsskap:
slagtogi með eftir-
lýstum morðingja
Þau voru þrjú, líkin sem lögregl-
an dró út úr flaki Mercedes Benz
glæsibifreiðarinnar. Benzinn hafði
lent í árekstri við flutningabíl
skammt frá bænum Susurluk i suð-
vesturhluta Tyrklands þann 3. nóv-
ember 1996. Fjórði maðurinn i bíln-
um var lifandi.
Nú var fjandinn laus því þetta
voru ekki lík af neinu venjulegu
fólki. Einn hinna látnu var háttsett-
ur í lögreglu landsins, annar var eft-
irlýstur morðingi og heróinsmygl-
ari og þriðja líkið var af fyrrum feg-
urðardrottningu Tyrklands sem
hafði gengið til liðs við mafiuna þar
í landi. Sá sem slapp lifandi var
kúrdískur þingmaður og ættbálks-
höfðingi og eigandi bilsins.
Og hvers vegna var þetta fólk
saman í bíl? Góð spuming. Þótt full-
nægjandi svör hafi kannski ekki
fengist enn þykir þó ljóst að þama
hafi sannast það sem marga grun-
aði, nefnilega að tyrknesk stjórn-
völd hafi haft glæpamenn á sínum
snærum til að vinna ýmis fólsku-
verk, einkum þó að myrða kúrdíska
uppreisnarmenn.
Skýrsla sem gerð var um Sus-
urluk-málið, eins og það er kallað,
og sem Mesut Yilmaz, forsætisráð-
herra Tyrklands, sagði lítillega frá í
síðasta mánuði staðfestir þessi
tengsl stjómvalda og glæpamanna.
Tveir menn hafa nú veriö ákærð-
ir í kjöifar rannsóknarinnar á mál-
inu. Annar þeirra er Sedat Bucak,
kúrdískur þingmaður úr flokki
Tansu Ciller, fyrrum forsætisráð-
herra, eigandi áðumefnds Benz og
sá eini sem komst lífs af úr slysinu
afdrifaríka. Hinn er Mehmet Agar,
fyrrum innanríkisráðherra í stjórn
Ciller. Þeim er gefið að sök að
standa að stofnun glæpasamtaka og
hafa skotið skjólshúsi yfir eftirlýsta
glæpamenn. Þeir eiga yfir höfði sér
allt að tólf ára fangelsisvist
verði þeir fundnir sekir.
Sagt er að Agar hafi
skipulagt morðin á
kúrdískum andófs-
mönnum og öðram
sem litið var á
sem óvini ríkis-
ins.
Agar á frama
sinn Tansu Ciller
að þakka. Hún var ^BV
forsætisráðherra
Tyrklands frá því í júní ‘‘
1993 þar til í mars 1996.
Hún hefur oft verið sögð vera
aðalmaðurinn á bak við dauðasveit-
ir og aðra ofbeldisseggi.
Mesut Yilmaz forsætisráðherra
átti líka greinilega við valdaskeið
hennar þegar hann talaði um mesta
tímabil ríkisrekinnar stigamennsku
í sögu landsins. Þess ber þó að geta
hér að þau Yilmaz og Ciller era
svamir andstæðingar.
Heimildir herma að í skýrslunni
um Susurluk-málið sé klausa þar
sem haldið sé fram að róttækar
breytingar hafi verið gerðar á
skipulagi lögreglu og leyniþjónustu
á síðari helmingi ársins 1993, í kjöl-
far stjórnarskiptanna.
Tansu Ciller hefur ekki svarað
ásökununum gegn sér beint. Hún
hefur hins vegar sakað núverandi
ríkisstjóm um að ætla að leyna
hlutum skýrslunnar.
Dagblaðið Milliyet í Istanbúl
skýrði frá því að Tansu Ciller hefði
haft forgöngu um það árið 1994 að
bragga kúrdíska skæruliðaforingj-
anum Abduilah Ocalan launráð.
Hins vegar var hætt við að myrða
manninn af ókunnum ástæðum.
En víkjum aftur að bílslysinu í
nóvember 1996. Lögreglan sagði í
fyrstu að embættismennirnir í
Benzinum hefðu verið í opinberum
erindagjörðum að flytja tvo bófa
milli staða. Skjöl sem fundust í bíln-
um bentu hins vegar til þess að einn
hinna látnu, Abdullah Catli, hefði
haft í fórum sínum diplómataskil-
ríki sem stjómvöld höföu gefið út.
Þá var hann með sex önnur per-
sónuskilríki, hvert á sitt nafn, með-
ferðis, svo og margar skammbyssur.
Abdullah Catli var eftirlýstur af
lögreglunni á þessum tíma. Hann
var dæmdur eiturlyfjasmyglari og
auk þess grunaður um að hafa myrt
sjö vinstrisinna seint á áttunda ára-
tugnum. Á þeim tíma var hann
einmitt næstæðsti maður Gráu úlf-
anna svokölluðu, samtaka hryðju-
verkamanna nýfasista sem vora
stofhuð í lok sjöunda áratug-
arins. Samtök þessi öðluð-
;■ > ust svo heimsfrægð
y|s;. þann 13. maí 1981
þegar einn liðsmað-
ur þeirra og náinn
samverkamaður
Catlis, Mehmet Ali
Agga, gerði tilraun
til að myrða páfa.
Bílslysið við Sus-
Bf. urluk kom upp um
þátt Catlis í ofsóknun-
um á hendur Kúrdum.
Og í flakinu fundust sann-
animar fyrir því sem marga
hafði lengi granað: Ríkisstjómir
Tyrklands, hver á eftir annarri,
héldu vemdarhendi yfir eiturlyfja-
smyglurum, hryðjuverkamönnum
og morðingjum til að útrýma tyrk-
neskum andófsmönnum og upp-
reisnarmönnum Kúrda.
Byggt á Le Monde Diplomatique,
Intemational Herald Tribime,
Reuter og Turkish Daily News.
Tansu Ciller, fyrrum forsætisráðherra Tyrklands, er sökuð um að hafa staöið
að baki dauðasveitum stjórnvalda i baráttunnl vlö kúrdlska uppreisnarmenn.
Til verksins réðu stjórnvöld glæpamenn af ýmsum stæröum og gerðum.
Erlent
fréttaljós
i&ica otsein
Heimilistæki
Ein öflugasta heimilisþvottavélin
sem vöi er á í dag. ~
22®
Vinduhraði
stiilanlegur stigiaust
allt að 1200 sn.
Stiglaus hitastilling.
15 þvottakerfi.
Forþvottur.
Tekur 5 kg af þvotti.
2 þvottahraðar.
Vatnsinntaksöryggi
Sparnaðarrofi
Barnalæsing á loki
Regnúðakerfi.
Hleðslujafnari.
2 legur og 2 öxlar =
lengri ending.
1200 sn.
Aðeins
40 cm
breið,
tilvalin þar
sem pláss
VERSLUN FYRIR ALLA I
- tryggw
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
RAÐCREIDSL UR
mm
HUÓÐKÚTAR
PUSTKERFI
Eigum hljóðkúta og pústkerfi í flestar gerðir bifreiða.
Tveggja ára ábyrgð á heilum kerfum. ísetning á staönum.
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar
í síma 588 2550
Bílavörubúöin
FJÖÐRIN
í fararbroddi
SKEIFUNNI 2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550
gaveg 13. í dag laugardag og á morgun sunnudag ætlum við að.
tónlistardeildina fyrir stærri hljómtækjadeild
og af því tilefni bjóðum við frabæran afslátt.
laugardag TO - 16,00
sunnudag T 3 - T 7,00
JAPIS
BRAUTARHOLTI, SÍMI 562 5200