Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Page 18
18 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 I IV dagur i lífi Jón Kristjánsson Valsþjálfari lýsir laugardegi til lukku: skorti ekki „Þennan laugardag, 7. síðastliðinn, vaknaði ég níu. Fékk mér kaffisopa síðan í vinnu mína í ACO þar sem ég er deildar- stjóri þjón- ustudeild- ar. Þar þurfti ég að febrúar um kl. og hélt fara yfir nokkur mál með Bjarna framkvæmdastjóra. Um 10.45 var kominn tími til að fara í Valsheimilið. K-! 11 vnnim \7q1c. voru búnir að elda glæsilegan pastarétt og með var boðíð upp á grænmetissalat og brauð. Nokkur veikindi höfðu verið að hrjá liðið viknna Jón Kristjánsson, þjálfari og leikmaður Vals, og piltarnir hans stóðu uppi sem sigurvegarar eins og frægt er orðið. Bikarinn er þeirra, a.m.k. meðan dómstólar hafa ekki ákveðið annað. DV-mynd BG á undan og búið var að biðja þá sem voru slappir að halda sig heima og mæta beint í leikinn. Allir mættu nema Sigfús. Þama voru saman komnir bæði leikmenn og stjórn handknatt- leiksdeildar Vals. Það var gantast yfir matnum eins og gengur. Gert var grín að matarvenjum og matvendni. Guðni formaður hélt smá ræðu yfir borðum og ég fór með smá upprifjun fyrir leikmenn og ábend- ingar um hvernig menn gætu notað tímann fram að leik til að undirbúa sig sem best. Sigfús daufur í aálkinn Um kl. 12 fóru menn að tínast heim. Ég talaði við Sig- fús í síma og hann var heldur daufur i dálkinn. Hann var með háan hita og ekki bjartsýnn á að hann gæti spilað. Ég bað hann um að at- huga stöðuna um kl. þrjú. Ef hit- inn væri ekki yfir 38,5 mætti reyna að fá sér vænan skammt af verkjastillandi lyfjum og reyna. Eftir að símtalinu lauk boðaði ég annan leikmann í stað Sigfúsar því ég átti ekki von á honum í leikinn. Skömmu eftir að ég kom heim var hringt í mig og mér tjáð að hitinn hjá Fúsa væri vel yfir 39 gráður og hann yrði ekki með. Tímann fram að leik notaði ég til að klára mína vinnu. Ég þurfti að undirbúa mig sem leik- maður og einnig þurfti að ákveða hvernig ég ætlaði að ræða við lið- ið fyrir leikinn. Fyrir bikarúr- slitaleik þarf minna að brýna fyr- ir mönnum að leggja allt undir, frekar að fara yfir aðstæður og sýna skynsemi. Sumir kraftlausir Kl. 15.30 var ég svo mættur í Laugardalshöllina og venjubund- inn undirbúningur fyrir leik hófst. Leikurinn sjálfur var ekki sérlega vel leikinn, a.m.k. ekki af okkar hálfu. Sumir leikmenn voru kraftlausir og aðrir náðu ekki að sýna sitt besta. Einnig söknuðum við Sigfúsar, bæði í vörn og sókn. Eitt var þó sem ekki skorti og það var viljinn. Leikurinn fór í framlengingu eins og frægt er orðið en við stóð- um uppi sem sigurvegarar eftir hana. Ég var stoltur af mínum mönnum og ánægður með hvernig þeir ungu strákar sem fengu ábyrgðarhlutverk stóðu sig. Síðar um kvöldið mættmn viö svo enn saman og nú í Valsheim- ilinu. Saman voru komnir leik- menn, ásamt eiginkonum, og stuðningsmenn. Boðið var upp á glæsilegan mat og drykk. Leik- menn fóru samkvæmt fyrirmæl- um um að ganga hægt um gleðinn- ar dyr þar sem erfiður deildarleik- ur var fram undan gegn Aftureld- ingu. Eftir að heim kom upp úr mið- nætti sofnaði ég hratt, ánægður eftir erfiðan dag. Fram undan var tími þar sem fjölskyldan fengi vonandi meiri tíma.“ iflmm breytingar ■'éz' > Finnur þú fimm breytingar? 450 „Nei takk, ég er á bil.“ Vinningshafar fyrir getraun nr. 448 eru: 1. verölaun: 2. verölaun: Valgeir Ingi Ólafsson Guðrún Valdís Jónsdóttir Bláhömrum 21 Vesturgötu 105. 112 Reykjavík. 300 Akranesi. Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þinu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liönum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón- varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að verðmæti kr. 3.490. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir verða sendir heim. Merkiö umslagið meö lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 450 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.