Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Blaðsíða 22
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 JjV
Einbýlishús Körlu og Pauls í
kanadíska bænum St. Catherine var
snoturt og garðurinn og annað um-
hverfis það lýsti snyrtimennsku.
Reyndar var unga parinu svo um-
hugað um útlit þess og sitt að sum-
um nágrönnunum fannst um of og
gáfu þeim nafnið „Barbie og Ken“.
En það var með þetta unga fólk
eins og suma aðra að útlitið lýsir
ekki ætíð hinum innri manni. Fötin
sem Paul valdi sér og farðinn sem
Karla gætti ætíð svo vel að væri
nógur og rétt á borinn voru aðeins
ytra borð fólks sem átti eftir að
vekja skelfingu í Kanada.
Hann heillaði hana
Karla Homolka var af fátækum
pólskum innflytjendum komin en
hún var lagleg, hégómleg svo úr
hófi gekk og afar metorðagjöm. En
hún var líka dugleg og vann með
námi meðan hún var enn í skóla því
hún var ákveðin í að eiga fyrir
námsgjöldum í háskóla þegar þar að
kæmi. Og þangað náði hún.
Karla var nítján ára þegar hún
kynntist Paul. Þá var hún við há-
skólanám. Það var árið 1989. Henni
fannst hann glæsilegasti ungi mað-
urinn sem hún hafði kynnst og i
raun maðurinn sem hana hafði
alltaf dreymt um. Hann var mynd-
arlegur, hafði lokið háskólaprófi og
fengið starf við nafhtogaðasta fyrir-
tækið i bænum.
Fyrsta árið sem þau voru saman
var mjög rómantískt en þegar kom
fram á árið 1990 fór Paul að sýna af-
brigðilega tilhneigingu á kynlífs-
sviðinu. Körlu var í fyrstu ekki
sama en eftir nokkum tíma ákvað
hún að fara að vilja hans svo hann
færi ekki frá henni. Hún fór að
hjálpa honum til að ná í ungar
stúlkur, vart komnar af fermingar-
aidri, og eftir aðeins hálft ár var
hún orðin svo forhert að hún setti
ekki fyrirsig að uppfylla ægilegustu
kröfur Pauls.
Systirin
Ein þeirra stúlkna sem Paul hafði
fengið augastað á var yngri systir
Körlu, Tammy, íjórtán ára. Á Þor-
láksmessukvöld 1990 ákvað Karla að
Tammy Homolka.
gefa honum hana í jólagjöf. Meöan
foreldrar hennar sátu í stofunni hjá
sér lokkaði Karla Tammy niður í
kjallara og gaf henni eggjasnafs með
deyfilyfi í.
Þegar Tammy var orðin meðvit-
undarlaus kom Paul niöur í kjallar-'
ann og nauögaði henni. Síðan báru
þau hana upp í rúm. Næsta morgun
fannst Tammy látin og haföi, að þvi
er virtist, kafnaö í spýju. Læknirinn
lýsti því yflr aö hún hefði kafnaö
Réttarhöldin
Lík Tammy Homolka, systur
Körlu, var nú grafið upp. Réttarlækn-
um tókst að sýna fram á að hún hefði
verið kæfð en einnig fundust
í henni leifar af deyfllyfinu
og sæði úr Paul.
Paul var ákærður fyrir
þrjú morð, tvö mannrán og
fjörutíu og þrjá aðra kyn-
ferðisglæpi.
Réttarhöldin yfir Körlu
byrjuðu í júní 1993. Þannig
var gengið frá dyrum í réttar-
salnum að utan hans heyrð-
ist ekkert af þvi sem fram fór
innra. Þá bönnuðu kanadísk
yfirvöld fjölmiðlum að fjalla
um glæpina sem til umfjöll-
unar voru. Var það af ótta
við að veijandi Pauls gæti
borið þvi við að hann fengi
ekki réttláta meðferð vegna
umræðu úti í þjóðfélaginu en
mál hans átti að taka fyrir
ári siðar. Auðvitað spurðist
samt ýmislegt út af því sem
fram fór meðan Karla var
fyrir réttinum, þar á meðal
það að hún hefði ekki aðeins
verið saklaus áhorfandi að
þvi sem fram fór heldur ver-
ið beinn þátttakandi í pynt-
ingum og morðum.
Dómarnir
Karla var dæmd í tólf ára fangelsi
en þaö hafði í for með sér að hún
gæti sótt um reynslulausn eftir sex
ár, það er á næsta ári. Þá verður
hún aöeins tuttugu og níu ára og á
því væntanlega mörg ár ólifuð.
Þessi dómur átti eftir að vekja
mikla reiði í Kanada þegar réttar-
höldunum yflr Paul var lokið og
loks var hægt að fjalla opinberlega
um það sem gerst hafði. Glæpirnir
sem Karla hcifði gerst samsek um
þóttu ægilegir og fannst mörgum
sem það væri lítil refsing fyrir þá að
sitja í fangelsi í sex ár. En saksókn-
ari hafði gert samkomulag við hana,
eins og oft er gert þegar vitni er ef
til vill aðeins eitt, ekki með hreint
mjöl í pokahorninu og saksókn háð
framburði þess.
Paul var sekur fundinn um allt
það sem hann var ákærður fyrir og
var dæmdur í ævilangt fangelsi án
möguleika á lausn eða náðun.
Þar með var lokið einu umtalað-
asta sakamáli í Kanada.
Karla og Paul á brúðkaupsdaginn.
eftir að hafa selt upp í svefni og hún
var jarðsett án þess að frekari rann-
sókn færi fram.
Einbýlishúsið
í byrjun árs 1991 fluttu Paul og
Karla í einbýlishús í besta hverfi
bæjarins, rétt við Ontario-vatnið.
Eitt af þvi fyrsta sem Karla tók sér
fyrir hendur var að sjá um að hljóð-
einangra herbergi I kjallaranum. Er
því var lokið kom hún þar fyrir
hlekkjum og hvers kyns pyntingar-
tólum.
í apríl lokkaði Karla Lesley Ma-
haffy, fjórtán ára stúlku, með sér
heim. Hún gaf henni deyfilyf en dró
hana síðan niður í kjallara þar sem
Paul nauðgaði henni og misþyrmdi
og myrti hana síðan.
Skömmu síðar klæddist Karla
hvítum brúðarkjól
og bjó sig undir
kirkjubrúðkaup.
Um það leyti sem
brúðhjónin voru að
ganga úr kirkju var
lögreglan að draga
lík Lesley Mahaffy
upp úr Ontario-
vatni.
í ársbyrjun 1992
missti Paul vinnuna
og fór að vinna fyrir
sér með því að
smygla svonefndum
„snufffilms“ yfir
landamærin frá
Bandaríkjunum.
Um var að ræða
klámmyndir sem
sýndu raunverulega
kynferðisglæpi, oft
morð, sem framin
voru sérstaklega í
þeim tilgangi að
gera myndböndin
eftirsóttan söluvam-
ing fyrir þá sem
njóta þess að horfa á
slíkt.
Ný tekjulind
Smyglið færði Paul tekjur en
hann vildi ganga lengra og ákvað aö
framleiða eigin myndbönd af því
tagi sem að ofan er lýst. Karla var
meö í ráðum og lokkaöi Kristen
French, fimmtán ára, heim til
þeirra.
í þrettán daga var henni nauögað
og hún pyntuð meðan þau hjón
Játningin
Þegar yfirheyrslan yfir Körlu
hafði staðið um hrið og hún
hafði játað að það væri maður
hennar sem hefði veitt henni
áverkana féll hún skyndilega
saman og sagðist þurfa að segja
frá ýmsu af því sem þau hjón Kristen
hefðu gert saman.
Rannsóknarlögreglumennimir
voru í fyrstu vantrúaðir á að það
sem Karla fór nú að lýsa gæti verið
rétt. En smám saman varð þeim
ljóst að hún gat vart verið að búa til
sögu af þessu tagi og þá setti að
þeim hroll.
Áður en lengra var haldið ákvað
rannsóknarlögreglan að kanna feril
Pauls Teale, eins og hann hét fullu
nafni. Þá kom í Ijós að í raun hét
hann Paul Bemardo og lá undir grun
um tuttugu og fimm nauðganir í
heimabæ sínum, Scarborough. Þar
hafði um tíma gengið laus kynferðis-
afbrotamaður sem gekk undir nafn-
inu „Scarborough-nauðgarinn" og'
hann haföi valdiö svo mikilli skelf-
ingu meðal kvenna þar að við lá að
sumar þeirra gengju af vitinu. Næg-
ar sannanir gegn Paul lágu þá ekki
fyrir en nú virtist allt útlit fyrir að
játning Körlu yrði til þess að hægt
yrði að koma lögum yfir manninn
sem framið hafði fjöldanauðganirnar.
Samningar
Karla gerði sér ljóst hvaö henn-
French.
skriftir og áður en lauk hafði hún
sagt sögu sína á níu hundruð síð-
um. Sumt af því sem hún lýsti var
svo skelfilegt að við lá að hárin
risu á rannsóknarlögreglumönn-
unum.
En var það allt satt eða var hluti
af því til kominn vegna vanþroska
ungu konunnar og ímyndunarafls?
Karla kom ýmsum þannig fyrir
sjónir að hún væri sem lítið barn í
líkama konu. Þá þótti það sérstakt
að hún sýndi aldrei nein merki um
samviskubit. Það var sem hún
hefði mestar áhyggjur af því hvort
hún væri rétt greidd og andlits-
farðinn eins og hún vildi hafa
hann. En á daginn kom að hún var
í öllum meginatriðum að segja satt
frá.
Eftir aö fyrstu yfirheyrslunum
lauk var Karla flutt á geðsjúkrahús
til rannsóknar. Samtímis hélt rann-
sóknarlögreglan til einbýlishússins
með leitarheimild. Pyntingarklefinn
reyndist vera þar sem Karla hafði
sagt hann vera. Þá fundust einnig
myndbönd sem sýndu pyntingar á
ungu stúlkunum.
gerðu myndbandið. Loks var Krist-
en kyrkt og lík hennar grafið úti í
skógi þar sem maður á gangi með
hundinn sinn fann það hálfum mán-
uði síðar.
Er hér var komið, og reynd-
ar fyrr, voru komin upp
vandamál í hjónabandi þeirra
Pauls og Körlu. Hann var far-
inn að gera þá kröfu til henn-
ar að hún klæddist og hegðaði
sér eins og stúlkurnar sem
þau myrtu. Hún neitaöi en þá
barði hann hana. Og í ársbyrj-
un 1993 sló hann hana svo fast
að annað augaö sprakk úr
tóftinni. Hún varð að fara á
spítala þar sem tókst að koma
því á sinn stað. En ljóst var að
hún hafði orðið fyrir barsmíð-
um og var lögreglan kölluð til
svo ganga mætti úr skugga
um hvort maður hennar bæri
ábyrgðina.
ar gæti beðið fyrir þátttöku í
illskuverkunum. Hún bauðst því
til að vinna með yfirvöldum gegn
því að hún fengi mildari dóm og
var á það fallist. Hún settist þá við