Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
Verkfalli lokið
Almenningssamgöngur hafa
legið niðri síðustu viku í Hels-
inki vegna verkfalls bílstjóra. Til
stóð að flugvallarstarfsmenn
hæfu samúðarverkfall i byijun
vikunnar en á síðustu stundu
náðust samningar og samgöngur
í borginni eru komnar í samt lag.
Hætt við að brosið
dofni
Taíland er
mikið ferða-
mannaland
eins og allir
vita og hefur
gjaman verið
kynnt sem
land „hinna
brosandi" í
auglýsingum.
Nú er brosið
góða í hættu
eftir að ráðist
var á þriðja
ferðamanninn
á aðeins tveimur vikum i höfuð-
borg landsins, Bankok. Einn
ferðamannanna er látinn og hin-
ir tveir mikið slasaðir. Ef ódæðis-
verkunum linnir ekki óttast
ferðafrömuðir að mörgum ferð-
um verði aflýst.
Djasshátíð
Djassáhugamenn sem vilja
hlýða á góða sveiflu I sumar ættu
að skoða hina heimsfrægu hátíð
sem haldin verður í Montreux í
Sviss. Þetta er í 32. sinn sem há-
tíðin er haldin og hefur ævinlega
dregið að sér tugi þúsunda djass-
geggjara.
Hátíðinni, sem haldin verður
dagana 2. til 19. júlí í sumar, er
spáð gríðarlegri aðsókn og reikna
hátíðishaldarar með að minnsta
■ kosti 170 þúsund gestum. Bókan-
ir streyma inn og fer hver að
verða síöastur að panta sér góða
Hundruð hollenskra flugvallar-
| starfsmanna mótmæltu nýlega
áformum stjórnvalda um að tak-
marka flug til Schiphol-flugvall-
ar. Samkvæmt nýjum reglum má
völlurinn afgreiða fjörutíu þús-
und flug árlega og er þetta gert til
þess meðal annars að spoma við
þeirri gríðarlegu hávaðamengun
|l sem hlýst nú þegar af vellinum.
Orient Express
Frægasta lest allra tíma er án
| efa Orient Express-lestin. í 94 ár
ferðaðist fina fólkið með lestinni
á milli stórborga en síðasta reglu-
lega ferðin var farin árið 1977.
Þá tók bandarískur áhugamað-
ur um járnbrautalestir sig til og
I fjármagnaði lagfæringar á lest-
inni og hófust ferðir með henni
; aftur árið 1982. Ekkert var til
sparað og þykir lestin jafn glæsi-
leg og áður.
Lestin fer vikulega frá London
til Parísar, þaðan til Feneyja,
; Zurich, St. Anton, Innsbruck og
Verónu á Ítalíu. Framhaldsferðir
: eru til Vínar, Berlínar, Prag,
Rómar og Flórens. Hægt er að
taka lestina hvar sem er á leið-
inni og yfirgefa hana hvar sem
| menn kjósa.
Hægt er að kaupa miða frá
London til Verónu á 40 þúsund
krónur og er það lægsta mögu-
; lega fargjald. Fyrir þá sem vilja
eyða meiru má einnig fá miðann
á rúmar þrjú hundruð þúsund.
Frá London til Verónu kostar á
bilinu 40 og allt upp í 330 þúsund
Grænland:
Ævintýraferð á hundasleða
I apríl næstkomandi mun jarðeðl-
isfræðingurinn Ari Trausti Guð-
mundsson leiða hóp íslendinga um
vetrarríki Grænlands. Það er ferða-
skrifstofan Landnáma sem efnir til
ferðarinnar sem mun standa í þrjá
sólarhringa.
Ferðinni er heitið til
Angmassalik á austurströnd Græn-
lands þar sem náttúrufegurðin er
einstök og menning heimamanna
ósnortin af dönskum áhrifum.
Markmið ferðarinnar, auk þess
að njóta hinnar lífsins í fallegu um-
hverfí, er að upplifa vetrardýrðina í
ævintýralegri hundasleðaferð sem
verður heimamenn munu sjálfir
stjórna. Hægt er að velja um hálfs
dags og heils dags ferðir á sleðum.
Og fyrir þá sem eru ævintýragjam-
ir býðst að gista í fjallakofa eina
nótt úti í óbyggðum. Þá verður
byggðasafn Angmassalik heimsótt
og farið í almenna kynnisferð um
bæinn. Þá mun vera möguleiki á að
leigja göngu- og svigskíði á hótel
Angmassalik ásamt snjósleðum.
Flugfélög
tyna
töskum
Margir hafa orðið fyrir þeirri
óþægilegu reynslu að farangur
þeirra skilar sér ekki að loknu
flugi. Samkvæmt könnun sem var
gerð í Bandaríkjunum á síöasta ári
þá töpuðust 224 þúsund töskur í
bandarískum flughöfnum i ágúst-
mánuði síðastliönum. Tölur um
týndar töskur hafa farið hækkandi
síðustu ár en þetta þýðir að fimm
töskur týndust á hveija þúsund
farþega. Flugfélögin bera oftast
sökina algerlega en nú hafa mörg
félög sent út skilaboð til farþega
um að merkja töskur sínar betur.
Opib
surmudaginn
15. febrúar
ki 13,00-16.00
í Abalstrœti 9.
Komdu og íáðu
bækling!
BpíSll