Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Síða 43
JLlV LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
Stórbætt aðstaða til inniæfinga hjá Golfklúbbi Reykjavíkur:
trímm 5>
Kemur í góiar þarfir árífl um kring
- segir Sigurður Pétursson golfkennari
Félagsmenn í Golíklúbbi
Reykjavíkur eru nú tíðir gestir á
Korpúlfsstöðum þvi fyrir um hálf-
um mánuði síðan var opnuð þar
ný og glæsileg aðstaða til inniæf-
inga. Opið er til æfínga fyrir golfá-
hugamenn frá klukkan 9-22 alla
virka daga vikunnar og frá 10-18
um helgar.
„Það er rúmur hálfur mánuður
siðan inniaðstaðan var formlega
tekin í gagnið. Svæði til æfinga er
á rúmum 400 fermetrum á annarri
■
21. mars:
Flóahlaup
UMF Samhygflar
Hlaupið hefst klukkan 14 við
Félagslund, Gaulverjahreppi.
Vegalengdir eru 3 km, 5 km og
10 km með tímatöku. Flokka-
i skipting, bæði kyn. Verðlaun
fyrir þrjá fyrstu í hverjum
flokki. Upplýsingar gefur Mark-
I ús ívarsson í síma 486 3318.
23. apríl:
Víflavangshlaup IR
Hlaupið hefst klukkan 13 við
j Ráðhús Reykjavíkur. Vegalengd
er 5 km með tímatöku. Flokka-
skipting, bæði kyn. Keppnis-
j flokkar í sveitakeppni eru
| íþróttafélög, skokkklúbbar og
opinn flokkm-. Allir sem ljúka
keppni fá verðlaunapening.
Verðlaun fyrir fyrsta sæti í
| hverjum aldursflokki. Boðið
j verður upp á kaffihlaðborð eftir
; hlaup. Skráning í Ráðhúsinu frá
klukkan 11. Upplýsingar gefa
j Kjartan Ámason í síma 587
2361, Hafsteinn Óskarsson s. 557
’ 2373 og Gunnar Páll Jóakimsson
j; S. 565 6228.
23. apríl:
Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar
Hlaupið hefst á Víðistaðatúni
| í Hafnarflrði. Vegalengdir eru 1
km, 1,4 km og 2 km með tíma-
töku og flokkaskiptingu, bæði
kyn. Sigurvegari í hverjum
flokki fær farandbikar. Upplýs-
ingar gefúr Sigurður Haralds-
: son í sima 565 1114.
i
Apríl:
Víðavangshlaup Vöku
Upplýsingar um hlaupið gef-
I ur Aðalsteinn Sveinsson í síma
I 486 3304.
23. apríl:
Víðavangshlaup
Skeiðamanna
Upplýsingar gefur Valgerður
Auðunsdóttir í síma 486 5530.
$6. apríl:
ísfuglshlaup UMFA
Hlaupið hefst við íþróttahúsið
aö Varmá, Mosfeflsbæ. Skrán-
j ing og búningsaðstaða við sund-
j laug Varmár frá kl. 9.30. Vega-
s lengdir 3 km án tímatöku (hefst
j klukkan 13) og 8 km með tíma-
töku og sveitakeppni (hefst kl.
12.45). Sveitakeppni: Opinn
j flokkur, 3 eða 5 í hverri sveit.
j AOir sem ljúka keppni fá verð-
‘ launapening. Útdráttarverð-
; laun. Upplýsingar gefur Kristín
Siguröur Pétursson, golfkennari hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, leiöbeinir Jenettu Báröardóttur í upphafshöggunum.
DV-mynd ÞÖK
með aðstöðuna nýju. „Veturinn er
búinn að vera svo mfldur að það
eru ekki nema tvær vikur síðan
við hættum að geta spilað utan-
dyra. Það hentaði þvi sérstaklega
vel að geta komið hingað til æf-
inga, nú þegar ekki er lengur hægt
að spila úti.
Ég er 65 ára og ég byrjaði í golf-
inu að mig minnir á 52. aldursári.
Fram að þessu hefur maður mest
spflað bara á sumrin en nú getur
maður með þessari nýju aðstöðu
notað tímann tfl að laga sig og afl-
ar vitleysumar sem komnar eru í
mann, áður en vorar aftur. Korp-
úlfsstaðir eru einnig sérstaklega
skemmtilegir, það fylgir sál þessu
húsi. Gamli Thor Jensen svífur
hér yfir vötnunum," sagði Ríkarð-
ur.
Fullkominn golfhermir
Á Korpúlfsstöðum er einnig sér-
lega fullkominn golfhermir sem
nýtur mikilla vinsælda og er yfir-
leitt upppantaður frá klukkan 16 á
daginn. „Þegar kúlan er slegin í
golfherminum fer hún í gegnum
þrjá skynjara sem meta fjarlægð,
hraða, stefnu og snúning golfkúl-
unnar. Myndin er sérlega skýr og
hæð Korpúlfsstaða og annað eins
pláss niðri fyrir aðra starfsemi
klúbbsins," sagði Sigurður Péturs-
son, golfkennari hjá GR.
„Síðan við opnuðum hérna hef-
ur aðsókn félagsmanna aukist
jafnt og þétt, þrátt fyrir að þetta sé
rólegasti tími ársins fyrir golfara.
Það gefur augaleið að aðstaðan er
bylting fyrir félagsmenn sem geta
lítið æft þegar vetur ríkir ut-
andyra. Þessi góða aðstaða á
einnig eftir að koma í góðar þarfir
á öðrum tímum ársins, jafnvel að
sumarlagi. Veður getur oft verið
hundleiðinlegt á sumrin og þá er
einfalt mál að skeOa sér hingað
inn og æfa sig í púttinu eða upp-
hafshöggin.
Allir félagsmenn Golfklúbbs
Reykjavíkur geta komið hérna og
æft sig þegar þeir vilja og einnig
fengið leiðsögn ef þeir það kjósa.
Að sjálfsögðu geta aðrir en félags-
menn einnig komið hingað og æft
Nýja inniaöstaðan er á rúmlega 400 fermetra gólffleti á annarri hæö Korp-
úlfsstaöa og er sérlega glæsileg.
gegn vægu gjaldi þó aö þetta sé
fyrst og fremst hugsað fyrir félags-
menn klúbbsins. Golfurum frá
öðrum klúbbum er velkomið að
koma hingað tO æfinga.
Mikið starf liggur að baki þess-
ari nýju aðstöðu. Ekki er langt síð-
an hér voru gamlir súrheysturnar
og augljóst því að mikfl breyting
hefur orðið á. Við erum með leigu-
samning við Reykjavíkurborg um
aðstöðu hérna en Korpúlfsstaðir
Umsjón
ísak Öm Sigurðsson
eru i eigu borgarinnar," sagði Sig-
urður.
Byrjuðu í síðustu viku
„Eg og systir mín, Jóhanna, vor-
Ríkaröur Pálsson sýndi glæsitakta í upphafshöggunum og var ekkert síöri í
púttæfingunum.
um nú bara að byrja í golfinu í síð-
ustu viku,“ sagði Jenetta Bárðar-
dóttir, sem var að fá leiðsögn hjá
Sigurði Péturssyni í upphafshögg-
unum. „Mér finnst það alveg æðis-
legt að geta komið hingað og æft
innandyra á vetuma. Þó að stutt
sé síðan við byrjuðum er tilhlökk-
unin strax orðin mikfl að geta far-
ið að spila golf í sumar. Nýja að-
staðan hérna á Korpúlfsstöðum
gerir það að verkum að maður get-
ur æft sig í grundvaflaratriðunum
áður en farið er út á flatirnar,"
sagði Jenetta.
Ríkarður Pálsson mætti á æf-
ingu klukkan 15 síðastliðinn
þriðjudag og brá sér beint á pútt-
vöUinn. Þar er púttað á 9 holum og
Ríkarður gerði sér lítið fyrir og fór
holu í höggi á 7 þeirra. „Þetta er
ekki amaleg byrjun hjá manni, en
það gengur ekki áUtaf svona vel.“
Ríkarður var sérstaklega ánægður
skemmtileg og golfarinn fær það á
tilfinninguna að hann sé staddur
úti á veOinum.
Ýmislegt annað hjálpar þar til.
Tfl dæmis þegar maður hittir í
holuna heyrist klapp frá áhorfend-
um. Ef slegið er út úr braut getur
verið að maður hitti óvart í golf-
bíl, áhorfanda eða tré og heyrast
þá viðeigandi hljóð, alveg eins og
þegar spflað er í raunveruleikan-
um. Það gefur leiknum óneitan-
lega aukna tilfinningu," sagði Sig-
urður.
„Ég brá mér í golfhermi í Lech í
Austurríki nýverið þegar ég var
þar á skíðum en þrátt fyrir að það
væri skemmtilegt þá stóðst golf-
hermirinn þar ekki samanburð
við þann sem við höfum héma á
Korpúlfsstöðum," sagði Ríkarður.
-ÍS