Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Síða 50
s, myndbönd
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 JL? V
að leikstýra Speed’ og tókst með
sinni fyrstu mynd að komast í röð
fremstu hasarmyndaleikstjóra
Hollywood. Hann fylgdi henni eft-
ir með tæknibrelluþrekvirkinu
Twister, sem halaði inn meira
en 460 milljónir dollara á
heimsvísu. Speed 2: Cruise
Control er þriðja mynd-
in hans. PJ
Speed 2: Cruise Control
Árið 1994 leit dagsins ljós hasarmynd með
tveimur tiltölulega lítið þekktum leikurum í
aðalhlutverkum og leikstjóra sem var að leik-
stýra sinni fyrstu mynd. Myndin hét Speed og
öllum að óvörum sló hún hressilega í gegn,
tryggði leikstjóranum Jan De Bont frægð og
frama og gerði stórstjörnur úr aðalleikurun-
um Sandra Bullock og
Keanu Reeves. Sandra
Bullock endurtekur
hlutverk sitt í Speed 2:
Cruise Control, en í stað
Keanu Reeves kemur
Jason Patrick.
Afslappaður
unnusti
Skemmtiferöaskipiö
krafti inn á aöalgötu
Speed 2: Cruise
Control hefst þar sem
Annie Porter (Sandra
Bullock) er að taka öku-
prófið aftur, en eins og
áhorfendur fyrri mynd-
arinnar muna hafði hún
misst ökuskírteinið
vegna hraðaksturs.
Ekki virðist hún hafa
lært mikið af þeirri
reynslu og á meðan hún
þeysir um stræti Los
Angeles segir hún skelf-
ingu lostnum prófdóm-
-aranum frá nýja kærast-
anum sínum, Alex (Ja-
son Patrick). Hún segist
nú hafa fundið heppilegan félaga, því öfugt við
fyrrverandi kærasta hennar sé Alex rólegur
og afslappaður, sem sé einmitt það sem hún
þarfnast. Á sömu stundu þeysir nefndur Alex
á ofsahraða á mótorhjóli. Hann er í raun í úr-
valssveit lögreglunnar og er að veita glæpa-
mönnum eftirför, sem endar með því að
glæpamennimi'r og mótorhjólið liggja í valn-
um, en þar sem hann stendur upp og dustar af
sér mölina kemur Annie að slysstaðnum.
Hann útskýrir fyrir henni að hann hafi logið
til um starf sitt af ótta við að missa hana. Til
að bæta fyrir óheiðarleikann býður hann
henni í skemmtisiglingu á lúxussnekkju í
Karíbahafinu. Þar tekur ekki betra við, því að
tölvusnillingurinn John Geiger (Willem Da-
foe) nær valdi á skipinu og hyggst tortíma því
með öllum farþegum innanborðs. Og þá kem-
ur að góðum notum reynsla þeirra skötu-
hjúanna í háspennuhasar.
Stjörnurnar
Sandra Bullock komst í hóp stórstjama með
leik sínum í Speed og hefur fylgt þeirri mynd
vel eftir með hlutverkum í
While You Were Sleeping,
The Net, A Time to Kill og
Love and War. Þá eigum
við eftir að sjá hana í
Hope Floats og heyra í
henni 1 Disney-teikni-
myndinni The Prince of
Egypt. Meðal eldri mynda
hennar eru Demolition
Man, Wrestling Emest
Hemingway, The Vanis-
hing og The Thing Called
Love.
Jason Patrick kom fyrst
fram á sjónarsviðið í
blóðsugumyndinni The
Lost Boys og lék því næst
í stríðsmyndinni The Be-
ast. Fyrir frammistöðu
sína í After Dark My
Sweet og Rush hlaut hann
mikið lof gagnrýnenda.
Næstu myndir hans voru
Geronimo: An American
Legend og The Joumey of
siglir af fullum August King, en næst á
bæjarins. undan Speed 2 lék hann í
stórmyndinni Sleepers.
Willem Dafoe, sem sást siðast í The English
Patient, hóf feril sinn árið 1982 í The Loveless.
Hann var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir
leik sinn í Platoon og hefur unnið með mörg-
um af virtustu leikstjórum samtímans, þ.á.m.
með Martin Scorsese í The Last Temptation of
Christ, Alan Parker í Mississippi Burning, Oli-
ver Stone í Platoon og Born on the Fourth of
July og David Lynch í Wild at Heart. Meðal
annarra mynda hans era The Hunger, Clear
and Present Danger, Tom and Viv og Triumph
of the Spirit.
Hollendingurinn fljúgandi
Hollendingurinn Jan De Bont var einn af
eftirsóttustu kvikmyndatökumönnum í
Hollywood áður en hann sneri sér að leik-
stjóm. Áður en
hann kom til
Hollywood
var hann I
nánu sam-
starfi með
Paul Ver-
hoeven og
stjómaði
fyrir hann
kvik-
myndatöku
í myndunum
Strictly
Business, Turk
ish Delight, Keetje
Tippel og The Fourth
Man. Þeir héldu síðan
samstarfinu áfram
vestanhafs í myndun-
um Flesh and Blood
og Basic Instinct.
Jan De Bont varð
fljótt mjög eftirsótt-
ur og stjómaði kvik-
myndatöku í fjölmörg-
um myndum, þ.á.m. Die
Hard og Lethal Weapon
3, áður en honum bauðst
Sandra Bullock leikur
Annie Porter öðru sinni.
#
UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Ásdís Halla Bragadóttir:
Secret and
„Sú mynd sem
kemur fyrst upp
í hugann hjá mér er
Secret and Lies. Mér
fannst hún æðisleg.
Stundin sem fór í að horfa á hana
er sú notalegasta fyrir framan
sjónvarp sem ég hef átt á undan-
fórnum mánuðum. Maðurinn
minn horfði á hana með mér og
honum þótti hún líka góð.
Kannski var hann samt ekki al-
veg eins heillaður og ég en það
er ekki að marka af því að ég
hef tilhneigingu til að verða
mjög hrærð og tilfinninga-
næm yfir myndum. Ég
verð að játa að ég
horfi töluvert
mikið á mynd-
bönd núorðið.
Síðan ég eign-
aðist barn hef
ég nefnilega ,
misst af flest-
um mynd-
um í bíó
sem mig
langar til
að sjá og
sé þær
ekki fyrr en
þær
era
komnar á myndbönd.
Þegar ég var lítil stóð
söngmyndin Grease
lengi upp úr. Ég sá
hana fyrst þegar ég var tíu ára
og hún var fyrsta myndin sem
bókstaflega tók mig
alveg með sér.
Mér fannst
hún rosaleg.
Mig
dreymdi
alltaf um
að klæða
mig eins
og krakk-
arnir í
myndinni
og syngja
lögin en var
eitthvað lít-
il í mér og
hafði
aldrei
kjark til
þess.“
-ilk
Papertrail
Papertrail er spennumynd um rann-
sóknarlögreglumanninn Enola sem hefur
í tíu ár verið á slóð morðingja sem þekkt-
ur er undir nafninu Einn. Rannsókn
þessi hefur haft þau áhrif á Enola að
hann getur varla á sér heilum tekið fyrr
en hann hefur
haft upp á morð-
ingjanum. Tilefn-
in til að nálgast
hann hafa verið fá
þar sem Einn er
mjög snjall og
hingaö til hefur
hann ekki gert
nein mistök og
aldrei skiliö eftir
sig nein spor. Það
eina sem bendir
til að þaö sé einn
og sami maðpurinn sem ber ábyrgð á
mörgum morðum er að hann skilur
ávallt eftir miða á fórnarlömbum sínum
sem hann setur í munn þeirra. Eitt eiga
fórnarlömbin sameiginlegt, þau eru öll
að einhverju leyti tengd sálfræðingnum
Elizabeth Robertson. Af mikilli þrjósku
heldur Enola áfram leit sinni að morð-
ingjanum. Að lokum telur hann sig hafa
komist að því að lokatakmark morðingj-
ans sé að myrða sálfræðinginn. Honum
tekst illa að sannfæra Elizabeth um
þetta, sérstaklega þar sem hún er farin -
að halda að Enola sé morðinginn.
Með aðalhlutverkin fara Chris Penn
og Michael Madsen.
Bergvík gefur Papertrail út og er
hún bönnuð börnum innan 16 ára.
Útgáfudagur er 17. febrúar.
Ridicule
Ridicule er frönsk kvikmynd sem á
undanförnum misserum hefur verið
verðlaunuð í bak og fyrir, meðal annars
hlaut hún bresku BAFTA-verölaunin
sem besta erlenda kvikmyndin og var til-
nefnd til óskarsverðlauna. Ridicule þýðir
háð og má segja
að nafnið passi
ágætlega við
myndina, sem
flallar um þá list
að gera lítið úr
fólki, sá sem best-
ur er i þvi er í
náðinni.
Ridicule gerist
i upphafi frönsku
byltingarinnar.
Hugsjónamikill
aðalsmaðm: held-
ur til Versala í því skyni aö biðja um
fjárhagsaðstoð. En til að fá áheyrn hjá
kóngi nægir ekki að panta viðtal, það
þarf að fara aðrar og flóknari leiðir. Þeir
verða hreinlega að vekja á sér þá eftir-
tekt að hirðin óski nærveru þeirra. Og sú
eftirtekt er ekki síst falin i orðheppni
einstaklingsins. Sá sem á auðveldast með
að svara fyrir sig og gera grín að náung-
anum er eftirsóttur, hann þarf bara að
passa sig á að móðga ekki kónginn.
Með aðalhlutverkin fara Charles Berl-
ing, Jean Rochefort og Fanny Ardant.
Leikstjóri er Patrice Laconte.
Háskölabíó gefur út Ridicule og er
hún leyfð cllum aldurshópum. Út-
gáfudagur er 17. febrúar.
Prefontaine
Sjálfsagt eru það margir sem fylgst
hafa með frjálsum íþróttum í gegnum tíð-
ina sem muna eftir langhlauparanum
Steve Prefontaine, sem sló öll landsmet
Bandaríkjanna í lengri vegalengdum og
var hápunkturinn á ferli hans þátttaka í
Ólympíuleikun-
um áriö 1972 þar
sem hann var
framarlega í þeim
greinum sem
hann tók þátt i.
Það var því mikið
reiðarslag þegar
Steve Prefontaine
lést i bílslysi árið
1974, aðeins 24 ára
að aldri.
Prefontaine
byggir á lífl þessa
íþróttakappa og hefur kvikmyndin feng-
ið ágæta dóma. Þykir hafa tekist aö gera
trúverðuga mynd af lífl íþróttamannsins
sem var frá blautu barnsbeini ákveðinn i
að verða sá besti i hverju sem hann tæki
sér fyrir hendur. Með titilhlutverkið fer
Jared Leto. Meðleikarar hans eru R. Lee
Emery og Ed O’Neill. Leikstjóri er Steve
James.
Sam-myndbönd gefa Prefontaine
út og er hún leyfð öllum aldurshóp-
um. Útgáfudagur 19. er febrúar.