Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 28. MARS 1998
Laxness að þakka!
Raymond sagðist hafa sagt það
við vini sína að hann ætlaði að
halda upp á fimmtugsaftnælið sitt
með þeim hætti að hann myndi
aldrei gleyma þeirri stund. Finna til
þess eins óvenjulegan stað og hann
gæti.
„Það voru einkum tvær ástæður
fyrir því að ég valdi ísland. Ég
hafði lesið mjög jákvæða gagnrýni
Forráöamenn veitingastaðarins
Jónatan Livingstone Mávur voru
svo huggulegir í sér aö senda Rolls
Royce eftir afmælisbörnunum. Eins
og sönnum herramanni sæmir opn-
aöi Raymond dyrnar fyrir Bryndísi.
• DV-mynd S
í dagblaði um skáldsögu Halldórs
Laxness, Sjálfstætt fólk, og mér
hafði verið' gefm bók af fyrstu út-
gáfu sögunnar árið 1946, sama ár
og ég fæddist. Ég sagði vinum mín-
um frá þessu og þeir stungu upp á
því að ég færi til íslands. Það var
auðvitað málið og ég bókaði far til
íslands," sagði Raymond sem
þekkti engan héma þegar hann
kom og fyrir hreina tilviljun valdi
hann Café Óperu til að halda upp á
afmæli sitt.
Hann sagði það skemmtilega við
þetta kvöld var að konurnar sem
sátu til borðs með Bryndísi hefðu
ekki trúað því að hann væri líka
fimmtugur. Hann hefði þurft að
draga upp vegabréfið og ökuskír-
teinið til að sanna mál sitt!
„Það gekk eftir að þetta varð eft-
irminnilegasta afmæli mitt,“ sagöi
Raymond en eins og áður sagði er
hann lögmaður frá Los Angeles en í
fyrra var hann skipaður dómari í
einkamálarétti.
ísland eftirminnilegast
Raymond vitnaði að lokum í rit-
höfundinn Willam Summerset
Vaughan sem hefði sagt að þú gætir
farið til fegurstu staða heims en það
væri fólkið sem þú hittir sem gerði
staðina eftirminnilega, ekki staðirn-
ir sjálfir.
„Ég hef ferðast víða um heim og
get virkilega tekið undir þessi orð
Vaughans. ísland er eftirminnileg-
asta landið sem ég hef heimsótt.
Það gerir fólkið sem ég hef kynnst
hér.“
-bjb
Þaö geröist fyrir tveimur árum, þann 26. mars 1996, að Bryn-
dís Friöþjófsdóttir snyrtifræðingur var stödd á Café Óperu
ásamt vinum og œttingjum aö halda upp á fimmtugsafmœli
sitt. Skyndilega kom þjónn meö stóra kampavínsflösku á
borðiö sem hann sagði vera ,frá manni úti í sal“, eins og
hann oröaöi það. Bryndís varö skiljanlega forvitin, svo ekki
sé minnst á boröfélaga hennar, og manninum var boöiö til
borösins. Þá kom í Ijós aö hann var einnig að halda upp á
sitt fimmtugsafmœli 26. mars, einn og yfirgefinn, kominn
alla leiöina frá vesturströnd Bandaríkjanna. Þetta var hann
Raymond Correio, lögmaöur frá Los Angeles.
Upp frá þessari skemmtilegu
uppákomu hafa Bryndís og
Raymond haldið góðum vinskap,
skipst á gjöfum og bréfum. Síðan
gerðist það núna í vikunni að
Raymond gerði sér lítið fyrir og
skellti sér til íslands til að halda
upp á 52 ára afmælið með Bryndísi.
Þau fóru út að borða á Jónatan
Livingstone Mávi á afmælisdaginn
og eins og meðfylgjandi mynd ber
með sér var þeim ekið á staðinn í
Rolls Royce, hvorki meira né
minna, í boði veitingahússins.
Skömmu seinna komu nokkrir vin-
ir og ættingjar Bryndísar til að sam-
fagna þeim yfir dýrindis málsverði.
Kvöldstundin heppnaðist í alla staði
mjög vel.
Bryndis, sem rekur Snyrtivöru-
verslunina Nönu í Hólagarði, sagði
í samtédi við helgarblaðið að fimm-
tugsafmælið hefði verið „algjört
surprise" og enn skemmtilegra
hefði verið að Raymond ákvað að
koma aftur tveimur árum seinna.
Það væri ekkert annað en einstök
tilviljun að tvær persónur frá
tveimur heimshomum, sem ættu
sama afmælisdag, kæmu saman á
litlu veitingahúsi, og það á fimm-
tugsafmælinu af öllum tímamótum,
á þriðjudagskvöldi í þokkabót!
Áöur en afmælisbörnin settust að snæðingi á fimmtudagskvöldiö meö vinum og ættingjum Bryndísar var þessi
skemmtilega mynd tekin. Raymond og Bryndís eru meö Elísabetu, 5 ára dótturdóttur hennar, á milli sín og fyrir aft-
an þau er Hanna Maja föröunardama og dóttir Bryndísar. DV-mynd Hilmar Þór
Vinskapur tveggja fimmtugra afmælisbarna komst á með skemmtilegum hætti:
Einstakar tilviljanir
i
í
1
FRABÆRT URVAL
i