Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Page 26
26
LAUGARDAGUR 28; MARS 1998
%ig!ingar
Skagfirskum og húnvetnskum unglingum stefnt í Fálagsheimilið Höfðaborg á Hofsósi:
Dúndurball með Greifunum
DV. Sauðáikróki:
„Við fáum sjálf ákaflega mikið út
úr því að vinna
með krökkunum.
Þau eru mjög já-
kvæð og dugleg og
vilja mikið á sig
leggja. Foreldram-
ir eru líka alltaf
tilbúnir að aðstoða
og allt leggst þetta
á eitt um að gera
starfíð sem
ánægjulegast,"
segir Hlín Bolla-
dóttir, kennari og
tómstundafulltrúi
Hofshrepps í
Skagafirði, en fé-
lagsstarfið í Grunnskólanum á Hofs-
ósi hefur verið einstaklega blómlegt
í vetur. Hápunkturinn var á dögun-
um þegar þangað var stefnt nemend-
um í 8 - 10. bekk flestra grunnskóla
kjördæmisins á stórdansleik með
Greifunum í
Félagsheim-
ilið Höfða-
Hann sveiflaði sér með tilþrifum
þessi ungi herramaður.
komnir á dúndurballi.
Sú var tíðin að haldnir voru fjöl-
mennir unglingadansleikir í Sælu-
vikunni á Króknum
og stemningin þar
var víst oft góð. Það
er löngu liðin tíð og
dansleikirnir liðnir
undir lok.
Það hefur ekki
gerst áður að
grunnskólanemum
í öllu kjördæminu,
Norðurlandi vestra,
væri boðið til dans-
leiks í héraðinu.
Hlín var spurð
hvemig hugmyndin
hefði orðið til:
borg á Hofs-
ósi. Þarna
voru vel á
þriðja hund-
rað manns
saman
Eins og hver
önnur hugdetta
„Þetta var eins og hver önnur
hugdetta og þegar við fengum ágæt-
ar undirtektir hjá mörgum aðilum
var ekki um annað að
ræða en fylgja þvf
eftir. Krakkarnir
urðu mjög spenntir
fyrir þessu og við
fengum stuðning
frá sveitarfélögum,
fyrirtækjum og
fólkinu hér á
Hofsósi sem
lagði
fram
Hlín Bolladóttir og eiginmaöur hennar, Egill Örn Arnarson, áttu heiöurinn að
undirbúningi dansleiksins ásamt fjölda annarra aöila. DV-myndir Þórhallur
vinnu sína endurgjaldslaust. Sér-
staklega er það matráðskonan,
Brynhildur Bjarkadóttir, og aðrir
foreldrar sem eiga þakkir skildar.
Okkur tókst að afla það mikils
stuðnings við þetta uppátæki að það
stendur undir sér.
Hlín naut ómældrar aðstoðar eig-
inmanns sins, Egils Arnar Arnar-
sonar, sem tekur hefur á sig að
hiuta starf tómstundafulltrúans.
„Það kemur sér vel þegar ég er
bundin í kennslunni að hann getur
hlaupið í skarðið þar sem hann er
með sjálfstæðan atvinnurekstur og
hefur því sveigjanlegan vinnutíma,"
sagði Hlín.
Það var mikið stuð i Höfðaborg
hjá Greifunum og i pásunni fengu
krakkamir léttar veitingar - gos-
drykki og meðlæti - og að sjálfsögðu
var hér um algjöra bindindissam-
komu að ræða. Þá var einnig efnt til
happdrættis þar sem dregnir voru
út veglegir vinningar. -ÞÁ
Unglingar hvaöanæva frá Norðurlandi vestra voru saman komnir á dans-
leiknum og dönsuöu af innlifun undir dúndrandi takti Greifanna.
hinhliðin
Lilja Rós Jóhannesdóttir, fslandsmeistari í einliðaleik kvenna í borðtennis í annað sinn:
Leonardo DiCaprio sætastur
Lilja Rós Jóhannesdóttir í Vfkingi er Islandsmeistarinn í einliöaleik
kvenna í borðtennis 1998. Hér er hún með verölaunin ásamt fööur sínum,
Jóhannesi Atlasyni. DV-mynd Pjetur
„Ég var mjög glöð að þetta var
búið, sérstaklega þar sem ég bjóst
ekki við að vinna. Þegar ég komst
betur inn í leikinn sá ég góða
möguleika á sigri,“ segir Lilja Rós
Jóhannesdóttir sem varð Islands-
meistari í einliðaleik kvenna í
borðtennis um síðustu helgi, í
annaö sinn á ferlinum. Hún haíði
betur í viðureign við vinkonu
sina, Evu Jósteinsdóttur, en þær
hafa skipst á að sigra sl. fjögur ár.
Síðan léku þær saman í tvíliðaleik
og höfðu sigur þar.
Lilja Rós hefur æft borðtennis
hjá Víkingi frá þvi hún var 14 ára.
Fram að þeim tíma hafði hún ekki
æft aðrar íþróttagreinar af kappi
heldur aðaUega stundað dans og
lært á píanó. Síðan gerðist það aö
henni og nokkrum vinkonum
hennar datt í huga að fara aö æfa
borðtennis. Þær höfðu leikið sér í
borðtennis i skólanum og fannst
kominn tími til að læra meira um
íþróttina. Lilja segist ætla að
halda áfram aö æfa borðtennis en
nú taki hún sér smá pásu vegna
stúdentsprófa.
-bjb
MMHM&Omæ-v:.'. '~nffflTT
Fullt nafn: Lilja Rós Jóhannes-
dóttir.
Fæðingardagur og ár: 17. októ-
ber 1978.
Kærasti: Grímur Jónsson.
Börn: Engin.
Bifreið: Ford Fiesta, árgerð 1984.
Starf: Nemi í MR og klára eðlis-
fræðibraut n í vor. Með náminu
vinn ég í sjoppu.
Laun: Ekki há.
Hefurðu unnið í happdrætti
eða lottói? Ekki oft, einstaka 50
kr. í happaþrennu.
Hvað flnnst þér skemmtileg-
ast að gera? Sofa og horfa á góða
bíómynd.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Vera í skólanum á leiöin-
legum degi.
Uppáhaldsmatur: Kjúklingur-
inn hennar mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Sódavatn,
t.d. Egils kristall.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstm- í dag? Michael Jordan.
Uppáhaldstímarit: Stelputíma-
ritið Sugar.
Hver er fallegasti karl sem þú
hefur séð, fyrir utan kærast-
ann? Leonardo DiCaprio.
Ertu hlynnt eða andvíg
ríkisstjórninni? Hef enga
skoðun á henni.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Myndi vilja
hitta Boris Jeltsín.
Uppáhaldsleikari: Leonardo
DiCaprio.
Uppáhaldsleikkona: Helen Hunt.
Uppáhaldssöngvari: David
Bowie.
Uppáhaldsstjórnmálamaðui"
Mér fannst Jón Baldvin alltaf
skemmtilegur.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Grettir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fóst-
bræður á Stöð 2 og Leiðarljós í
Sjónvarpinu.
Uppáhaldsmatsölustaður:
Subway.
Hvaða bók langar þig mest til
að lesa? Meistarinn og Margarita
e. Michael Bulgakov.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? X-ið.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Tví-
höfði á X-inu.
Hverja sjónvarpsstöðina horf-
ir þú mest á? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Enginn sérstakur, allir frekar
óspennandi.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
Borðtennisdeild Víkings.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Reyna að
komast ágætlega af i lifrnu. Ég hef
gefið atvinnumannsdraum í borö-
tennis upp á bátinn.
Hvað ætlar þú að gera í sum-
arfríinu? Vinna mér inn pening
svo ég komist kannski út næsta
haust. Mig langar að læra þýsku,
t.d. í Austurríki.