Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Page 6
6 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 Stuttar fréttir Schengen samþykkt Sænska þingið samþykkti Schengensamkomulagið um opin landamæri ESB á fimmtudag, þrátt fyrir viðvaranir um að það kallaði á aukið innra eftirlit í landinu. Ráðist á Díönu Hópur hægrisinnaðra háskóla- manna veittist harkalega að Díönu prinsessu í nýrri bók sem kom út í Bret- landi í gær. Díana var sök- uð um að skaða konungsfjöl- skylduna með þráhyggjupersónu- leika sínum og að hafa orðið kveikjan aö tilfmningaflóði um allt land. Refsið foreldrunum Tveir franskir þingmenn hafa lagt til að foreldrum ungra brota- manna verði refsaö ef í ljós kem- ur að þeir hafi ekki veitt bömum sínum nægilega umönnun og eft- irlit. Vopnahlé talebana Bill Richardson, sendimaður Bandarikjastjómar, sagði eftir meira en tveggja tíma viöræöur við leiðtoga talebanahreyfingar- innar í Afganistan að þeir ætluðu að lýsa yfir einhliða vopnahléi þar til friðarviðræður hefjast. Konur æstar í frí Konur, sem starfa fyrir hið op- inbera í Danmörku, em mjög iðnar við að nýta sér endur- menntunarfrí sem þær eiga rétt á, lögum samkvæmt. Löggan lýgur Lögregla á þremur stöðum í Danmörku hefur logið til um misnotkun á leynilegum skrám til að njósna um fortíð íhalds- mannsins Pers Stigs Mollers. Evran í Finnlandi Finnska þingið samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í gær að Finnland tæki þátt í sameiginlegu myntkerfi Evrópu- sambandsins frá 1. janúar 1999. Óánægöir seljendur Færeyskir fiskútflytjendur era svo óánægðir með þjónustuna sem þeir fá hjá skipafélögtmum sem þeir skipta við að þeir íhuga að stofna sitt eigið. Ciller rannsökuð Tyrkneska þingið hefur sam- þykkt með miklum meiri- hluta að láta rannsaka tilurð persónulegra auðæfa Tansu Ciller, fyrrver- andi forsætis- ráðherra Tyrk- lands, og eiginmanns hennar. Methagnaður Methagnaður varð í rekstri danska stórfyrirtækisins A.P. Moller á síðasta ári, rúmir 26 milljarðar íslenskra króna. Rekstur fyrirtækisins hefur gengið mjög vel undanfarin ár en ekki er búist við að umsvifin haldi áfram að vaxa heldur dragi úr þeim á þessu ári. Ástæðumar eru einkum lágt olíu- verð og ótryggt efnahagsástand í Aust- urlöndum fjær. A.P. Moller stundar margþættan rekstur. Skipaútgerð er umfangsmest einstakra rekstrargreina, bæði útgerð olíuskipa, gámaskipa, gasflutninga- skipa og flugrekstur, en hvort tveggja fer fram undir merkjum Maersk. Enn fremur vinnur fyrirtækið olíu í Norð- ursjónum. Stjómendur fyrirtækisins telja að árangurinn á árinu sé sam- kvæmt áætlunum en búast við mjög harðnandi samkeppni í kaupskipaút- gerð sem til viðbótar við óvissu í efna- hagsmálum iðnríkja Asíu og mikla end- umýjun kaupskipaflota Maersk muni skila sér í verri afkomu á þessu ári. Rússlandsþing hafnaði Kíríjenkó öðru sinni: Lokauppgjörið eftir eina viku Borís Jeltsín Rússlandsforseti var ekki seinn á sér að tilnefna Sergei Kíríjenkó þriðja sinni í embætti for- sætisráðherra eftir að Dúman, neðri deild rússneska þingsins, hafnaði honum öðra sinni eftir fjögurra klukkutíma umræður og þref. Stjómarandstæðingar með komm- únista í broddi fylkingar ráða lög- um og lofum í þingdeildinni. Allt bendir því til að lokauppgjör- ið milli Dúmunnar og forsetans fari fram að viku liðinni. Gennadí Sefezníjov, forseti Dúmunnar, sagði eftir atkvæða- greiðsluna að hann byggist við að þingmenn myndu leggja blessun sína yfir skipan hins 35 ára gamla Kíríjenkós í embættið í næstu viku. Annars kveður stjórnarskráin svo á um að forsetinn leysi þingið upp og boði til nýrra kosninga. Það vilja þingmenn hins vegar ekki. Kírijenkó lét úrslit atkvæða- greiðslunnar ekkert á sig fá. Hann sagðist ekki mundu karpa við þing- menn til að vinna þá á sitt band. „Þeir eru bara að reyna aftur að knésetja mig,“ sagði Kíríjenkó við fréttamenn. „Þeir greiða mér kannski ekki atkvæði. Mér er alveg sama en ég get ekki gert róttækar breytingar." Alls greiddi 271 þingmaður at- kvæöi gegn Kíríjenkó en 115 með. Ellefu þingmenn sátu hjá. Atkvæða- greiðslan fór fram með nafnakalli og því voru færri þingmenn en sið- ast til i að hunsa flokkslínuna. Jeltsín fylgdist með framvind- unni frá bústað sínum í Gorki utan við Moskvu, áður en hann hélt áleiðis til Japans í opinbera heim- sókn. Hann virtist heldur ekki taka úrslitin nærri sér. Reuter í Kóreu leggja starfsmenn stórfyrirtækja ýmislegt á sig til aö efla starfsandann. Veitir sjálfsagt ekki af í þeirri efna- hagskreppu sem þar hefur ríkt. Hér synda starfsmenn og konur Hungchang-fyrirtækisins í drullunni. Stórviðburður í lífi sanntrúaðra um helgina: Líkklæði Krists til sýnis Sýning á líkklæðinu frá Torino, sem margir telja einu áþreifanlegu sönnunina um líf Krists á jörðinni en aðrir álíta fólsun frá miðöldum, verð- ur opnuð í dómkirkjunni í Torino á morgun. Líkklæðið hefur ekki verið til sýnis í tuttugu ár. Leyndardómar þess eru engu minni nú en áður. Um átta hundruð þúsund manns alls staðar að úr heiminum hafa þeg- ar pantað sér aðgöngumiða á sýning- una. Almenningur hefur aðeins þrisvar sinnum áður á þessari öld fengið tækifæri til að berja augum gult lík- klæðið sem margir telja að lík Krists hafi verið vafið inn í eftir krossfest- inguna. Líkklæðið var síðast haft til sýnis árið 1978. Sýninguna í ár ber upp á aldaraf- mæli fyrstu ljósmyndarinnar sem sýndi blóði drifna og drauglega mynd af skeggjuðum mcmni með axlarsítt hár. Líkklæðið, sem er einhver helgasti gripur kristninnar, var hætt komið í eldsvoða í dómkirkj- unni í apríl í fyrra. Það var aðeins fyrir snarræði slökkviliðsmanns að því var bjargað. Vísindamenn, sem hafa rannsakað klæðið með fullkomnustu tækni, segja það vera frá árunum 1230 tif 1390 og því folsun. Sanntrúaðir hafa þó ekki látið sannfærast. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis New York London Frankfurt CAAAA DAX-40 ouuuu /fAAAAi 4UUUU1 OAAAA zUUUU,: 6292,97 J F M A Bensin 95 okt. | io §o SSSSSn /V, 150 140 1QA XU/ Xy loU 120-. mmmmmMsam } $/í J F M A Tokyo 10A Nlkkel loU 170 160^ 1CA nUr% lou 15883,77 J F M A Bensín 98 okt. 1 OAA zuu H9BRBMRHBHI89MR 1 190 < 180 170 160 \w 150 \y 140 I : $/t J F M ; A1 Hong Kong ■HHHHUUU „ fflSS&KmBí . ísooogSST2* íoooo' ■5000011 7,7B ...A Hráolía 25 OA WKBBMl 20 < 15 1A 1U c • - c ■ WBmBmutHaS I 0 A hhhbhbh I U $/ tunna 13,81 J F M Aj r»sa Blair þakkar eiginkonunni velgengnina Cherie Blair, eiginkona Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, er svo sannarlega konan á bak við manninn, ef marka má orð hans í blaða- viðtali í gær. Þar sagði hann að Cherie væri sá „klettur sem líf hans væri reist á“ og að án henn- ar hefði hann aldrei náð frama í stjómmálunum. „Ég er ástfanginn af Cherie. Ég ber enn þannig tilfmningar til hennar," sagði Blair meðal annars í viðtali við dagblaðið Daily Mail. í viðtalinu er leitast við að skyggnast á bak viö opinbera persónu forsætisráðherrans í tilefni af því að senn er liðið ár frá því hann gjörsigraði íhalds- flokkinn í þingkosningum. Blair sagði í viðtalinu að í ríkisstjóminni réði hann ríkj- um en heima fyrir er það Cherie sem heldur honum gangandi þegar vinnan gengur nærri honum. Tony og Cherie hafa verið gift í átján ár og eiga þrjú börn. Eidesgaard fær ekki að fella stjórn Nyrups Færeyski þingmaöurinn Joannes Eidesgaard fær ekki leyfi tO að fella ríkisstjóm Pouls Nyrups Rasmussens í Danmörku vegna Færeyja- bankamálsins. Því lofaði Mimi Jakobsen, leiðtogi Mið- demókrata, í viðtali við Berl- ingske Tidende í gær. Meirihluti dönsku stjómar- innar á þingi veltur á atkvæði Eidesgaards sem er jafnaðar- maður eins og Nyrap. „Eidesgaard verður ekki þess valdandi aö boðað verði til kosninga, eins og sumir tala um. Miðdemókratar skulu sjá til þess,“ sagði Jakobsen. Lík Pots Pots brennt í nótt Lík Pols Pots, fyrrum leið- toga Rauðu kmeranna í Kambó- díu og pottsins og pönnunar á bak við útrýmingu góðs hluta kambódísku þjóðarinnar, var brennt í nótt að íslenskum tíma. Taílenski herinn sagði í gær að viö skoöun á líki Pols Pots hefði ekkert komið í ljós sem benti til að dauða hans hefði ekki borið að með eðlilegum hætti. Ekki var að sjá að neinir áverkar væru á líkinu. Aukin atvinna helsta baráttu- mál Schröders Gerhard Schröder, sem var formlega útnefndur kanslara- efni þýskra jafnaöarmanna í gær, sagöi að atvinnumálin fengju forgang í ríkisstjórn hans ef honum tækist að flæma Helmut Kohl úr emb- ætti kanslara í kosningunum í haust. „Helmut Kohl er kanslari at- vinnuleysisins," sagði Schröder á þingi jafnaöarmanna í Leipzig. Atvinnulausir í Þýska- landi voru 4,6 milljónir í síð- asta mánuði og hefur aldrei verið meira í marsmánuði frá stríðslokum. Jafnaðarmenn hafa mikiö forskot á Kristilega demókrata, flokk Kohls, í skoð- anakönnunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.