Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Page 11
DV LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 11 Bruðlað í bankanum Greinargerð Ríkisendurskoðun- ar um bruðl yfirmanna Lands- banka íslands sýnir ótrúlegan sofandahátt kerfisins. Hver einasti þeirra sjö eftirlitsaðila sem áttu að hafa vökult auga á meðferð fjármuna almennings brást með einum eða öðrum haetti. Ríkisendurskoðun stóð sig ekki. Hinn löggilti endurskoðandi sem ráðherra skipaði brást sömuleiðis. Níu manna innri eftirlitsdeild bankans reyndist haldlaus. Sjáifri bankastjórninni mistókst svo hrapallega að hún var knúin til afsagnar í heilu lagi. Bankaráðið svaf værum svefni Þymirósar og þvær hendur sínar og bankaeftirlitið kom að engu gagni. Með hliðsjón af þessu er erfltt að áfellast viðskiptaráðherrann. Formlega ber hann þó æðstu eftirlitsskylduna með bankamál- um landsmanna og áritar ársreikninga bankans. Bankalaxinn í skýrslunni kemur fram það sjónarmið að „Landsbankinn geti lagt í kostnaö vegna veiðiferöa til þess aó sýna gestrisni eöa þakklœti í því skyni aö afla, treysta eóa vióhalda viðskiptasamböndum. “ Þessar forsendur má vissulega gagnrýna. Svona aðferðir er erfitt að flokka undir annað en mútur. Það er erfltt að sættast á að undirstofnun Alþingis gefi viðskiptasiðferði af þessum toga löggilt vottorð. í skýrslunni kemur þó fram að þriðjungur af kostnaði vegna laxveiða bankans, eða alls tæpar 20 milljónir, „veröi vart rökstuddur með vísan til ofangreindra sjónarmiða..." Veiðiferðir bankastjóranna þar sem vinir og kunningjar slógust í hópinn viðgengjust hins vegar árum saman án þess að nokkur viðvönmarljós blikkuðu. Oft var þess gætt að kippa með erlendum viðskiptagesti til að skapa verjanlegt „tilefni." Að minnsta kosti einn eftirlitsaðilanna getur ekki haldið fram að honum hafi verið ókunnugt um þátttöku kunningja í slíkum ferðum. Viðskipta- ráðherra fór nefnilega sjálfur sem óbreyttur þingmaður í slíka ferð með Halldóri Guðbjarnasyni. Svimandi risna Þrátt fyrir rannsókn Ríkis- endurskoðunar vantar enn fullnægjandi skýringar á risnu- útgjöldum tveggja bankastjóra fyrir fast að fimm milljónum króna. Óskýrð risna annarra starfs- manna nemur hátt í hálfri milljón. Svör þeirra bentu einnig til að úttektir á mat og áfengi hafi stundum verið samþykktar af starfsmönnum, og ekki komið fram í risnukostnaði banka- stjóranna sjálfra. Skýringar á því sem Ríkisendurskoðun kallar „kostn- aðartilefni" bankastjóranna eru „í flestum tilvikum allsendis ófullnœgjandi“ og greiðslur fóru fram á grundvelli skjala sem ekki gátu talist fullgildir reikningar. Iðulega skorti „aö gerö hafi veriö grein fyrir tilefni útgjalda og/eóa hverjir hafi notiö þess sem boóiö var upp á.“ „Heimsókn í Lúx" Oft var ekki hægt að sannreyna hvort fylgiskjöl tengdust bankanum „eöa hvort um vœri aö rœöa útgjöld sem eru honum í raun óviökomandi." Einn ótrúlegasti kaflinn ef Laugardagspistill Össur Skarpháðinsson rítstjórí laxveiðamar em taldar frá fjallar um ferðir bankastjóranna til útlanda. í mörgum tilvikum em tilefnin einfaldlega sögð „banka- heimsóknir“ eða „heimsókn í Lúx“ eða tilefnið skýrt með orðunum „rcett viö nokkra banka" eöa „rœtt viö nokkra viöskiptamenn LÍ.“ Bankaráðið Fjórir núverandi bankaráðs- manna sátu í ráðinu á þeim tíma sem skýrslan nær yfir. Þáverandi formaður, Kjartan Gunnarsson, er óbreyttur ráðsmaður í dag. Er ábyrgð þeirra engin?. Það vekur athygli að umsjón meö bókhaldi vegna risnu bankans var seint á síðasta ári tekin undan fjárhagsdeild bankans og sett beint undir bankastjórana þrjá. Hluti umdeildra útgjalda hefur því ekki farið gegnum hefðbundið bókhald bankans. Endurgreiðslur á útlögðum kostnaði bankastjór- anna fóru ekki heldur um hefð- bundið greiðslukerfi bankans. í fljótu bragði virðist sem hér hafi verið sett upp einkar þægilegt kerfi sem skaut óþægilegum reikningum undan vökulu auga fjárhagsdeildarinnar. Vissi bankaráðið ekki um þetta? í skýrslu Rikisendurskoðunar segir svart á hvítu að yfirmaður deildarinnar sem fór með innra eftirlit bankans sé ráðinn af bankaráðinu og heyri beint undir það. Hafi bankaráðið ekki vitað um þessa sérkennilegu bókhaldsað- ferð á sérmálum bankastjóranna er erfitt að komast hjá þeirri ályktun að ráðið hafi vanrækt eftirlitsskyldu sína. Bankaráðið samþykkti árlega fjárhagsáætlun þar sem gert var ráð fyrir háum upphæðum í risnu. Er hugsanlegt að það hafi gert slíkt ár eftir ár án þess að skyggnast nokkru sinni eftir því hvemig risnufénu var varið? Bankaráðið getur ekki skotiö sér undan ábyrgð með því að segjast ekki hafa vitað. Það átti að vita! Ríkisendurskoðun Staða Ríkisendurskoðunar í málinu er undarlega þverstæðu- kennd. Samkvæmt lögum á hún að endurskoða reikninga bank- ans. Þverstæðan felst í eftirfarandi: Skýrsla hennar er áfellisdómur yfir sömu reikningum og hún var áður búin að árita athugasemda- laust! Hún hefur því augljóslega bmgðist eftirlitsskyldu sinni. Trúverðugleiki hennar hefur einnig laskast í umfjöllun um skýrsluna. Bankaráðið túlkar skýrsluna með svofelldum hætti í greinargerð sinni: „/ lok greinargeróar Ríkisendur- skoöunar kemur fram sú afdráttarlausa skoöun aö banka- ráð Landsbanka íslands hafi rœkt hlutverk sitt sem eftirlitsaöili meö fullkomlega eölilegum hœtti..." Þetta er hins vegar rangt. Þetta er hvergi hægt að lesa í skýrslunni. Þegar Sjónvarpið kannaði hverju þetta sætti lét ríkisendurskoðandi hafa eftir sér að hann gerði ekki athugasemd við þá túlkun! Sé svo, hvers vegna skrifaði hann það ekki í skýrsluna? Skýringar vantar Ríkisendurskoðun heyrir undir Alþingi. Heiður hennar varðar því heiður Alþingis og störf embættisins þurfa því að vera hafin yfir vafa. Þess vegna þarf nú Ríkis- endurskoðun að skýra þrennt gagnvart Alþingi og þjóðinni: í fyrsta lagi, með hvaða hætti hún kannaði sérstaklega hvemig bankaráðið rækti eftirlitsskyldu sína? í öðru lagi hvaða hluti skýrslunnar réttlætir yfirlýsingu ríkisendurskoðanda? í þriðja lagi hvort stofnunin sjálf getur firrt sig ábyrgð af stöðunni sem upp er komin í bankanum? Eftir þessum svömm verður áreiðanlega gengið af Alþingi, fjölmiðlum og þjóðinni sjálfri. Fáist þau ekki er skýrsla Ríkisendurskoðunar í raun áfellisdómur yfir embættinu sjálfú.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.